Voröld


Voröld - 25.06.1918, Qupperneq 2

Voröld - 25.06.1918, Qupperneq 2
Bls. 2 VORÖLD Winnipeg, 25. júní, 1918. 32x4 FISK Tmrn Non - Skid 1 IKtL.0 EREEN MOTOR CO., LTD. 704 Broadway Sími Sherbr. 657 (----------------------------N RUEBER STAMPS, STENC- ILS, SEALS, CATTLE EAR BUTTONS, Etc. pegar J>ið þurfið stimpla insigli, signet o.s.frv. skrifið til hins undir- ritaða. Sendið eftir ókeypis sýnishomi af Gripa Eyrna Hnöppum. Canadian Stamp Co. S. O. BJERRING Sími, Garry 2176. 380 Donald St. Winnipeg V___________________________) t;...... - 1 - Talsími Main 1594 GEO.CREED Fur Manufacturer Seljið, geymiíS eða látið gera við loðfötin yðar nú þegar Allskonar loðskinnaföt seld með sumarverði. 515 Avenue Blk. 265 Portage f-----------------------------\ LANDAR GÓDIR Skiftið við fyrtu íslelnsku rakarabúðina sem stjórnað er samkvæmt fullkomnum heil- brigðisreglum. Hún er alveg nýbyrjuð í Iroquois hótelinu, beint á móti bæjarráðsstof- unni. Talsími M. 1044. Ingimar Einarson. V_____________________________) HVEITILAND 1,594 EKRUR, EITTHVAD BEZTA hveitiland og griparæktarland í Saskatchewan; 1,200 ekrur rækt- aðar; yfir $10,000 virði af bygg- ingum, þrír fimtu af uppsker- unni í ár fylgja meí i kaupunum; verð $35.00 ekran. Seljandi hefir einnig 255 hesta, 15 kýr, þreski og plægingar áhöld, akuryrkju- verkfæri af öllu tagi og húsgögn, allt þetta með þrem fimtu af upp- skerunni í ár vill hann selja með landinu fyrir $75,000.00, $15,000.00 borgan út í hönd og $3,000.00 á ári; renta 6 pró cent. Seljandi tekur veðskjöl eða söluskjöl fyrir part af borguninni. No. 1825. MINNI LÖND I ÖLLUM HLUTUM Manitoba og Saskatchewan; mörgg með sánum ökrum og væg- um skilmálum. Sendið eftir verð- skrá voiri. Dominion Farm Exchange 815-8187 Somerset Block, Winnipeg, Man. V_________________________J Kjörkaup á notud um ritvélum. Underwood Ein Underwood ritvél með tveggja lita ræmu eins góð og ný. Vanaverð $150.00.' Vort sérstaka verð.........................$60.00 Smith Premier Ein Smith Premier ritvél. Sein- asta gerð. Vanaverð $100.00. Vort sérstaka verð aðeins . .$40.00 Empire Tvær Empire ritvélar, umbætt- ar. Vanaverð $65.00 hver. Vort sérstaka verð aðeins, hvor.. ...$18,00 Pantanir utanaf landi fljótt af hendi leystar. Flutningsgjald aukreitis. Sparið peninga. Kaup- ið nú þegar. Brooke & Holt 130 Lombard Str. Winnipeg EIGN MED MATJURTA- GÖRDUM TIL SÖLU Við Portage Avenue, nálægt Murray skemtigarðinum. Jarð- vegurinn er annálaður í hin- um fræga Rauðárdal. Hátt land og þurt. Lækur rennur í gegn tun cignina. Gömul kona á þessa eign og getur hún ekki stundað hana eins og vera ber. Skrifið oss eða talsímið. Áritan vor er: 902 Confederation Building Sími Main 2391. Winnipeg V------------------------ J Bókmentir. Jóhann Sigurjónsson: Lyga-Mörður. Ætla mætti, að fáir bættu sig á þvf að gera fornsögur vorar að yrkisefni, og þá sízt Njálu. En ekki ber á öðru en að Jóhanni Sigurjónssyni hafi tek- ist þetta og það svo vel, að höfuðper- sónurnar, Njálll og Mörður, verða dýpri og meiri í leikriti hans en þær