Vestri


Vestri - 28.04.1904, Síða 3

Vestri - 28.04.1904, Síða 3
2 6. BL. VESTRI. 103 við marga síldarveiða- og verkunarmenn, ljetu þeir all-flestir eindregið það álit sitt í ljósi að nótaveiði spillti bæði fyrir gæð- um síldarinnar að því leyti, er þegar er ávikið, og fyrir veiðiskap á þeim stöðum sem hún sumpart dæi í nótum eða þá, eins og opt ber við, slyppi í burt eptir langvinnar kvalir. Ennfremur er það stór galli á uótunum að flestar þeirra eru of smáriðnar og taka síldina hversu smá sem hún er, þær eru og botnvörpur af sjerstakri tegund. Af þessu hlýt jeg að álykta að betur hefði farið að þessir 3 hnúðar hefðu aldrei komið inn á Mjóa- fjörð, 0g að betra væri að Norðmenn hefðu aldrei stundað hjer nótaveiði, því með því hafa þeir spillt fyrir oss arð- væmim markaði, sem tekur langan tíma að fá í gott lag þó þangað flytjist góð og óskemmd vara. Nótabrúks mennirnir hafa unnið oss stórum mun meira tjón en hvalveiða mennirnir. Um áhrifhval- anna á þorskveiðar hefir >Norðurland« þetta auk fleira eptir >Gamla.« >Hornafjörður fylltist af síli ogþorski sem allt dó er inn kom og flaut síðan út aptur nema það, sem fjaraði uppi og menn gátu náð af bátum« o. s. frv. Jeg er nú svo undarlega innrættur, að jeg óska þess af alhuga, að blessaður þorsk- urinn sá, hefði haft frið fyrir hvölunum, fengið að lifa óáreittur, hvar sem hann .hefði viljað, og orðið svo á sínum tíma Austfirðingum eða öðrum dugnaðar- mönnum að notum, en sem betur fer munu svorta tilfelli sjaldgæf, og er ærinn samt skaði sá er hvalirnir vinna síldar- og- fiskveiðum vorum. Af allri rökfærzlu >Gamla< fæ jeg ekki sjeð að annað en tjónið blábert, hafi leitt af umferð hval- anna á Austfjörðum, þar stundum kvað svo ramt að, að umferð um sjóinn var lítt fær íyrir þeim, og fiskurinn fyrir hræðslu sakir flúði undan þeim á eptir síldinni í opinn dauðann ogþóHermann bóndi Hjálmarsson á Reykjum eitt sinn fengi hálfsmánaðar afla, er þakkað var hvölunum, finnast mjer mjög miklar líkur til að afli sá hefði staðið heilann mánuð ef enginn hvalur hefði komið á fjörðinn því fiskurinn neitar ekki eðli sinu um að ganga inn á firði og að ströndum lands- ins á vissum tíma ef óvinir hans ekki tálma ferðinni. (Framh.) Guíubátsferðirnar um ísafjarðardjúp. I nokkur undan farin sumur, hefir gengið gufubátur hjer um Isafjarðardjúp fyrir opinberan styrk, 3,500 kr. Flestar íerðir hefir báturinn farið milli ísafjarðar og Arngerðareyrar, alveg sömu sjóleið og postur fer og lítur þvj svo j fljótu bragði sem auðvelt væri að samrýma ferðir bátsins við póstferðirnar, ef viljinn væri góður, en undantarið hefir það þó furðanlega misjafnlega tekist. Jeg átti tal við þá menn sem nýlega eru búnir að semja ferðaáætlun fyrir gufubátinn Guðrún hjer um djúpið í sumar, og bað þá um að taka svo mikið tillit til terða minna sem hægt væri svo jeg gæti haft Stjórnarráð íslands hefir með brjefi, dags 20. þ. m., lagt fyrir mig að láta birta í blaðinu >Vestra« svohljóðandi auglýsing: »Samkvœmt f járlögum fyrir li)0h og 1905 lh. gr. B. 11. verða fyrst um sinn fyrir yfirstandandi fjárhagstímabil skipaðir 2 yfirmatsmenn á gœðum fiskfarma, annar í Reykjavík og hinn á Isafirði, hvor með 800'kr. launum um árið. Umsóknarfrestur er til 1. Júní nœstkomandi, og skulu umsóknir um stöðuna í Reykjavík sendar stjórnarráði Islands, en um stöðuna á tsafirði skulu umsóknir, stílaðar til stjórnarráðsins, sendar bœjar- fóyetanum á tsafirði.t Skrifstofu bæjarfógetans á ísafirði, 27. dag Aprílmánaðar 