Vestri - 10.04.1911, Blaðsíða 2
V E S T R I
21 íb!.
16
Ennfremur kom fram tillaga
frá Guðm. Hannessyni yfirréttar-
málfærslum. svohlj.:
>Með tilliti til fyrirsjáanlegs
>fjárhagstekjuhallaer yfir vofir,
>skorar fundurinn á Alþingi að
>ír«sta bannlögunum og setja
>þau ákvæði inn í bannlögin,
>að þau komi ekki til fram
>kvæmda fyr en meiri hluti
>alþingiskjósenda á ný hefir
>tjáðsig hlyntan bannstefnunni*
Tvær síðari tillögurnar komu
ekki til atkvæða með því þær
voru fallnar, er áskorunin frá
umdæmisstúkunni var samþykt
orðin.
Til máls tóku auk formælanda :
Guðm. Bergsson póstafgr.m.
Hannes Jónsson ráðunautur.
Sigurður Jónsson kennari.
Kristján H. Jónsson prentari.
Árni Sveinsson kaupm.
Guðm. Guðm. past. emerit.
Guðm. Hannesson cand. jur.
Þá er kl. var langtgengin til
kl. i að nóttu kom fram tillaga
frá Kr. H.Jónssyni prentara svohlj.
>Lagt til að gengið sé til at-
>kvæða um tillögurnar.<
Var hún samþykt og síðan fór
atkvæðagreiðslan fram sem fyr
segir.
Fleira ekki fyrirtekið.
Fundi slitið.
Magnús Ólafsson.
Ouðm. Guðmundsson.
Hannes Jónsson.
Skipstjóraprófsþrætan.
(J. H. hefir sent „Vestra" svara-
grein til Jóns Bjarnasonar.
Jafnvel þótt þessari deiiu ætti
aö vera lokið í blaðinu, viljum vér
þó taka þau atriði úr grein J. H.,
sem mest snerta umtalsefnið —
ekki rúm 'fyrir; meira).
J. H. segir óhrakið, að Jón
Bjarnason hafi stýrt prófinu sem
kennari og að 1 lærisveinn hafi
ekki þekt á áttavitann. Vísar til
ummæia ainna í 18. tbl. „Vestra“.
Oþarfi að vera að romsa langa
kafla úr kenslubókunum, sem margir
lesendur ekki skilja og styðja að
öðru leyti mál J. H.
J. H. segir að kvörtuu J. B. um
aö hann hafi gert sér (J. B.) hneysu
só alveg rétt, enda hafi J. B. átt
það skilið.
J. H. kveðst ekki vilja deila við
J. B. um tilvitnunina í 63 stiga
prófin, en biður lesendurna að bera
saman greinar þeirra frá byrjun.
J. H. kveður J. B. „brjóstum-
kennanlegan aulabárð“ fyrir að
halda því fram, að með 35 stiga
eink. geti maður staðist meira
stýrim.próf. Spyr hvort J. B. viti
ekki að til þess útheimtist minst
63 stig.
Kveður J. B. vilja hrekja það
■sem hann (J. H.) sagði, að dýpi
mœtti mæla með 5 kvm. hraða,
<en segir J, B« staðfesta með tilv.
£íz/nadó-tti'Z.
Gí't'ni §>. cBódvavsoow
A/qIuiXÁ).
Isafjörður. Isafjörður.
úr kenslub., að dýpi megi raæla
með 4—5 kvm. hraða.
Viðvíkjandi ummælum J. B. um
hvort hægt sé að stöðva skip í
þröngsævi vísar J. H. til greinar
sinnar í 18. tbi. „Vestra".
Biður J. B. að dæma sem minst
um sjómensku sína og kveðst ekki
muni sækja ráð til hans í þeim
efnum.
Þá er loggspjaldið.
J. H. segir J. B. neita að hafa
haldið því fram, að loggspjaldið
eigi að mynda eftir geislaparti,
en segist muni bráðlega muni birta
yfirlýsingu sem sanni, að hann hafi
kent að einmitt eigi að mynda það
eftir geislaparti, en ekki bogaparti
e;ns og rétt se.
