Vikan - 01.07.1912, Síða 3
V I K A N
35
Samkvæmi studenta
frá 1897.
Stúdentar frá 1897 höfðu fyrir 15 árum mælt sjer mót hjer í
Reykjavík í gær og hittust þeir 14 af 20 alls, á hádegi við Skóla-
vörðuna. Var þaðan haldið upp í Elliðaárhólma og dvalið þar all-
góða stund. Síðar um daginn komu þeir saman hjá hirðljósmynd-
aranum að fá af sjer sameginlega mynd, — sú er hin fjórða, sem
tekin hefur verið af þessum bekkjarbræðrum. — En kl. 6 var gengið
til máltíðar á Hotel Reykjavík, og eftir að Magnús Ólafsson hafði
tekið enn mynd af hópnum og staðið var upp frá borðum, skemtu
menn sjer við gamlar endurminningar þar til kl. 3 í morgun.
Peir sem mót þetta sóttu voru:
Árni Pálsson, sagnfræðingur i Rvík
Ásgeir Torfason, efnafræðingur í Rvík
Böðvar Bjarnason, prestur að Rafnseyri
Eggert Claessen, yfirdómslögmaður í Rvík
Einar Ounnarson, ritstj. í Rvík
Gísli Skúlason, prestur að Stórahrauni
Ouðm. Guðmundsson, skáld á ísafirði
Halldór Gunnlögsson, hjeraðslæknir í Vestmanneyum
Jón Proppé, kaupmaður í Ólafsvík
Jón Porláksson, landsverkfræðingur í Rvík
Ólafur Briem, prestur að Stóranúpi
Ólafur Dan Daníelsson, dr. phil. í Rvík
Sigurbj. Á. Gíslason, cand. theol., í Rvík
Sigurjón Jónsson, hjeraðslæknir í Dalvík.
Fjarverandi voru:
Eiríkur Kerulf, læknir á ísafirði
ungfrú Elínborg Jacobsen cand. í Danm.
Jóhannes Jóhannesson, læknir í Vesturheimi
Sigfús Sveinsson, kaupmaður á Eskifirði
Sig. Júl. Jóhannesson. læknir í Vesturheimi.
En dáinn:
Bernharð Laxdal cand. á Akureyri.
Guðmundur skáld Gudmundsson hafði orkt kvæðaflokk mikinn
handa samkomunni og er hjer upphaf að og endir.
Þá fylgir liðnum blessun vorra barna
sem bera sfðar stjörnu-merkið hátt,
og »Kvöldstjarnan« sem mildust morgunstjarna
á mardjúp ljómar hýrt og fagurblátt.
Vjer sjáum röðla fagra fyrir stafni
og framtíð íslands betri’ en horfir nú, —
svo leggjum enn á djúp í drottins nafni
með djörfung, gleði, sigurvon og trú!
Guðm. Guðmundsson.
Þessir bekkjarfjelagar, er nú hittust, eru nánar tengdir en alment
gerist um bekkjarbræður og mun það að nokkru því að þakka að
þeir höfðu með sjer bekkjarfjelag alla skólatíð, sem mun einsdæmi.
Kom sjera Friðrik Friðriksson því á fót hjá þeim í 1. bekk (hann var
miklu ofar í skóla) og var hans minnst á mótinu að maklegleikum.
Ákveðið var að stúdentar þessir hittust aftur hjer að 10 árum
Iiðnum hjá frú Margreti Zoega, svo sem nú í tvö skifti áður, til
sama matseðils og þau sinnin.
Upphaf:
Heilir, heilir! endur ómar
æskuhljómur skær og hár.
»KvöIdstjarnan«* á lofti ljómar
loksins eftir fimtán ár.
Sæl og blessuð, — söngvi snjöllum
sjertu boðin velkomin!
Safna þú oss aftur öllum
undir geislafánann þinn!
Fagurstiltu strengjataki
stýrir samúð forn og ný, —
heiðríkt er að ára baki,
aðeins fáein gullin ský:
Minning góðra gleðidaga
gliti hjúpar, jafnar braut,
hvergi’ er stundarstríð til baga,
stæling reynslu leysir þraut.
Ót vjer hjeldum, hátt vjer stefndum,
hæst í lyfting viljinn stóð.
Hins mun spurt, hveheit vjer efndum
heim að bera þungan sjóð:
Endir:
mannvits, þroska, menta, lista,
megindýrast sigurgull, —
hvort vjer söddum svanga, þyrsta,
sýndum skil af megni full?
sHælumst minst í máli«, — skeiðið
mjög er enn að baki skamt;
bjartra vona himin heiðið
hvílir yfir vegum samt.
Vel skal enn í horfi halda,
hækka segl og treysta knör, —
þá mun byrjarblær og alda
bera’ oss heim úr sigurför.
Undir rendur gleðin gali
góð og blíð að fulli’ í dag, —
fríðan leiði sól í sali
sumarljóma' og fagurbrag!
— Setjum fund að fullum borðum,
fornar rúnar minnumst á,
ungir, kátir eins og forðum
inter sacra pocula!
Preslasteínaii í
Peykjavík
hófst með prestvígslu í dómkirkj-
unni föstudaginn 28. júní kl. 12 á
hádegi. Biskup Þórhallur Bjarna-
son vígði Jóhann Briem ttl Melstað-
ar, Pál Sigurðsson aðstoðarprest til
ísafjarðar, — hann þjónar annexí-
unni Bolungarvík, og er jafnframt
barnaskólastjóri þar, — og Magn-
ús Jónsson, sem verður prestur safn-
aða þeirra í Norður-Dakota í Ame-
ríku, er Lárus sál. Thorarensen
þjónaði. —
Sjera Bjarni Jónsson lýsti vígslu
en Magnús Jónsson flutti synódus-
ræðuna.
