Voröld


Voröld - 25.06.1918, Blaðsíða 6

Voröld - 25.06.1918, Blaðsíða 6
Bls. 6 YCOtöLD Winnipeg, 25. júní, 1918. Smali og Flekkur. (Framhald). Eg man ekki hvort það var næsta haust, eftir framanritaða sögu af Smala, eða hausti síðar, að við áttum tvö lömb í klettum, og voru margir bánir .að leggja sig jafnvel í hættu til að iiá þeim, en hepnaðist. ekki. Snjór var kominn og lækir farnir að frjósa í fjöll- um, og var því mjög erfitt viðfangs í fjallinu þar sem lömbln voru. pau voru farin að líða hungur,og tók okkur því sárt að vita þau svelta í hel; og vera daglega fyrir augum okkar. Helzta ráðið var því að skjóta þau, en sá ann- marki var á því að fjarlægðin milli byssunn- ar og lambanna var of mikil. Einn morgun, þegar búið var að gefa sauðfénu og fólkið að matast, var farið að tala um hve hörmulegt væri að horfa á lömbin svelta í hel. pau blöstu við heimili mínu. “Eg gæti bezt trúað Smala gamla til að hafa ráð með að ná þeim, ” var sagt inni. ,Var svo nokkuð rætt um það, því sumir álitu að þau hlytu að hrapa ef hundur kæmi til þeirra, og þótti litlu bæta að sjá þau detta af tugum feta hæð og koma sundurmarin niður. Smali gékk frá einum til annars meðan umræð- ur stóðu um hann, eins og vildi hann sýna þar með, og sannfæra alla um að óhætt væri að treysta sér—margra ára reyndum smalahundi! Hafði hann oft orðið að beita kænsku og stundum hörku til að geta unnið starf sitt til fullnustu. Hann hafði þroskaðan skilning og óyggjandi staðreynd. Lauk samtalinu um lömbin svo, að tveir menn lögðu af stað með Smala að ná lömbunum. pegar þeir komu upp að fjallinu fór Smali að fara á undan og horfa á víxl upp í fjallið eða á mennina; smá koma til þeirra, dingla rófunni og stökkva upþ um þá, hlaupa svo áfram upp á móti hlíðunum, stansa og horfa til baka. pegar mönnunum þótti heppilegast, sögðu þeir Smala að fara. Hann varð að sækja upp á móti gilfarvegi, sem þá var þur og var það ill ferð og erfið fyrir hundinn. Honum gékk illa að stökkva upp á stallinn, þar sem lömbin voru, vegna þess að hann sótti á stallinn ofurlítið sunnan- vert; við lömbin, því annars hefðu þau komist suður eftir stallinum fáein fet og hundurinn þá orðið öfugu megin við þau, og ferðin til einskis. Loks tókst honum að ná rétta staðn- um á stallinum. pegar lömbin sáu þetta undi’adýr koma upp á hlið við þau, hrukku þau svo mikið við, að þau stukku niður af stallinum á sama augabragði og þau komu auga á hundinn, gátu þau svo ekki stöðvast fyr en niðri á jafnsléttu. Hundinum gékk vel að komast niður á eftir. Var hann hreyk- inn af ferðinni, og ekki síður varð gleði heima þegar lömbin komu ósködduð. pað eina sem ég vissi að Smali væri hræddur við var byssan. Éf haldið var á byssu þegar farið var til fjár var ómögulegt að fá Smala til að fylgja, þangað til tvö síðustu ár hans. Bróðir minn hafði einhver ráð með að koma Smala að sækja skotna fugla út á sjó, og eftir að hann lærði þá lyst, var hann jafn ötull við hana og aðra vinnu sem hann kunni. Eg hefi fyrir hendi ýms atvik, sönn, sem sýndu hve átakanlega hræddur Smali var við byss- una, mest af æfi sinni. Eg sem hér rita nafn mitt óska aS gerast áskrifandi að blaðinu Sólöld sem verði sérstakt blað fyrir börn laust við Voröld. Eg lofa að senda borgunina þegar fyrsta blaðið kemur út, ef mér þá líkar það og álít verðið sanngjarnt. Ef mér líkar blaðið ekki eða álít verðið of hátt þá skal þetta loforð vera ógilt. Naf-n ____________________________________ Pósthús ____________________________ Fylki ________________________ petta er aðeins gert til þess að það muni ráðlegt að gefa út Sólöld sérstaka og við vænt- um eftir að fá þessi eyðublöð klipt úr _.og fylt inn og send sem allra fyrst. ÚTGAFUNEFND VOEALDAR. III,—Flekkur. pegar þið hafið lesið sögur Smala hafið þið í flestum atriðum lesið um Flekk,. Hann lærði alla siði Smala. pó hafði hann sjó- menskuna fram yfir; hann var jafnfús á að fara út í bát og elta mann, en þá list var aldrei iiægb að kenna Smala. Hann var sjóhrædd- ur. Eitt varð oft deiluefni milli hundanna, Smala og Flekks. Við gerðum það til gam- ans, að fá þeim kaðal spotta; láta þá taka í sinn endan hvorn, og lögðust þeir svo á sem orka leyfði. Smali vildi láta Flekk bera virðingu fyrir sér, og refsaði honum oft óþægilega ef honum þótti við Flekk, og var Flekkur fram- anaf hræddur við Smala. pegar aldur og þroski leið yfir Flekk fór þrælsótti sá út um þúfur, enda var Smali orðin gráhærður af þreytu. Smali reyndi ávalt að færa sig nær Flekk, með því að sleppa snögt og grípa svo nær og nær Flekk; ætlaði hann með því að komast svo nærri Flekk að hann þyrði ekki annað en að sleppa. Aldrei sá ég Smala geta leikið þessa list til fulls. Hann var jafnaðarlega orðinn of þreyttur á toginu áður hann kæmist alla leið, svo nærri hinum að hann yrði nógu hræddur til að sleppa sínu taki, og komst hann þó oft töluvert áleiðis. Venjulegast nrn'sti Smali á þessari yfirgangs leið sinni, og var Flekkur þá fljótur að grípa til fótanna og hlaupa nokkura faðma, stansa þar,7setjast nið- ur og hrysta spottan fram í hinn. Smali þoldi honum það ekki, og gerði margar tilraunir að ná spottann en þó gkildi milli þeirra æska og HENDURNAR HENNAR MÖMMU. (Framhald) —“Um pabba— Dóttirin vildi nema staðar, en móðir hennar hélt áfram. — ‘ ‘ Hér sá ég hann í fyrsta sinni-----þú heyrðir víst engan nefna hann á nafn í Kristjaníu?”—“Nei -----“Á eftir þessu neii varð nokkuð löng þögn. “—pað hefir sínar ástæður, að ég hefi ekki talað nema fátt um hann við þig, Magna. Nú skaltu fá að heyra þær — því nú get ég sagt þér alt; fyr gat ég það ekki. ” Hún beið þess, að dóttirin segði eitthvað við þessu, en hún gerði það ekki. Móðirin sneeri sér við til hálfs og henti í áttina til járnbrautarstöðvarinna, nefnilega á húsin sem stóðu þar til hliðar.---“Sérðu breiða þak ið þarna til hægri handar við gisti- húsið ? pað er samkomuhúsið, bókahlaðan, auk alls annars. Föður þínum ber heiðurinn af því; hann gaf alt efnið í það. — htú, jæja, þar sá ég haún fyrst, eða öllu heldur, þaðan sá ég hann fyrst, því ég sat í mannþyrpingunni, sem ætlaði að hlýða á hann. Öll neðri loft- hæðin er í einu lagi, með breiðum, hallandi svölum yfir. — pað er bygt í amerískum stíl. pú veizt, að faðir þinn ferðaðist þangað strax og hann hafði lokið prófi. — Komdu, nú skul- um við ganga lengra! — Eg elska þennan stíg fram-með ánni.-----Eg gekk hann með föður þínum á hverjum degi í sex vikur, eftir að ég sá hann fyrst----og þá vorum við gift.” “Eg veit það.” “—pú veizt líka, að ég var hirðmær hjá drotningunni, þegar ég kom hingað. Hún ætlaði að ferðast lengra út með firðinum, en vera fyrst nokkra daga um kýrt hér í fjalla- sveitinni. — Við komum hingað á laugardags- kvöld—eins og við núna—og ætluðum að dvelja hér fram yfir helgina. pað var ótta- legur fjöldi af fólki samankominn hér sunnu- daginn, til að sjá drotninguna, því það spurð- ist, a ð hún ætlaði í kirkju. Seinni part