eru í sögunni. Ef til'vill eiga sumir bágt með að trúa þessu, en lesi þeir sjálfir leikritið og sjái svo, hvort þetta muni ekki vera nær sanni. Hér skal því aðeins lýst í aðaldráttunum. pað er enn í svo fárra manna hönd- um, að mönnum mun þykja nýjung að. Kafli sá úr Njálu, sem Jóhann hefir gert að yrklsefni, er Höskulds saga Hvítaness goða, frá því er Valgarður kemur heim og fram að Njálsbrennu, að undanskildum eftirmálunum á al- þingi eftir víg Höskulds, er höf fellir úr af skiljanlegum ástæðum, líkleg- ast helzt af því, hversu erfitt mundi hafa verið að leiða alt lifið á alþingi hinu forna fram á sjónarsviðið. Leikritið hefst á forleik, þar sem Valgarður er að blóta hin heiðnu goð til hefnda á næturþeli. Fórnarat- höfnin verður að ímynd þess heiftar- elds, sem hann hugsar sér að tendra í brjóst.i Marðar sonar síns fyrir það, að þingmenn hans ei’U farnir að ganga undan honum og yfir til Hösk- ulds fyrir ástsældir hans. Og er Mörður kemur þar aðvífandi, blæs hann óspart að kolunum, þeim hat- ursglóðum, er öll athöfnin í leikritinu sprettur af. Itæður hann Merði til að rægja svo Höskuld við Njálssonu, að þeir fari að honum og drepi hann. vill hann einkum Skarphéðin feigann, tendrar Valgarður eld afbrýðinnar í brjósti Marðar . með því að gefa í skyn, að þau þorkatla, kona hans, og Skarphéðinn hneigi hugi saman. parna er tendraður eldur sá, er læsir sig um alt leikritið og endar á Njáls- brenriu. Fyrsti þáttur hefst á dýrðlegum vorfagnaði I Vörsubæ þar sem þar Njáll og Bergþóra, Njálssynir og Kári og konur þeirra, Flosi og líörð- ur og margt fleira fyrirmanna sitja að boði. Leikmótið í nánd við rjóð- rið í skóginum ' á að sýna, hversa bjart hefði getað orðið yfir lífinu hér á landi, ef menn hefðu kunnað að lifa því í sátt og samlyndi. En Níð- höggur rógs og lyga, Mörður, er nú þegar seztur að verki og farinn að sá því úlfúðarsæði, sem á eftir að upp- ræta allan þenna fagra gróður. Fer harn nú að koma þeirri hugsun inn hjá Skarphéðni, að faðir hans hafi sett hann sjálfan hjá með því að út- vega Höskuldi goðorðið og ala á valdafýsn hans. En pórkötlu grun- ar, hvað undir muni búa og gefur hún honum því gætur. Og enn er Mörð- ur ekki svo langt leiddur, að ekki mætti snúa honum til betri vegar, eins og sjá má af orðum þeim er hann mælir til konu sinnar: “Ef þú hefðir ást á mér, gætu kossar þínii hrakið hverja illa hugsan úr hjarta mínu.” En hún á bágt með að elska Mörð, þvi að “það er erfitt að unna svo margleitum manni” (Det er van- skeligt at elske en Mand, som har mange Ansigter). pá ílskast Mörð- ur og honum dettur djöfullegt ráð í hug til þess að egna þá saman Hösk- uld og Skarphéðinn stíngur hann upp á því að Skarphéðinn bjóði Höskuldi fóstbræðralag. pað getur Höskuldur auðvitað ekki þegið, því að Mörður ætlar að sjá um, að hann minnist þess, að Skarphéðinn varð banamaður föður hans. “Og blindni og hatur héldu ráð”—; en nú kemur Imynd friðarins og föðurlandsástarinnar, Njáli, fram á sjónarsviðið. Hann heldur nú, áður en hann kveður þau Höskuld og Hildigunni og býst til