Verkamaðurinn - 22.02.1963, Qupperneq 1
Verkamaðurinn
Fró Ólafsfirði.
Yngsti bœjarfulltrúinn
Er blaðamaður átti nýlega leið
í Ólafsfjörð, hitti hann m. a. að
máli bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins þar í kaupstað, Braga
Halldórsson, og átti við hann
eftirfarandi viðtal:
Þú ert sjálfsagt með yngstu
bæjarfulltrúunum á landinu. Hve-
n®r ert þú fæddur?
-— 25. apríl 1941.
Það hefur þá ekki mátt tæpara
standa, að þú hefðir aldur til að
vera í framboði við bæjarstjórn-
arkosningarnar.
— Nei, ef ég man rétt, undirrit-
aði ég leyfi til að nafn mitt yrði
sett á listann sama daginn og ég
varð tuttugu og eins árs.
Það hlýtur að vera einsdæmi,
°g nú tel ég ekki lengur vafa á,
að þú sért yngsti bæjarfulltrúi,
Sem nokkru sinni hefur uppi ver-
*ð í okkar landi. En hvernig fellur
Þér svo að starfa í bæjarstjórn-
inni?
— Ja, ég er nú nýliði og er fyrst
°g fremst að kynna mér málin
ennþá. Ég má heita alger lærling-
Ur á þessu sviði, og það verð ég
nu að segja, að æskilegt teldi ég,
að yngri menn væru látnir kynn-
ast þessu eitthvað fyrst, en ekki
settir í svona ábyrgðarstörf fyrir-
varalítið.
Mér skilst, að íhaldsmenn séu í
ttteirihluta í bæjarstjórninni hér.
^rt þú þá lærlingur hjá þeim?
— Nei, ég læri nú lítið af þeim.
ég er að reyna að kynna mér
^æjarmálin almennt í þeirri von,
®g geti síðar notað mér þann
'ærdóm til einhvers gagns.
Hverjar eru helzlu framkvæmd-
lr á vegum bæjarins um þessar
tnundir?
Að vetrarlagi eru hér litlar
amkvæmdir á vegum bæjarins.
sumar var það höfnin, sem helzt
^ar unnið við. Það var sett grjót-
^ylling norðan við hafnargarðinn
að treysta hann, og einnig var
unnið að viðgerð á bryggjunni,
sem skemmdist í hafrótinu haustið
1961. Mönnum varð það ljóst
þá, að ef garðurinn færi, væri
ekki aðeins bryggjan í hættu,
heldur hefði sjórinn gengið langt
á land.
Bragi Holldórsson.
Viitdl við Brogo Halldð
Svo er það hitaveitan. Norður-
landsborinn frægi var fyrst tek-
inn í notkun hér. Það voru bor-
aðar tvær holur. Árangurinn varð
ekki eins góður og vonazt hafði
verið eftir, en að vissu leyti varð
þó góður árangur, þar sem þarna
fást eitthvað rösklega 50 sekúndu-
lítrar af 54—56 gráðu heitu vatni,
og þetta á að nægja til að full-
nægja hitavatnsþörf bæjarbúa.
Að svo komnu máli hefur þetta
þó ekki komið öllum að gagni. Til
þess þarf að leggja víðari leiðslu
frá holunum til bæjarins og auk
þess þarf allt dreifikerfi bæjarins
algerrar endurnýjunar við.
Fyrir utan þetta er ekki um
neinar umtalsverðar framkvæmdir
á vegum bæjarins að ræða, en al-
mennar framkvæmdir á vegum
hans þykja ganga seint og ekki
sjást mikið eftir hvert árið miðað
við fjárframlög þau, sem þó er
gert ráð fyrir á fj árhagsáætlun.
Framkvæmdir í ýmsum smærri
málum ganga ekkert.
En hvernig er svo atvinnu-
ástandið hér?
— Það hefur verið með ein-
dæmum gott.
Er það íhaldsmeirihlutanum að
þakka?
— Ég held, að nær sé að þakka
það veðurguðum og fiskigöngum,
en að íhaldið hafi áhrif á slíkt er
ég ekki trúaður á.
Núna hefur verið róið svotil
hvern einasta dag frá áramótum.
Afli hefur ekki verið mikill, en
þolanlegur, og af honum skapast
mikil atvinna í landi. 011 atvinna
hér er bundin útgerð og nýtingu
aflans.
Hvað af stærri bátunum hefur
verið gert út héðan að heiman?
— Guðbjörg, Stígandi og Þor-
rssoo í Ólafsfirði
leifur Rögnvaldsson. Svo eru fimm
dekkbátar 20 tonna og minni og
trillur allmargar.
Sæþór og Ólafur bekkur hafa
stundað síldveiðar syðra. Sæþór
er kominn heim og er að byrja
með net. Búast má við, að hinir
bátarnir skipti einnig fljótlega
yfir á netin.
Hvernig er aflinn verkaður?
— Ýsan fer í frystihús. Þau
eru tvö hér, Hraðfrystihús Ólafs-
fjarðar h.f. og frystihús Magnús-
ar Gamalíelssonar, sem er nýtt.
