Voröld


Voröld - 25.06.1918, Blaðsíða 8

Voröld - 25.06.1918, Blaðsíða 8
Bls. 8. VORÖLD Winnipeg, 25. júní, 1918. GIGTVEIKI Vér læknum öll tilfelli, þar sem liöirnir eru ekki allareiðu eydd ir, meS vorum sameinuSu aS- ferSum. Taugaveiklun. Vér höfum veriS sérlega hepn- ir aS lækna ýmsa taugaveikl- un; mörg tilfelli voru álitin vonlaus, sem oss hepnaöist aö bæta og þar með bæta mörg- um árum við æfi þeirra sem þjáöust af gigtinni. Gylliniæö Vér ábyrgjumst aö lækna til fullnustu öll tilfelli af Gyllini- æö, án hnífs eöa svæfingar. Vér bjóðum öllum gestum, sem til bæjarins koma, aö heimsækja oss. Miner al Spr ings Sanitarium Wtnnípeg, Man. Ef þú getur ekki komið, þá skrifa eftir myndabæklingi og öllum upplýsingum. Nefniö “Voröld” þegar þér fariö eftir þessari auglýsingu. Úr 3Bænum J. J. Bildfell, ritstjóri Lögbergs, kom sunnan frá New York f vikunni sem leið; ætlaði hann heim til ís- lands á fund eimskipafélagsins en Gullfoss fór svo seint að ekki var hægt að aá fundinum. O. A. Hggertson, sem hér hefir dvalið um stund fer eftir mánaðar- mótin westur í Saskatchewan að líta eftir landi sínu og þaðan vestur á Kyrrahafströnd; ætlar hann að halda þar samkomur fyrír gamalmenna- heimilið í hinum ýmsu bygðusm Is- lendinga. Gérið það að óbrigðulum vana að líta yfir “Business og Profes- sional’’ dálkana í Voröld. það borgar sig. Gullfoss lagði af stað heim til is- lands frá New York á miðvikudaginn var; með honum fóru allmargir landr ar, þar á meðal þessir: Eiríkur Hjartarson og fjölskylda hans, ög- mundur Sigurðson, skólastjóri; Stef- án Stefánsson, umboðsmaður; Si'gríð- ur Sigurðson; Ingunn og Steimmn dóttir hans; Guðmundur ViIhjálmSson son, verzlunarfulltrúi, og Thelma, dóttir hans; Guðmundur Vilhjálmson, verzlunarfulltrúi, sem verið hefir í New York heilt ár; Vigfús Guð- mundsons, Jón Bjömsson, og fleiri. Halldór Sigurðson hefir fengið veitingu fyrir smíðinu á viðbót við sjúkrahúsið í Winnipeg. A sú við- bót að kosta um $60,000. Hjálmar Gíslason, bóksali, kom aftur frá New York í vikunni sem leið; hann fór þangað til þess að fylgjá móður sinni og systur sem voru að fara alfamar heimleiðis til ís- lands. Miss Guðmundsson frá Swan River, kom til bæjarins nýlega til þess að reyna að ná bróður sínum úr hernum, sem er einka fyrirvinna móðir sinn- ar, aldurhníginnar og heilsuveillar. f----------------- Halldor Methusalems Er eini Islendingur í Winnipeg sem selur Columbia hljómvél- ar og hljómplötur (records), hefur nú til sölu íslenska, j Enska, Danska, Norska og Svenska söngva. Skrifið eftir verððlistum. Swan Mfg. Co. 676 Sargent Ave. Sími Sh. 971. Winnipeg. v_____:________________j Olgeir Frederickson, frá Glenboro, og kona hans, vora á ferð í bænum í vikunni sem leið. Séra K. K. ólafsson, á Mountain, hefir boðist til þess að fara í stríðið eða herinn í hvaða stöðu sem stjórn- þóknast að úthluta honum. HERBERGI TIL LEIGU. Bjart, skemtilegt herbergi til leigu í vestur hluta bæjarins. Leitið upp- lýsinga á skrifstofu Voraldar. Bjami Björnsson ætlar að bregða sér út til Wynyard, Elfros og Foam Lake í byrjun næstu viku. J>áð má ganga frá því vísu að landar fjöl- menni á skemtanir hans þar sem annarstaðar. Enda eru þasr mjög upplifgandi. þessa höfum vér orðið varir við á kirkjuþinginu: Séra K. K. ólafsson. séra Sigurður Christopherson, séra, Jóhanu Bjamason, séra Guttarmur Guttormsson, séra Jón Jónson, og kona hans, séra Haraldur Sigmar, séra Friðrik Hallgrímsson, séra Halldór Jónsson og kona bans, Adam porgrímsson, Mrs. Sig. Sigfússon, Mrs. Hallson, Sigurður Friðfinnson, Hjörtur Davíðson, Bjami Jones, Stefán Einarsson, Jóhanness Einars- son, Jónas Samson, W. H. Paulson, Ami Johnson. 