heimferðar, ræðu þá yfir öllum veizlu- gestunum, sem á að lýsa innræti hans og framferði og gerir haíln að sann- nefndum friðarhöfðingja. par eð nú ræða þessi er svo fögur og virðist þar að auki runnin undan hjartarót- um skáldsins sjálfs, get eg ekki stað- ist að snara henni, þótt ekki sé nema á lélegt íslenzkt mál, því að ekki veit ég, hvernig höf. mundi sjálfur vilja semja hana á íslenzku. Ræða Njáls:—“þau hin gömlu goð- in, sem ég og þessi þjóð hefir trúað á, þeir óðinn, pór og Baldur — og öll höldum vér minning þeirra í heiðri— kendu oss, að hverjum þeim, er vandur væri að virðing sinni, bæri að hefna hvers þess vígs, er tæki til sjálfs hans eða ættar hans. En hin nýju goðin, sá hinn þríeini guð, sem vér nú tignum, býður oss að fyrirgefa fjöndum vorum. Spyr ég nú alla þá ágætu menn, sem hér eru saman komnir og vanir eru að sitja að dómum á Lögbergi hinu helga—hvor- ir guðanna hafa á réttu að standa? Ég hefi rannsakað lagasetningar mannanna. Og svo misjafnar og margbreytilegar sem þær eru, virðast mér þær allar stefna að sama marki, að varðveita friðinn. pvf hygg ég og, að hinn voldugasti hinna gömlu guða hafi í öndverðu skipað hefndina til að gæta friðarins, að hann hugði engan betri hemil á glæplunduðum mönnum en þann, að þeir hræddust hefndirnar. En hinir nýju guðir hafa séð að glæplundaðir menn leyn- ast gjarna í myrkrunum og komast því oft hjá hefndum, svo að hinir vopndjörfu berast einir á banaspjót- um. pvl buðu þeir oss að fyrirgefa fjöndum vorum, til þess að varðveita friðinn. En einhvern tíma munu þeir guðir koma, er bjóða oss þetta eitt: að elska land vort. Hver sá, er land sitt elskar, elskar og friðinn, ef hann er skynbær mað- ur. Landið geymir I sjóði minninga sinna hveVn þann blóðdropa, sem fer til ónýtis. pað harmar hvert það tré, er feliur fyrir viðarexinni, enda þótt það vænti þess, að nýir frjó- angar spretti upp af rótum þess. Skógar þeir, er eyðst hafa af eldi hat- ursins, eru lýti á ásjónu þess. Og býlin fögru, sem eitt sinn áttu blik- andi akra og broshýr tún og engi, bliknuðu af harmi, þá er hendur eig- endanna stirðnuðu fyrir eggjum heiftarinnar. Friðurinn er farsæld lands og lýðs. Og hver mundi ekki vilja óska landi þessu farsældar. (Lítur út yfir landið og orð hans verða að lofsöng.) Aldrei hefi ég litið önnur lönd — en ekkert land mun fegurra en vort. pað ber býli vor á herðum sér. Og fús- lega réttir slægjulandið fram brjóst sin undir ljáinn. En hófadynurinn hvíslast eins og lækjarniður um reið- göturnar. (Hefur hendurnar og brosir.) Lítið á hendur yðar. pér eigið þátt I öllu þessu. (pegir andar- tak). Hinir nýju guðir fræða oss um ein- hverja lífsins bók á efsta degi. En hver er sú bók, er kynni að lykjá um ævi allra manna? Nei, lífsins bók er landið yðar. Hvert jarðlag þess mun koma í ljós á fætur öðru, og hvert rykskýið á fætur öðru mun þyrlast á braut. En þá mumf fót- spor og athafnir hvers eins verða lýðum ljósar. (Gengur að borðinu og hefur hornið á loft.) — Full árs og friðar!” Síðan fara þau Njáll og Bergþóra heim úr boðinu. En