Verkamaðurinn - 21.12.1956, Blaðsíða 1
VEHKnmnÐuninn
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 21. desember 1956
43. tbl,
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar.
Ábyrgðarm.: Þorst Jónatausson.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Tillögur ríkissljórnarinnar í efnahags> og
framleiðslumálum
240 milljóna álögur til styrktar atvinnuveg-
unum og til verklegra framkvæmda
Söluskattur í smásölu felldur niður, lækkuð
álagning milliliða, stóreignaskattur, lækkaður
tekjuskattur, fullkomin verðgæzla, ný húsa-
leigulög og ný bankalög
Skattheimtan.
Niðurstaðan af rannsóknum
ríkisstjórnarinnar á efnahags-
málunum og afkomu atvinnuveg
anna hefur orðið sú, að nauðsyn-
legt væri að tryggja 240 millj. kr.
nýjar tekjur til þess að unnt
væri að tryggja atvinnuöryggi í
landinu og framkvæmdir við
nauðsynlegar, verklegar fram-
kvæmdir í þágu atvinnuveganna.
Þessa fjár er gert ráð fyrir að
afla að nokkru leyti með almenn-
um neyzlusköttum á innfluttar
vörur, mismunandi háum eftir
því, hversu nauðsynlegar vörurn
ar telast, og er lægst álag á þær
vörur, sem öllum eru óhjá-
kvæmilegar, og á 36% innflutn-
ingsins kemur ekkert álag. Að
öðru leyti skiptist álagið þannig á
innfluttar vörur, að
10% innfl. ber 8% gjald
34% innfl. ber 11% gjald
4% innfl. ber 35% gjald
11% innfl. ber 55% gjald
1% innfl. ber 70% gjald
4% innfl. ber 80% gjald
Á innlendar framleiðsluvörur
og þjónustu verður lagt sérstakt
gjald og hækkaður tollur af inn-
lendum tollvörutegundum. Er
áætlað að fá inn á þennan hátt
um 25 millj. kr.
Á þær gjaldeyrisgreiðslur til
útlanda, sem ekki fara til vöru-
kaupa, verður lagt sérstakt gjald,
sem áætlað er 31 millj. kr. Þessi
gjaldeyrisnotkun, svonefndar
duldar greiðslur, hefur á undan-
förnum árum numið 3—400 millj
kr., en það eru m. a. vextir og af
borganir af lánum og kostnaður
vegna skipa og flugvéla erlendis
Þá á enn að hækka leyfisgjald
af bifreiðum, og á það nú að
nema 160% og álag á ferðagjald-
eyri á að hækka úr 25% í 60%
Er áætlað, að þessir tveir liðir
skili 12 millj. kr. auknum tekjum,
Þá verða bankamir skattlagðir
um ca. 10 milljónir, og loks verð
ur lagður á stóreignaskattur, sem
gert er ráð fyrir að gefi um 80
milljónir, en ekki er þó áætlað,
að af því fé komi inn á þessu ári
nema 15 millj. kr.
Hvemig verður tekjunum
ráðstafað?
inguna og okrið, sem að undan-
förnu hefur viðgengizt. Jafnframt
á að koma á fullkomnu verðlags-
eftirliti, og er því heitið, að það
verði byggt upp í samráði við
verkalýðssamtökin og önnur
samtök neytenda. Er ákveðið, að
nú skuli breytt um álagningar-
reglur, þaimig, að ekki verði lagt
á skattaupphæðir þær, sem leggj-
ast á vörurnar, og það verði ekki
verzlununum til hagsbóta, að
vöruverðið sé sem hæst. Verður
þannig hin gamla og illræmda
prósentuálagning numin burtu að
meira eða minna leyti, og er það
veL
Þá verður og óheimilt að hækka
nokkrar vörur eða þjónustu
nema samþykki innflutningsskrif
Hin auknu gjöld, sem lögð eru
á þjóðina verða hagnýtt sem hér| stofunnar komi til hverju sinni.
segir:
Aukin útgjöld vegna bátaút-
vegsins ca. 38 millj.
Aukin útgjöld vegna togara- ]
flotans ca. 38 millj.
Aukin útgjöld vegna fiskverk- j
unarstöðva 9,5 millj.
Vegna skuldar framleiðslusjóðs]
frá yfirstandandi ári 21 millj.
Vegna verðhækkunar á olíu og|
Lækkaður tekjuskattur.
Jafnhliða hinum nýju álögum
verður tekjuskattur lækkaður
um þriðjung á lágtekjum og tek-
ur lækkunin til hjóna, sem hafa
allt að 45 þús. kr. hreinar tekjur,
og einstaklinga, sem hafa allt að
35 þús. hreinar tekjur. Kemur
þessi 'liður til með að hafa veru
bátagjaldeyriskerfinu I lega þýðingu fyrir láglaunafólk.
yfirtöku á
37,5 millj.
