Voröld - 06.05.1919, Page 2

Voröld - 06.05.1919, Page 2
Blfi. 2 70RÖLD. Winnipeg, 6. maí, 1919 Einhver Stefán Einarsson 1 síðasta Lögbergi, prentuðu 24. apríl, þ.á. birtast athugasemclir við grein mína, sem kom í Voröld 8. þ.m. eftir einhvern Stefán Ein- arsson að 523 Sherbrooke St. City. Hvar þetta city er veit eg ekki, með vissu, en mér dettur í hug að það muni samt vera Winnipeg. Eg fullvissa St. Einarsson um það að mér var það sönn ánægja að sjá að þessi stutta grein mín skyldi vekja svo mikla eftirtekt að maður sem telur sig tilheyra hinum mentaða heimi skyldi álíta hana þess yirði að gjöra athugasemdir við hana. J>ó finst mér að hann hefði mátt vera dálítið sanngjarnari í dómum sínum, og hefði getað gjört þessar athugasemdir án þess að sýna mér persónulega ókurteisi. En hafi honum fundist það koma málefninu við eða vera hans eigin per- sónu samboðið þá var konum það velkomið. það sakar mig ekki hið allra minsta og eg hefi enga löngun til að gjalda honum í sömu mynd, Mér hefir fundist það stærsti galli íslenzku blaðanna hvað þau hafa flutt mikið af persónulegum skömmum og brigslyrðum. Og eg- vona að komast hjá því að bæta þar við. Eg er sannfærð um að'þessar athpgasemdir St. Einarssonar hafa meiri áhrif en höfundurinn hefir gjört sér grein fyrir þegar liann 6krifaði þær. En þau áhrif verða máske í aðra átt en hann ætlaðist til, og þá er mínum tilgangi náð. Eg treysti að alla taki sárt til sinna og að Lög- berg mundi eigu góða að sem tækju svari þess og að ské kynni að eitt- hvað af því sem eg tók upp úr Labor News komist á þann hátt óvart í Lögberg og sú von brást mér ekki. St. Einarsson segir að eg muni ekki hafa sett mig inn í hvað eg var að fara með þegar eg mintist á sjálfboðana í sambandi við her- skylduna; eg sagði: “Mundu sjálfboðarnir hafa farið eins viljugir, ef þeir hefðu vitað að herskylda yrði sett á í Canada.” St. Einarson segir að það hafi verið ein ástæðan fyrir því að þeir fóru, að þeir sáu að það gat komið fyrir að herskylda yrði sett á hér í Capada; en ekki af okkur, heldur þjóðverjum, ef þeir næðu yfirráð- iim í heiminum. Sannar þetta nokkuð að þeir mundu hafa verið með því að Canadamenn settu sjálfir á herskyldu hér? Elcki get eg séð það. " - Hafi St. Einarsson fylgst með þegar verið var að ræða herskyldu málið á þinginu- hlýtur hann að vita að skírslurnar sýndu að nálega eða eins margir höfðu gengið inn síðasta mánuðinn sem sjálfsboða að- ferðin var notuð, eins og fyrstu mánuðina eftir að stríðið byrjaði. Laurier sýndi þá fram á að herskylda mundi ekki hjálpa til að vinna stríðið, að það hefði ekki verið unnið rétt að liðsöfnun í Quebec yg ef honum væri géfið tækifæri þá skyldi hann sjá um að Quebec- memi gjörðu skyldu sína. En Borden áleit vissara að taka þá með valdi. Hefir hann getað það? Hefir herskyldan náð tilgangi sínum þar? Hvor þessara manna, Laurier eða Borden sýndu meiri stjórnvizku þá? Mundu ekki þjóðverjar hafa unnið stríðið jafnt fyrir það þó herskylda væri sett á í ^anada, ef Bandaríkin hefðu ekki farið í það ? pað er undarlegt að einmitt í þessu sama Lögbergs blaði sem at- hugasemdir St. Einarssonar eru í, er skýrsla yfir her þjóðverja; sagt er að þessi skýrsla muni vera sönn; að her þjóðverja hafi verið tíu miljónir í byrjun stríðsins, að hann sé nú yfir sex milljónir. Sannar ekki þetta að það sem Louise Bryant sagði sé satt, að stríðið hefði getað haldið áfram lengur ef þýzka þjóðin hefði haldið áfram að standa á balc við her sinn? Svona hefir það altaf gengið til að sann- leikurinn smá iekur út og það einmitt hjá mönnum sem helzt vilja leyna honum. » ekki nokkuft mikið sagt af St. Einarssyni að þeir sem að- hyllast Bolshevism, séu þeir cm hafi verið þýzksinnaðir á meðin á stríðinu stóð, hafí dáðst að Lryðjuverkum þýzkara og að það mcgi trúa þessu fólki til alls. Mér íinst að þeir sem unnu að því að koma á herskyldu í Canada hafi dáðst mcira að þýzka hervaldinu en þeir scm unnu á móti lienni. Eg sé ekkert réttlæti í því að hata alla þýzku .