Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.12.1957, Side 8

Verkamaðurinn - 20.12.1957, Side 8
r VERKAMAÐURINN Föstudaginn 20. desember Ný bæjarstjórn kosin 26. jan. Happdræfti Þjóðviljans Alþýðubandalagið hefur óskað eftir samningum milli vinstri flokkanna um stjórn bæjarmálefna Bæjarstjórnarkosningar í kaup- stöðunum og sveitarstjórnarkosn ingar í kauptúnum með yfír 300 íbúa eiga að fara fram síðasta sunnudag í janúar næstkomandi, eins og flestum mun kunnugt. Hér á Akureyri hefur kosn- ingaundirbúningur ekki verið áberandi til þessa og enginn hiti kominn í kosningabardagann ennþá. Allir flokkar munu þó vera komnir nokkuð áleiðis í undirbúningi og framboðslistar verða lagðir fram milli jóla og nýárs eða fyrstu daga næsta árs, en framboðsfrestur rennur út 4 janúar. Vinstra samstarf. Mikið hefur verið um það rætt manna á meðal og innan allra flokkanna, sem standa að núver- anid rfkisstjórn, að æskilegt væri, að þeir stæðu einnig saman að stjórn bæjarfélaganna, þar sem þeir hefðu sameiginlega meiri- hluta, en það mun vera í öllum kaupstöðunum nema Reykjavík. Eðlilegast virðist, að þessir flokkar bjóði fram sameiginlega á sem flestum stöðum, til þess að verða sem sterkastir gegn íhald- inu, yrði þá á hverjum stað gerð- ur málefnasamningur milli flokkanna um meðferð bæjar- mála og stjórn bæjarfélaganna næsta kjörtímabil. í flestum eða kannski öllum kaupstöðunum hafa möguleikar fyrir slíku samstarfi verið kann- aðir nokkuð og viðræður farið fram milli flokkanna. í sumum kaupstaðanna hafa samningar farið út um þúfur, en víðar hafa þeir þegar verið gerðir eða góðar vonir eru til að þeir náist. Sums staðar, þar á meðal hér á Akur- eyri, eru viðræður flokkanna enn á því stigi, að ekki er unnt að segja, hver útkoman verður. Alþýðubandalagið skrifaði Al- þýðuflokknum og Framsóknar- flokknum bréf hinn 11. nóv. sL, þar sem óskað var eftir viðræð- um og samningum um það fyrir áugum, að flokkarnir biðu fram sameiginlega. Fer meginhluti þessa bréfs hér á eftir: Bréf Alþýðubandalagsins. „Á fundi héraðsnefndar Al- þýðubandalagsins á Akureyri sl. sunnudag var einróma samþykkt að skrifa Alþýðuflokksfélagi Ak- ureyrar og Framsóknarfélagi Ak ureyrar með það fyrir augum, að hið fyrstu yrðu teknir upp samn- ingar milli þessarra þriggja aðila, Alþýðubandalagsins, Alþýðu- flokksins og Framsóknarflokks- ins, um samvinnu í næstu bæjar- stjórnarkosningum og um stjórn kaupstaðarins næsta kjörtímabil. Alþýðubandalaginu er það ljóst, að meðal kjósenda allra framan- greindra aðila er mjög mikill áhugi fyrir slíkri samvinnu, sem hér um ræðir, og óumdeilanlegt er, að ákveðinn meirihluti vinstri flokkanna í bæjarstjórn, sem þannig fengist, hefði beztu fáan- lega aðstöðu til að stjóma málum bæjarfélagsins á farsælan hátt og leysa þau vandamál, sem mest kalla að á næstunni, svo sem mál efni togaraútgerðarinnar. Það er einnig óumdeilanlegt, að það myndi hafa heilladrjúg áhrif um framtíð vinstri ríkisstjómar í 'landinu, ef vinstri flokkamir kæmu sem víðast frám samein- aðir í bæjarstjórnarkosningunum. Ef vinstri flokkarnir hins vegar bjóða fram hver fyrir sig og heyja harðvítuga kosningabar- áttu sín í milli mun það aðeins verða vatn á myllu íhaldsins. Það er því eindregin von Al- þýðubandalagsins, að félag yðar sé reiðubúið