Vestri - 03.04.1909, Page 2
86
V E S T R 1
H. tbl.
Innileg þökk tál allra (
þeirra er heiðruðu jarð-
arför Kr. Pálínus Guð-
mundsdóttir, þ. 27. þ. m.
ísafirði, 30. marz 1909.
Elísabet Árnadóttir.
Jón Ebenezersson.
Guðm. Þorbjarnarson.
..j
Svo ætlar forsetinn að vinna
að góðu samkomulagi milli Dana
og íslendinga, en á hvern hátt?
Ekki á þann hátt að þeir mætist
með sanngirni í skipun hinna
sameiginlegu mála og hagsmuna.
Nei, það er frá. Það á allt að
vera óbreytt. Þessi góða sam-
vinna á líklega að koma fram í
því, að íslendingar fari að dæmi
Björns með auðmýktar fleðulætin
við Dani.
Þá ætlar hann sér að berjast
móti skiinaðarstefnunni, því hún
hefir óefað átt góðan þáttí því,
að Danir ætluðu að ganga að
jafn rúmum skilmálum og sam-
bandslagáuppkastinu. En nú á
að kæta alt niður sem gæti orðið
til að hagga við gömlu skorð-
unum. Það er heldur framsóknar-
andi í nýja ráðherranum.
Og »ísafold« keppist hann við
að afneita. Alt fyrir Danmörku!
Það er ekki að furða þótt dönsku
blöðin séu hrifin, en hitt er vorkun
þó að þau hendi gaman að sliku.
Hlæja skyldi að ósköpunum,
en ekki fyrir þeim verða.
Margir spyrja að, hvortBjörn
hafi tekið upp hjá sjáltum sér
slíka stefnuskrá eða flokkurinn
útbúið hann með hana að heiman.
Hið sióartalda er sára ótrúlegt,
en það sést núþegar >húsbónd-
inn< kemur heim.
En Dönum þykir björninn
unninn þegar sjállur foringi og
ráðherraefni hins >sigursæla meiri
hluta<, vill láta allt vera eptir
þeirra vilja.
Þeim er víst dillað.
Hægíara liaf'a þíngstöríin verið
nú undanfarið, enda hafði
Björn lagt svo íyrir, aö öll aðal-
mál væru látin liggja í salti þar
til hann kæmi heim. Nú hefir
ráóherrann gefið þinghlé alla
næstu viku. En sá tími kostar
landið eitthvað á þriðja þúsund
krónur. Heidur er nu reynt að
spara!
Mannalát.
Þrjú börn hafa nýlega dáið hér
í bænum. Eitt þeirra átti Eii íkur
Kjeruif la'knir, annað Stelán
Richter og þriðja Sveinn Jensson.
Nýlátin er hér á ísafirði, göm-
ul kona, Þuríóur Hákonardóttir,
hún var komiu yfir áttrætt.
Danskur kaíari drukknaðl
hjá Gufunesi við Faxaflóa ný-
lega; var þar á björgunarskipinu
Geir, að vinna við sokkið þilskip.
Maður varð úti
milliBolungarvíkurog Seljadals
— á Oshlíð — 27. f. m. Hann
hét Ingvar Magnússon, ungur
maður, en sagt er að hann hafi
verið allmjög öfvaður. Eitt dæmi
af mörgum hvað áfengisnautnin
hefir í för með sjer.
Skortur á Tatni
var hér talsverður um daginn
£ður en þýðurnar komu. Nauð-
synlegt væri að bæta úr því, að
slíkt komi svo títt fyrir, því gott
og nóg vatn er skilyrði fyrir
góðum þrifum og vellíðun bæj-
armanoa.
Trúlofuð
eru ungfr. Margrét Pálsdóttir
og Jón Bjarnason trjesmiður.
„Ceres“
kom hingað 29. þ. m. Með
henni voru ýmsir farþegar þar á
meðal hingað til bæjarins, Jóh.
Þorsteinsson kaupm., Kristinn
Vigfússon trjesm. (úr Hafnarfirði)
og Ólafía Árnadóttir búðarmey.
Ennfr. voru með skipinu: Jóh.
Ólafsson póstafgreiðslum. áÞing-
eyri. Kaupmennirnir: Guðm.
Jónasscn í Skarðstöð, Guðni
Guðmundsson á Þingeyri, Guðm.
Kristjánsson í Haukadal ásamt
frú. Kr. Linnet málafærslumaður
og fleiri.
Með skipinu fór Guðjón Guð-
laugsson kaupfélagsstj. á Hólma-
vík o. fl.
„Kong Helge“
hefir verið hér þessa dagana.
Skipið kom með salt til verzlunar
Leonh. Tang & Söns.
Aflalítið
síðast þegar á sjó var farið.
tcæða tíð
hefir verið þessa dagana; hláka
og hlýviðri.
Sfmskeyti frá Höfn.
í dag fekk »Lögrétta< svohlj.
símskeyti frá Kaupmannahöfn:
Ráðherra seglr í donsku
blcðuitum: Vér Lofuni að eins
baristá nióti Hannesi Hafstein.
Vér (o: lsl.) óskum ekki að
stofna lýðveldi, þótt oss væri
boðið það; vér erum bæði í
cfnalegu og menningarlegu
tilliti óþroskaðir til þess. Vér
getum ckki óskað oss neins
betra, en að vera í sambandi
við Danmorku. Hjá Donum
teljum vjer oss órugga. Staða
isiands gagnvart Danmorkuer
úlíka og bjáleigu við liofð-
ingjasetur.
btúdentafundur í gær. Bjorn
fordæmdur; ekkert iíknaryrði.
