Verkamaðurinn - 16.06.1967, Blaðsíða 3
BLAÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI
EYSTRA
SKRIFSTOFA í BREKKUGÖTU 5 - SÍMI 11516
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM. ÞORSTEINN JÓNATANSSON
AUGLÝSINGASTJ. OG AFGR.M. RÖGNV. RÖGNVALDSSON
PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU BJÖRNS JÓNSSONAR H.F.
Eftir kosningar
Þá er kosningunum lokið. Og víst munu flestir, sem
að undirbúningi og framkvæmd kosninga starfa, anda
léttara, þegar þær eru um garð gengnar hverju sinni.
Vonir ýmist rætast eða bresta, menn ganga misjafnlega
ánægðir frá leik, en óvissan er ekki lengur til staðar
og taugaspennan líður frá.
Að þessu sinni munu allir flokkar una úrslitunum
í heild sæmilega, nema Framsóknarflokkurinn. Þeir
Framsóknarmenn hafa verið í talsverðri sókn um skeið,
en nú er sýnilegt, að sókn þeirra er lokið, stöðnun tek-
in við og varnarstaða.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði að vísu verulegu fylgi
nú, en forystumenn hans bjuggust aldrei við öðru.
Þeim er fullkunnugt um, að viðreisnarstjórnin nýtur
takmarkaðra vinsælda, og þess hlutu þeir að gjalda.
Hitt er öllu furðulegra, að Alþýðuflokkurinn skyldi
ekki einnig gjalda óvinsælda'stjórnarinnar. En sann-
leikurinn mun sá, að þeim krötum hefur lengi tekizt,
hæði í þessari stjórn og fyrri stjórnum, að eigna sér
allt, sem vel hefur verið gert, en kenna samstarfs-
flokknum eða flokkunum um það, sem miður hefur
farið.
Alþýðubandalagið unir vel sinni útkomu. Það bætti
við sig meira fylgi en nokkur hinna flokkanna, þrátt
fyrir það, að í herbúðum Alþýðubandalagsins var
mjög slælega að kosningaundirbúningi staðið og mikl-
um kröftum eytt í innbyrðis baráttu. í Reykjavík gekk
flokkurinn tvískiptur til kosninganna. Kannski hefur
ekki tapast mikið af atkvæðum í borginni sjálfri þess
vegna, en í öllum öðrum kjördæmum hafði það sín
óheppilegu álnif.
Hér í Norðurlandskjördæmi eystra var aðstaðan í
kosningabaráttunni sérstaklega erfið, og það af mörg-
um ástæðum. Má telja þessar helztar:
Efsti maður listans, Björn Jónsson, var nær alveg
lorfaliaður frá að taka þátt í baráttunni, og fjórði
maður listans forfallaðist alveg.
í sumum hlutum kjördáemisins beittu atvinnupóli-
tíkusar úr Reykjavík hinum lúalegasta áróðri
gegn Birni Jónssyni og varð nokkuð ágengt, m. a. á
þann hátt að fá kjósendur G-listans til að sitja heima
eða skila auðu.
Laugardaginn fyrir kosningar réðist Þjóðviljinn,
dagblað Sósíalistaflokksins, heiftarlega gegn Birni vit-
andi það, að hann hafði enga möguleika til andsvara.
Voru þannig í andstöðu eigi aðeins pólitískir andstæð-
ingar, heldur einnig margir þeir, sem taldir hafa ver-
ið pólitískir samherjar.
Er því full ástæða til að ætla, að rétt séu þau um-
mæli eins af fo^ryztumönnum Sjálfstæðismanna, er hann
lét sér um mann fara að talningu lokinni: Mesti per-
sónulegi sigur, sem nokkur maður hefur unnið í þess-
um kosningum, er að Birni Jónssyni skyldi takast að
halda sæti 4. þingmanns í Norðurlandskjörd. eystra. Þ.
Endurgreiddor tdijoolMur Semvinnutrygginga
<1,8 milljónir ií 20 drum
Aðalfundir Samvinnutrygg-
inga og Líftryggingafélagsins
Andvöku voru haldnir að Hótel
Sögu sl. föstudag, hinn 2. þ. m.
