Skólablaðið - 15.02.1911, Page 8
40
SKÓLABLAÐIÐ
Frumvarp stjórnarinnar stefnir aftur á móti, að því að íslensk
börn komist aldrei alment undir handleiðslu og áhrif sérment-
aðra kennara, og kollvarpar þannig því besta og verulegasta, sem
fræðslulögin frá 1907 höfði bygt upp. Það er stærra stigið
aftur á bak.
Góðu 'neimilin ala börn sín vel upp, og geta venjulega kent
þeim það sem lögskipað er; það hafa menn lengi vitað, og
það vita menn vel enn. En góðu heimilin eru svo raunalega
fá í samanburði við hin, sem ekki geta þetta, þrátt fyrir besta
vilja; þau vantar þekkingu til að rétta fróðleiksmolana að börn-
unum, og þau kunna oft lítið til þess að hafa áhrif á sálargáf-
urnar. Þó að stjórnarfrumvarpið heimti ekki mikinn fróðleik,
eða kunnáttu af 12 ára börnum, þá má hver maður vita, sem
eitthvað þekkir til, að það er of mikið til þess, að heimilin getí
alment veitt þenna fróðleik og þá kunnáttu. Þau verða því
mörg, heimilin sem þurfa hjálp.
Þar segir 6 gr. frumvarpsins að barnafræðslunefndimar eigí
að bæta um »með því að útvega kennara á þessi heimili, eða
koma börnunum fyrir til lögmæltrar tilsagnar, á kostnað þeirra,
er að þeim standa, og má svara kostnaðinum í bili úr sveitar-
sjóði eða bæjar, og taka hann síðan lögtaki*.
Lög um fræðsla barna frá 1907 gera ráð fyrir, að öll
fræðsla nema í lestri og skrift, fari fram á kostnað hreppsins.
Heimilunum trúað til þess að kenna »nokkurnveginn« lestur og
skrift, og annað ekki, án hjálpar. Þetta ákvæði að kenslan í
öðrum námsgreinum sé ókeypis, á hreppskostnað, er nauðsynlegt
til að tryggja það, að öll börn öðlist lögskipaða kenslu. Það
er fögur hugsun — og að vísu sjálfsögð — að fátækt og utu-
komuleysi foreldranna verði ekki völd að því, að börnin þeirra
fari á mis við sæmilegt andlegt uppddi. Reynslan hefur nú
samt sem áður sýnt það, að einstaka heimili hefur átt mjög erf-
itt með að hagnýta sér kenslu hreppsins, þó að ókeypis hafi
verið fyrir hvert barn, af því að foreldrarnir hafa ekki treyst sér
til að gefa með börnum sínum ineðan þau þurftu að vera heim-
an við nám í farskólunum. —
En ekki bætrr frumvarp stjórnarinnar hér úr skák, heldur
þvert á móti, — þar sem það slengir öllum kostnaði við barna-