nú lcoma þau porgerður — ímynd hefnigirninnar— svo og Mörður og Skarphéðinn fram á sjónarsviðið. Skarphéðinn býður Höskuldi fóstbræðralagið. En þá hrópar þræll Marðar að baki: “Hver vó práin?” Og þá getur Höskuldur auðvitað ekki þegið það. En Skarp- héðinn þykkist við, og þeir Njálssyn- ir og konur þeirra fara heim úr boð- inu. Annar þáttur hefst í hlöðunni að Bergþórshvoli. Elur Mörður þar á róginum við Njálssonu og spanar þá Skarphéðinn til að vega Hoskuld. Segir, að Höskuidur muni hafa ætlað að brenna þá inni að boðinu, og að hann hafi falast eftir Rimmugýgi, er Mörður spurðist fyrir um sölu á goðorðinu, þótt Höskuldur segði, að hann hefði aldrei falast eftir exi Skarphéðins. Jafnframt elur Mörð- ur á því, að Njáll hafi afrækt Skarp- héðinn fyrir Höskuldi. pá ganga þau Njáll og Bergþóra í hlöðuna og em orðræður þeirra Njáls og Marðkr aðdáunarverðar. Mörður: “Enginn mundi reyna að slökkva eld með vat.ni úr brunni Njáls, ef fóstursonur hano hefði tendrað hann.” Njátl: “Smjað- rarinn ber hunangið á tungu sér, en eitur öfundarinnar I hjarta sér.” Mörður: “pó er skárra að þola öf- und vinar síns, en afræksiu föður síns.” Bergþóra: “pegl þú, Loka bur!” pá eru samræður Njáls og Bergþóru ekki síður, þá er hinir eru gengnir út og Njáll lýsir því I hinum hjartnæmustu orðum, að hann hafi einmitt fóstrað Höskuld til þess að tryggja friðinn og líf þeirra í landinu. En Bergþóra dregur taum Skarphéð- iins, og það verður úr, að Njáll fer til fundar við Höskuld til að falast eftir goðorðinu. pá hefst hinn örlagaþrungni þriðji þáttur, er byrjar á aðdáanlegri lýs- ingu á ástum þeirra Höskulds og Hildigunnar. Biður hún Höskuld að fara varlega og ríða ei einsamall um héruð. En þá kemur Njáll og hann fær löks talið Höskuld á að selja goð- orðið í sínar hendur, en taka í stað- inn annað goðorð í átthögum Hildi- gunnar. Hildigunni þykir fyrir um þetta, en sættir sig þó við það, er Höskuldur segir, að fyr muni hann láta lífið en bera vopn á Njálssonu, jafnvel þótt hann eigi lífið að ieysa. Svo fylgir hann Njáli á braut og er — veginn. Mörður kemur með óheillaboðin, þar sem Hildigunnur situr og bíður Höskulds og er að búast til að fagna honum. pykist hafa varað Höskuld við, þótt sjálfur væri hann að vígi hans. En í upphafi fjórða þáttar kemur Flosi á leið til þings, og hefir Hildigunnur þá búið honum veizlu og vill nú fá hann til að hefna vígsins. Og er hann færist undan, steypir hún yfir hann skikkjunni Flosanaut, eins og segir í sögunni. En porgerður, móðir Höskuldar, fær Merði vígsmál- in, því að hún þykist vita, að þau muni ónýtast í höndum hans á þing- inu, þar eð hann sjálfur hafi verið við vígið riðinn. Enda fer svo. Óg þá hefst hinn dásamlegi og þó h'rika- legi fimti þáttur með “skriftamálum” Marðar undir exi Skarphéðins og — Njálsbrennu. Skarphéðinn knýr Mörð tií að kasta grímunni og þá kemst hann svo að orði: “Ekki hatast ég við þig, Skarphéðinn. Ég unni þér eins og öfundin getur unnað nokkrum manni. Ég hugði að nota þig. pú áttir að ráða Höskuld af dögum. Sjálfum var mér það um