Skólablaðið - 15.02.1911, Page 1
SKOLABLAÐIÐ
FIMTI ÁRGANGUR
1911. Reykjavík, 15. februar. 3. tbl.
! í
Frumvarp til laga
um
fræðslu æskulýðsins.
(Lagt fyrir alþingi 1911).
I. kafli.
Um námsskyldu.
1. gr.
Hvert barn skal, er það er fullra 10 ára, vera orðið nokk-
urn veginn læst á auðvelt Iesmál, hafa stundað skriftarnám eitt
vetrarskeið að minsta kosti, og kunna fjallræðuna.
Hvert barn skal, er það er fullra 12 ára, hafa lært:
1. að lesa móðurmál sitt sæmilega rétt og áheyriiega.
2. að skrifa læsilega snarhönd,
3. að rita eftir heyrn auðskilið lesmál sæmilega stafrétt,
4. að nota fjórar höfuðgreinar reiknings til þess að reikna í
huganum með lágum heilum tölum auðvelt dæmi úr daglegu
lífi, svo og að rita slík dæmi upp eftir merkjum (-]—X :)
og leysa með réttri aðferð skriflega,
5. kristin fræði, þau er áskilin eru til fermingar.
2. gr.
Átján ára gömul ungmenni, sem hlotið hafa vottorð barna-
Iræðslunefndar um, að þau séu vel fallin til lögskipaðs ungmenna-
>iáms, eiga að
1- vera það vel læs á móðurmál sitt, að með það fari viðstöðu-
laust og rétt eftir lestrarmerkjum, skýrt og áheyrilega,
2- kunna að gera skriflega grein fyrir efni. er þeim er ve)