Þorskinn verka útgerðarmenn að
mestu sjálfijr í salt.
Er mikið um félags- og skemmt-
analíf í vetur?
— Það er töluvert miðað við
það, sem við höfum átt að venj-
ast. Aðstaða öll til skemmtana-
halds gerbreyttist með tilkomu
Veitingar í Hlíðar-
fjalli og skíðalyfta
Eins og skýrt hefur verið frá í
útvarpi og blöðum nú fyrir
skömmu, hyggst Skíðaráð Akur-
eyrar beita sér fyrir veitingasölu
um helgar í hinum glæsilega
skíðaskála í Hlíðarfjalli. Svo virð-
ist sem fólki falli þetta vel í geð,
því að um síðustu helgi er áætlað
að um 250 manns hafi notið ein-
hverra veitinga eða fyrirgreiðslu
í skálanum.
Þess skal þó getið, að enn er
mikið verk óunnið, svo að skál-
inn verði tilbúinn til hótelhalds,
eins og hugmyndin er að nýta
hann í framtíðinni. Mjög mikið
hefur þó verið unnið að undan-
förnu, og má segja að efsta hæðin
og miðhæðin séu að miklu leyti
tilbúnar, að undanskildu eldhúsi
og forstofu.
Nokkrir skíðamenn, ásamt
Skíðaráðinu, hafa útbúið skíða-
lyftu (dráttarbraut) til afnota
fyrir almenning fyrir mjög vægt
gjald. Hún er staðsett í gilinu
norðan skálans.
Enn fremur má nefna skíða-
landið í kringum „Strompinn“,
þar sem eru brekkur við allra hæfi,
jafnt byrjenda sem lengra kom-
inna.
Og einmitt næsta sunnudag, 24.
febr., kl. 14.00, verður flokka-
félagsheimilisins Tjarnarborgar.
Aðstaða félaganna hefur þó ekki
batnað að öðru leyti, þar sem
þau hafa enn ekki fengið aðgang
að þeim herbergjum í Tjarnar-
borg, sem félögunum þó voru ætl-
uð.
Leikfélagið hefur nýverið haf-
ið æfingar á leikriti, sem heitir
Tengdapabbi. Leikstjóri er að-
fenginn, og svo mjög er hamast
með æfingar að fella verður niður
kvikmyndasýningar og alla aðra
starfsemi í Tjarnarborg fyrri
hluta hverrar viku vegna æfinga.
Annars háir hinn langi vinnu-
tími allri starfsemi félaga hér yfir-
leitt.
Að lokum, Bragi, ein spurning
í sambandi við bæjarfógetann
ykkar. Kollegi hans í nágranna-
kaupstað sagði mér eitt sinn, að
fyrst efir að Sigurður tók hér við
embætti, hefði hann jafnan geng-
ið með bók nokkra allmerka í
ytri jakkavasa. Á þeim hluta bók-
arinnar, er upp úr stóð vasanum,
hefðu svo Ólafsfirðingar getað
lesið nafnið: Refsilög. Heldurðu
að Sigurður sé enn með þessa bók
í vasanum?
— Sé svo, þá er hann fyrir
löngu búinn að flytja hana í innri
vasa. En sennilegast þykir mér,
að hann hafi fljótt komizt að því,
að þá bók er óþarfi að bera á
sér daglega hér í Ólafsfirði.
keppni í svigi við „Strompinn“,
þar sem allir beztu skíðamenn úr
Akureyrarfélögunum og Mennta-
skólanum munu leiða saman hesta
sína. Þar efra er hægt að fá keypt-
ar heitar pylsur og svaladrykki.
I ráði er, í framtíðinni, að
leigja út svefnpokapláss í skálan-
um um helgar og verða þá vænt-
anlega kvöldvökur fyrir nætur-
gesti. Verður það auglýst nánar
síðar.
Ferðaskrifstofa ríkisins á Akur-
eyri hefur tekið að sér sætaferðir
til skálans eftir hádegi á laugar-
dögum og sunnudögum.
Húsavík í morgun.
Borinn er nú kominn niður á
950 metra dýpi. Hiti helzt svip-
aður, en ekki verður vart við vatn.
— Borunin hefur tafizt nokkuð
síðustu daga vegna smábilana. í
dag er verið að taka kjarnaprufur
með sérstökum bor, sem tekur upp
í sig bergmassann.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ í hópi Sjólfstæðismanna sé
hart deilt um það, hvor stór-
bóndinn skuli skipa þriðja
sætið ó framboðslista þeirra,
Bjartmar eða Björn í Kílakoti.
AÐ foringjar Framsóknar leggi ó-
herzlu ó, að allir fromboðs-
listar flokksins verði ókveðnir
og birtir ÁÐUR en flokksþing
þeirra kemur samon í næsta
mónuði.
AÐ væntanlegur sé til Akureyrar
þýzkur maður, er athuga skal
möguleika ó að komið verði
upp sorpeyðingarstöð.