Akureyrarpósturinn - 05.08.1886, Qupperneq 1
1 Aít. II 4. blað. a.
|| 1886.
stiirinn.
AkurcjTÍ 5. lísíúst.
Amtsráðið í Norður- og Austur umdæm-
inu hefir gefið út eptirfylgjandi
Reglugjörð
um eptirlit hreppsnefHda með heilbrigðisásigkomu-
lagi manna á milli.
Amtsráðið í Norður- og Austurumdœm-
inu setur hjermeð samkvæmt 15. gr. sveitar-
stjórnartilskipunarinnar eptirfylgjandi regl-
ur hreppsnefndum til leiðbeiningar við eptir-
lit pað, sem peim er falið með heilbrigð-
isásigkomulagi manna á milli.
1. Eptirlit með heilbrigðisásigkomulaginu
í hverjum hreppi er samkvæmt 15. gr. sveit-
arstjórnartilskipunarinnar, 4. maí 1872, sbr.
reglu' jörð fyrir hreppstjóra, 29. apríl 1880
28. gr. falið hreppsnefndunum á hendur
undir umsjón hlutaðeigandi stjórnarvalda
og sýslunefnda, sbr. nefnda tilsk. 39. gr. 4.,
og mega lireppsnefndirnar fela tveimur
mönnum úr sínum fiokki, að hafa petta
ætlunarverk á hendi sem aukanefnd.
2. Hreppsnefndirnar eða pessar auka-
nefndir peirra skulu standa í nákvæmu sam-
bandi við hlutaðeigandi hjeraðslækni, leita
hjá honum allrar peirrar leiðbeiningar,
sem pær purfa til pess að gegna peirri
sýslun sinni, sem hjer er um að ræða, og
fá hjá lionum tilsögn um, hvernig vörnum
gegn næmum sjúkdómum verði helzt við
komið. Einnig skulu hreppsnefndirnar eða
aukanefndir peirra í öllum greinum stvðja
hreppstjórann (sbr. 28. gr. hrepp&tjóra-
regíugjörðarinnar), til pess að framfylgja
peim fyrirskipunum, sem sýslumaður kann
að gjöra, til pess að stemma stigu fyrir
útbreiðslu næmra sjúkdóma, samkvæmt til-
lögum og ráðleggingum hjeraðslæknisins.
Ennfremur skulu hreppsnefndirnar í
sjávarplázum eða aukanefndirnar styðja lög-
regluvaldið og hreppstjórana til aíls pess
sem lýtur að pví, að gæta sóttvarnarlag-
anna (semsje laga 17.desbr. 1875, um mót
varnir gegn pví, að bólusótt og hin aust-
urlenzka kólerusótt, og aði'ar næmar sóttir
fiýtjist til íslands, og laga 24. oktbr. 1879,
um viðauka við sóttvarnarlög 17. clesbr.
1885).
3. Hreppsnofndirnar skulu hafa nákvæmt
eptirlit með öllu pví, sem til almenns
prifnaðar og hreinlætis horfir, svo sem að
salerni og byrgðar forir sjeu á hverjum bæ,
helzt á afviknum stöðum. Nefndin skal
gjöra sjer far um, að menn byggi svo liús
sín, að sem minnstur verði raki í peim, að
pau sjeu rúmgóð, björt og svo um búið,
að hleypa megi inn hreinu lopti; hún
skal sjá um, að ekki sje fleira fólk í bað-
stofum eða húsum að staðaldri, en heilsu-
samt pykir, pegar tillit er tekið til rúms
og stærðar hússins. Nefndin skal vandlæta
um aflskonar hreinlæti á heinnlum í hreppn-
um, og komist hún að pví, að eitthvert
heimili annaðhvort sökum fátæktar eða
hirðuleysis og óprifnaðar sje svo á - ig komið,
að heimiiismönnum sje við heilsutjóni búið,
skal hún gjöra sitt ýtrasta til að bætt verði
úr pessu.
4- Hreppsnefndirnar eða aukanefndir
peirra skulu brýna fyrir mönnum, að sulli
úr hausum af höfuðsóttarkindum og sollið
slátur skuli brenna eða grafa svo djúpt í
jörðu, að hundar ekki geti náð pví, og yfir
j höfuð styðja hreppstjórana af fremsta megni
í pví að framfylgja fýrirmælum tilsk. . 5.
jjúní 1869, um hundahald á íslandi.
5. Hreppsnefndirnar eða aukanefndirnar
skulu sjá um, að enginn sjúklingur fari á mis
við nauðsynlega læknishjálp og aðhjúkrun,
og bera sig upp við hlutaðeigandi yfirvald,
ef pörf gjörist.
Amtsráð Norður- og Austuramtsins,
19. dag júuím. 1886.
J. Havsteen. B. G. Blöndal.
Einar Ásmundsson.