Símfregnir.
f ingi*.
29. marz.
Samþ. til e. d. frv. til !aga um námsskeið verzlunarmanna, frv.
um lífsábyrgð sjómanna, frv. um breytingar á hagfræðisskýrslum, frv.
um breytingar á girðingum og írv. um að banna innflutning hunda.
E. d. samþ. tij n. d. aftur frumv. um vígslubiskupa.
Kosin nefnd í fiv. um veizlunarbækur: Ari Jónsson, Jul. Havsteen,
Gunnar Ólafsson, Ágúst Flygenring og Sigurður Stefánsson.
Nefnd í frv. um námulög: Jósef Björnsson, Steingrímur Jónssou
og Kristinn Danielsson.
30. s. m.
Enginn fundur í e. d.
í n. d. var aðflutningsbann 1. mál á dagskrá; umræður sióðu yfir
fiá kl. 12—3 og 5—8. Með því töluðu Björn Þorláksson, Skúli Thor*
oddsen, Einar Jónsson, Magnús Blöndahi, Sigurður Gunnarsson og JÓD
Ólafsson, en á móti allur minnihluti nefndarinnar og Pétur Jónsson.
31. s. m.
Björn Jónsson útnefndur sem ráðherra af konungi, í gær.
Forsetarnir attu tal við forsætisráðherran og sagði hann allar
breytingar og umbætur a frumvarpiuu ófáanlegar.
s. d.
Frv. um aðflutningsbann samþ. til 3. umræðu í n. d. með öllum
atkv. gegn 4
Fjáraukalög samþ. úr n. d. í þeim eru véittar 42 þús. til Rang'
áibrúarinnar er felt var úr fjálögunum.
Frv. um laun háskólakennara afgreitt til n. d.
nefnd e. d. i frv. um úrskurðarvald sáttanefnda leggur til að frv.
só felt.
Nefndin í löggilding hafna leggur til að allar hafnirnar séu löggiltar.
Nefndín í frv. um bókasafn á ísaf. leggur til að bókasafn ísafj.
fái 1 eintak frá prentsm. eins og amtbókasöfnin.
Björn Kristjánsson og Jón Ólafsson flytja þingsályktunartillögu um
að veita stjórninni heimild til að leigja af Arnarbólslóð 2 hússtæði,
héraðslækninum í Rvík 1000 □ «1. og verzlunarskólanum 1200 fyrir
10 aura feralin, leigan miðuð við 99 ár lengst.
Jón þorkelsson flytur svohl. þingsályktunartillögu: N. d. alþingis
samþykkir að skora á stjórnina að ná Guðbrandarbiblíu frá mr. Bannan
sem ‘Hálskirkja seldi honum 1903.
Opinbert skeyti um útnenfning ráðherrans kom í gær. Sú breyt'
ing verður í stjórnarráðinu að Eggert Briem verður 1. skrifstofustjóri
en Indriði Einarsson 3. skrifstofustjóri. Þorsteinn Þorsteinsson fer af
1. skrifstofu á 3. skrifstofu.
Klemenz Jónsson landritari mætir á alþingi fyr.'r hönd nýja ráð<
herrans 1. apríl, en H. Hafstein mætir úr þvi, sem l. þingm. Eyf.
J. apríf
Nefnd í frv. um almennan ellistyrk leggur til að það sé samþykt
eins og það kom frá e. d.
Nefndirnar í frumv. um vátrygging fiskiskipa og um friðun á skógi
og kjarri, leggja til að frv. séu samþ.
Frumv. um námsskeið verzlunarmanna og um breytingar á hag-
skýrslum, var vísað til nefndar í frv. um verzlunarbækur.
Frv. um úrskurðarvald sáttanefnda vísað til 3. umræðu.
Frv. um girðingar settí nefnd: Jósef Björnsson, Stefán Stefánsson,
Sigurður Stefánsson.
2. s. m.
Frv. um breytingar á kosningarrétti og kjörgengi samþ. í e. d. og
afgreitt til n. d.
Sömuleiðis frv. um sölu á Kjarna.
Þriðja umræða um fjárlögin í n. d. í gær og í dag. Atkvæða-
greiðslan fer fram á morgun.
Helztu breytingartillögurnar sem fyrir liggja, má telja þessar:
Jón Þorkelsson leggur til að allar fjárveitingar til ritsímalína séu feldar.
iillögur hafa komið íram um að veita: Brynjólfl Björnssyni tannlækni
800 kr., Guðm. Hávárðssyni 800, Guðm. Friðjónssyni 600, EinariJóns-
syni myndasmið 1200, Jónasi Guðlaugssyni 600, Jóhanni Sigurjónssyni
1000, Magnúsi Ólafssyni 500, 1000 til þess að vinna móti Ameríku-
agentum. — Tillögur hafa komið fram um að veita þessi lán: Gunnari
Ólafssyni alþingismanni 2,500, Neshrepp utan Ennis 8,500, íshúsfélagi
Vestmannaeyinga 20,000.
Þinghlé er ákveðið frá því á sunnudag og þar tii 3. 1 páskum.
Kona Jóns Jónssonar í Melshúsum varð braðkvödd 29. f. in.
Erflðismaður, Einar að nafni kafnaði í reyk í rrótt (30/8). Hafði verið
skrúfað spjaldi fyrir ofnpípu, svo herbergið fylltist af reyk. Kona
hans og barn voru þar inni, en lifðu af.
Forsetarnir komu á laugardngskvöldið til Hafnar. Voru í veizlu
hjá konungi á sunnudaginn, en a mánudaginn fóru þeir til fundar við
Neergaard forsætisráðherra.