megn.......... Ekki gazt þú rænt mig þingmönnum mínum eins og hann. pú veizt, hvað það er að þrá völd, sem maður hefir aldrei átt; maður þráir þau líkt og blindur maður, sem fálmar eftir sól- unni. (Breytir um málróm.) En hefir þú nokkuru sinni háft völdin, Skarphéðinn, og kallaði á þau opnum sjónum, er þau yfirgáfu þig i kæru- leysi? Hefir eiginkona þín nokkuru sinni neitað að vera þér til geðá? kona sú, er þú hefir átt....?” Síðan reynir hann að fá Skarphéðinn til að sættast við Flosa, en svíkja hann svo í trygðum. pá heimtar Skarphéðinn tvö sverð, svo að hann geti barist við Mörð og drepið hann. En—refurinn bjargar þá lífi sínu með því að skjóta því að Skarphéðni, að þá muni allir mæla að hann hafi rtrepið hann til þess að komast yfir porkötlu konu hans. pá býður Skarphéðni svo við honum, að hann vísar honum á bug. En nú sækir Flosi að með sína. menn. Skarphéðinn hygst að bíða hans fyrir utan. En nú er Njáli brugðið og vill hann, að þeir verjist úr húsunum, því naumast muni þeir sækja þá með eldi. pað verður þó úr. Og nú er bál það tendrað, er verður þeim öllum að bana. Aðdá- anleg er lýsingin á öllum heimilis- háttum að Begþórshvoli, hversu alt lýtur þar þeim Njáli og Bergþóru í auðsveipni. En nú skilst íoks Berg- þóru, er alla ævi hefir verið skaprík og þykkjuþung og ekki viljað láta hlut sinn fyrir neinum, að blóðhefnd- in er hræðileg, þar sem hún er um það bil að verða sonum hennar að bana. pví mælir hún nú við Njál: “Fyr leit ég að eins hið réttláta and- lit hennar. Nú lít ég fætur hennar, auruga og blóði drifna. Aldrei skildi ég fyr friðarþrá þína. (Beygir höfuðið.) Nú þarfnast ég þinnar fyrirgefningar. Hvorugt þeirra hjóna vill ganga úr eldinum, og er Bergþóra gengur inn göngin aftur, eftir að hún hafði kvatt hjú sín, taka þeir synirm.” ofan hjálmana og lúta henni * ioinmgu. Síðan leggjast þau Njáll fyrir undir húðinni. Fer svo eins og segir í sögunni: Helgi er höggvinn, er hann freistar útgöngu, Kári kemst undan en þeir Grímur og Skarphéðinn brenna inni. Lýkur leikritinu svo, að Skarphéðinn styðst upp við gafl- aðið og kveður: Gneistarnir rjúka af glóðum lífsins, glæða hatur og ást. En áform manna á örlagabáli eyðast sem fölnað gras. Vér brennum, vér brennum sem kyndlar á aldanna eilífu strönd. Leikritið er listaverk frá upphafi til enda. pað eitt mætti að því finna, j'að helzt til mikill nýtízkubragur er bæði á hugsun og máli. En Njáll er dýpri og göfugri en í sögunni. Mörð- ur enn djöfullegri og allar persónur svo vel dregnar, að hvorki er of né van. Sumum kann að virðast Skarp- héðinn tilkomuminnl en í sögunni, en það stafar auðvitað helzt af því, að eftirmálunum á alþingi eftir víg Höskulds og þá einnig hinum ómjúku tilsvörum Skarphéðins við liðsbón- ina er slept úr leiknum; en fyrir bragðið verður hann lfka skapfelli- legri. Leikritið ér meistaraverk. Og fari fieiri slík á eftir, á skáldið viss- ast ekki mjög langt í land til Nóbels- verðlaunanna eða annarar stórmik- illar viðurkenningar. En leitt er að eiga ekki slík rit á kjarnyrtu ís- lenzku sögumáli. Og