Loks er logglínan.
J. H. segir J. B. að eins hafa
minst á, að hnúturinn eigi að vera
42 fet en þessu neiti hann, en
dæmi hans sanni þó einmitt mál
J. H. um að hnúturinn eigi að vera
45,9 eða 46 fet. Reyni svo að
hrekja orð J. H. um að á gufusk.
eigi meðdráttur sér eigi stað og
því sé hnúturinn af fullri iengd og
vitni í bók J. A. D. Jensen til
sönnunar máii sínu.
Segist vilja benda J. B. á bók
eftir forstöðum. sjómannaskólans í
Khöfn, og sem Jensen hafi skipað
kenslubók við alla danska skóla.
Bar standi svo:
„k gufuskípum á meðdráttur sér
eigi stað og hnúturinn gjöríst
þar 46 feta langur."
Spyr hvers vegna J. B. svari
ekki spurningum sínum um hver
hafi kent honum að hafa hnútinn
21 fet með 14 sek. giasi. Fari
liklega fyrir honum sem fyr, t. d.
í fyrra, er lærisveinn Hrólfs sái.
Jakobssonar hafi sett hann á gat
í hornmálsfræðinni.
James I, ííisbet trúboði hélt
börnum á sunnudagaskólasínum
veislu þann 5. þ. m. Foreldrum
barnanna var og boðið.
Alls hafa um 200 börn notið
kenslu þessarar ókeypis.
Mr. J. L. Nisbet og systir
hans Mrs. D. Nisbet bregða sér
bráðlega héðan um stundarsakir
og færðu skólabörn þeirra þeim
gjafir að launurn fyrir kensluna,
enda er þeim systkynum við-
brugðið fyrir ljúfmensku sakir.
Slökkviliðsæiing var haldin
bér 5. þ. m. og er það nýlunda
mikil.
Líkindi eru til þess, að bruna-
bótagjald hér myndi lækka, ef
bærinn eignaðist fullkomnari
slökkviáhöld og er hin brýnasta
þörf á að borgararnir láti þetta
til sín taka.
Símfregnir til „Vestra".
Alþingi.
1. apríl.
Jón OlafssoD kosinn í dag gæslustjóri, í stað Kristjáns Jónssonar,
með 7 atkvæðum. Jón Gunnarsson fekk 6 atkv,
Neðri deild hefir afgreitt til efri deildar frumvavp um að veita
400 þúsond kr. til hafnargerðar i Reykjavík, landssjóður ábyrgist 1200
þúsund kr. lán. Reykjavík tekur til hafnargerðar.
ð. «. m.
Fræðslulaganefnd e. d. leggur til að fresta frumv. stjórnarinnar
um fræðslumál. Sigurður Stefánsson flytur frumv. um að fresta
framkvæmd laga um aðflutntingsbann á áfengi i 8 ár frá 1. jan 1912.
Fjárlagaumræður standa yfir í n. d. enn.
Fólkstal 1. des. siðastl. hefir verið full 85 þús.
4. «. m.
Samþykt: Rangárbúin 45. þús. kr. Brú á Rangá í Tungu í N.
Múlasýsiu. — Brú á Austurá í Dalasýslu. — 5500 kr. til ísafjarðarbáta.
Samþykt aö leggja síma frá Borðeyri um BúÖardal til Stykkishólms,
ásamt aukalínu til Staðarfells.
Fjárlaganefndin feldi burt styrkveiting til viðskiftaráöunauta, en
neðri deild hefir samþ. að veita sömu upphæð og áður.
Ti) bryggju í Hafnarfirði veittar 35 þús. kr. og 3000 kr. til bryggju
á Húsavík.
Til iendingarsjóðs Bolvikinga 1000 kr., fyrra áriö.
Þrem vitum á að baeta við: á Kálfshamarsvík, Bjargtöngum og
Flatey á Skjálfanda,
3000 kr. til ransóknar á járnbrautarstæði austur í sýslur.
