Vestri - 08.09.1906, Side 2
rio
VESTRL
45- tbL
Ritfregn.
Sögur frá Alhambra
eftir Washington Irving.
Utgeiandi fjelagið iialdur í
Reykjavik.
Sögurnar eru tvær. Pílagrím-
ur ástarinnar ogRósiní Alhamhra
Þær eru þýddar af Steingrími
Thorteinssyni rektor, báðar hafa
sögur þessar verið prentaðar
áður, og áttu þá beztu vinsæld-
um að fagna meðal alþýðu.
Framan við sögurnar er grein
um veru Serkja á Spáni, eptir
Benedikt Gröndal. Enaptanvið
þær eru skýringar um sögustað-
ina eptir Friðrik Friðriksson.
Tsekifeeri og tíningur
eftir Bjarna Jönsson
frá Vogi. Roykjavik, prentsm.
Gutenberg. ,
Það er að eins lítið kver, um
50 bls. og er efni þess að mestu
tækifæriskvæði, tremur lagleg og
vandvirknislegai frá þeim gengið.
Leiðarvísir í sjómennsku
Samið hefir Sveinbjörn Á.
E g i 1 s s o n. Útgefandi Davíð
Östlund,
Kver þetta er 58 bls. að stærð,
Það eru spurningar og svör, og
eru i því margar góðar leiðbein-
ingar fyrir sjómenn. Málið á því
er venjulegt sjómannamál og
kvartar höf. um að annað hafi
ekki verið fært, þar sem ís-
lenzkan eigi engin orð yfir svo
margt er að siglingu lýtur. Þar
er verkefni tyrir málfræðinga
vora að spreyta sig og búa til
nýgjörfinga, en það er vanda-
verk. Nafnorðin þurta að vera
stutt og skýr og sem minnst af
samsettum orðum. Sjómönnum
fellur bezt að geta verið sem
fljótastir að segja til, enda kemur
það sjer opt vel.
Kristin barnafrseði íljóðum
eptir Valdemar Briem.
Reykjavik, prentsm. Gutenberg.
F.nn þá eilt stórvirki hefir
skáldið Valdemar Briem ráðist í
og leyst af hendi, og það er að
semja kristin fræði í ljóðum.
Stórvirki segjum vjer, því enda
þótt kverið sje ekki nema 74
síður er það þó stórvirki að fær-
ast það í fang að semja barna-
lærdómskver í ljóðum. Þar er
margs að gæta, sem þeir einir
geta, sem er jatn liðugt um að
yrkja, sem öðrum að rita óbundið
mál. Slíkt kver þarf bæði að
vera svo ljóst og skýrt í frásögn-
inni að hvert barn skilji, en þó
svo stutt, sem framast er unnt.
Og oss virðist sem höf. hafi
furðanlega tekist þessi tvö atriði.
Utan með hverju erindi eru
prentaðar t.ilvitnanir til ritningar-
staða þeirra sem erindið er byggt
á, og er svo til ætlast að börnin
hafi biblíuna við hendina og lesi
í henni ritningargreinarnar.
Kver þetta má að sjálfsögðu
elja mikils verða nýjung í bók-
menntum vorum. En slæmur
galli er það, að allmargar prent-
villur hafa slæðst inn í kverið.
Iiefir höf. leiðrjett fiestar þeirra
með penna í því eintaki er
»Vestra< hefir verið sent tilum-
sagnar. Það t r leitt að próf-
arkalesturinn skuli hata mistekist
svo; er það sennilega því að
kenna að höf. hefir ekki lesið
prófarkirnar sjálfur. Prentvillur
koma sjer mjög illa á slíkri bók,
sem börn eiga að læra utan að.
Símalagningin.
Hún hefir gengið vel og greið-
lega, landsímalagnin.i'jn, og að
mörgu leyti vonum framar. Vorið
gerði að vísu stryk í reikninginn,
því það var óvenju hart oglangt,
og snjóa leysti seiut. svo víða
varð vinnan ekki b'yrjuð eins
snemma og til var ætlast. En
síðan vinnan byrjaðihefirlagning-
in gengið greiðar en nokkur
hatði gert ráð fyrir.