þjóðina þó að nokkrir drotnunargjarnir menn hafi haldið henni í járn greipum hervaldsins og á þann hátt knúð hana í stríð. Mér finst a'ð innbyrðis óeirðimar þar sanni að það hafi ekki verið vilji þjóðarinnar að fara í stríð. það litla sem fréttist af friðarþinginu virðisf benda á að það séu fleiri en þýzkarar eigingjarnir og drotnunargjarnir. Og það er ekki útlit fyrir að þeir menn sem nmsitja á ráðstefnu til að semja frið beri gæfu til þess að koma á alþjóða sambandi sem tryggi það að aldrei framar vcjrði stríð. Hvað hefir þá verið unnið með þessum ógurlegu og óguðlegu blóðsúthellingum. Var ekki sagt að þetta væri réttlætis stríð til að brjóta niður hervald og hernað, til þess að allar þjóðir yrðu frjálsar? En svo þegar kemur til þess að gjöra friðar samningana, þá er hver hendin upp á móti annari og sumir þeirra manna sem þóttust vinna með frið og frelsi eru eins drotnunar gjarnir og ágjamir og þýzkarar sjálfir. Og nú segir St. Einarsson að hinn mentaði heimur hafi andstygð á því fólki sem dirfist að halda á lofti og vinna með þeim frelsishug- ejónum, sem barist var fyrir. þeim er gefið annað nafn; þær era nú kallaðar “Bolsheviki” Nafnið á víst að hræða fólk, en óvíst er að það verði. St. Einarsson segir að það megi koma ræflum sem ekki kunni að lesa eða skrifa til að gjöra hvað sem er. En gæta skal hann að því> að það hvílir meiri ábyrgð á þeim sem kunna að lesa og skrifa en nota það illa. Og komið hefir fyrir að það sem hefir verið gjört í vondum tilgangi hefir snúist til góðs. Svo getur farið með þessar athugasemdir hans. Ósanngjamt þykir mér það af St. Einarssyni, þegar hann segir að það sýni hugarfar ritstjóra Voraldar að koma með aðra eins grein og þessa grein mína. Qetur ritstjóri Vcraldar neitað að taka ritgjörðir til prentunar þó þær séu ekki í lamræmi við skoðanir hans, eða væri 3 að sanngjarnt, þar sem Voröld er frjálst blað, stofnað af Islending- um; óháð stjóm og auðvaldi? pað er annað n^ál með Lögberg og Heimskringlu, sem eru bæði bundin stjórn og auðvaldi. og að líkind- um mega ekki og virðast ekki heldur gjöra sér far um að upplýsa al- þ\ ðuna. Eg vildi ekki skipa ritsvjórasæti þeirra blaða. Eg álít að það fylgi mikil ábyrgð þeirri stöðu; að ritstjórar hafi meira tækifæri til að hafa áhrif á auþýðuna en nokkrir aðrir menn. Og ef það tæki- færi er ekki notað eftir beztu sannfæringu, þá er það ábyrgðarhluti fyrir ritstjórana. .St. Einarsson heldur að eg hafi ekki komið mér að því að setja fult nafn mitt. J>ar skjátlast honum algjörlega. Eg er svo forhert að eg finn ekki að eg hafi sagt neitt sem eg þurfi að skammast mín fyrir. Og eg tek ekki eitt orð af því til baka. Mér var það full ljóst þegar eg skrifaði þá grein eins og hún ber með sér, að lög þessa lands era svo útbúin að það má taka saklaust fólk og setja það í fangelsi; það hefir líka verið gjört. Tugir manna og kvenna sitja í fangelsi dæmd til fleiri ára fyrir að hafa verið á móti herskyldunni, fyrir að vinna með mannúð og kærleika. 