Voröld - 24.07.1918, Blaðsíða 6
Bls. 6
VORÖLD
Winnipeg, 23. júlí, 1918.
TIRES
32x4 FISK
Non- Skid
$30.00.
BREEN MOTOR CO., LTD.
704 Broadway Sími Sherbr. 657
RTJBBER STAMPS, STENC-
ILS, SEALS, CATTLE
EAR BUTTONS, Etc.
pegar þið þurfið stimpla insigli,
signet o.s.frv. skrifið til hins undir-
ritaða.
Sendið eftlr ókeypis sýnishorni
af Gripa Eyrna Hnöppum.
Canadian Stamp Co.
S. O. BJERRING
Sími, Garry 2176.
380 Donald St. Winnipeg
i,___________________________J
I......' ' —'í
Talsími Main 1594 •
GEO.CREED
Fur Manufacturer
Selj iS, geymiC e«a látið gera
viö loCfötin ySar nú þegar
Allskonar loSskinnaföt seld
meC sumarveröi.
515 Avenue Blk. 265 Portage
I. ....- N
r---------------------- >
LANDAR GÓDIR
Skiftið við fyrtu íslelnsku
rakarabúðina sem stjómað er
samkvæmt fullkomnum heil-
brigðisreglum. Hún er alveg
nýbyrjuð í Iroquois hótelinu,
beint á móti bæjarráðsstof-
unni. Talsími M. 1044.
Ingimar Einarson.
----------------------------/
HVEITILAND
1,594 EKRUR, EITTHVAD BEZTA
hyeitiland og griparæktarland í
Saskatchewanr 1,200 ekrur rækt-
aðar; yfir $10,000 virði af bygg-
ingum, þrír fimtu af uppsker-
unni í ár fylgja með í kaupunum;
verð $35.00 e-kran. Seljandi hefir
einnig 255 hesta, 15 kýr, þreski
og plsegingar áhöld, akuryrkju-
verkfæri af ðllu tagi og húsgögn,
allt þetta með þrem fimtu af upp-
skerunni í ár vill hann selja með
landínu fyrir $75,000.00, $15,000.00
borgan út í hönd og $3,000.00 á
ári; renta 6 pró cent. Seljandi
tekur veðskjöl eða söluskjöl fyrir
part af borguninni. No. 1825.
MINNI LÖND I ÖLLUM HLUTUM
Manitoba og Saskatchewan;
mörgg með sánum ökrum og væg-
um skilmálum. Sendið eftir verð-
skrá vorri.
Dominion Farm Exchange
815-8187 Somerset Block, Winnipeg,
Man.
,__i----------------------/
Kjörkaup á notud-
um ritvélum.
Underwood
Ein Underwood ritvél með
tveggja lita ræmu eins góð og ný.
Vanaverð $150.00. Vort sérstaka
verð......................$60.00
Smith Premier
Ein Smith Premier ritvél. Sein-
asta gerð. Vanaverð $100.00.
Vort sérstaka verð aðeins_$40.00
Empire
Tvær Empire ritvélar, nmbætt-
ar. Vanaverð $65.00 hver. Vort
sérstaka verð aðeins, hvor.„$18.60
Pantanir utanaf landi fljótt af
hendi leystar. Flutningsgjald
aukreitis. Sparið peninga. Kaup-
ið nú þegar.
Brooke & Holt
130 Lombard Str. Winnipeg
EIGN MED MATJTJRTA-
GÖRDUM TIL SÖLU
Við Portage Avenue, nálægt
Murray skemtigarðinum. Jarð-
vegurinn er annálaður í hin-
um fræga Rauðárdal. Hátt
land og þurt. Lækur rennur í
gegn um cignina. Gömul kona
á þessa eign og getur hún ekki
stundað hana eins og vera ber.
Skrifið oss eða talsímið.
Áritan vor er:
902 Confederation Building
| Sími Main 2391. Winnipeg,
v--------------------------L-J
Fimtugs afmœli Séra Friðriks Friðrikssonar
Hann átti fimtugastaafmæli 25 máí,
og völdu menn það tækifæri til þess
að votta honum þakkir og viður-
kenningu fyrir hið mikla og ágæta
starf, sem hann með einstakri ósér-
plægni hefir unnið fyrir æskulýð
þessa bæjar og þessa lands um
langt' áraskeið, því hann er bæði
stofnandi K.F.U.M. hér á landi og
hefir verið aðalleiðtogi þess alt til
þessa.
