Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 15.03.1963, Síða 1

Verkamaðurinn - 15.03.1963, Síða 1
Verkamaðurinn Kvöldmynd af Róðhústorgi. KJORIN HANS GYLFA Gylíi Þ. Gíslason, ráðherrann sjálfumglaði og veizluglaði, hélt því fram á Alþingi fyrir nokkr- um vikum, að frá því vinstri stjórnin fór frá og til loka síSasta árs hefSu lífskjör launafólks batnaS um 10 prósent. Sjálfsagt eiga nú ýmsir erfitt uieS aS skrifa undir þessa full- yrSingu hagfræSingsins, og frá- leitt virSist þaS, þegar athugaS er, aS á þessu tímabili hækkaSi alrnennt kaupgjald verkafólks aS- eins um 4%, en verSlag til jafn- aðar um 40%. ÞaS þarf mikla hagspekinga til aS finna þaS út, að af þessu leiSi 10% kjara- t*ætur! En kannski hefur sá glaSi ráðherra bara athugaS, hver hreyting hefði orSiS á sjáifs hans hjörum þetta tímabil. ÞaS er svo sem vel hugsanlegt, aS lífskjör hans hafi batnaS um 10% og kannski gott betur. Þeir eru svo sem til í þessu þjóSfélagi, sem hafa hlotið' bætt iífskjör á þess- Utu tíma og þaS meira en lítiS. Gnda er það staSreynd, aS heild- urtekjur þjóSarinnar hafa stór- uukizt og einhversstaSar lendir sú tekjuaukning. Annars mun Gylfi hafa tekiS það fram sem rök fyrir málflutn- lngi sínum, aS fjölmargir vinni nu lengri vinnutíma en áSur og lái þannig hærri tekjur aS krónu- tó‘u. Þetta er rétt svo langt sem þuS nær. En hæpin lífskjarabót er það. — Menn hafa neySst til * vmna lengur en áSur til þess aS halda í horfinu meS búskap sinn, sjá fjölskyldum sínum far- borSa. Ásókn manna í langan vinnudag er bein afleiSing lífs- kj araskerSingar. Launin fyrir sama vinnutíma og áSur hrökkva ekki til aS mæta sömu þörfum. ÞaS munu fáir menn fyrirfinnast, sem telja aukiS erfiSi lífskjara- bót, en meS auknu erfiSi er kannski hægt aS kaupa sama magn og áSur af matvælum, fatn- aSi og öSrum nauSsynjum. ÞaS væri furSuleg fásinna aS halda því fram, aS maSur sem vinnur 12 tíma á sólarhring hverjum, búi viS 50% betri lífs- kjör en sá, sem vinnur 8 tíma. Samkvæmt þeirri formúlu ætti sá, sem vinnur 16 tíma aS búa viS 100% betri kjör en sá, sem vinn- ur aSeins 8, og sá, sem ynni 24 stundir á sólarhring aS búa viS 200% betri kjör en átta stunda maSurinn. En innan fárra sólar- hringa lægi sá fyrrnefndi dauSur eSa a. m. k. meS öllu óvinnufær. Svo góS væru lífskjörin hans. Sá eini raunhæfi mælikvarSi á þaS, hvort lífskjörin fara batn- andi eSa versnandi, er hvort þaS vex eSa minnkar, sem hægt er aS kaupa fyrir tekjur ákveSins tíma, klukkustundar, átta stunda vinnu- dags, 48 stunda vinnuviku eSa annars tiltekins tíma. Sé þessi mælikvarSi notaSur, er auSsætt hverju barni, aS kjörin hafa versnaS á liSnum fjórum árum. Hvorki ræSur né ritgerSir Gylfa eSa annarra „spekinga“ fá hagg- aS þeirri staSreynd. Nýtt físhiskip til Dalvíhur Um síSustu helgi kom til Dal- víkur nýtt 226 tonna stálskip, byggt í Ankerlokkenverk í Florö í Noregi, sömu skipasmíSastöS- inni og byggSi póstbátinn Drang. HiS nýja skip heitir Hannes Hafstein og ber einkennisstafina EA 345. Eigandi er Egill Júlíus- son útgerSarmaSur á Dalvík, en skipstjóri Jón Magnússon frá PatreksfirSi. Hinum nýja Hannesi Hafstein var vel fagnaS viS komu í heima- höfn. Karlakór Dalvíkur söng, sveitarstj óri flutti ávarp og ljóS var flutt eftir Harald Zophonías- son. SkipiS er þegar fariS til veiSa viS SuSurland. ALÞINGI er í þann veginn aS ganga frá nýjum lyfsölulögum, er ákveSa aS einungis einstakl- ingar megi reka lyfsölu. ÞaS eru greinilega menn einkaframtaksins, | er nú ráSa á þingi. Afrekið