13. apríl síðastl. var Eugene V. Debs, hinn nafnfrægi barna og mannvinur Bandaríkjanna settur í 10 ára fangelsi fyrir sömu sök. Hvað lengi ætlar fólkið að líða annað eins óréttlæti og þetta? J)essi maður skrifaði vinum sínum og hann óskar þeim til hamingju og bíður að heilsa öllum, ekki eitt orð af heift eða hatri til óvinanna. Hjarta hans er fult af Guðdómlegum kærleika; hann er tilbúinn að láta lífið fyrir fólkið. Er ekki þessi maður að fórna lífi sínu eins og ICristur gjörði? Samt er allur fjöldinn aðgjörðalaus, telur sér trú um að við höfum eins góða stjórn og stjórnarfyrirkomulag eins og okkur beri að þcir sem mæla á móti því séu uppreisnar og landráða fólk og að það sé rétt að setja það í fangelsi. En sé nokkurt réttlæti til, hlýtur þessa óguðlega ranglætis að verða hefnt og það getur orðið áður en nokkurn varir. í Lögbergi sem gefið var út 27. marz, s. 1. birtist grein með fyrir- sögn “Meyjarmál” og undirskrift “Karlmaður” Sér St. Einarsson ekkert athugavert við þá grein af því hún var í Lögberg? En við þá grein vil eg gjöra dálitlar athugasemdir. J>ar finst mér lýsa sér sönn ómenska og eg er þakklát fyrir að það var ekki kona sem skrifaði þá grein. Eg rnundi skammast mín ef noklcur kona sýndi Margréti Benediktsson aðra ein ókurteisi. Eg vona að allar íslenzkar konur virði þá göfugu og miklu konu og lífsstarf hennar. Höfundur þess- arar meyjarmála greinar telur það slæmt að gömlu verk Margrétar H’afi verið til ónýtis; þar fer hann feilt eins og í flestu öðru í þessari meyjarmálagrein sinni, það er einmitt þessum gömlu verkum Margrét- ar að þakka að það eru til konur sem eru ekki algjörlega óviðbúnar því að nota rétt sinn, verði þær ekki sviftar honum eins og átti sér stað við síðustu kosningar. það er auðvitað satt að það hafa of fáar konur reynt að afla sér upplýsinga í stjórnmálum, en má ekki segja það sama um karlmennina? Heíir allur fjöldi þeirra nóga þekkingu í stjórnmálum til þess að geta greitt atkvæði eftir eigin sannfæringu? og era þeir þó búnir að hafa atkvæðisréttinn lengi. Eg hefi góða von um að konur verði ekki lengi á eftir karlmönnunum í því efni. Eg kyntist Margréti Benedictsson persónulega þegar eg var ungling- ur og hún var mér sem móðir. Eg skammast mín ekkert fyrir að kannast við þao að cg er meiri og betri kona fyrir þá viðkynningu, því hún kendi mér að hugsa Qg rannsaka tilgang tilverunnar. Marg- rét Benedictsson hefir sannarlega lagt mikið á sig fyrir okkur konurn- ar og það minsta sem við getum gjört er að votta henni þakklæti okkar. Hún hefir ekki sótt eftir upphefð eða metorðum. pað er ekki hennar eðli. En það mundi vera henni sönn gleði ef hún fyndi að verk hennar væru réttilega metin. J>að er því miður of algengt í þessum heimi að kostir fólks séu ekki metnir fyrr en það er farið og þá er það of seint. _ \ Eg met ekki þessa meyjarmála grein þess að gjöra fleiri athuga- semdir við hana. Mig grunar að liefði höfundur þeirrar greinar sett fyrstu stafina í nafni sírm eins og eg gjörði, þá mundu margir hafa lcannast við hann og það hefir hann að líkindum vitað, og þessvegna ekki gjört það. Getur verið að samvizka hans hafi hvíslað að hon- um að hann leysti þetta verk ekki af hendi af góðum hvötum og það mundi ekki vera honum til sóma að geta nafns síns. Hafi eg sagt nokkuð sem St. Einarsson eða aðrir landhollir ís- lendingar álíta hegningarvert þá vona eg að það bítni á mér en ekki ritstjóra Voraldar. Eg skal setja fult nafn mitt og utanáskrift svo það sé hægt að finna mig, ef þörf gjörist. Sigríður Martin. Hnausa, Man., 1. maí, 1919 ! í Samanburður. mom^-ommma í o 1 i i Hann Stefán einn í útlegð býr og Egils hörpustrengi knýr. c 1 i Hann yrkir land og yrkir ljóð c * 1 og' auðgar sína þjóð. ! 