1 gjafalistanum til hjónanna sem brann hjá var misprentað 50 cent frá Mrs. Thordísi Gíslason í stað $5.00 (en útkoman er rétt). Hafið þér tekið eftir auglýs- ingu Lush-Burke félagsins, á fremstu síðu, ef ekki, mun það þess virði að lesa hana með gaum- gæfni. Nýlega hefir verið prentuð bók á Wynyard sem Voröld hefir ver- ið send. Eru það nokkrar rit- gerðir í sögulegum búningi eftir Baldur sál. Jónsson; prýðisvönd- uð er útgáfan og var það vel til fallið, því efnið er einkar fag- urt og vel með það farið. þess- arar bókar verður minst hér síY- ar að verðleikum. 32x4 FISK np| T'V T-i n Non - Skid | BREEN MOTOR CO., LTD. 704 Broadway Sími Sherbr. 657 Séra Páll Sigurðson frá Gardar, hefir dvalið hér í bænum að undan- fömu; honum var boðið að sitja kirkjuþingið og hafa þar málfrelsi. þegar þú þarft að skifta við fasteignasala, láta gera við bif- reiðina, vatnspípumar, rafmagns- áhöldin, eða hvað svo sem lielzt, þá mundu að gá fyrst í “Business and Professional“ ‘dálkana í Vor- öld, þar muntu finna einmitt manninn sem þú ert að leita að. Valdimar, Paulson, frá Leslie, kom til bæjarins vestan frá Sasckatoon á föstudaginn og fór heim aftur í gær- kveldi. Benedict Kjartansson, Mikley, er staddur í bænum að leyta sér lækn- inga hjá Dr. J. Stefánssyni. Tryggvi Ingjaldson hefir verið I bænum að undanförnu; sat kirkju- þingið og fór heimleiðis í dag. Páll Bardal er nýkominn vestan frá Vatnabygðum, var þar í tvær vikur að heimsækja tengda fólk og viai; hefir aldrei komið þar fyr. Leizt zuæta vel á bygðina og fólkið. Séra Halldór Jónsson, frá Leslie og kona hans, lögðu af stað suður til Norður Dakota í dag að heimsækja þar vini og kunningja. Dvelja þar nokkra daga. Emil Johnson frá Argyle kom til bæjarins á laugardaginn og fór heim aftur í gær. Sveinn Bjömsson frá Gimli hefir verið hér í bænum að undanförnu. Sat kirkjuþing og var þess utan í verzlunar erindum. Bjarni Stefánsson frá Mikley er staddur hér í bænum. C. B. Júlíus er að ferðast um norð- ur hluta Nýja íslands fyrir Voröld og Hecla Press, og segja fréttir að hon- um gangi ágætlega. Mrs. P. Bardal fór nýlega suður til Norður Dakota að finna vini og ætt- ingja. Minnist á Voröld þegar þér far- ið eftir auglýsingum í blaðinu. Ný-TSLENDINGAR G. P. Thordarson leggur af stað í dag norður til Gimli og bygðanna þar í krtng til þess að vinna fyrir Voröld þg Hecla Press. Thordarson er þektur maður og vinsæll og vér vit- Um að honum verður vel tekið þar. Voröld á márga vini þar nyrðra. Um 500 hermenn fóru austur frá Winnipeg á laugardaginn. þessa þrjá Islendinga vissum'vér í þeim hópi: Sigurð Oliver, frá Swan River, E. A. Anderson frá Argyle, og Sigurð Sigvaldason, frá Vídir. Sveinn Bjarnason, sem hér hef- ir unnið við banka all lengi, lágði af stað á fimtudaginn vestur til Neepawa og verður þar á banka framvegis. Guðmundur Lúðvík Ottensen, sonur þeirra hjóna N. Ottensonar og konu hans, í Iiiver Park, særð- ist í stríðinu 22. maí. Var hann skotinn í bakið. Kúlan hefir náðst út og Guðmundi líður eftir vonum. SKYNSAMLEG BREYTING Pess er getið á öðrum stað í blað- inu að kirkjuþingið hafi lítilsvirt bréf er því barst viðvíkjandi viðhaldi tungu vorrar. Oss er það sannarlegt gleðiefni að