mikla ÞaS var á haustdögum 1961, aS ríkisstj órnin okkar bar fram frumvarp um lækkun aSflutningsgjalda af nokkrum vörutegund- um. MeSal ræSumanna viS fyrstu umræSu var Bjartmar GuS- mundsson, þingeyskur maður, er setið hefur á þingi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. KvaSst Bjartmar þessi óska eftir, að viS upptaln- ingu þeirra vörutegunda, er aðflutningsgjöld skyldu lækka á, yrði bætt landbúnaðarvélum. Við aðra umræðu kom fram tillaga þess efnis. Vegna fjarvistar tveggja stjórnarliða, þegar kom til atkvæðagreiSslu, valt þaS á atkvæði Bjartmars, hvort tilÍagan yrði samþykkt eSa felld. Þessi þingeyski maSur, sem talið hefur sig sérstakan fulltrúa bænda á þingi, hafði í hendi sér að gera bændum þann greiða að lækka tolla á landbúnaðarvélum og þarmeð söluverð þeirra til bænda. Bjartmar greiddi atkvæði gegn tillögunni, gegn lækkun á verði landbúnaðarvéla, gegn sinni eigin ósk. Sannaðist þar sem fyrr, að eitt eru orð en annað gerðir. Nú hefur SjálfstæSisflokkurinn birt framboðslista sinn hér í kjördæminu. í þriðja sæti er Bjartmar GuSmundsson. Fyrir kosn- ingarnar mun hann sjálfsagt biðja bændur að minnast afreka sinna á Alþingi, og væntanlega gleymir hann þá ekki að leggja áherzlu á afrekið mikla. Áðfftur jmidiir N.F.ÍI Akureyrardeild Menningar- og friðarsamtaka íslenzkra kvenna efndi til almenns fundar í Alþýðu- húsinu á sunnudaginn var. Var fundurinn helgaður alþjóða-bar- áttudegi kvenna. í upphafi fundar flutti frú Soffía Guðmundsdóttir ávarp, þar sem hún skýrði stuttlega frá sögu nefndra samtaka, baráttu- málum þeirra og starfsháttum. Því næst flutti frú Guðrún GuðvarSardóttir ræðu um Efna- hagsbandalags Evrópu og afstöðu íslendinga til þess. Undirstrikaði hún mjög vel og greinilega þær hættur, sem það hefði í för með sér fyrir alla framtíð þjóðarinn- Guðrún Jóhannes ar, ef við létum ginnast til þess að gerast aðilar að bandalagi þessu í einhverri mynd. Þá flutti Jóhannes úr Kötlum langt og stórmerkilegt erindi um konuna, hlutverk hennar, stöðu og baráttu í þjóðfélaginu í gegn- um aldirnar. Var erindi þetta mjög ítarlegt og auðfundið, að á bak við það lá mikil vinna og hugsun. Er þess að vænta, að öll- um íslendingum gefizt innan tíð- ar kostur á að kynna sér þetta erindi Jóhannesar. Um áttatíu manns sátu fund þennan, en vissulega hefði verið eðlilegt, að húsfyllir væri, þegar svo ágætir fyrirlesarar eru á ferð, sem þau Jóhannes og GuSrún. Fundarstjóri var formður félags- deildarinnar á Akureyri, frú Sig- ríður Þorsteinsdóttir. Vert er að hæta því við frá- sögn þessa, að þá þrjá daga, sem Jóhannes úr Kötlum dvaldi hér í bæ, kom hann fimm sinnum fram opinberlega, ýmist með erindi eða upplestur: Á laugardagskvöldiS á árshátíð VerkalýSsfélagsins Einingar, á sunnudaginn hjá MFÍK og um kvöldið hjá Stúdentafélagi Akureyrar, á mánudaginn tvívegis í Mennta- skólanum. Slíkir menn sem Jóhannes eru ekki á hverju strái, og á stjórn MFIK miklar þakkir fyrir að hafa forgöngu um komu hans 1 hingað. HEYRT lí GÖTUNNI AÐ Sigurður Berndsen, „fjórmála- maður", sem nýlátinn er í Reykjavik, hafi látið eftir sig eignir, er nema 70 milljónum króna. (Það er sama upphæð og „Vísir" metur allar eignir og fyrirtæki „kommúnista" í Reykjavík.) AÐ bændum i Norðurlandskjör- dæmi eystra þyki flokkarnir sýna stéttinni lítinn heiður við ákvörðun framboða. A þeim þrem listum, sem komnir eru, er enginn bóndi i öruggu sæti, og aðeins einn í vonarsæti, „stórbóndinn" Bjartmar.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.