Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 21.01.1955, Síða 3

Verkamaðurinn - 21.01.1955, Síða 3
Föstudaginn 21. janúar 1955 VERKAMAÐURINN 3 DAVIÐ frá Fagraskógi sextugur 1|/IAÐURINN, sem hefur gert meira fyrir akureyrska menn ing en Kea og glatt hefur og huggað íslenzk alþýðuhjörtu meira en allir prestar þjóðkirkj- unnar til samans, verður í dag sextíu ára. Reykjavík varð í þetta sinn fyrri til en bærinn hans að heiðra hann með því að bjóða honum til sín og sæma hann þar í borg á marga vegu. Vangá og tregða hafa að einhverju vald- ið hér um, að Akureyri áttaði sig ekki á því nógu snemma, að henni bar fyrst að hylla Davíð skáld, því fátæklegri hefði bær- inn verið síðastliðin þrjátíu og fimm ár, ef höfuðskáld Norðlend- inga hefði ekki setið hér og ort um bæinn og fólkið og Norður- land. Davíð hefur sótt mörg yrkisefni sín í þennan bæ. Hér hefur hefur hrifizt og hryggzt og glaðzt. Hér hefur hann þurft að vera, hér er hann rótgróinn, og hann er þarfari bænum en kaup- félagsvald og margt af hinu ráð- andi „fína fólki“. í stað sálnakúg- unar er hann einna örveitulastur manna á Norðurlandi á hjarta- auð og mannúðarhugsjónir. Hér á Akureyri hefur Davíð alltaf skipað sér í sveit þeirra, sem hafa skorað margvíslegan uppskafningshátt, — lífslygar borgaralegs lífs á hólm. Hann er sveitamaður í húð og hár, er gæddur reynslu heimsmannsins, förusveinsins. Þess vegna togast heilbrigði sveitamannsins á við lífsreynslu heimsmannsins, og stundum eiga þessir ólíku þættir samleið í verkum hans, einkum í munaðar- og ástarljóðum hans. Og alltaf eru sveitamaðurinn og heimsmaðurinn í honum í upp- reisn gegn ýmiss konar smá- smuguhætti í mannanna fari. Andi Davíðs fær oft betri hljómgrunn meðal þeirra, sem ljúga minnst, hinnar flekklausu og óbrotnu íslenzku alþýðu til sjávar og sveita, fólksins, sem vantar „fínu“ titlana. Á hinn bóginn blasir við glæsileki heimsmannsins, sem er reistur á andlegri fyrirmennsku, islenzk- um sveitarhöfðingsskap og djarf- mannleik, reisninni yfir persónu- leiknum, þessu, sem hefur verið ræktað gegnum margar kynslóð- ir: Hetjulundinni og karl- mennskunni. Og þá er komið að því, sem einkennir Davíð framar öðrum íslenzkum skáldum og listamönnum, sem nú lifa. Hann tekur karlmannlega til orða víð- ast hvar í ljóðum sínum — hann er náttúrumikið skáld, geðríkt skáld, sem yrkir af sterkum hvöt- um. Hann er skáld lífsnautnar. óbrotna lífi, lífi þjóðarsálar. Á einum stað segir Davíð: „Hirtu hvorki um lof né last / né lyg- innar streymandi iðukast. / Vertu heill, — ekki hálfur, / Bliknaðu ekki, þótt blási hvasst, og bregðist þér heilar álfur, / en knýðu vængina og flugið fast, / og fljúgðu til himins sjálfur.“ Skáld- ið er þannig — frjáls og heill andi, óháður jarðnesku valdi, talar út frá hjartanu, óspilltur í rót: Það er gróandi í ljóðum hans, frjór jarðvegur eins og vel ræktað sveitatún, andstæða við asfalt- götur borgarinnar ellegar upp- þornun. Töfrar íslenzkrar náttúru og sveitafegurðar stafa frá verk- um hans. Mörg ljóðin eru lof- söngur til hins upprunalega lífs. Davíð er algert náttúrunnar bam — og þess vegna lifir hann mjög lengi sem skáld. Frá hinu feg- ursta, sem hann hefur gert, „legg- ur loga bjarta frá hjarta til hjarta“, eins og segir í kvæði hans. Samfara þessu óspillta hjarta- lagi hefur hann af hugsjón jafn- aðarlega skipað sér í fylkingar- brjóst með þeim, sem berjast gegn fariseahætti — og þá er skemmst að minnast kvæðis hans, „Líkið í fjörunni“, þar sem hann varpar fram ógurlegum sannleik, beint í fangið á lesara: Þar sem hann flettir ofan af sálarmorð- ingjimum, þeim, sem beinum og óbeinum aðferðum svipta ein- staklinga lífi, þeim, sem af skiln- ingsleysi og heimsku troða skóinn ofan af náunganum. Davíð Stefánsson er mannúð- arinnar skáld. Skilningur hans á striti fátækrar alþýðu er ótví- ræður. Og þá kemur manni í hug ljóðið „Konan, sem kyndir ofn- inn minn“. í því kvæði felst heit samúð og virðing hans fyrir þeim óvenjulegu mannkostum alþýðu- konunnar, að varðveita hjarta- gæði og göfgi gegnum sorgir og last og aðkast. Og þar kemur fram Skýrt eins og víða annars staðar í verkum hans, að Davíð tekur fegurð sálar fram yfir um- búðirnar, sem hún er hjúpuð. Þess vegna er Davíð elskaður af fólkinu að verðleikum. Við þessi tímaskipti Davíðs, ‘ber íslenzk þjóð honum kveðjur og þökk fyrir söngvana, sem hann hefur gefið mörgum hjört- um fólks allra stétta. Hótel Goðafoss, 20. janúar 1955. Steingrímur Sigurðsson. - Bók Brynjólfs Bjarnasonar (Framhald af 2. siðu). ákveðinnar framvindu.