Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 5
ElMREIÐIN kemur út í 5 arka heptum, að minnsta kosti
2 hepti á ári. Þeir sem vilja unna ritinu ritgerða, eru beðnir að
senda þær til ritstjórans (Kingosgade ij, Kfibenkavn V.). Engin rit-
gerð má vera lengri en i (og helzt ekki meira en 1/2) örk prentuð,
en sögur mega lengri vera. Fyrir hverja örk prentaða verða greidd-
ar 16—20 kr. í ritlaun.
Hvert hepti EIMREIÐARINNAR kostar i kr. (í Ameríku
40 c.). Andvirði hvers heptis greiðist við móttöku þess. Þó geta
útsölumenn umliðið áreiðanlega kaupendur um borgunina um
nokkurn tíma. En sje borgun eigi greidd til þeirra áður hálft
ár er liðið frá móttökudegi, hækkar verð hvers heptis um */4 af
hinu upprunalega verði fyrir hvert hálft ár sem borgunin dregst.
Hvert hepti kostar þannig eptir hálfs árs gjaldfrest 1 kr. 25 au. (í
Am. 50 c.), eptir ársfrest 1 kr. 50 au. (í Am. 60 c.) o. s. frv.
Utsölumenn,. er selja 4 eintök eða fleiri og standa skil á
andvirði þeirra, fá '/4 í sölulaun.
Ritstjóri EIMREIÐARINNAR hefur samið við eigendur og
kaupstjóra íslenzkra verzlana um að útsölumenn ritsins megi greiða
andvirði þess við verzlanir þeirra gegn ávisun frá verzlunarstjór-
unum, er sendist ritstjóranum og greiðist í Kaupmannahöfn. Sam-
kvæmt samþykki hlutaðeigandi eigenda og kaupstjóra má því borga
ritið á þennan hátt við þessar verzlanir:
A. Asgeirsson (ísafirði, Hesteyri, Onundarfirði), Björn Sigurðsson
(Flatey, Skarðsstöð, Ólafsvík), /. P. 7. Bryde (Borgarnesi, Reykjavík,
Vestmannaeyjum, Vík), Duus (Keflavík), W. Fischer (Keflavík), N.
Clir. Gram (Dýrafirði, Stykkishólmi), Gránufjelagið (Oddeyri, Siglu-
firði, Sauðárkrók, Vestdalseyri), C. Höepfner (Akureyri, Blönduós,
Skagaströnd), Jak. Thorarensen (Reykjarfirði), Jón Magnússon (Eskifirði),
P. C. Knudtzon & Són (Hafnarfirði), Lefolii (Eyrarbakka), Pjetur Thor-
steinsson (Bíldudal), K. Riis (Borðeyri), 5. Samundsen (Búðum), L.
Tang (ísafirði), 77. Tk. A. Tkomsen (Akranesi), V. Tk. Tliostrup (Seyðis-
firði), 0rum & 7F////(Djúpavog, Fáskrúðsfirði, Húsavík, Vopnafirði).
Enn fremur, við verzlanir þær, er skipta við stórkaupmann
Thor. E. Tulinius i Khöfn:
Konráð Hjálmarsson (Mjóafirði), Sveinn Sigfússon (Norðfirði),
C. D. Tulinius (Eskifirði), C. A. Tulinius (Fáskrúðsfirði), O. Tulinius
(Papós), porsteinn Jónsson (Borgarfirði).