Nú um síðustu mánaðamót voru
að eins eptir spottar á ýmsum
stöðum til að tengja allan símann
saman, og má gera ráð fyrir, að
því verði lokið nú um miðjan
þenna mánuð, og síminn þá buinn
til afnota.
Að símalagningunni vinna að
mestum hluta Norðmenn, því inn-
lendan vinnukrapt var erfitt að fá.
Nokkrir verkamennirnir fóru nú
um síðustu mánaðamót, en ráðgert j
er að hinir sem eptir eru geti
flestir farið um miðjan þennan
mánuð.
4 deildir hafa unnið að síma- j
lagningunni. Einn símafræðingur
hefir umsjón yfir hverri deild. en
Forberg hefir umsjón yfir allri
lagningunni. 1. deildin hefir lagt
símann frá Reykjavík til Hrúta-
fjarður, þar með sæsímann yfir
Iivalfjörð, og hefir H.Halvorsen,
sem hjer er nú, haft umsjón yfir
þessari deild. En Forberg tók
nú sjálfui við umsjón þar, þegar
hinn fór vestur. 2. deildin leggur
símann frá Hrútafirði til Svarf-
aðardals, ogheitir umsjónarmaður
hennar N. C. Midthun. 3. deildin
leggur símann frá Svarfaðardal
tii Jökulsár á Fjöllum, og heitir
umsjónarmaður hennar Tengs. 4.
deildin leggur símann frá Jökulsá
til Seyðisíjarðar, og heitir um-
sjónarmaður hennar Heiardal.
Auk þess er 5. deildin að leggja
sfma þann, sem kaupm. Thor E.
Tulinius er að láta leggja frá
Seyðisfirði til Eskifjarðar, og heitir
forstöðumaðurinn Smith.
í hverri deild vinna 3—4 flokkar
og eru um 16—20 menn í hverjum
flokk. Við símann til Eskitjarðar
vinnur þó að eins einn flokkur.
Á símaleiðinni allri verða kring
um tuttugu símastöðvar. Er þeim
skipt í 3 flokka. í fyrsta flokk
eru bæirnir Reykjavík, Akureyri
og Seyðistjörður. Þar verðursíma-
stöðin opin til afgretðslu allan
daginn, eða 13 tíma á dag. í
öðruui flokki eru: Egilsstaðir,
Sauðárkrókur ogBlönduós. Verð-
ur þar opið 0 tíma á dag. í 3.
flokki eru svo allar símastöðvar
til sveita. Þær verða að eins
opnar til afnota 2 tíma á dag.
1 tíma fyrrihl. dags og í tíma
síðarihl. dags. Þó er gert ráð
fyrir að þar megi hringja til
viðtals á öðrum tímum dags ef
á liggur.
Mikil eptirsókn hefir verið að
fá simastöðvarnir einkum sunnan
lands og fæst gæzlan víðast fyrir
htið eða ekkert, en sumstaðar
leggja sveitirnar fram f je til gæzlu
þeirra. Um þær er samið fyrir
5 ár í senn.
Vopnfirðingar höfðu verið að
hugsa um að ltggja síma á sinn
kostnað frá Hofi til Vopnafjarðar
nú þegar í haust. En ekki er
enn frjetf hvort af því hefir orðið.
Á Seyðisfirði og Akureyri er
verið að koma á símasambandi
innati bæjar. Höfðu um 25 menn
þegar beðið um það heim til sín
á Seyðisfirði, enum 50 á Akureyri.
Á Sauðárkrók er líka verið að
hugsa um innbæjarsímasamband
og höfðu 12 menn skrifað sig
fyrr því.
Nú um mánaðamótin var verið
að setjauppsímastöðvarnar. Unnu
að því tveir menn, annar milli
Reykjavíkur og Akureyrar, en
hinn frá Akureyri til Soyðisfjarð-
ar.
Frjettir þessar eru by^gðar á
viðtali við hr. Björn Bjarnason
búfræðing frá Gröf, sem vjer
áttum tal við og góðfúslega gaf
oss allar þessar upplýsingar.
Kunnum vjer honum beztu þökk
fyrir.