málið var tekið upp aftur í gær sökum þess að menn voru ekki ánægðir með úrslitin og var því þá ráðið til lykta á kurteislegan hátt og að mörgu leyti skynsamlega. Adam Porgrímsson, sem sérstakt sjálfstæði sýndi á þessu þingi, er oss sagt að hafi borið málið upp til nýrrar með- ferðar. pessi frétt berst oss þegar biaðið er full sett. Mac’s Theatre á Ellice og Sherbrook Str. Gangið spölkorn og þá sjáið þér hina nafnkunna leik í síðasta skiftið í kveld. NELL SHIPMAN kemur fram í “THE WILD STRAIN’’ 12 þáttur í “ Vengeance and the Woman,” með skopleik ámið- vikudag og fimtudag-—2G til 27 þ. m. VIVIAN MARTIN í leiknum “A PETTICOAT PILOT” og tveir reglulegir skopleikir. Á föstudag og laugardag er sýndur innar ágætur leikur, þar kemur fram Julien ...Eltinge í leiknum CHE COUNTESS CHARMING “The Lions Claws” og tveir íeglulegir Macs skopleikir. “The Eagles Eye” með Mar- garet Snow og King Bagot, verð- ur sýnt á Macs leikhúsinu innan fekamms. Parker & Son Beint á móti pósthúsinu, selja alt sem drengir þarfnast. Fréttir. ft Maður sem Nick Balan heitir, hér i Winnipeg, var sektaður um $1,009 á i föstudaginn, fyrir það að hann sagði að þegar þjóðveerjar kæmu til Can- ada mundu þeir hengja alla sem væru í brezkum herklæðum. Annar mað- ur var nýlega sektaður jafnmikið fyr- ir samskonar ummæli. Uppreist er sögð í Austurríki, áðal- lega vegna vistaskorts. Fólkið heimtar frið og mat. Stórkostlegur vistaskortur vofir yfir Svíþjóð vegna uppskerabrests, eftir því sem blaðið “Norrona” segir, 19 þ.m. Járnbrautarlestir rákust á í Indi- ana í vikunni sem leið; voru í ann- ari lestinni leikendur eða sýninga fólk og biðu 60 manns bana en 90 slösuðust. WALKER CUNNING MADURINNSEM VEIT OG pEKKIR. Með félagi sínu, sem framkvæmir tákn þessara tíma. Stórkostlegir viðburðir. óútmálanlegar blekkingar! Sömuleiðis aðdáanleg tjöld meeð feg urstu sýningum. Verð á kveldin, 75c, 50c, og 25c; síðdegis, 50c og 25c. BJARNI BJORNSSON Skopleikari heldur Kvöldskemtun í WYNYARD 4. Júlí. ELFROS 5. Júlí. FOAM LAKE 6 Júli. Inngangur 50 cent. Meiðyrða mál mikið stendur yf(r í New York; hefir kona W. R. Héarsts hins mikla blaða konungs kært ritstjóra og aðstoðarritstjóra tveggja stórblaðanna, New York Tim- es og New York Tribune fyrir meið- yrði. Eldur kom upp í bænum Fred- riksstad, í Sviþjóð, 10. maí og brann þar fjöldi húsa til kaldra kola. Mörg hundruð manna eru húsvilt og skað- inn er metinn á 1,500,000 kr. Séra B. B. Jónsson og séra Lavik, formenn líknarfélagsins fyrir her- menn, héldu með sér fund nýlega. A- kváðu þeir að ráða allsherjar ritara í Vestur-Canada og varð fyrir því vali presturinn séra C. N. Sandager, frá Kinmundy í Alberta. Sambandstjórnin hefir leyft að þeir sem flytja hingað frá Bandaríkjun- nm megi flytja með sér tolllaust þau íhöld sem þeir hafa átt og notað ekki skemur en sex mánuði. Lítið er betra en eltki neitt. Phiiipp Edward Morrell, lagði það til í brezka þinginu fyrra fimtudag að alt mögulegt væri til þess gert að fá frið með samningum. Philipp Snowden studdi tillöguna, en hún var feld. Átta tonn og 2788 pund af vistum voru talin óæt á mánudaginn sem leið, og þar afleiðandi brend, 1 Win- nipeg. Sir Wilfrid Laurier hefir verið lasinn að undanförnu og varð því að hætta við ferð til Ontario sem hann hafði ákveðið. Svo segja blöðin að uppskera af hveiti í Saskatchewan í haust muni verða 160,000,000 mæla. Allmikið uppþot hefir verið í Kaup- mannahöfn að undanfömu vegna