1904. not af gufubátnum og höfðu þeir allir góð orð um það, en jeg sje ekki að þar hafi hugur fylgt máli, þvi eptirferðaáætlun- inni að dæma lítur út fyrir að nefndinni hafi orðið óvart á, að láta ferðirnar bera saman við póstferðir örsjaldan á stangli, enda var varla hægt hjá því að komast þar sem gufubátsterðirnar eru orðnar svo tíðar, Jeg þekki ekki við hvaða þarfir náungans nefndin miðar þegar hún semur áætlun fyrir gufubátinn, en mjög ólíklegt er, að það sje þeim takmörkum bundið að guíubáturinn megi endilega til að fara degi á undan póstinum eins og stundum hefir átt sjer stað, eða þá 2 —3 dögum á eptir svo honum sje fyrir munað að hafa not af bátsferðinni sem verður sömu leið og á sömu við- komustaði og póst irinn kemur á, það er nærri því að maður geti fremur heim- fært þetta undir áhugaleysi nefndarinnar með að greiða fyrir póstinum en að það sjeu svo sterkar ástæður sem valda því, að ferðir póstsins og gufubátsins geti ekki samrýmst. ísafirði 25. apríl 1904. Jóhannes Þórðarson. Milliþinganefhd. Samkv. ákvörðun síðasta þings hefir ráðherrann nú skipað þriggja manna nefnd til að íhuga landbúnaðarmálefni landsins. í hana eru skipaðir: Þórhallur Bjarnarson, lektor (form.) Herm. Jónasson, á Þingeyrum og Pjetur Jónsson á Gautlöndum. Laura: kom hingað að kvöldi þess 23. þ. m. og fór aptur kvöldið eptir. Með henni fór ráðherrafrú R. liafstein ásamt móður sinni og dætrum alflutt suður. Mislingap hafa komið upp á hvalveiðastöðinni á Hesteyri, einn Norðmaður orðið veikur; var hann þegar sóttkvíaður, og hafði veikin ekkert breiðst út þegar síðast frjett- ist, en ekki er þó svo langt um liðið að hægt sje að segja hvert unnt verði að stemma stigu fyrir veikinni. »Nýja ísland< heitir blað, sem byrjað er að koma út í R-vík; kemur*það út einu sinni í mánuði 0g kostar 10 aura hvert nr. útgefandi er Þorv. Þorvarðsson en aðstoðarmaður >Plausor<, sem gerir þar að gamni sínu í bundnu og óbundnu máli. Grímur Jónsson, settur. Mannslát. 19 þ. m. andaðist að Látrum í Aðal vík bændaöldungurinn Jón Sæmundsson, er lengi bjó í Fremri-Arnardal hjer í sýslu, hálf áttræður að aldri. Helztu æfiatriða þessa merkismanns verður minnst síðar í blaði þessu. Veðurathuganir á ísalirði, eptir Jíjörn rna3ou, lögregluþjón 1904 17.—23. apr Kaldast að nótt- unni (C.) Kaldabt að degin- um (C.j Heítast að degin um [C.] tiunnud. 17. &.0 fr. 0,5 fr. 3 J hiti iiánud. 18. 1,7 — u,l hiti 6,‘2 — Þriðjud. ii9. 0,2 — 1,0 - 2,0 - Miðvd. 20. 2,0 - 0,0 — 1,9 fr. Fimtud. 21. 3,8 - 1,8 fr. 1 0,6 hiti Föstud. 22. 4,2 - 0,0 — I 1,9 — Laugard. 23. l,fi - 0,0 - 1.7 - Þakkarorð. Jeg leyfi mjer„ hjer með að lýsa yfir því, að jeg alls ekki get gengið fram hjá hinni siðferðislegu skyldu minni, er mjer ber að auðsýna hinni háttvirtu ráðherrafrú R. Hafstein, þar sem hún án minnar verðskuldunar hefur veitt mjer stórkostlegar gjatir, hverjar jeg bið þann að endurgjalda henni ásamt manni hennar er engar velgjörðir lætur ólaun- aðar. ísafirði 26. apríl 1904. Ólafur Ólafsson. 0-«««tSÍS09MS0 • BBtO»KT-3»aaB«ffOT» • SOPHUS I. NIBLSHN tekur á móti pöntunum fyrir verzlunarMsið I. BRÁUN Hamborg á hverjum degi. Sýnishorn og verðlistar með mynd- um ávallt til sýnis. Talid við mf.g áður en þjer kaupið hÚ8 hjer í bænum, og byggið ekki ef þjer getið fengið ódýrari og jafn góð hús keypt! Kr. II. Jónsson. Nýr 2ja hesta STEINOLÍUMÓTOR er til sölu hjá undirrituðum. ísafirði 27. apríl 1904. Sophus J. Nielsen.

x

Vestri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.