Akureyrarpósturinn - 18.03.1886, Blaðsíða 7
7
og frá kirkjunni út í kirkjugarðinn. Einnig
voru leikin á horn sálmalög bæði undan og
eptir söngnum. Líkfylgðin var einhver hin
fjölmennasta, sem hjer hefir nokkru sinni
verið, og vart mun meira enn helmingur
þess mannfjölda komizt inn í kirkjuna. Sálma-
aöngnum stýrði organisti Jónas Helgason.
Arnessýslu 15. jan. 1886.
Erá miðjum nóv. og til ársloka máttj
tíðarfar heita nokkurnvegin gott. |>ó
var veður óstöðugt og optar snjóasamt, en
frost voru væg og hagar optast nokkrir. Sjó-
gæftir engar að kalla, tvisvar eða pris-
var komið á sjó á Stokkseyri, og að eins
reynst vart. Mikið breyttist veðrátta til
hins lakai’a. Hefir síðan varla orðið hlje
á snjógangi af ymsum áttum með meiri og
minni kafaldsbyljum. Svo nú er ekki urn
neina útbeit að ræða fyrir nokkra skepnu,
Yfir höfuð er heilsufar manna og skepna i
betra lagi; en hvað bjargræði snertir erút-
litið víst með lakasta móti, og gætir pess
pví meira sem tíðarfar er harðara. Sjer-
stakar frjettir eru nú engar hjeðan. |>ó
má geta pess að í haust var stofnað
bindindisfjelag á Eyi’arbakka og er pað að
breiðast víðar og viðar út, par um neðstu
hreppa sýslunnar. Er svo tilætlað að
pað 'oreiðist um hana alla.
Veðrátta var hörð nin allt land tvo
fyrstu inánuði ársins. Hafíshroða rak inn
á Húnallóa og iun á Eyjafjörö. Þennan
mánuð cr veðurátta mildari og er koinin
upp góð jörð. Gufuskipið sErik Berentzcn“
kom hingað frá Stafangri ld. þ. in.
Frá llllöndlllll. Á Frakk-
landi er Grevy gamli endurkosin forseti
þjóðveldisins til 7 ára. Eins og opt ber
við hafa þar orðið ráðgjafaskipti. Frey-
cinet, sem opt áður hefir verið þar ráð-
gjafi er nú ráðgjafa forseti.
Frá Englandi þykir það tíðindum
sæta að Gladstone hefir lýst yfir því, að
hann vilji geía lrum innlenda sjálfstjórn
og sjerstakt þing í Dyflinni. Ifafa Irar
barist fyrir þessu hin síðustu ár undir íor-
ustu Parnells.
I Danmörku er atvinnuleysi mikið
fyrir verka menn, verzlunarástandið þar og
víöar íllt. Það þóttu mikil tíöindi þegar
Berg forseti þjóöþingsin* og helzti foringi
vinstii manna var dætndur 11. janúar af
hæðstarjetti f 6 mánaða fungeLi við vana-
legt fangaviðurværi ásaint þeim tveim
mönnum sern lögðu hendur á lögreglustjór-
ann í Ilolstebrú í sumar. Bcrg var gef-
ið það að sök að hann hefði hvatt þá til
1 css.
Sveitafuodir. í fyrra mánnti lijeldu
Eyíirðingar víða fundi í sveitum til að rœða
um þingmannakosniugar. Ejölinennasti fund-
urinn var á Espihóli, var par samþykkt í
einu hljóði að skora á B. Sveinsson að bjóða
sig Irum og einnig að skora á Jón Sigurðs-
son að bjóða sig hjer fram ef Einar As-
mundsson væri ófáanlegur lil að gefa kost á
sjer. I Dagverðartungu, í Skjaldarvík, Arn-
arnesi og í Svarfaðardal voru fundir og á
þeim öllurn fjellust menn á að skora á lí,
Sveiosson. I Skjaldarvík var helzt stungið
upp á Jóni bónda Daviðssyni, fyrir liinn
þingmanniun, í Dagverðartúngu Skapta Jó-
sepssyni, í Arnarnesi og í Svarfaðardal ekkert
ákveðið með aunan pinginanninn. Sú tillaga
viröist pví ætla að eiga erfitt framgöngu að
hafa annan þingmanninn að rninnsta kosti
innanhjeraðs, þó fáir neiti því að það væri
æskilegra. Viðleytni f pá átt virðist helzt
ætla að stranda á því, að menn komi sjer
ekki saman um livern af iunanhjeraðsmönn-
um skuli velja, en annars vegar eru í boði
reyndir og nafukunnir þingskörungar.