Um morguninn var hann vakinn af
söngflokk K.F.U.M., er Jón Hall-
dórsson bankaritari stýrir, og söng
flokkufinn úti fyrir gluggum séra
Friðriks iag, sem hann hef.r sjálíur
samið fyrir nokkrum árum við 24.
sálm Davíðs: “pér hlið, lyftið höfð-
um yðar” o.s.frv. PJn kl. 10 um
morguninn fékk hann heimsókn af
stjórn K.F.U.M., sjö mönnum, Kn.
Zimsen borgarstjóra, séra Bjarna
Jónssyni, Guðm. Ásbiarnarsyni
kaupm., Sigurj. Jónssyni bóksala,
Haraldi Sigurðssyni vé'zlunarm,
Pétri Gunnarssyni kaupm., o.; Siguro.
þorkelssyni kaupm., er færðu honum
gjöf frá félaginu, 2,000 kr. 1 gulli, og
voru þær afhentar í tveimur sjó-
‘vetlingum. Kl. 12 um daginn kom
sendinefnd frá bæjarstjórn Beykja-
víkur, Kn. Zimsen borgarstj, Sighv.
Bjamason bankastjóri, forsé' i bæja •
stjómar, og Ben. Sveinsson alþm.
varaforseti hennar. Fæiðu þe'v
honum 10 þús. króna gjöf frá bæn-
um ásamt ávarpi, er séra Lárus Hall-
dórsson hafði skrautritað. Aflienti
forseti bæjarstjórnar gjöfina með
ræðu, en séra Friðrik svaraði. Áyarp-
ið er svo hljóðandi:
“Bæjarstjórn Reykjavíkur notar
kærkomið tækifæri á fimtíu ára af-
mælisdegi yðar til að voVa yður
þakklæti fyrir hið þarfa og blessun-
arríka starf, sem þér um laagt skeið
hafið leyst af hendi fyrir æslyilýð
bæjarfélagsins. — Sem sýnilegan vott
þessa þakklætis leyfir hæjarstjórnin
sér að senda yður 10,000 k: óna kjöf
til ráðstöfunar fyrir starfsemi félags
yðar K.F.U.M., hér i hænum, á
þann hátt, sem yður þykir bezt henta,
og óskar jafnframt yður og starf-
semi félagsins góðs gengis á komandi
árum.”
Undir ávarpinu standa nöfn allra
bæjarfulltrúa Reykjavíkur.
Præp. lion. þorvaldur Jónsson frá
ísafirði færði séra Friðriki 1,000 kr.
gjöf frá sjálfum sér til útbreiðslu K.
F.U.M. í framtíðinni, sérstaklega á
ísafirði.
Margt og margskonar gjafir komu
auk þessa, þar á meðal söngvél, mikil
og dýr, með Edisons gerð, frá nokkr-
um vinum séra Friðriks, prestshempa
og kragi, frá konum í K.F.U.K.
kaffisekkur, frá borgarstjóra, skjala-
skápur, frá Haraldi kaupmanni Árna-
syni, ítalskt Maríulíkneski, frá tveim-
ur skólafélögum, Sigf. Blöndal bóka-
verði og porst. Gíslasyni ritstj., o.s.
frv. Tilkynt Tjfir frá Væringjafél-
aginu, að gjöf, sem það hefði ætlað
að senda, væri af sérstökum ástæðum
ekki fullbúin og gæti því ekkl orðið
afhent að þessu sinni.
Heillaóskaskeytin voru fjölda-
mörg og verða hér sýnd að eins nokk-
ur hin helztu. / Dr. Jón Helgason
biskup sendi svo hljóðandi skeyti:
“f nafni íslenzkrar kristni og
kirkju flyt eg yður á 50 ára fæðing-
ardegi yðar hugheilar hamingju- og
blessunar-óskir með hjartanlegri
þökk til guðs fyrir ávaxtarríkt starf á
liðinni tíð og innilegri bæn um dýrð-
legt framhald á hinu komandi, með
yfirgnæfandi náð yður til handa í
Kristi Jesú.”