Samtals vegna sjávarútvegsins
144.3 millj.
Aukin greiðsla vegna útflutn-
ings á landbúnaðarafurðum ca. 20
millj.
Samtals vegna framleiðslunnar
164.3 millj.
Þá er gert ráð fyrir að afla rík
issjóði aukinna tekna, m. a. vegna
niðurgreiðslu á sex vísitölustig-
um, sem ekki komu til fram-
kvæmda í hækkuðu landbúnaðar
verði sl. haust (samtals 24 millj.)
og vegna ýmissa verklegra fram-
kvæmda, atvinnujöfnunar o. fl.
samtals ca. 75 millj.
Alls 239,3 millj.
Einfaldari aðferð.
Þessi nýja skattheimta verður
nokkuð einfaldari en verið hefur
og þægilegri í vöfum, því að
bátagjaldeyriskerfið verður lagt
niður um leið og hinn nýji gjald
eyrisskattur kemur til fram-
kvæmda eða um áramótin. Ætti
það að verða mikilsverð hagsbót
fyrir bátaútveginn að fá nú upp-
bætur sínar greiddar beint frá
ríkissjóði jafnóðum, en þurfa ekki
að bíða mánuðum saman og jafn-
vel árum saman eftir því að báta-
gjaldeyririnn seljist.
Þá verður einnig felldur niður
söluskattur í smásölu.
Hámarksálagning.
Verðlagseftirlit.
Eitt mikilverðasta atriðið fyrir
allan almenning er það, að ríkis-
stjómin hefur heitið því að setja
hámarksálagningu á vörur og
lækka verulega milhliðaálagn
Húsnæðismál.
Þá hefur ríkisstjórnin heitið
því að hefja margháttaðar að-
gerðir í húsnæðismálum bæj-
anna og verða sett ný húsaleigu-
lög til að freista þess að draga
eitthvað úr því takmarkalausa
húsaleiguokri, sem nú viðgengst
í Reykjavík og víðar. Einnig vinn
ur stjórnin nú að því að afla
stóraukins fjár til húsabygginga,
og hefur m. a. lofað, að bygg-
ingasjóði verkamanna verði
tryggt mikið aukið fé. Mun fyrir-
huguð stór lántaka í sambandi
við þessi mál og einnig á að verja
fé því, sem aflast með stóreigna-
skattinum til úrbóta í húsnæðis-
málum.
Afurðasalan. Bankamir.
Þá hefur stjórnin samið frum-
varp um endurskipulagningu út-
flutningsverzlunar, þar sem hún
er tekin úr höndum einqkunar-
hringanna, sem hafa haft hana að
undanförnu.
Ennfremur á að endurskipu-
leggja bankamál þjóðarinnar,
þannig að ríkið fái ráðið lána-
stefnu bankanna, en eins og nú
standa sakir eru bæði Lands-
bankinn og Utvegsbankinn rekn-
ir sem eins konar einkafyrirtæki
íhaldsins, og þá alveg sérstaklega
Thorsættarinnar og bankastarf-
semin rekin þveröfugt við hags-
muni almennings og í beinni and-
stöðu við stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. Sjá allir í hendi sér, að slíkt
getur ekki gengið og er aðkall-
andi nauðsyn, að stefnu bank-
anna verði breytt hið fyrsta.
Kaupgreiðslur. Vísitalan.
Kaupgreiðslur launþega eiga
samkvæmt frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar að breytast eftir vísitölu,
eins og gert er ráð fyrir í samn-
ingum allra verkalýðsfélaga, að
iví undanskildu, að niður falla
iau sex stig, sem fallið var frá í
haust, þegar ákveðið var, að
landbúnaðarvörur skyldu ekki
hækka. Jafnframt er því heitið,
að reiknuð verði út ný vísitala,
er gefi réttari hugmynd um nú-
verandi neyzlu en hin gamla, sem
löngu er orðin úrelt.
Þá er launþegum og atvinnu-
rekendum að sjálfsögðu heimilt
að gera nýja kjarasamninga, svo
sem verið hefur.
Samkomulag við stéttasamtökin.
Hér hefur að framan verði gerð
grein fyrir aðalatriðunum í hin'
um nýju tillögum ríkisstjómar-
innar, sem hún hefur lagt fyrir
Alþingi og það hefur nú til með-
ferðar, en rúmsins vegna og þess,
að blaðinu hafa enn ekki borizt
þessar tillögur allar, eins og þær
liggja fyrir, er ekki hægt að rekja
þær nánar að þessu sinni.