Fundina sátu 21 fulltrúi víðsveg-
ar að af landinu auk stjórnar og
nokkurra starfsmanna félaganna.
Formaður stjórnarinnar, Er-
lendur Einarsson, forstjóri, flutti
skýrslu stjórnarinnar og gat þess
að þetta væri tuttugasti aðal-
fundur Samvinnutrygginga, sem
voru stofnaðar 1. septemher
1946. í tilefni 20 ára afmælis fé-
lagsins, afhenti það Styrktarfé-
lagi vangefinna að gjöf kr. 100
þús., eins og áður hefur komið
fram í fréttum. Rakti hann í
ræðu sinni sögu félagsins og þess
merka starfs, sem félagið hefur
unnið á sviði vátryggingamála
hér á landi. Hann skýrði og frá
helztu framkvæmdum félagsins á
sl. ári, og kom þar m. a. fram,
að félagið hafði í byrjun ársins
tekið upp nýja tegund trygging-
ar — ÖF-tryggingu, — sem
tryggir ökumenn bifreiða og
dráttarvéla auk farþega í einka-
bifreiðum. Þá kom O'g fram í
skýrslu stjórnarformanns, að
nýtt bónuskerfi hafði verið tek-
ið upp í ábyrgðartryggingum
bifreiða, og tók gildi 1. maí
1966. Samkvæmt því fá gætnir
ökumenn allt upp í 60% afslátt
af iðgjaldinu eftir 5 ára tjón-
lausan akstur, auk 10 ára viður-
kenningarinnar, sem félagið tók
upp á 15 ára afmælinu, árið
1961.
Asgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri, las reikninga fé-
laganna og skýrði þá, jafnframt
því, sem hann flutti ýtarlega
skýrslu um starfsemi félaganna
á árinu 1966. Hann skýrði frá
því, að helztu einkenni ársins
<1966 hefði verið hin gífurlega
aukning tjónbóta, en þetta væri
í fyrsta skipti, sem heildartjón-
in væru meiri en heildariðgj öld-
in. Auk þess hefði reksturskostn-
aður hækkað og erfiðleikar með
alla innheimtu aukizt, hvort held
ur væri iðgjöld eða afborganir
og vextir af lánum.
Haldið var áfram stofnun
klúbbanna ÖRUGGUR AKST-
UR, sem nú eru orðnir 25 að
tölu í öllum landsfjórðungum,
en markmið þessara klúbba er
að stuðla að auknu umferðar-
öryggi og betri umferðarmenn-
ingu í viðkomandi byggðarlög-
um.
Samvinnutryggingar beittu sér
í byrjun ársins 1966, ásamt hin-
um bifreiðatryggingafélögunum,
fyrir umferðaráðstefnu í janúar
mánuði 1966, en sú ráðstefna
varð undanfari samtakanna
YÁV — Varúð á vegum. —
Heildariðgjaldatekjur Sam-
vinnutrygginga námu á árinu
1966 kr. 206.5 milljónum og
höfðu iðgjöldin aukizt um kr.
20.0 millj., eða 10.74% frá ár-
inu 1965. Er um að ræða aukn-
ingu iðgjalda í öllum trygginga-
greinum hema ökutækj atrygging
um, sem stafar af breytingu
þeirri, sem gerð var á bónus-
kerfi ábyrgðartrygginga bifreiða
vorið 1966, og áður var getið
um.
Heildartjón Samvinnutrygg-
inga námu á árinu 1966 kr. 209.4
millj. og höfðu þau aukizt um
kr. 60.3 millj., eða 40.47% frá
árinu 1965. Eins og áður segir
hafa tjónabætur félagsins aldrei
orðið eins háar og sl. ár, enda
féllu mörg stór tjón á félagið,
einkum í sjó- og brunatrygging-
um. Stærsta tjónið nam kr. 18.4
millj. Tjónaprósentan árið 1966
var 101.38% á móti 79.92% ár-
ið áður.