Frá sóknarnefnd Reykjavíkur kom
svohljóðandi skeyti: “Fyrir hönd
dómkirkjusafnaðarins í Reykjavík
flytjum vér yður á þessum minning-
arríka degi hugheilar þakkir fyrir alt
yðar fórnfúsa starf í söfnuðinum og
biðjum guð að blessa yður og starf
yðar á ókomnum árum.”
Einnig kom skeyti frá Hjálpræðis-
hernum, sóknarnefnd Hafnarfjarðar,
K.F.U.M. í Hafnarfirði, séra Árna
Bjömssyni í Görðum, íþróttafélagi
Rvíkur og fjölda einstakra manna.
Frá ónefndum háskólastúdent kom
þessi vísa:
“Nú finnur þú eitthvað af yluum,
sem andar þér sjálfum frá,
í hamingju og ámaðaróskum,
sem ótal vinir tjá.”
Páll^ Guðmundsson guðfræðingur
sendi þetta erindi:
"Kæri höldur! Hálfrar aldar
hefurðu runnið skeið, og unnið
sveiginn þann, er sómir enni;
sigurmerkið í lífs þíns verki,
ást og virðing ótal bræðra,
instu hjartans þakkir bjartar,
brugðið og fléttað blessua drottins
bezt er prýði hæmm fríðum.”
Frá Indriða Einarssyni og heimil-
isfólki hans kom svohljóðandi skeyti;
“Hamingjuóskir með deginum. Ég
heyri jólnaglöð hringja í norðri og
sé I anda Skagafjörð heilagan út í
haf og fram í dali'. Ásbirningár hlusta
undir sverðinum á Hólum og Reyni-
stað, hvort ekki þurfi að reka hinn
heilaga mann og lið hans burt af
staðnum.”
Um kvöldið var samkoma f K.F.U.
M. par var húsfyllir og salurinn
mjög smekklega skreyttur. Samkom-
an var sett á sama hátt og venja er
til, með söng of bæn. par næst flutti
séra Bjami ræðu og á eftir söng
söngflokkur K.F.U.M. sama lagið og
um morgunin, “pér hlið” o. s. frv.
Pá sté dr. Jón Helgason biskup í
stólinn og talaði til séra Friðriks, en
síðan séra Árni í Görðum, frá hálfu
K.F.U.M. í Hafnarfirði, og þar næst
Kn. Zimsen borgarstjóri, frá hálfu
F.F.U.M. í Rvík. Pá söng söng-
flokkurinn enn tvö lög, en þar næst
steig séra Friðrik í stólinn og þakk-
aði, og var síðan samkomunni slitið
á venjulegan hátt. Hafði hún farið
mjög vel fram.
Um daginn sátu gestir séra Frið-
riks við káffidrykkju hjá móður
hans, frú Guðrúnu Pálsdóttur, er býr
með honum, og er hún enn em og
frísk.
Ur bygðum
Islendinga.
Riverton, Júlí 14. 1918.
Kæri ritstjóri Voraldar,—-i
Eg ræðst nú í að skrifa Voröld fá-
einar línur, ekki vegna þess að eg
álíti sjálfan n-ig svo mikinn rithöf-
und að ekki gæti alt staðist þó eg
léti ekkert til mín heyra, en mér
finst það eitthvað svo skrýtilega
skemmtilegt, og um leið einkennilegt,
að lesa íslenzkt vikublað sem reynir
að segja manni sannleikann, og halda
fram máli alþýðunnar, að eg get’ ekki
staðið hjá án þess að láta fögnuð
minn og þakklæti í ljósi, bæði til þín
herra ritstjóri, sem staðið hefir eifls
og klettur í hafinu hvað sem á hefir
dunið, og eins til þeirra framgjömu
manna sem hjálpað hafa til að koma
fyrirtæki þessu í framkvæmd. Eg
veit að það er vandasamt verk að
skrifa fréttabréf fyrir blað, en þó er
alveg bráð naiiðsynlegt að hver ein-
asta bygð láti eitthvað til sín heyra,
en Fijótsbygð hefir æfinlega verið
ósköp spör á fréttum við hin vestur
íslenzku blöð. Eg ætla ekkert að
fara að sækja aftur í tímann; við
skulum láta það umliðna vera í friði,
þó náttúrlega ekki .altsaman alveg
gleymt. Tíðarfar liefir verið helzt
til votviðrasamt nú upp á siðkastið
(síðastliðinn mánuð) og þar af leið-
andi hætt við að heyfengur manna
verði í rýrara lægi þetta sumar, því
eingi manna em víða lítt fær til hey-
skapar fyrr en í Ágúst vegna bleytu
og þá reka menn sig víða á það að
burt eru teknar af heimilunum
hraustustu hendurnar, sem að undan-
förnu hafa dr.Uið saman mikið hey á
stuttum t,íma. En nú á eg líklega að
þagna, því oflaxigur sálmur getur orð-
ið ljótur. Akrar líta út í góðu meðal-
lagi þar sem ekki drukknaði í vor í
bleytunum.