til að taka þátt í samningaviðræðum með framan- skráð markmið fyrir augum, þ. e. bandalag vinstri flokkanna í bæjarstjórnarkosningunum. Vér væntum, að þér tilkynnið oss við fyrstu hentugleika, hve- nær samningaviðræður geta haf- izt af yðar hálfu eða, hverjum þér felið, að annast þær viðræð- Viðræður. Eftir að hinir flokkarnir höfðu rætt efni þessa bréfs og viðhorf sín í því sambandi, svöruðu þeir báðir jákvætt og tilnefndu menn til imdirbúningsviðræðna. Síðan héldu nefndir flokkanna einn fund hinn 10. þ. m., og varð ekki annað séð, en ákveðinn sam komulagsvilji væri fyrir hendi frá allra hálfu. Hins vegar kom það fram, bæði hjá fulltrúum Framsóknarflokksins og Alþýðu- flokksins, að þeir væru andvígir samstillingu, sameiginlegum fram boðslista allra flokkanna, en vildu, að gerður yrði málefna- samningur milli flokkanna og samið um, hver yrði bæjarstjóra- efni vinstri flokkanna. Fulltrúar Alþýðubandalagsins töldu hins vegar æskilegra, að flokkarnir hefðu sameiginlegan framboðs- lista, vegna þess að með því móti notuðust atkvæðin mun betur. — Samt sem áður mun Alþýðu- bandalagið vel sætta sig við þá lausn, að hver flokkur bjóði fram fyrir sig, en ákveðið verði sam- starf flokkanna um stjórn bæjar- félagsins næsta kjörtímabil og samið fyrir kosningar um fram- kvæmdir í þýðingarmestu málum bæjarfélagsins. Eins og sakir standa nú mun því mega slá því föstu, að ekkert verði úr sameiginlegu framboði, en verulegar líkur verður að telja fyrir því, að flokkunum tak- izt að semja sín í milli að öðru leyti. Það er ekki vafamál, að ef slíkir samningar takast, yrði það mjög heppilegt fyrir bæjarfélag- ið, þannig yrði myndaður ákveð- inn meirihluti í bæjarstjórn í stað þess, að enginn ábyrgur meirihluti hefur verið til síðasta kjörtímabil og ýmis mál þess vegna tekin lausari tökum en ella mundi. Stefnuskrá og listi Alþýðubandalagsins. Undirbúningur kosninganna stendur að öðru leyti þannig hjá Alþýðubandalaginu, að þegar hef -ur að mestu verið gengið frá bæjarmálastefnuskrá þess og verið er að vinna að skipun framboðslista, en endanleg ákvörðun um skipun hans verður ekk i tekin fyrr en eftir jól. Ennfremur hefur verið ákveð- ið, að kosningaskrifstofa verði opnuð milli jóla og nýárs og verður hún til húsa í Ásgarði. — Þórir Daníelsson hefur verið ráðinn til að veita skrifstofunni forstöðu. Bæjarmálastefnuskrá Alþýðu- bandalagsins og framboðslisti þess við bæjarstjórnarkosning- arnar verður væntanlega birt í fyrsta blaði Verkamannsins eftir áramót. Nú eru síðustu forvöð að kaupa miða. DREGIÐ Á ÞORLÁKSDAG Hver eignast þá nýjan FÍAT Nokkur eintök af ljóðabók RÓSBERGS í Tjarnarskarði árituð og tölusett, fást í Bókabúð RIKKU ORÐSENDING til húsráðenda og hús- mæðra frá BRUNABÓTAFÉLAGI ÍSLANDS Farið varlega með eldinn. Jólatrén eru bráðeldfim. Ef kviknar í jólatré, þá kæf- ið eldinn með því að breiða yfir hann. Setjið ekki kerta- ljós í glugga eða aðra staði, þar sem kviknað getur í gluggatjöldum eða fötum. BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANÐS Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! ÓSKUM SAMBANDSFÉLÖGUM VORUM OG ÍSLENZKRI ALÞÝÐU gleðilegra jóla og gœfuriks komandi árs Með þökk fyrir samstarfið á liðna árinu. ALÞÝDUSAMBAND ÍSLANDS

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.