“ Þetta voru lokaorð bókarinnar. Við þökkum fyrir bókina og hefðum óskað þess, að hún væri lengri og gerði fleirum vanda- málum skil. E. R. A. Mér er vel ljóst, hversu miklum vandkvæðum er bundið að gera stutt yfirlit um efni bókar Bryn- jólfs á þennan hátt. Ef til vill hef eg sloppið fram hjá rangtúlkun, en alls ekki fram hjá vantúlkun. Og tilgangurinn er ekki að túlka hana, heldur vekja áhuga á því efni, sem hún hefur að flytja. Hafi mér tekizt það, er tilganginum náð. Með samning þessarar bókar hefur Brynjólfur leyst af hendi merkilegt fræðistarf mitt í önn erlisamrar stjómmálabaráttu. — Skráning atvinnulausra manna og kvenna, lögum samkvæmt, fer fram á skrifstofu Akureyrarbæjar dagana 1., 2. og 3. fe- febrúar næstkomandi kl. 1—5 e. h. BÆJARSTJÓRI. i SKJALDBORGARBÍÓ Sími 1073 7 kvöld kl. 9: Sagan af GLENN MILLER (The Glenn Millers Story) Amerísk stórmynd í litum. Þriðja mest sótta myndin í Bandaríkjunum og Canada árið 1954. Honum svellur hugur í brjósti, og hann talar ekki á rósamáli um hið sanna í því efni. Ljóð hans um ástina eru umbúðalaus eins og ástin er sjálf í eðli sínu. Hún er óviðráðanleg kennd og lýtur eng- um lögum og kemur til dyranna eins og hún er klædd. Og þannig er Davíð sjálfur. Hann er „ekta“, og slíkt er fátítt um marga lista- menn, því að þeim hættir til að hneigjast í þær áttir, sem vita langt burt frá hinu sanna og TILKYNNING frá Almennatryggingum — Akureyrarumboði, Kaup- vangsstræti 4. — Afgreiðslutími 10-12 og 2-5 (laugard. 10-12). Greiðslur elli og örorkulífeyris hefjast 20. janúar, aðr- ar bótagreiðslur 26. janúar. AKUREYR ARU MBOÐ Kvöldvaka Sósíalistafélagsins verður í Ásgarði í kvöld, föstudag, ef rafmagnsskömmt- uninni verður þá lokið. — Til skemmtunar verður: Spumingaþáttur (JÁ og NEI). — Upplestur og fleira. Félagar, fjölmennir og takið gesti með. NEFNDIN. H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. AÐALFUNDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar- daginn 11. júní 1955 og hefst kl. 1,30 e. h. DAGSKRÁ : I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggi fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1954 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end- urskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga, samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. * Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 7.-9. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félags- ins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá- setningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 1. júní 1955. Reykjavík, 10. janúar 1955. STJÓRNIN. AUGLÝSING um gjalddaga útsvara í Akureyrarkaupstað Samkvæmt heimild í lögum um útsvör, hefur bæj- arstjórn Akureyrar ákveðið, að útsvör í Akureyrar- kaupstað skuli greiðast eftir þessum reglum: a. Með fjórum jöfnum greiðslum, er falla í gjald- daga 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní næstk. innheimtist til greiðslu, upp í útsvar yfirstand- andi árs hjá hverjum gjaldanda, f járhæð jafnhá helmingi þess útsvars, sem honum bar að greiða næstliðið ár. b. Álagt útsvar við aðalniðurjöfnun, að frádregnu því, sem greiða ber samkvæmt a-lið, ber gjald- anda að greiða með f jórum jöfnum greiðslum, 1. ágúst, 1. september, 1. okt. og 1. nóv. c. Allar greiðslur skulu inntar af höndum í heil- um tug króna. d. Vangreiðsla á útsvarshluta, samkvæmt þessum reglum, veldur því að allt útsvar gjaldandans á gjaldárinu, fellur í eindaga, 15 dögum eftir gjalddagann, þó ekki fyrr en 15. næsta mánaðar eftir að niðurjöfnun er lokið. Akureyri, 18. janúar 1955. BÆJARSTJÓRI.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.