Eg er að hugsa um að skrifa fá-
einar línur viðvíkjandi samkomu sem
haldin var þanh 7. þ.m. Eftir hádegi
á Sunnudaginn þann 7. söfnuðust
saman fullt hmjdrað manns að sam-
komustað kappræðufélagsins Grettir,
sem stendur sem næst einni mílu fyr-
ir vestan merki þau er menn vana-
lega hugsa sér aðskilji Geysir og
Fljótsbygð. Tilefnið var það að kapp-
ræðufélagið hafði ákveðið að halda
mót nokkrum félögum sínum og
öðrum drengjum sem í herinn hafa
verið kallaðir. pakklæti og árnaðar
samsæti hófst klukkan tvö og byrjaði
með því að herra Einar Benjamínson,
sem stýrði samsætinu skýrði frá til-
gangi þess og ba söngfólkið að
syngja gamla vina sönginn, “Hvað er
svo glatt;” svo byrjuðu ræðumenn að
láta til sín heyía. peir sem ræður
héldu voru þessir: Gísli Einarsson,
Jón Skúlason, Bjarni Jóhannsson,
Tímóteus Böðvarson, Sigurður Frið-
finnsson, og kvæði flutti Hallgrímur
Friðriksson. Svo þakkaði 'Kristján
Sigurðson, einn af heiðurs gestunum
ræðurnar. Er það eitt að segja að
öllum kom saman um það ag skyldan
til að berjast fyrir fóstur landið væri
brýn og hver sá sem teldist Brezkur
borgari og notað hefir gæða og hags-
muna landsins „ eftír okkar sinni og
mannskap, hann gæti ekki dreng-
skapar síns vegna færst undan þvi
skilyrði borgara bréfsins að leggja
líf sitt í sölur.'iar þegar landið þyrfti
varnar við. En að hinu leytiiíu
hörmuðu menn það að siðmenning og
mannúð skuli ekki vera komin lengra
á leið en það að dómara sætið í al-
þjóða réttinum skuli vera skipáð
manndrápurum eða að hinir miklu
stjórnmála garpar stórþjóðanna, sem
sungið er lof fyrir skörungskap og
vitsmuni, skuli ekki takast betur en
það að það starf sem þeim er trúað
íyrir, að þjóðirnar hagi sér eins ot
seppar sem holrífa hver annan út af
smá beini sem í sjálfu sér var sára
lítils virði. En hvað um það, hóp-
ur sá sem við lr.vöddum á sunnudaginn
leggur sína fórn möglunarlaust fram,
þrátt fyrir allar misfellur sem eru á
alþjóða fyrirkomulaginu, og vanda-
menn þeirra taka þessu með stillingu
og íslenzkum skörungskap. Annars
vona ég að geta sent Voröld kvæði
herra Friðrikssonar, sem alveg út-
skýrði anda þann sem réði í þessu
samsæti. Á eftir hverri* ræðu var
sungin eitthverc áhrifa mikið söng-
lag; söngnum stýrði herra G. M. K.
Björnsson. Að ræðuhöldum loknum
var hverjum borið kaffi og súkkulaði
og svo mikið af brauði þar með fylgj-
andi, að hafi andi Thorsteins Mat-
goggs verið þar áhorfandi er ég viss
um að hann heíir harmað það sárt að
verá nú laus við holdsvistar bönd, og
geta ekki tekið þátt í að létta mal-
sekki þessa rausnarlega fólks. Og
svo var ekki búið með það: þegar
fólk var búið að rétta úr sér og
þurka af sér svitann eftir kaffi drykk-
juna, þá voru borin fram aldini sem
menn gerðu skil með hinum mesta
skorungskap. Svo tóku menn aftur
til að syngja þar til heiðursgestirnir
kvöddu, þá fó. u menn að hugsa til
heimferðax-.
