Vestri - 09.12.1902, Blaðsíða 2
14
VESTRI.
4. B L.
að minnsta kosti fram í febrúar. Ank þess
er ýmsum vörum þannig háttað, að þær
þola ekki geymslu og eyðileggjast því
meira og minna.
Jeg get ekki skilið hvað getur verið
því til fyrirstöðu að póstskipið skreppi
hingað vestur á ísafjörð desemberferðina
og jafnvel að það kæmi við á helstu höfn-
unum aðra hvora leiðina. Isfirðingar og
Vestfirðingar þurf'a lika að iifa engu síður
en höfuðstaðarbúarnir og leggja sinn skerf
til almennings þarfa alveg eins og þeir, en
þeír standa ver að vígi fyrir þá sök að
þau ár geta komið, að ís banni hingað ferð-
ir að vorinu, en umþennan tíma munu þess
varla dæmi.
Segjum að það kostaði nokkur hundr-
uð krónur að fá póstskipið til að skreppa
hingað í desember, mikið gæti það ekki
verið. vegna þess að fragtin hlyti að taka
hátt upp í kostnaðinn. En það er enginn
efi á að það mundi borga sig. Það hlyti
að verða stórkostlegur hagnaður, sem fljótt
myndi gera vart við sig í viðskiptalífinu.
Þetta ættu ísflrðingar að hafa hug-
fast framvegis og reyna svo að fá því
kippt í lag sem fyrst. Það er óþolandi
að búa lengur við það jsamgönguleysi að
haustinu og vetrinum eins og nú á sjer
stað. X.
Úr bænum og grenndinni
— 0 —
Á fsedingardegi
sýslumanns og bæjarfógeta Hannesar
Hafsteins, 4. þessa mán., kom mik-
ill fjöldi af borgurum kaupstaðarins sam-
an í þinghúsi bæjarins og gengu þaðan
í fylkingu heim til Hafsteins, til þess að
færa honum heillaóskir. Var hann kvadd-
ur til dyra, og flutti þá I'orvaldur lækn-
ir Jónsson alllangt erindi af hendi bæjar-
manna. Hakkaði hann sýslumanni H.
Hafstein fyrir þann tíma, er hann hefði
dvalið hjer vestra; kvað hann á þeim ,6
árum hafa áunnið sjer óskerta virðing og
vináttu hinna beztu manna í hjeraðinu,
jafnt í sýslunni sem í kaupstaðnum, ekki
einungis sem góður og atkvæðamikill
embættismaður, heldur og sjerstaklega
með hinni ötulu og heillaríku framgöngu
sinni í stjórnarbaráttu vorri, bæði á þingi
og utanþings; mundi nafn hans skráð í
sögu Islands og stjórnarbaráttu þess í
byrjun 20. aldarinnar meðal hinna fremstu
og beztu manna þjóðarinnar, er hefðu
útvegað henni innlenda stjórn. Þá gat
ræðumaður þess, hversu mikið og margt
kaupstaðurinn sjálfur ætti H Hafstein að
þakka, auk þess er hann sem yfirvald
stuðlaði af fremsta megni að vexti hans
og yiðgangi, hafi hann sem prívatmaður
jafnan haldið manna bezt uppi heiðri
hans gagnvart útlendum og innlendum
með frábærri gestrisni og heimilisrausn.
Kurteisi gagnvart lægri sem æðri, fjör,
og fyndni í viðræðum, ráðhollustu og
hjálpsemi — Það væru þeir eiginlegleik-
ar er öfluðu H. Hafstein almenningshylli.
Að lyktum óskaði hann í nafni allra
þeirra, er viðstaddir voru, sýslumanni og
bæjarfógeta H. Hafstein langra og sælla
lífdaga, og tóku þá allir undir með þre-
földu húrra.
Sýslum. H. Hafstein þakkaði heim-
sóknina og góðar óskir, beindi svo máli
sínu aðallega að bænum og framtíð hans,
taldi nú móta tyrir framkvæmdarríkum
framfaratíma hjer í bænum, þar sem tram-
takssemi einstakra manna væri að vekja
menn af svefni til nýrra starfa og tram-
kvæmda, sjálfum sjer og bænum til upp-
gangs og heilla; bauð hann því næst alla
gesti velkomna í hús sín, meðan rúm
leyfði, og varð þar húsfyllir þótt margir
komumanna færu ekki inn.
Fyrirlestrar.
Á langardagskvöldið 6. þ. m. fluttu
þeir barnaskólakennari Baldvin Bergvinsson
og real stud .Þoi grimur Sveinsson í'yriil stra
»CJm mentamál og skóla]íf,« í skólahús-
inu í Bolungarvík. Talaði sá íyn.efndi
utn málið almernt en sá síðarneíndi beindi
máli sínu aðalega að Bolungirvík.
Fyrirlestrarnir þóttu vel og áheyrilega
fluttir og var alveg húsfyllir í skólanum
— kennslustofunum og anddyrinu. Söng-
fjelag, sem kennari B. Bergvinsson veit-
ir forstöðu söng nokkur i'fg og þótti vel
takast.
* Tíðarfar
hefir verið mjög hlýtt og gott undanfur-
ið og er hjer alveg snjólaust nema skafl-
ar í giijum og upp til fjalla. H\ assviðri
hafa þotið upp með köflum og valdið
talsverðum skemmdum. I gærdag hvessti
snögglega og voru þá flestir á sjó og
fengu vont veður. Margir Bolvíkingar
lentu út í Skálavík og enn þá vantar
einn bát úr Hnífsdal. Formaður hans
var Halldór Ag. Halldórsson, skipstjóri,
frá Isafirði.