þó er betra að bera böm sín út—til annara landa, en að þau deyi hungurdauða ís- lenzkra listaverka. Iðunn (A.H.B.) TIL MINNIS pað er oft að fólk man ekki hvenær ferðir eru á milli Winni- peg og annara staða eða að það man ekki hvenær reglulegir fund- ir eru í hinum ýmsu félögum hér í bænum. Voröld ætlar hér eftir að flytja minnisspjald um ýmis- legt þess háttar sem oft getur komið sér vel að hafa. VagnaferSir milli Winnipeg og Selkirk ..Frá Winnipeg \é, virkum dög- um) kl. 8.00, 9.00 og 10.00 f.h.; ld. 1.30, 3.30, 5.30, 6.30; 7.30 og 11.30 e. h. (Á sunnudögum) kl. 9.00 og 11.00 f.h.; kl. 2.00, 4.00, 6.00, 8.00 og 10.00 e.h. Frá Selkrik (á virkum dögum): Kl. 6.50, 8.00 og 9.00 fh.; 12.30, 2.30, 4.30, 5.30, 6.30 og 10,30 e.h. Á sunnudögum: Kl. 8.00 og 10.00 f. h.; kl. 1.00, 3.00, 5.00 og 7.00 e.h. FASTIR FUNDIR Skuld—Miðvikud. kl. 8 e.h. Hekla—Föstud. kl. 8 e.h. Vér kennum Pitmann og Gregg hraðritun SUCCESS Vér höfum 28 æfða kennara. BUSINESS COLLEGE A HORNINU Á PORTAGE OG EDMONTON VWNNIPEG, - MANITOBA TÆKIFÆRI. Mikil þörf er á góðu fólki út- skrifaðu frá Success. Hundruð af bókhöldurum, hraðriturum, skrifurum og skrifstofuþjónum vantar einmitt nú sem allra fyrst Byrjið tafarlaust—núna strax í dag. Búðu þig undir tækifærið sem drepur á dyr hjá þér. Legðu fé þitt í mentun. Ef þú gjörir það þá farast þér svo vel að for- eldrar þínir, vinir þínir, viðskifta heimurinn verða stolt af þér. Success skólinn veitir þér lykii- inn að dyrum gæfunnar. Bezt er fyrir þig að innritast tafar- laust. ÖDRUM FULLKOMNARI. Bezti vitnisburðurinn er al- ment traust. Árs innritun nem- enda á Success skólann er miklu hærri en allra annara verzlunar- skóla í Winriipeg til samans. Skóli vor logar af áhuga nýrra hugmynda og nýtísku aðferða. ódýrir og einstakra manna skól- ar eru dýrir hvað sem þeir kosta Vér höfum séræfða kennara; kennarar vorir eru langt um fremri öðrum. Lærið á Success, þeim skóla skóla hefir farnast allra skóla bezt. Success skól- ini vinnur þér velfarnar. I INNRITIST HVENÆR SEM ER. SKRIFID EFTIR BÆKLING TKe Success Business College F. G. Garbut, Pres. LTD. D. F. Ferguson, Prin. ONE GAR-SCOTT 25 H. P. | Samsett dráttvél og sjálffermari og blástursvél, fyrir I $3,500. Skilmálar $500 út í hönd og sanngjrn tími fyrir það | sem eftir er. f Snúið yður til auglýsendans að 902 CONFEDERATION LIFE BUIT,DING, WINNIPEG a K. Thomsen SKANDINAVIAN KLÆDASKERARI, 552 PORTAGE AVE. Kvenna og karla fatnaðir hreinsaðir og slététaðir og lagfærðir af heimkomnum hermanni. Föt og yfirhafnir húin til eftir máli, fyrir sanngjarnt verð. Fljót afgreiðsla og ábyrgst að skiftavinir verði ánwgðir. verði ánægðir. 