Fai-ið vel drengir og reynist sannir
synir þjóðar ykkar og fósturlands, og
fagnandi vonum við að geta tekið á
móti ykkur öllum þegar þið hafið lok-
ið því göfuga starfi að berjast fyrir
alþjóðarfrið.
Einkennilegt þykir mér að frétta
um meðgerð íslenzkunnar á kirkju-
þinginu eftir því sem Voröld segir, og
allmikil kúgun var falin í uppástungu
M. Paulsonar. En hvað voru kirkju-
þingsmennirnir að hugsa; líklega
hefirr þó tillagan verið borin undir
atkvæði og almenningi þar með gef-
ið tækifæri að fella hana. Voru
virkilega allir þeir gráhærðu öldung-
ar sem þetta þing sátu fastákveðnir í
að fyrirfara islenzkunni, málinu sem
þeir hafa lengst af talað og málinu
sem þeir flestir kunna bezt, eða
voru þeir fastákveðnir í að fylgja
prestum sínum hugsunarlaust i hvora
áttina sem þeir herrar ætluðu að
haþda, eða hafa þeir ekki komið auga
á stefnubi’eytingu þá sem prestar vor-
ir eru að taka í íslenzkum málinu? Ef
þeir voru ekki á sama máli og þeir,
því ekki að greiða atkvæði á móti til-
löginni? pví þó'góð sé hylli prest-
anna, þá er þö tæplega tilvinnandi að
fylgja þeim þegar þeir taka beint
strik norður og niður, og það hafa
þeir gert I íslenzku málinu. Og blett-
ast finst mér friðarkenning þeirra
og kulda finst mér slá af kærleiks-
prédikun þeirra nú upp á siðkastið.
Svo álvarlegt er teþta mél að hver
sem sannkristinn vill láta kalla sig
má stansa og hugsa sig um hvort ráð-
legt sé að fyigja þessum hempu-
klæddu leiðtogum lengra.
Lögberg segír að rífa verði annan
hornstein kristínnar kirkju, hvernig
á bygging sem bygð er á hornstein-
um að standa jafnrétt þegar búið er
að rífa helming undirstöðunnar? og
hvaða sanngjöm ástæða er til að
ráðast á íslenzkuna með þessari
fólsku? Porir nokkur að bera það
fram að landstjornin heimti það?' Er
henni ekki bórið nóg á brýn þó ekki
sé verið að ljúga á hana óhi-oða?
Vill nokkur halda því fram að ís-
lendingar gæti ekki verið góðir her-
menn þó þeir kunni að tala íslenzkt
mál? Væri ekki líklegt ef þeir tækju
sér góða fornsögu í hönd og læsu
hana, að það gerði þá stæltari til
hardræðis heldur en ef þeir hefðu
aldrei heyrt neitt um fornmenn vora.
Hafa ekki íslendingar fengið orð fyr-*
ir að vera góði ■ borgarar og þegn-
hollir. pó þeir hafi kunnað íslenzku?
Rýrir það gildi nokkurs manns að
kunna tvö tungumál? Hafa ekki okit-
ar beztu mem skrifað og talað ís-
lenzku, til dæmis, 'séra Jón Bjaraa-
son, sérá Friðrik J. Bergman, Capt.
Sigtryggur Jónasson, Friðjón Ftið-
riksson og Gunnsteinn Eyjólfsson, og
margir fleiri? Ruddu þessir menn
sér ekki braut til vegs og frama sicu
upp á hvern ,náta og vóru þetta J'ó
taenn sem kunnu íslenzku mæta vel.