Svo sem getið var í síðasta
blaði fjallaði efnahagsmálanefnd
og stjórn Alþýðusambands ís
lands um tillögurnar áður en þær
voru lagðar fram, og er birt hér á
eftir yfirlýsing, sem fulltrúar
verkalýðssamtakanna þar gerðu
um afstöðu sína til tillagnanna.
Einnig varð samkomulag um til-
lögurnar milli Stéttarsambands
bænda og ríkisstjórnarinnar og
samkomulag milli fulltrúa Lands
sambands íslenzkra útvegsmanna
og ríkisstjórnarinnar um rekstr-
argrundvöll útgerðarinnar, svo að
tryggt er, að ekki verður nein
framleiðslustöðvun nú um ára-
mótin, svo sem tíðkaðist á tímum
íhaldsstjórnarinnar.
Yfirlýsing miðstjómar ASÍ og
efnahagsmálanefndar
Aiþýðusambandsins.
„Miðstjórn Alþýðusambands
íslands og efnahagsnefnd sú, er
síðasta þing ASÍ kaus, hafa átt
þess kost að kynna sér og hafa
áhrif á ráðstafanir þær er ríkis-
stjórnin nú hyggst gera í efna-
hagsmálunum til þess að tryggja
áframhaldandi rekstur fram-
leiðsluatvinnuveganna og nauð-
synlegar, verklegar framkvæmd-
ir. Jafnframt hefur miðstjórnin
og efnahagsmálanefndin gengið
úr skugga um þá staðreynd, að
efnahagsmál þjóðarinnar voru
komin í slíkt öngþveiti þegar nú-
verandi ríkisstjórn tók við völd-
um, að fyrirsjáanleg var stöðvun
framleiðsluatvinnuveganna um
næstkomandi áramót, ef ekki yrði
gengið til róttækra ráðstafana.
Með hliðsjón af þessu er mið-
stjórn og efnahagsmálanefnd
ljóst, að óhjákvæmilegt er að
gera ráðstafanir til þess að
tryggja atvinnuöryggi og leggja
grundvöll að varanlegum kjara-
bótum vinnandi fólks í framtíð-
inni. Jafnframt leggur miðstjórn-
in og efnahagsmálanefnd ASÍ
áherzlu á nauðsyn þess, að ráð-
stöfunum þeim, sem ríkisstjórnin
hefur heitið að gera til þess að
koma í veg fyrir ónauðsynlegar
verðhækkanir, draga úr milliliða
gróða og stuðla að auðjöfnun
meðal þegnaxma, verði fylgt eftir
af fullri röggsemi.
í trausti þess að vel takist með
framkvæmd þessarra ráðstafana
og með tilliti til þess höfuðmark-
miðs, að tryggja næga atvinnu,
telur miðstjórnin og efnahags-
málanefndin að veita beri núver-
andi ríkisstjóm starfsfrið þar til
úr því fæst skorið hvernig fram-
kvæmdin tekst.“
Gjildskrá hafnarinnar
Fyrir bæjarstjórn liggja nú til- hafnargjaldanna geta ekki haft
lögur til breytinga á hafnarreglu- ; það í för með sér, að vöruflutn-
gerð bæjarins, sem einkum genga
út á það að hækka hafnargjöldin,
og það allverulega í flestum til-
fellum. Tillögur þessar eru
komnar frá hafnarnefnd.
Blaðið hefur ekki haft tækifæri
til að bera gjaldskrána saman við
það, sem tíðkast annars staðar á
landinu, en er þó nær að halda,
að hafnargjöld hér séu nú ekki
lægri en almennt gerist, og virð-
ist þá mjög varhugavert að
spenna bogann hærra.
Það skal ekki dregið í efa, að
höfnin hefði full not fyrir meiri
tekjur, en ekki má einblína á það.
Bæjarstjórn verður að gera sér
ljóst, að hafnargjöldin koma fram
á vöruverðinu, og hún verður
einnig að taka þá hlið málsins til
greina. Og einnig er vert að at-
huga, hvort miklar hækkanir
ingar með bifreiðum aukizt enn
frá því sem nú er, og engar tekj-
ur hefur höfnin af þeim vörum,
sem þannig eru fluttar .Þannig
gætu hækkuð vörugjöld orðið til
skaða fyrir höfnina, beint og
óbeint.
Þess ber því að vænta, að bæj-
arstjórn hugsi þessi mál öll
gaumgæfilega, áður en hún tek-
ur ákvörðun um hækkun gjald-
anna.
Engu skal hér um það spáð,
hvort hækkanir þær, sem hér eru
fyrirhugaðar, hlytu staðfestingu
ráðherra ef til kæmi. En var-
hugavert hlyti það að teljast og
miður heppilegt fordæmi, ef bær
og ríki gengju á undan um hækk
un almennrar þjónustu að nauð-
synjalausu, á sama tíma og verið
er að gera ráðstafanir til að halda
verðlaginu í landinu í skefjum.