þess að fólkið þykist illa haldið, hefir það gengið í stórhópum um borgina og heimtað mat. Allsherjar þing frá Vestur-Canada er verið að undirbúa hér í bænum til þess að ræða um útbýting lands til heim kominna hermanna. Lög hafa verið aamþykt á Eng- landi sem banna fasteigna eigendum aS setja upp hærri leigu fyrir hús eða lönd en hún var fyrir stríðið. Nýlega hefir komið skeyti frá Vil- hjálmi Stefánssyni til Ottawa stjóm- arinnar þar sem hann kveðst ekki munu koma í bráð; hann er enn ekki orðinn ferðafær eftir leguna. 19. þ.m. kom mesti haglstormur í Saskatoon sem þar þekkist. Stóð hann yfir í fjórðung stundar og vorm höglin eins stór og hænu egg, og stormurinn afskaplegur. Afarmiklar skemdir urðu af. prír menn brunnu til dauðs í Tor- onto á föstudaginn. peir unnu í málmbræðslustofnun og hafði helzt ofan á þá bráðinn málmur. ONÐERLANr| THEATRE |J Miðvikudag og fimtuda»—Hin mikla saga Rex Beaches; uThe Barrier” Átta atriði með undra flýti ótrú- legir viðburðir og ofdirfskufull hreystiverk. Aðdáanleg leiktföld með myndum af norðurhluta Can- ada. Föstudag og laugardag — Vir- ginia Pearson. “All for a Husband” Skopleikur sem sýnir félagslífið BITAR. Tribune segir frá því með ánægju 18. þ. m. að ómögulegt sé að mótmæla kosningunum frá 17. desember 1917; stjórnin hafi gætt þess að útbúa lög- m þannig.—Langt kemst ósvífnin. Heimskringlu maðurinn hefir það eitt út á Sólöld að setja að hún sð skrifuð fyrir unglingana og börnin.— Skrítin aðfinsla! Knowles, þingmaður I Moose Jaw, var kosinn með litlum atkvæðamun á móti verkamanna þingmannsefninu, og þó sameinuðu þeir sig um Kno'wles framsóknar og afturhaldsmenn. pó þetta væri aðeins á einum stað er það ekki þýðingarlaust—eitt einasta strá getur sýnt hver sé vindstaðan. Landráð að vilja vernda íslénzka tungu; landráð að halda íslendinga- dag.—Hvað era ekki landráð? GREMJA MÝGROTSINS Mýið gremst ef grút þess hjá götur liggja þínar: hyggur þú munir miða á mykjuskánir sínar. Stephan G. Stephanson. Verið er að taka fátækt fólk fast, sekta það og setja í tukthúsið ef þa3 er iðjulaust nokkurn dag hér í bæn- um.—Bn hvað er að segja um ríka fólkið á sumarbústöðum sínum niður með vötnum? Hverjir eru iðjuleys- ingjar ef ekki það? Eru það ekkl landráð að gefa út blað á íslenzku? eða prédika á Is- lenzku eða að biðja guð á íslenz'ku? HÁRMEDAL OG HÖRUNDSRJ6MI Sem hvorttveggja er kent við fj-ú Bre- auche (Madame Bre- auche Hair Tonic og Day Cream) er það nýjasta nýtt. Hár- meðalið heldur við, fegrar, festir og eyk- ur hárið, og hörunds- rjóminn mýkir og fegrar andiit og hendur. Hvort- tveggja fyrir $1.00. Bæjarfólk kaupi hjá Robinson, en sveita- fólk panti hjá Miss Guðrúnu Halldórs- son, 275 Aubrey SL Burðargjaid frltt. ».(>4SCBB.()-«B»0«BB»04 HLUTABREF javík af undirrituðum. í Eimskipafélagi Tslands verða keypt, hæsta verði, fyrir hönd Stefáns Stefánssonar frá Reyk- S. BJARNASON, 656 TORONTO ST. ►04 ►04 ►04 ►04 ►04 ►04 MÁLVELASKÍFUR Nýjar birgðir af norksum og svenskum málvélaskífum, með danslögum, söngvum o.fl. THE SWEDISH CANADIAN SALES, LIMITED 208 Logan Avenue. Sími Garry 117. Winnipeg, Man. Vistir vinna stríðið. Sparið þær. Til eru tvær tegundur sumarfata;; í fyrsta lagi hólkaraleg föt sem illa fara —í öðru lagi tilbúin föt af klæðiskera og eins vandlega gerð og beztu vetrarföt. pessi föt hafa Burns & Co. merkið. pau eru köld og úr vönduðu efni. $15 og yfir

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.