Ég held því fram að þeir s,em staðið
hafa næst Jóns Bjarnasonar skóla
ættu að verða seinastir til að ráðast
á íslenzkuna. Almenningur veit vel
að miklu fé hefir verið safnað til
skólans undir því yfirskini að við-
halda íslenzkunni. Almenning'ir
veit vel að maður sá sem skóiinn er
jheitinn eftir bar móður málið fyrir
brjósti sér af svo mikilli ást að eng-
inn gat um það efast að það var h'jn
um innilegt hjartans málefni, getur
þá nokkur með éblandinni reiði
hugsað til þess að menn þeir sem að
málum skólans standa fóru að út-
hýma því sem þessi góði og mikli
maður barðist fyrir fram á síðustu
stundu? Mundi hann hafa getað
hugsað sér eftirmenn sína slík tvegg-
jahandajárri ? Mundi hann ekki hafa
óskað að nafn sitt yrði burt tekið af
slíkri stofnun? Að svo mæltu slæ ég
botninn í þessar línur, herra ritstjórí,
og ætla að sjá hvað mikið af þeim
kemst í gegnum þinn hreinsunar eld.
Með vinsemd.
Gísli Einarsson.
....Point Rcberts, 12. júlí, 1918.
Herra ritstjóri Voraldar,—Pað er
lítið að frétca héðan. Fólkinu líður
vel. Veðrið er gott en mjög þurt.
Hey komin inn hjá öllum græn og
góð, en með lang minsta móti. Ann-
Vér kennum O T T í~'< T S Pitmann og Gregg '■N1 1 ( ( hraðritun
-> |~( /-> Vér böfum h SS 28 æfða kennara.
1BUSINESS COLLEGE ]
A HORNINU A PORTAGE OG EDMONTON
WINNIPEG, MANITOBA
TÆKIFÆRI. • ~=p5Í ÖDRUM FULLKOMNARI.
B Mikil þörf er á góðu fólki út- gs skrifaðu frá Suecess. Hundruð 111 af bókhöldurum, hraðriturum, E skrifurum og skrifstofuþjónum |j|Í vantar einmitt nú 6em allra fyrst M Byrjið tafarlaust—núna strax í £p dag. Búðu þig undir tækifærið Bj sem drepur á dyr hjá þér. Legðu l|g fé þitt í mentun. Ef þú gjörir pg| það þá farast þér svo vel að for- Sg eldrar þfnir, vinlr þínir, viðskifta WS. heimurinn verða stolt af þér. fgl Success skólinn veitír þér lykil- jS inn að dyrum gæfunnar. Bezt WB er fyrir þig að innritast tafar- Bezti vitnisburðurinn er al- §B ment traust. Árs innritun nem- enda á Success skólann er miklu BSj hærri en allra annara verzlunar- igj skóla í Winnipeg til samans. ||j Skóli vor logar af áhuga nýrra |gl hugmynda og nýtísku aðferða. 11| ódýrir og einstakra manna skól- 3B ar eru dýrir hvað sem þeir kosta §3 Vér höfum séræfða kennaia; Wm kennarar vorir eru langt um H fremri öðrum. Lærið á Success, §|gj þeim skóla skóla hefir farnast §||| allra skóla bezt. Success skól- Bji inn vinnur þér velfarnar. T
INNRITIST HVENÆR SEM ER. SKRIFID EFTIR BÆKLING jjj
The Success Business College
B F. G. Garbut, Pres. LTD. D. F. Ferguson, Prin. I|jj
' ONE GAE-SCOTT 25 H. P. j
i
Samsett dráttvél og sjálffermari og blástursvél, fyrir I
• * ®
i,500. Skilmálar $500 út í hönd og sanngjrn tími fyrir það É
Isem cftir er.
I
Snúið yður til auglýsendans að
1 902 CONFEDERATION LIFE BUIIDING, WINNIPEG
____ _ _ _________________ 'I
C. S. MACDONELL LUMBER C0. í
i
í
í
I
j 346 SOMERSET BLOCK
Bæði Stranda og Fjallaviður
þakspónn úr rauðum sítrus-viði.
Sívalir og kantaðir staurar. Eldiviður
SKRIFID EFTIR UPPLÝSINGUM UM VERD
i
I
WINNIPEG
É
(O
<m
iRJOMI
SÆTUR OG SÚR
| Keyptur
Vér borgum undantekningar-
laust hæsta verð. Fiiítninga-
brúsar lagðir til fyrir heildsöiu
verð.
Fljót afgreiðsla, góð skil og
kurteis framkoma er trygð með
því að verzla við
DOMINION CREAMERIES
í
| ASHERN, MAN.
og
WINNIPEG, MAN. j
>o<»()-«»(H8iK)«^i)^«K)«ni()0()^i)^m
M)-«n»-<CI
ars útlit dauft með alla uppskeru.