dags- ins safnaðist það svo að samkomuhúsinu; það ætlaði að hlýða á föður þinn —; ég hafði séð auglýsing um það í gistihúsinu. Drotningin llas hana líka; ég stóð við hlið hennar og sagði: “Mig langar fjarskalega til að fara. ” —“Já, farðu bara, ” svaraði hún, “en það er þó líklega réttast að einhver karlmannanna fari með þér. ” —“Hérna hjá bændunum—?” spurði ég, og sá svo um, að ég fór alein. Eg fékk sæti undir svölunum, rétt við stóran glugga; úr honum sást langt út eftir þjóðveginum. Og þegar Karl Mander var 7 ekki kominn á réttum tíma—hann gerði það sjaldnast—, þá teygðu allir sig til að koma auga á hann á veginum; hann átti þá að koma úr þeirri átt. Eg horfði þangað líka,—og að lokum komu þrír menn í augsýn, langt í burtu; einn stór og tveir litlir. peir leiddust allir, og sá stóri var í miðið. Ég sá mjög vel og hugsaði með ‘sjálfri mér, að enginn þeirra gæti það verið, því þeir flýttu sér alls ekki. peir stóðu nefnilega kyrrir altaf öðru hvoru; hinn sprettinn komu þeir slagandi ýmist til hægri eða vinstri. -— Fólkið fór að hvísla og flissa. pegar mennirnir komu nær, fann ég ósjálfrátt, að sá stóri var Karl Mander------og ég fann til blygðunar.” “Hann var fullur?” —“Hann var fullur, og þeir allir þrír; augafullir voru þeir, bæði læknirinn og mála- flutningsmaðurinn; það versta var, að hvor- ugur þeirra var vinur hans eða skoðanabróðir. peir höfðu ætlað að koma honum í klípu, því það var tíðkað þá, að reyna að leika hann grátt. peir áttu að sjá um að hann yrði full- ur, en þeir urðu sjálfir enn þá fyllri. ” “—Hræðilegt mamma!” Hún vildi nema staðar, en móðirin hélt áfram göngunni. —“Já. Ég hafði að vísu lesið bæði eitt og annað um Karl Mander. En það er alt annað að vera ásjáandi. ” “Yarðst þú ekki hrædd?” —“Jú það var viðbjóðslegt. En þegar þeir komu svo nærri, að ég gat greint andlitin, og allir viðstaddir, sem gátu séð þá, skellihlóu, þá hvarf allur ótti frá mér. Og þegar þeir komu fast að húsinu, þá virtist mér Karl Mander svo sérkennilegur, að ég hafði beinlín- is nautn af að horfa á hann. Eg hlýt að við- urkenna það.” ‘ ‘ Hvernig sérkennilegur ? ’ ’ “Hann var lífsgleðin sjálf í persónu- gerfi! — pó þú tækir riddarasveit á harða- hlaupi til samanburðar, þá kæmist hún eigi í hálfkvisti! — pessi þrekni beljaki með tigu- lega höfuðið hélt þeim litlu báðum, sínum við hvora hendi, eins og hann hefði tvö reiðalaus skipsflök í seil. Og svo hló hann og æpti fagnaðaróp eins og kátasti drenghnokki. Hann var eins ljúfur og glaður á að sjá eins og mað- ur gæti hugsað sér sólhvarfadaginn við Norð- urpólinn! — Og hina, sem ætluðu að fylla hann — því' eins og ég sagði þér var það leik- ur heldri manna um þær mundir að reyna að fylla Karl Mander—þá kom hann nú með, sigri hrósandi. Hann var dæmalaust hreykinn af því. Hár og herðibreiður, í ijósmökvóttum fötum. Hann þoldi ekki hita. Hann var sólginn í kaldaböð og baðaði sig,meðan nokkra vök var að fá. —Hattinum, léttum of linum, hélt hann á í vinstri hendinni. IJann gekk venjulega þannig. Ileima gekk liann ætíð berhöfðaður, og annarsstaðar hafði hann jafnaðarlegast hattinn í hendinni. Ilárið var feikimikið, dökt og hrokkið; nú slútti það fram yfir þvergnýpt ennið—já, já, þú hefir ennið hans — og svo skeggið! Ég hefi aldrei séð eins yndislegt skegg. pað var fremur Ijóst, en fjarska þétt; en einkennileg- ast var það fyrir, hvernig það liðaðist.—pað var beinlínis aðlaðandi — og það er skegg þó sjaldan.