Prestastefnuna sóttu auk biskups
og guðfræðiskennara háskólans.
Úr Reykjavík-. Sjera Jóhann Þor-
kelsson, sr. Bjarni Jónsson, sr.
Ólafur Ólafsson, sr. Magnús Helga-
son, sr. Guðmundur Helgason, sr.
Friðrik Friðriksson, sr. Lárus Bene-
diktsson, sr. Páll Sívertsen, sr. Jó-
hann Þorsteinsson og Sigurbjörn
Á Gíslason, sem biskup leyfði að
taka þátt í umræðum fundarins.
Af Suðurnesjum komu sr. Árni
Þorsteinsson á Kálfatjörn og sr.
Kristinn Daníelsson á Útskálum.
Úr Árnessýslu sr. GísIr Skúlason
sr. Kjartan Helgason, og sr. Ólafur
Briem.
Úr Rangárvallasýslu: sr. Eggert
Pálsson, sr. Kjartan Einarsson pró-
fastur, sr. Ólafur Finnsson, sr. Skúli
Skúlason, sr.1 Þorsteinn Benedikts-
son.
Úr Borgarfjarðarsýslu: sr. Jón
próf. Sveinsson og sr. Einar Thor-
lacius.
Úr Snœfellsnessýslu: sr. Sigurður
Gunnarsson próf. og sr. Guðmund-
ur Einarsson.
Úr Daíasýslu: sr. Jóh. Lynge
og sr. Björn Stefánsson.
Úr Vestur-ísafjarðarsýslu: sr.
Böðvar Bjarnason,
Og loks nývígðu prestarnir Jó-
hann Briem og Magnús Jónsson.
Sumir þessara presta ýmist komu
þó eftir að byrjað var eða fóru áð-
ur en lokið var.
Fyrsti fundur prestastefnunnar
hófst kl. 4 sfðdegis sama dag í
einni kenslustofu háskólans.
Biskup setti fundinn og mintist
ýmsra kirkjulegra viðburða liðna
fardagaársins, látinna og fráfarinna
presta, prentunar biblíunnar, sem
bráðum væri lokið o. s. frv.
Fje prestekknasjóðs var útbýtt
að vanda.
Þá Iagði biskup fram skýrlu um
messur og altarisgöngur hjer á
landi 3 síðustu árin (1909—1911).
Eru 20 ár síðan þær síðustu voru
gerðar (fyrir árin 1889—’91).
Messum hefur heldurfjölgað þann
tíma, ef miðað er við fjölda presta,
en hefur þó fækkað í heild sinni
úr 4200 á ári niður í 4000. En
fyrir 20 árum voru prestar þetta
130—-140 að meðaltali, en nú leysa
þeir vart 120.
Fyrir 20 árum messaði hver
prestur að meðaltali 33 sinnum á
ári, en síðustu ár 35 sinnum. Mjög
er munurinn mikill í milli einstakra
prestakalla. Gat biskup þess t. d.
að fyrir kæmi þessi ár, að eigi
hefði messað verið, nema einu sinni
á ári við heima kirkju í sveit og
í fjölmennum kaupstað ekki meira
en einu sinni í mánuði.
Aitarisgöngur höfðu farið mjög
þverrandi þessi undanfarin 20 ár,
og var þó ekki úr háum söðli að
detta í þvf efni. í R.vík(dómkirkju-
söfnuðinum) fer þó altarisgöngum
fjölgandi að stórum mun.
Um kveldið flutti prófessor Jón
Hergason erindi um kristindóm og
náttúruvísindi, svipað því, sem hann
flutti fyrir almenningi hjer í bæ í
vetur, sem leið. Voru engar um-
ræður um það. Á eftir urðu nokkr-
ar umræður um sýkingarhœttu frá
notkun sameiginlegra kaleika við
altarisgöngu. Tóku flestir prestar
dauft í það mál og töldu sýking-
arhættuna Iitla þegar hreinlætis væri
gætt. •
Fleira var ekki gert fyrsta dag-
inn.
Laugardaginn (29. júní) kl. 81/,
hófst prestastefnan að nýu, og flutti
Rögnvaldur Ólafsson húsameistari
þá erindi um k'rkjubyggingar. Hon-
um þótti það eftirtektarvert, hvað
trúin hefði bygt sjer smá musteri,
fyr og síðar hjer á Iandi, væri það
naumast fátækt einni að kenna.
Hann taldi það lítla framför í
raun og veru, þótt torfkirkjurnar
væru flestar horfnar, því að í staðinn
hefðu víða komið timburhjallar illa
smíðaðir, fegurðarsnauðir og stíl-
lausir. Gömlu kirkjurnar hefðu þó
margaf verið með ýmsum útskurði
Fram, fram til dáða stjarnan stefnir öllum
að styðja sjerhvert gott og fagurt mál,
að vera eins og vitar hátt á fjöllum
með vorsins yl í hugumstórri sál.
Með einum hug á stokk vjer allir stígum
og strengjum heit að bragarfulli’ í kvöld:
að skilja eftir, hvenær sem vjer hnígum
í hildi lífsins, spegilfagran skjöid.
') Svo hjet bekkjarfjelag þessara stúdenta.