>Gjallarliorni
heitir nýtt blað, sem byrjaði að koma
út á Akureyri 1. f. m. Það er í svip-
uðu broti og »Vestri«, kemur út tvisvar
í mánuði og kostar 1. kr. 80 a. Utgef-
endur þess eru tveir verzlunarm., Bern-
harð Laxdal og Jón Stetánsson. Blaðið
er snoturt útlits en um efni þess verður
ekki mikið sagt af þessu 1. tbl. er vjer
hötum náð í. I inngangsorðunum er sagt
að blaðið eigi aðallega að ræða um á-
hugamál Akureyrarbæjar og svo alls
landsins, sjerstaklega atvinnu og verzlun-
armál. Þetta er 3. blaðið sem kemur
nú út á Akureyri.
fBetra er seint en aldrei.*
Þessi gamli málsháttur má sannast á
okkur, þegar við, eptir nærri því heilt ár,
förum að viðurkenna velgerðir þær, er
okkur voru veittar við hið skyndilega frá-
f'.tll- manns ogsonar Viggó E. Veðhólm sái.
Viljum við þá fyrst votta húsbónda hans,
hr. kauptn. Árna Sveinssyni og konu hnns,
okkar innilegasta þakklæti fyrir al!a þá
föðurlegu r áhvsftDEÍ, er þau hafa látið
okkur svo Ijúfmannlega i tje, bæöi við
dauðsfallið og síðan allt til þessa dags,
þrátt fyrir það þótt stórskuldir væru undir
við verzlun hans. Við þökkum og hjart-
anlega »Verslunarmannafjelaginu« og ölium
þeim eru á einhvern hétt tóku þátt í að
gjöra útförtna svo heiðarlega sem unnt var,
og nú síðast þeím er ijetu umgirða með
l'árngrindverki legstaö hans — allt án eins
eyris endurgjalds f'rá okkur.
Við biðjum því góðan guö, að launa
öllum þessum veglyndu velgjörðarmönnum
af ríkdómi náðar sinnar, þegar þeim mest
á liggur.
ísaflrði í Desenber i902.
Friðrikka Veðhólm. Agústína Veðhólm.
Jón Veðhólm.
Þakkarorð.
Þega“ jeg við húsbruna þann, er varð
hjer á ísaflrði 1S. f, m., missti aleigu mína,
urðu margir bæjarbúar til þess að rjetta
mjer hjálparhönd og gefa mjer ítórgjafir,
vil jeg þar til nefna sjerstaklega prófa,st
Þorvald Jónsson og frú hans, frú K. Laxdal
og frú Þ. Nieissen sem með svo einstakri
rausn og fágætu göfuglyndi, hlupu undir
bagga með mjer og gáfu mjer stórgjaiir.
Öilurn þessum, eins og líka öilum öðr-
um, sem við þetta tækiiæri hnfa synt mjer
hluttekníngu í einstæðingsskap mínum og
vandræðum, þakka jeg af hrærðu hjarta
og bíð algóðan guð að umbuna þeim af
ríkdómi sinnar náðar.
ísaiirði 8. des. 1902.
Andrea Fr. Guðmundsdóttir.
(saumaliora)
Veðurathuganir
& Is&iirði, eptn JBjöm Áinason, iögregluþjón
i90'2 .23—29. nóv. KaJdast að nótt- ui.ni (C.) Kaldast að degin [ udq (C.i Heitast ab dogin- um (C.)
Suriuud. 23. :,4hití 5,9 hiti 6,3 hiti
Mánud. 24. 0,7 - 2,5 - 3,8 —
Þriðjud. 25. 1,0 - 3,7 - 4,6 —
Miðvd. 26. 2,1 - 4,4 - 5,0 —
Fimtud. 27. 3,0 - 7,3 - 10,0 —
Föstud. 28. 6,0 - 5,7 - 10,0 —
Laugard.29. 0,8 - 4,6 — 7,6 -
VAVAVAfÁyAVAVlÁrÁV/VATAVAVAtÁVÁ
K vö ldskó li.
Kvöldskólibyrjar hjer íbænutn þegar
eptir hátíðirnar, og verða þar kenndar
þessar námsgreinar: íslenska (próf. Þ.
Jónsson), danska (B. Bjarnason), enska
(B. Pálsson), reikningur (Sig'- Jóns-
son), 3 tíma í viku hver. Kennsl-
an fer fram á sunnudögum, þriðjud.
fimmtud. og laugard. frá kl- 5—8 síðd.
Þeir karlar og konur yfir ferming'u, er
taka vilja þátt í námi á skóla þessum
gefi sig tram við undirritaða fyrir Þor-
láksmessu. Mönnum er í sjálfsvald sett,
hvort þeir vilja vera með í einni eða
fleirum greinum; en sami tímaíjöldi í
hverri einstakri grein verður að ganga
yfir alla þá, er taka þar þátt í námi. Gjald
hvers lærisveins fyrir tímann er i2.aurar
verði aðeins 10 nemendur í hverri grein,
en hlutfallslega lægra ef fleiri eru.
Björn Bjarnason. Helgi Sveinsson.
Sigurður Jónsson.
UMBUÐAPAPPÍR
fæsl í prentsmiðju Vesífirðinga.