Verkamaðurinn - 21.04.1961, Qupperneq 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudagur 21. apríl 1961
Innrás á Kúbu
Eins og kunnugt er hefur friðurinn á Kúbu verið rofinn.
Svívirðilegar loftárásir hafa verið gerðar á borgir landsins,
og ráðizt hefur verið inn í það af meginlandi Ameríku. Það
er engum vafa bundið, hverjir eru upphafsmenn þess harm-
leiks, sem nú er hafinn á hinni fögru eyju. Bandaríkjamenn
hafa marglýst því yfir, að þeir ætli að styðja menn Battista,
fyrrverandi einræðisherra Kúbu, til valda á eynni. Svo heit
er lýðrœðisást þeirra, og þannig er það frelsi, sem þeir æskja
þjóðunum í kringum sig. Þetta er líka ofur skiljanlegt í Ijósi
þeirrar staðreyndar, að einrœðisherrann tryggði bandarísk-
um auðhringum efnahagsleg yfirráð á Kúbu. Þeir áttu helztu
eignir á eynni, þeir réðu því, að ekkert var ræktað nema syk-
ur og tóbak, þeir áttu sykurhreinsanirnar, þeir hirtu arðinn
af striti eyjarskeggja. En landslýðurinn fylkti sér undir
merki Castros og byltingarmanna hans, og þannig tókst að
stökkva einræðisherranum úr landi, jörðinni var skipt milli
bænda, stórfyrirtæki og bankar voru þjóðnýtt. Slíkt kallar
bandaríkjastjórn ofbeldisverk, og hyggst nú gera þær ráð-
stafanir sem duga til að bœla niður kúbönsku þjóðina og
hræða aðrar þjóðir Mið- og Suður-Ameríku frá fordæmi
Kúbumanna. Vonandi er, að vaskleiki eyjarskeggja sjálfra
og stuðningur allra frjálslyndra og réttsýnna manna í heim-
inum við þjóðfrelsisbaráttu þeirra megni að hrinda þessarri
árás heimsveldissinnanna.
Myndin hér að ofan sýnir fund Kúbunefndarinnar í New
York, og er þar verið að mótmœla yfirgangi bandaríkja-
stjórnar gagnvart Kúbu. Myndin til hægri sýnir kúbanska
húsmóður, sem ekki ætlar að láta sinn hlut eftir liggja í bar-
áttu þjóðar sinnar.
•l'í
SÍÐUSTU FRÉTTIR herma, q3 Kúbumenn hafi veitt innrósariiðinu
verðugar viðtökur, og hafi þegar að mestu eða öllu rekið það af
höndum sér. Sýnir þessi útkoma glögglega, að þjóðin stendur vel
soman og ber fullt traust til flokks Castros.
Gleðilegt sumarí
Þökk fyrir veturinn.
Verilunin Drífa.
Gleðilegt sumar!
Þökk fyrir veturinn.
Hótel Akureyri.
Gleðilegt sumar!
Þökk fyrir veturinn.
Motur og kaffi.
Slippstöðin h.f
AKUREYRI
óskar öllum viðskiptavinum sínum
til lands og sjóvar
GLEÐILEGS SUMARS.
L
Sflmsöngar
Korlihlrs Ahureyrar
KARLAKÓR AKUREYRAR og
blandaður kór, undir stjórn Ás-
kels Jónssonar, heldur samsöng í
Samkomuhúsi bæjarins íöstudag-
inn 21. þ.m. kl. 8.30 og sunnudag-
inn 23. þ.m. kl. 8.30.
Samsöngur þessi verður með
nokkuð öðru sniði en verið hefur,
því hluta af söngskránni flytur
blandaður kór.
Söngskrá kórsins er allfjöl-
breytt að efni. Verða sungin lög
eftir innlenda og erlenda höfunda
og má þar nefna m. a. tvo þætti
úr óratóríunni Friður á jörðu eft-
ir Björgvin Guðmundsson.
Einsöngvarar verða þau Björg
Baldvinsdóttir, Eiríkur Stefáns-
son og Jóhann Konráðsson. Und-
irleik annast Guðmundur Jó-
hannsson.