1 i i Er húmar að og' hnígnr sól og húskarl þreyttur legst í ból þá gjalla strengir gýgju hans og göfga hjarta manns. 1 i i r En Siggi háir sífelt stríð við sérhvert böl er þjakar lýð. i j Með læknis hönd og lyfjastein j c 1 hann læknar þjóðar mein. i i Og lýðsins böl og sár hann sér og saman bræðra kjör hann ber; i i c því sumir liggja’ í ofur auð c ! en aðra skortir brauð. ! i Og alla daga öll hans störf i c 1 j að einu hnigu: Að bæta úr þörf. Hann hugsar minna’ um hagnað sinn en heilla vorið inn. c I i En Ami hóndi’ í Argyle býr C | 1 við akra sína naut og kýr I 1 og fyllir blaða hungurs hýt og hrejrtir í þá skít. j Sa»o Páll Guðmundsson | «M0M»()»»()»»()«*(>4»»(>4»»()'^»O4»»OM»O4»(>»»(g Kjorkaupa Sala notuðum hermanna TJÖLDUM .14 fet á hvern veginn; 2 feta 4. þuml. veggir. 1 fyrirtaks ástandi og bezta frágangi. $17.50 Yfirlltið af verksmiðjunni pægileg til notkunar Við kaupum alslags Járnrusl kopar, leður, tuskur o. s. frv. Manitoba Woolen stock& Metal Co. 391 DUFFERIN AVE. WINNIPEG FIRSTSERIES * (1919) MAY $ 4.04 JUNE$4.0! JULY $ OOSTDURING — 1919 — JAN.$4.00 Where SeeThis LESIÐ TÖLURAR Takiðveftir hvernig kostnaður — og peningagildi — frímerkjanna hækkar mánaðarlega þangað til 1. janúar 1924 að Canadaríki skuld- ’bindur sig til að borga $5.00 fyrir vlivert stríðssparnaðar frímerki. aC áI2E OF- w-s OM ▼ ! Ábyggileg Ljós og Aílgjafi I í Vér ábyrgjumst yður varanlega og óslitna / þjónustu ! Vér æskjum virðingarfylst viðskifta jafnt fyrir VEBKSMIÐJ. ! UR sem HEIMILI. Talsími Main 9580. CONTRACT DEPT. j Umboðsmaður vor er reiðubúinn að finna yður að máli og gefa = yður kostnaðaráætlun. I c ! Winnipeg Electric Railway Co I A. W. McLIMONT, General Manager. MO Þið hinir ungu sem erud framgjarnir Undirbúið ykkur fyrir takmarkalaus verzlunar tækifæri. pið sem eruð fljót til — þið sem stigið greiðlega og undirbúið ykkur, munið njóta bezt velgegni endurreisnar tímans í nálægri framtíð. þið munuð þá geta uppfylt hin nákvæmu störf og reksturs fyrirætlanir verzlunarhúsunna. Ráðstafið því að byrja nám ykkar hér— Nœsta mánudag pessi skóli beinir öllum tíma sínum og kröftum til áð fullkomna ungt fólk í verzhmarstörfum; og fæst sérstaklega við alt sem lýtur að viðskiftalífinu. Kenslu stofurnar eru stórar, bjartar og loftgóðar, og kenslunni mjög vel tilhagað, undir yfirsjón ágætra kennara, alt fyrir komulag þannig að liver einstakur nemandi geti notið sem best af. Eini vegurinn til að þú gætir fullkomlega virt starf skólans er að sjá hann í fullum starfa. Vér vildum mælast til að þér heimsæktir oss á hvaða tíma sem er. En ef þér skyldi ekki hægt að heimsækja oss, þá skrifaðu eða símaðu eftir upplýsingum. Skrifið eða hafið tal af D. F. Ferguson, skólastjóra. Success Business Coilege Ltd. Cor. Portage Ave. and Edmonton St. (beint á móti Boyd byggingunni) Phone Main 1664—1665 Oh >-omtmomHm-ommm-o-mm-omamo< bommmomtm-omam-o 1882—Stofnsett fyrir 36 árum—1918 Okkar Nýju Vor-föt og yfir-frakkar eru komin—Seinka ekki aft velja þér þín. Verð og gæfti eru óvanalega góð og eftir nýjasta móði. BLÁ OG GRÁ SERGE FÖT sem vér ábyrgjumst $25 — $30 — $35 — til — $45 White & Manahan, Ltd. 500 MAIN STREET ! White & Manahan, Ltd. ! 1882—Stofnsett fyrir 36 árum—1918 I o I ►(>•*»■(>-« ►i>«»()«i»'(>«»()«»0'a»»()«a»(>«»(0

x

Voröld

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.