Til stórstúkunnar 2000 kr.
Til samningar bókar um dýralækningar 4000 kr.
Styrkur til kvöldskóla Iðnaðarmannafé). ísflrðingá hækkaður um
200 kr. á ári.
Orðbókarstyrkur til Jóns Ólafssonar óbreyttur, styrkur til Ágúatar
Bjarnasonar sömul Gnðm. Hjaltason fær 400 kr. árl. Guömundur
Finnbogason heimspekingur 600 kr. árl. Jón Ófeigssen fær alt aö 1500
kr, á ári til orðbókar.
Jónasi Jónssyni (Plausor) veittur 600 kr. styrkur til þess aö rita
um íslenskan sálmasöng,
Þorgils Gjaflanda veitt 1200 kr. heiðurslaun.
Sköldstyrkur til Guðm. Magnússonar hækkaður upp í 1000 kr.;
aðrir skáldstyrkir óbreyttir frá stjórnarfrumvarpinu.
Lánveitingar: Til raflýsiDgar á Seyðisfirði 40 þús. kr. Til skóla-
hússbyggingar á Blönduósi 12 þús. kr. Til áveitu á Miklaholtstiýri í
Árnessýslu 20 þús. kr. Til verndunar Safamýri 30 þús. kr.
Feldar fjárveitingar: Um að strengja koparþráð frá Borðeyri til
ísafjarðar og tveir talsímaspottar í Baröastrandarsýslu.
Felt að Danir fengju nokkurn hluta botnvörpusektanna.
Feldar lánveitingar: Til Ólafs Jónssonar til myndamótaverksmiðju
45 þús. kr. lán til klæðaverksm. Iðunnar (15: 10), 60 Þús. kr. til
hafnargerðar í Vestmannaeyjum (12: 12), 12 þús. kr. til byggingar á
Bingvöllum.
5. «. m.
Stjórnárskrárfrumvarpið afgreitt í neðri deild meö lítilfjöilegum
breytingum.
Þingsályktun um að n. d. viðurkenni ekki stöðulögin skuldbindandi
fyrir ísland samþykt.
Frestun bannlaganna til 1. umræðu. Með töluðu: Flutningsm.
Sig. Stefánsson), Steingrimur Jónsson. Móti töluðu: Sig. Hjörleifsson,
Jósef Björnsson, Kristinn Daníelsson, Gunnar Ólafsson. Nefnd: Lárus
H. Bjarnason, Sigurður Stefánsson, Sigurður Hjörleifsson, Steíán Stef-
ánsson, Steingrímur Jónsson.
Framkvæmdarnefnd stórstúkunnar hefir sent þingmönnum áskorun
um að fella frumvarpið.
Fræðslulagafrumvarpið felt í efri deild.
Jón á Hvanná, Jón þ«rkelsson, Sig. Gunnarsson, Bjarni Jónssön,
Benedikt Sveinsson, Þorieifur Jónsson, M. Blöndahl, Skúli Thoroddsen
flytja svohlj. þingsályktun: Neðri deild Alþingis lýsir yfir að rétt sé,
að ísland leggi fé til landhelgisgæslu Dana hér við land, þegar hlutað-
eigandi stjórnarvöld viðurkenna að landhelgi íslands heyri til íslend*
ingum einum og gæslan fari fram í umboöi þeirra.
Mannfjöldi 1. desember síðastl. 85,089.
8. 8. m.
Tekjuhalli fjárlaga eftir aðra umræðu 187753 krónur. — Þriðju
umræðu verður væntanlega lokið í kvöld. Fjöldi af breytingartillögum.
Skúli Thoroddsen, Bjarni Jónsson, Benedikt Sveinsson, Jón Þor-
kelsson, Jón á Hvanná, Sigurður Gunnarsson flytja þingsályktun um
að skora á ráðherra að gera sitt ýtrasta til þeas aö sambandslögin
verði tekin til meðferðar á ríkisþingi Dana.
9 amálög afgreidd alls.