8 prc. liækknn
á ríifmagfui
FYRIR dyrum stendur, að verð á
rafmagni í bænum hækki á næst-
unni. Samkvæmt tillögum raf-
veitustj órnar verður meðaltals-
hækkun sem næst 8%. Tillögur
þessar lágu fyrir síðasta hæjar-
stjórnarfundi og var vísað til 2.
umræðu. Hækkanir þessar stafa
af auknum útgjöldum vegna efn-
iskaupa. Erlent efni er stór liður
í útgjöldum rafveitunnar og við-
reisnin hefur hækkað það stórum
í verði eins og aðrar vörur. Þessa
hækkun má því einvörðungu
þakka viðreisninni sælu. Áhrif
hennar eru margvísleg, en öll á
sörnu hókina lærð. Og þetta er
fyrsta verðhækkunin á rafmagn-
inu hér en ekki sú síðasta af við-
reisnarvöldum. Þakkað veri íhaldi
og krötum.
\m
I V I I I 1 * I I I
WV’
-n
» I »1
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 23. þ.m. kl. 2
e.h. — Sálmar nr. 511, 512, 219,
322, 201. — B. S.
Frá Sjálfsbjörg. Fræðslu- og
skemmtifundur verður haldinn
sunnudaginn 23. þ.m. kl. 2 e.h. að
Bjargi. — Stjórnin.
Tryggvi Þorsteinsson, yfirkenn-
ari, Munkaþverárstræti 5, verður
fimmtugur nk. mánudag, 24. apríl.
Iðnskólanum á Akureyri verð-
ur slitið mánudaginn 24. þ.m. kl.
8.30 síðdegis (í Húsmæðraskólan-
um). Sýning á teikningum nem-
enda verður sunnudaginn 30.
apríl kl. 1-7 síðd. (á sama stað).
Árdagsroði fegrar fjöEI,
folla stoðir isa.
Vorið boðar okkur öll,
undan voð skal rísa.
GLEÐILEGT SUMAR!
Skyggnilýsingar hefur frú Lára
Ágústsdóttir í Alþýðuhúsinu nk.
sunnudag 23. þ.m. kl. 4 e.h. Að-
göngumiðar við innganginn.
Hjónaefni. Síðastliðinn laugar-
dag opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Jóna Baldvinsdóttir, afgr,-
mær og Bjarni Bjarnason, bif-
reiðastjóri.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband frk. Irene
Gook, kaupkona, Akureyri og
Guðvin Gunnlaugsson, kennari,
Akureyri.
Firmakeppni Skíðaráðs Akureyrar
fór fram í Hlíðarfjalli í gær, sum-
ardaginn fyrsta. Veður var óhag-
stætt, slydda og skyggni því slæmt,
sást ekki nema milli fimm-sex
hliða. Brautin grófst mjög er á
leið, og varð því erfið yngri kepp-
hæð 60 metrar. 30 keppendur
tóku þátt í mótinu, og fór hver
þeirra fjórar ferðir. Þátttaka fyr-
irtækja var mjög góð, og vill
Skíðaráð færa þeim og keppend-
um beztu þakkir. Mótsstjóri var
endunum. Hún var um það bil Hermann Sigtryggsson.
250 m á lengd, hlið voru 40, fall- Urslit urðu sem hér segir:
Vinnust. Bólstruð húsgögn hf. . . Magnús Ingólfsson . 36.8 sek
Útvegsbanki Islands hf Sami 37.1 —
Utgerð Kr. P. Guðmundssonar . . Guðmundur Tulinius . 37.2 —
Skinnaverksmiðjan Iðunn Bragi Hjartarson . . 37.3 —
Iþróttahúsið Hörður Þórleifsson . . 37.5 —
Eimskipafélag Islands hf Hákon Ólafsson .... 38.0 —
Fyrsta og öðrum bezta brautar-
tíma náði Hákon Olafsson, 38.0
og 39.1 sek. Þriðja bezta brautar-
tíma náði Bragi Hjartarson, 39.3
sek., og fjórða bezta Hörður Þór-
leifsson, 39.5 sek. Beztan tíma
samanlagt úr öllum ferðunum
höfðu Hörður Þórleifsson 173.2
sek. og Bragi Hjartars. 174.4 sek.
Heildarúrslit verða birt í sýn-
ingarglugga Halldórs Ólafssonar
úrsmiðs einhvern næstu daga.
VERZLUN B. LAXDAL
NYJAR VORUR: KAPUR, HATTAR, BLUSSUR OG
ÚRVAL AF BUXUM.
Gleðilegt sumar. — Þukk fyrir veturinn!
UTGERÐÁRFELAG AECUREYRINGA H. F.
óskar viðskiptavinum og storfsfólki öllu
til sjós og lands
gleðilegs sumars og þakkar fyrir veturinn!