Ungir menn, sem ekki hafa verið
kallaðir til herþjónustu, fóru margir
til Alaska í vor; þó vinna nokkrir
hjá fiskifélögunum sem hér eru:
Einkum hjá A. P. A., þar er Arni Mýr-
dal! Félagslíf líkt og það hefir ver-
ið. Lestrarfélagið kaupir allar ís-
lenzkar bækur sem það getur, og
meðlimir þess lesa þær. En safnað-
arlífið finst mér einnig standa í stað.
Er þó leiðtoginn sem við höfum fyrir
söfnuðinum, séra Sig. ólafsson, hié
mest ljúfmenni, og flytur hann aldrei
annað með sér en sólskin og blíðu.
Ýms fyrirbrigði eða, jafnvel, opin-
beranir, hafa gert vart við sig hjá
nokkrum *öndungum sem hér halda
félagsskap. En eigi hefi ég leyfi til
að segja neitt um það frekar. Hitt
veit ég að það er alt skikkanlegt og
ráðvant fólk.
Nú höfum við hér nýja menn í
skólaráðinu: Tvo íslendinga, og
einn danskan. pótti flestum það bet-
ur. íslendingarnir eru þeir Kol-
beinn Sæmundson og Jón Salomon.
Sömuleiðis höfum við nýjan póst af-
greiðslumann, Edward Samúelsson.
Hann er sonur Jónasar Samúelsonar;
ungur piltur og mjög viðkunnanlegur
eins og hann á kyn til. Jónas Sveins-
soji er verkstjóri á brautum sem gerð-
ar eru af því opinbera. Aðra ís-
lendinga höfum við ekki við opinber
störf óða í embættum hér á tangan-
um.
Jæja, ritstjóri góður. Ég verð svo
lítið að minnasct á Voröld. Hér þyk-
ir þún að mórgu leyti skemtileg. En
hún er svo ósköp gisin enn þá. Eri
svo hefir hún þann kost fram yfir
hin íslenzku blcðin, að geta sagt frá
svo miklu með svo fáum orðum. Eri
sú list er ekki öllum lagin. Leiðin-
legastar eru auglýsingarnar. En svo
ber að líta á það, að Voröld hefir
Parker & Son
Beint á móti pósthúsinu, selja alt sem
drengir þarfnast.
engan stjórnar styrk. Hún verður ali
sjá fyrir sér sjálf; og ég held henni
ætli að takast það. Ég held að allir
sem hafa keypt Voröld hér á taugan-
um séu ánægðir með hana. peim þykir
stefna hennar góð.—pú lætur þeim
ekki líðast að ljúga óvinum verka-
líðsins.
Um Sólöld, eða barnablaðið hefi ég
það að segja, að drengirnir mínir eru
mjög óánægðir með þg,ð síðan breytt
var um form á blaðinu. Áður kliptu
þeir blaðið úr og héldu því sáman;
nú er það ekki hægt. Ég vil þvf
leggja það til að Sólöld hætti að koma
út þangað til lcíyfi fæst til að prenta
hana í sama formi og upphaflega var
gjört í Voröld. Hér á tanganum held
ég að það verði eins vinsælt, og þá
hefi ég sagt mitt álit um Sólöld.. Svo
læt ég hér staðar numið. pað er
líkast tii bezt að segja sem minst nú
á tímum því nú er alt takmarkað,
“Fæst orð hafa minsta ábyrgð.” Nú
er mest talað um illgyrni þjóðverja.
pað er eins og alt ilt sé komið í þá. Er
því þörf að koma þeim fyrir kattarnef
sem'fyrst. Annað sem mikið er tal-
að um, er: Guð og trúin. Prestarnir
hafa ekkévið að bæla niður masið.
Fyrirgefðu; þínn einlægur,
Ingvar Goodman.
KENNARA VANTAR
til Laufáss skóla (No. 12il) fyrir 10
mánuði; oyrjar 2. september næstk.
Annað eða þriðja stigs próf normal
verður kennarinn að hafa. Tilboð
sendist til undirritaðs fyrir 30 júlí, og
þau að tiltaka kaup óskað og æfingu.
Geysir, Man., júlí 6, 19188.
B. Jóhannsson.