Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 1
Eimreiöin
Nýir kaupendur að 12. árg. Eimreiðarinnar, er þess óska,
geta fengið í kaupbæti ókeypis eitt af þessuþrennu:
1. REYKJAVÍK UM ALDAMÓTIN 1900 (með 17 myndum)
eftir Ben. Gröndal.
2. EIMREIÐINA, II. árg., sem í er meðal annars hin ágæta
skáldsaga Einars Hjörleifssonar »Brúin«, »Hafnarlíf« eftir
Jón Jónsson sagnfræðing o. m. fl.
3. EIMREIÐINA, III. árg.; í þeim árg. er m. a. skáldsaga Jón-
asar Jónassonar »Eiðurinn«. ferðasaga dr. V. G. »Frá
Vesturheimi« o. s. frv.
Nýir kaupendur geta og fengið alla 10 fyrstu árganga
Eimreiðarinnar, sem kosta með bókhlöðuverði 29 kr. (í Ameríku
8 11, 60) með 14 kr. afslætti eða fyrir einar 15 kr. (í Ameríku
8 6,00). — í 10 fyrstu árgöngunum eru 222 myndir og í n.árg.
50 myndir (í hinum út komnu 11 árgöngum þannig alls 272 myndir).
ÚR RITDÓMUM um 2. hefti af XII. árg. skal hér tilfært:
Eimreiðin er rit, sem ætti að hafa meiri útbreiðslu meðal Vestur-íslendinga, en
enn hefir orðið. Að eins valdir höfundar rita í þetta tímarit, og allir rita þeir vel
og um ffóðleg efni yfirleitt. Sjálfur er Dr. Valtýr, útgefandinn, svo vel þektur af
Vestur-íslendingum, að ekki er þörf að fjölyrða um rithæfilegleika hans. Þeir eru
í fullu samræmi við lærdóm hans og gáfur. Og svo velur hann sér rithjálp, að ekki
kennir neinnar hlutdrægni gegn nokkrum manni, málefni eða hugsjón; og er það
stór kostur, sem allir frjálshugsandi menn munu kunna að meta að verðleikum. Is-
lenzka málið er þar ritað svo sem bezt verður, af þeim, sem bezt kunna móður-
málið. Pað út af fyrir sig er gild ástæða fyrir Vestur-íslendinga að kaupa rit þetta
og lesa það. Það er hver maður fróðari fyrir lestur ritsins, og sá fróðleikur ætti
að skoðast meira virði en nemur verði ritsins.« (»HEIMSKRINGLA« XX, 39.)
»Eimreiðin er skemtileg að vanda og kærkominn gestur hér vestra öllum sem
ffóðleik unna og fallegu ritmáli.« (»LÖGBERG« XIX, 31.)
»Af Eimreiðinni er og út komin 2 hefti þetta ár, af tólfta árgangi. l?ar hefir
Guðm. Friðjónsson ritað í bæði heftin um ÍÞingeyjarsýslu fyrir og um alda-
mótin af miklum kuunugleik og eftir því snjalt og skemtilega. . . . .
»Önnur tilkomumesta greinin í þessum heftum er eftir Ólöfu Sigurðardóttur
skáldkonu, Bernskuheimilið mitt, og þó ákaflega yfirlætislaus: ekki annað en
bernskuminningar, lýsing á lffinu á íslenzkum kotbæ um miðja öldina sem leið, en
gerð af þeirri glöggrýni, drengilegri hreinskilni og látlausri orðsnild, að hún er ger-
semi í sinni röð....Stórmikið mundi í það varið, að eiga viðlfka glöggar og
og gagnorðar lýsingar á alþýðulífi hér á landi frá hverjum hálfaldarmótum eða þó
ekki væri nema heilaldamótum. . . .
Hringsjáin íslenzka í hverju hefti, eftir ritstj. (mest) og ýmsa aðra, er alt af
mikils virði, hér um bil éina heilleg vísbending sem vér fáum um annarra þjóða rit
um ísland og íslenzkar bókmentir. Ritsjá, um íslenzkar bækur, er og í hverju hefti.
Loks mynd af konungshjónunum nýju framan við síðasta heftið.«
(»ÍSAFOLD« XXXIII, 44).
.Utsölumenn Eimreiðarinnnar áminnast um að gera skilagrein
við hver árslok og endursenda það, sem vonlaust er um að seljist,
einkum þeir útsölumenn á íslandi (utan Reykjavíkur), er nokkuð
hafa til muna af eldri árgöngum.
LnnrtPrn stærsta Vikublað á íslenzku, gefið út í Winnipeg, Man. (P. O*
bUljliUl y} gox 136). Flytur nákvæmar fréttir frá íslendingum bæði á ís-
landi og í Ameríku, enn fremur ritgerðir sögur og kvæði. Verð í Ameríku 2 doll-
árg., en á íslandi 6 kr.