20 ára reynsla. Öll vinna ábyrgst. GERT VID LODFÖT OG J?AU SNIDIN UPP. Talsími 4947. B)< r I , BÚJÖRD TIL SÖLUl \ 3 1-2 MÍLUR FR4 RIVERT0N, MAN. | 160 ekrur. Gott hús á landinu; stærð 18-22. Fjós fyrir 20 gripi. Landið liggur fast að fljótinu. Borgunar skilmálar mjög Vægir — lítil niðurborgun ef óskað er eftir og langur tími á afgangnum. Umsækendur skrifi eða finni: Halldor J. Austmann RIVERTON. * KB FÁEIN MINNINGARORD Föstudaginn 7. júní, 1918, lést á King Edward hospítali í Winnipeg, Sigriíður dóttir okkar (sem ritum nöfn okkar hér undir). Hún var 24 ára gömul; bana meinið mun Jielzt hafa verið berklaveiki og svo fram- vegis, sem svo mörgum verður að bana. Hún var búin að vera 7 ár hér í landi. Eftir eins árs veru hér veiktist hún af mislingum, og náði upp frá því aldrei fullri heilsu. pað má segja svo að það sé ein mynd af því að falla í hendur ræn- ingjans að missa heilsuna, því sjúk dómarnir ræna mann því ástandi að geta lifað ánægðu lífi. f sínu veika ástandi komst þessi dóttir okkar undir umsjón og leið- beiningu hinnar alkunnu menta og mannkosta stúlku Thorstínu Jack- son, sem verið hefir þettað ár kenn- ari við Jóns Bjarnasonar skóla. pað er skylda okkar að lýsa því með fáeinum orðum hvernig Miss Jackson hefir komið fram í þessum erviðu kringumstæðum. Á heimili Miss Jackson og föður hennar í West Selkirk var Sigríði sýnd svo góð um- sjá og aðhlynning sem hjá góðum for- eldrum væri, enda virtist heilsa henn- ar þá fara batnandi. Svo næst liðið haust (1917) fór hún í vist í Winni- peg, þá, þegar vinnan varð þyngri, fór að koma fram veiklun ? luhgum (rýrnunarveiki), þá afréð Miss Jack- son fljótt að koma henni á heilsu- hælið í Ninette, og vitjaði henn- ar þangað iguglega. Út af hæl- inu kom hún í Febrúar, og þá álitin nokkurnveginn albata. Seint í maí, næst liðinn,veiktist hún en hafði orðið kalt; þá kom þessi sama vinkona henni tafarlaust á framannefnt hospítal, og gékst fyrir því að þar væri gjört alt sem hægt var henni til , heilsubótar; og Dr. Brandson kom þar fram, eins og svo víða sem sannur maður; og Miss Jackson vitjaði hennar á sjúkrahús- ið svo að kalla daglega, og hefir lík- lega séð hvað verða vildi. pá gékst hún fyrir þvi, með skóla stúlkum sín- um að efna til samkomu; þar kom l sjóð $53 og lagði hún þá inn á hanka undir nafni Sigríðar. Með þessum peningum og sínum eigin fjármunum gékkst hún svo fyrir því að jarðar- förin fór fram á heiðarlegan hátt, þann 8 þ.m.. Séra Björn B. Jónsson talaði þar mjög vel yfir þeirri látnu. pað er gamalt orðtak, “Sá er vinur sem í raun reynist.” parna var ekki skyldleiki eða frændsemi á aðra hlið, heldur blátt áfram kærleiksrik mann- úðar tilfinning sem sýnist að ein- kenna þessa stúlku (Miss Jackson), eins og raunar fleiri ósérplægnar konur og menn. Vera má að þess- ari stúlku finnist hún hafi ekki gjört þarna annað meira eða betra en sér bar að gjöra, en þarna held ég að dygðin hafi komið fram f sinni réttu mynd. í sambandi við þetta minn- ist ég orða friðarhöfðingjans, “Sá sem gjörði miskunar verkið er ná- ungi þess sem féll í hendur ræningj- anna; far þú og gjör slíkt hið sama.” Við biðjum guð að launa þessar. góðu stúlku alla sína umönnun og öllúm þeim sem réttu hjálpariþönd þegar dauðinn lagði innsigli sitt á hjartað, og það gat ekki slegið leng- ur, hingað og ekki lengra. Hayland P.O., Man., 16. júní, 1918. Elín og Sveinn Á. Skaftfell.

x

Voröld

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.