Skólablaðið - 15.02.1911, Side 13
SKOLABLAÐIÐ
45
börn. Til prófs hafa því komið 750 börn fleiri en nutu opin-
berrar fræðslu.
þegar litið er til barnafjöldans, sem fræðslu nýtur, kenslu-
greinarnar sem kendar eru og námstíma hvers einstaks barns,
virðist það einsætt að barnakenslan er þessi ár á góðum fram-
faravegi; ennfremur húsakynni batnað áórum, og kennsluáhöld
að komast í viðunanlegt lag þar sem fræðslulögin eru komin í
framkvæmd. Kenslukraftarnir auðvitað að verða betri en áður
þar sem sérmentuðum kennurum fjölgar óðum.
Við hvað eiga þá ummæli stjórnarinnar að styðjast, þau er
áður vora nefnd?
Þegar þess er nú að lokum gætt, að enginn hreppur á
landinu þurfti, fremur en hann vildi, að semja fræðslusamþykt
samkvæmt. fyrirmælum fræðslulaganna fyrri enn á þessu ári, eða
fyrir nýjár 1912 (sbr. 4. gr. 1. um breyting á 1. um fræðslu barna
22. nóv. 1907, útg. 30. júlí 1909) þá virðast þau ummæli enn
óskiljanlegri, nema svo sé, að stjórninni sé ókunnugt um, hvað
framkvæmd fræðslulaganna líður.
En að því er snertir mótspyrnu, er fræðslulögin hafa sætt,
þá er því ekki að neita, að hún var nokkur fyrst í stað, og
kom hún einkum fram í einu blaði hér í Reykjavík, sem auð-
sælega tók sér það fyrir hendur að gera lögin svo tortryggileg í
augum landsmanna, og gera svo mikla grýlu úr kostnaðinum
við framkvæmd þeirra, að allir, sem ekki rannsökuðu það mál
sjálfir, yrðu lögunum algerlega fráhverfir. Æsingagreinar þessa
blaðs unnu það á, að andróðurs móti lögunum gætti allvíða
fyrst í stað. En mótspyrnan hefur minkað eftir því sem lögin
hafa skýrst betur fyrir mönnum, og það er áreiðanlegt, að hún
er minst þar sem mest hefur verið hugsað um þau. Hitt er
eðlilegt að eitthvað lifi enn af óhug til laganna hjá þeim mönn-
um, sem ekki hafa lesið þau sjálf, og vita ekki annað um þau
en það, sem villandi blaðagreinar hafa frætt þá um.
Samanburði á kostnaði við framkvæmd þessa stjórnarfrum-
varps og fræðslulaganna frá 1907 er engin ástæða til að fara
hér út í, nieð því að stjórnin hefur alls ekki gert neina grein
fyrir því, hve mikið muni kosta framkvæmd þessa frumvarps,
heldur aðeins látið í veðri vaka, að fé niuni sparast með því að