Nettóhagnaður af rekstri Sam-
vinnutrygginga árið 1966 nam
kr. 477.506.00, eftir að endur-
greiddur hafði verið tekjuafgang
ur til tryggingartakanna að fjár-
hæð kr. 1.050.500.00. Eru þá
slíkar endurgreiðslur tekjuaf-
gangs orðnar frá upphafi kr.
62.8 millj. Bónusgreiðslur til
bifreiðaeigenda fyrir tjónlausar
tryggingar námu 27.5 millj. kr.
Tjóna- og iðgjaldaliðir Sam-
vinnutrygginga námu í árslok
1966 kr. 271.1 millj., en að frá-
dregnum hluta endurtryggjenda
í tjónum námu eigin trygginga-
sjóðir félagsins ásamt varasjóði
og höfuðstól kr. 214.8 millj.
Heildariðgjaldatekjur Líftrygg
ingafélagsins Andvöku námu kr.
2.6 millj. á árinu 1966. Trygg-
ingastofn nýrra Hftrygginga nam
kr. 40.2 millj., og var trygginga-
stofninn í árslok 1966 kr. 150.1
millj. Tryggingasjóður félagsins
nam kr. 29.1 millj. og bónussjóð
ur kr. 3.0 millj. í árslok 1966.
Ur stjórn féláganna áttu að
ganga Erlendur Einarsson, Jak-
ob Frímannsson og Karvel Ög-
mundsson, en þeir voru allir end
urkosnir.
Stjórn félaganna skipa: Er-
lendur Einarsson, forstjóri,
Reykjavík, formaður, ísleifur
Högnason, framkvæmdastjóri,
Reykjavík, Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstjóri, Akureyri, Kar-
vel Ögmundsson, framkvæmda-
stjóri, Ytri-Njarðvík, og Ragnar
Guðleifsson, kennari, Keflavík.
Framkvæmdastjóri félaganna
er Ásgeir Magnússon, lögfræð-
ingur.
KoMiiinganiar...
Framhald aj bls. 2.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI
Urslit 1967:
Alþýðubandalag .................... 1017 atkv. 1 máður 18.8%
Alþýðuflokkur ...................... 286 — 0 — 5.3%
Framsóknarflokkur ................. 2894 — 3 menn 53.6%
Óháður lýðræðisflokkur........ ..........................
Sjálfstæðisflokkur ................ 1195 — 1 — 22.1%
Nú voru á kjörskrá 6.032 (6.030), atkvæði greiddu 5.504 (5.229) eða 91.2%. Auðir seðlar voru
91 og ógildir 21. ! i ! 1
2. Páll Þorsteinsson (B) 4. Lúðvík Jósefsson (G)
3. Jónas Pétursson (D) 5. Vilhjálmur Hjálmarsson (B)
Urslit 1963:
905 atkv. 1 maður 17.4%
250 — 0 — 4.8%
2804 — 3 menn 53.9%
143 — 0 maður 2.7%
1104 — 1 — 21.2%
Kjördœmakjörnir þingmenn:
1. Eysteinn Jónsson (B)
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI
Urslit 1963:
1123 atkv. 1 maður 13.2%' 955 'atkv. 0 maður 11.8%
753 — 0 — 8.8% 760 — 0 — 9.4%
3057 — 2 menn 35.9% 2999 — 3 menn 37.0%
3578 — 3 — 42.0% 3402 — 3 — 41.8%
Urslit 1967:
Alþýðubandalag ............... 1123 ;
Alþýðuflokkur ................
Framsóknarflokkur ............
S j álfstæðisflokkur .........
Á kjörskrá voru 9.354 (8.850), en atkvæði greiddu 8.653'(8.249) eða 92.5%. Auðir seðlar voru
125 og ógildir 16.
Kjördœmakjörnir þingmenn:
1. Ingólfur Jónsson (D) 3. Guðlaugur Gíslason (D) 5. Steinþór Gestsson
2. Ágúst Þorvaldsson (B) 4. Björn Fr. Björnsson (B) 6. Karl Guðjónsson (G)
Verkomaðurinn (3
Föstudagur 16. júní 1967.