-----Og svo augun, djúp og geislandi —þú hefir dálítið af þeim—og þá nefið, snyrti- lega bogið, því hann var snyrtimenni! ” —“Var pabbi—?” —-“Guð minn góður; hefi ég ekki einu- sinni gefið þér neitt í skyn um það ? ’ ’ “Jú — en-------aðrir hafa------”. Hún þagnaði, og nú nam móðirin staðar. “Magna! Ég hefi hvorki getað né viljað verja þig áhrifum frá öðrum. Meðan þú varst barn eða unglingur gat ég ekki útskýrt þér alla málavöxtu. pað hefði leitt þig til að halda uppi vörnum fyrir því, sem þú hafðir ekki þroska til að verja. Og það gat haft ill áhrif á þig. — Og svo var nú fléira. En nú skaltu fá að vita það: Frá því fyrsta liefi ég aldrei lagt þér neitt ráð, sem ekki var frá föður þínum. pú hefir aldrei séð hann; en það get ég sagt þér, að þú hefir aldrei séð eða heyrt nokkuð annað en hann. — Gegnum mig, á ég við.” “Ilvernig þá, raamma!” “—pað kemur nú að því seinna. Fyrst ætla ég að koma þér í skilning um, hvernig hjónaband okkar varð til.” “ Já, elsku—!” (Framhald). Afmælið hennar Emmu. pað var 28. júní. Emma var lengi búin að hlakka til þess dags; þá var afmælið henn- ar. Hún hafði kepst við að læra sem bezt lexíurnar sínar og fékk nú bezta vitnisburð á öllum skólanum; og þó var hún með þeim yngstu—ekki nema 8. ára gömul. an hjá stórri tjörn, þar sem var hátt og fall- egt gras og allskonar blóm, og völdu þar blett fyrir samkomuna. Ein af stóru stúlkunum hét Tobba á Mýrl. Hún var kát og fyndin og henni datt þáð í hug að láta Emmu bjóða tveimur drengjum sem vorii að vinna í garði þar skamt frá. pað voru þeir Benzi og Björsi í Haga. peir pað var skrítið að afmælið hennar skyldi vera 28. júní, einmitt sama daginn og skóla- fríið byrjaði; henni fanst það nú samt varla geta verið að skólastjórinn hefði l^tið skólafrí- ið byrja 28. júní bara vegna þess að afmælið hennar var. En hvað um það þetta vildi svona til Emmu þótt.i það sérstaklega skemti- legt. Mamma hennar var búin að lofa henni því að hún skyldi fá að bjóða krökkum í nágrenn- inu á afmælinu hennar. Emma litla hoppaði heim himinglöð og voru bræður og allrabeztu piltar og höfðu gaman af því að vinna á landinu hans pabþa síns, tína illgresi úr akrinum, hlúa að kartöfl- unum í garðinum og blómum í beðinu hennar mömmu sinnar. Og svo var það líka þeirra verk að tína upp eggin á hverjum morgni, og géfa hænsunum. Tobbu datt í hug að bjóða þessum drengjum skrítilega. Hún var glettin stelpa og skemtileg. Ilún skrifaði á miða það er hér er á eftirá “Benzi og Björsi í Haga, farið juð heim og þvoið ykkur, farið í sparifötin ykkar brosandi þegar skólinn var úti. Hún kallaði saman allar stelpur í nágrenninu: Guddu í Gerði, Völdu í llaga, Æsu í Flóagerði, Önnu í Skógargerði og fleiri. pær héldu nokkurs- konar fund með sér til þess að undirbúa af- mælishátíðina og komu saman úti á akri. Svo voru fáeinar stórar stelpur sem höfðu verið ósköp góðar við Emmu og hún varð að bjóða þeim líka. pær lögðu á ráðin og sögðu hvernig hátíðin ætti að vera. pær komu sam- og komið í afniælisveizluna hennar Emmu; þar verður gaman að vera; flýtið vkkur nú strákar!” Svo tók hún hvíta hænu sem var þar skamt frá og hún þekti að var frá Haga, batt bréfið um hálsinn á henni með spotta og rak hana af stað. Hænan fór af stað og heim til sín. pegar hún kom heim sáu piltarnir hana og þótti skrítið að sjá miðann uin hálsinn á henni. peir hættu að vinna, tóku miðann, lásu hann og urðu himinlifandi glaðir. (Framhald).

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.