Símalagningar-rannsókirnar,
H. Halvorsen símafræðingur
og Björn Bjarnason búfræðingur
í Gröf komu hingað til bæjarins
5. þ. m. Þeir eru aðferðast um
til að rannsaka hugsanlegar síma-
leiðir hjer vestra til undirbúnings-
undir símaálmuna til Isafjarðar.
Þeir fóru frá Melum í Hrúta-
firði 23. f. m. og byrjuðu þá
rannsóknir sínar. Fóru þeir vestur
Strandasýslu, yfir Steingríms-
fjarðarheiði, um Langadaisströnd
og Snæfjallaströnd og aptur inn
eptir og út með Djúpinu að sun7,an
verðu. Hafa þeir á leið pessari
krækt fyrir hvern íjörð að heita
má og fram á hvert annes. Sum-
staðar hata þeir farið yfir tvisvar 1
eða þrisvar þar sem um fleiri leiðir
hefir verið að velja, til að rannsaka
og leita uppi hvar heppilegast
mundi að leggja símann.
Hjeðan fóru þeir 7. þ. m. vestur
Breiðadalsheiði og halda svo ferð-
inni áfram um Vestur-ísafjarðar-,
Barðastrandar- og Dalasýslu, til
þess að báðar leiðirnar verði
rannsakaðar, Síðan gefur síma-
fræðingurinn skýrslu um ferð sína
og rannsóknir, lýsingu á báðum
eða öllum þeim leiðum, sem
hugsanlegt er að leggja símann,
og áætlun yfir kostnaðinn fyrir
hverja leið. Því fylgir og að
líkindum álit stmafræðingsins um
hver leiðin verði hepplegust vegna
staðhátta, kostnaðar og afnota.
Svo verða öll skjölin lögð fyrir
næsta þing, sem þenkir og ályktar
og úrskurðar hvar álman eigi að
leggjast.
Úr ýmsum áttum.
Sæsímiiin
var opnaður til afnota 25. f. m.
eins og tilstóð. Vegna óveðurs
náði varðskipið >Fálkinn« þó ekki
austur þann dag, kom þang-
að ekki fyrri en daginn eptir.
Jóh. sýslum .Jóhanness. sendi fyrsta
skeytið þann 25. en ráðherrann
símaði daginn eptir. Var það
sunnudagur, en símastöðvum á
Englandi er lokað á sunnudögum.
Kom því ekki svar fyrri en á
mánudags raorgun. En þá komu
skeyti frá konungi, forsætisráð-
herranum og >Stóra norræna-
símafjelaginu.
Hátíðahöld voru all mikil á
Seyðisfirði þann 25. og bærim^
skreyttur eptir föngum.
líorift út fiarn.
/
A sunnudaginn var tannst lík
af ungbarni rekið skammt fyrir
innan Bíldudalskaupstað. Stúlka
ein þar í kaupstaðnum, var þeg-
ar grunuð um að hafa borið
barnið út, og var hún tekin fyrir
og yfirheyrð og meðgekk brot
sitt. Ekki er enn víst hvort það
hefir verið gert með vilja og
vitund föðursins eða ekki.
Stúlkan hafði verið í rúminu
einn einasta dag; ól hún þá barni/ 3
og h.ldi það milli þils og veggj ar
þar til daginn eptir, að húa > Jar
það í sjóinn.
Skiptapi.
hrjezt hefir að bát'ur hafi fa rist
nýlega á Steingrír.isfirði. 5 menn
voru alls á skir,ínu og hjet for-
maðurinn Pi'dtar Þórðarson: úr
Reykja.vík ( ^ hásetanna vora líka
úr Rey> ,avjk en j úr Steing ríms-
firði.
Úr bænum og grenridínni,
E p t i r 111 æ I i.
21. dag f. m. andaðist ásjúkra-
húsinu hér á ísafirði ekkjan Guð-
björg Sigurðardóttir, sem síðast
átti hefmili í Hnífsdal.
Hún var fædd á Seljalandi í
Eyrarhreppi 18. okt. 1826; for-
eldrar hennar voru merkishjónin
Sigurður Hinriksson og Málfríð-
ur Jónssdóttir. sem lengi bjuggu
við góð efni á Seljalandi, og
Iifði hún len gst af börnum þeirra
hjóna. Árið 1850, 28. september