Skólablaðið - 15.02.1911, Blaðsíða 14
46
SKÓLABLAÐIÐ
lögleiða það. Ef þingið sér sér fært að eyða tíma til
að athuga frumvarpið, má búast við, að það geri nákvæman
kostnaðar-samanburð, og mun verða nógu fróðlegt að sjá hann.
Ekki er heldur ástæða til að fara hér nánar út í einstakar
greinar frumvarpsins. Það sem kann að felast í'þvf.af ákvæð-
um til bóta á fræðslutögunum, er innan handár að setja inn í
þau lög með breytingum á þeim án þess að hagga grundvelli
þeirra. Til bóta má telja ákvæðið um sektir fyrir vanrækslu
fræðslunefnda og skólanefnda, svo og kenslu í leikfimi, > ef þá
er kominn tími til að heimta kenslu í þeirri grein með lögum.
í athugasemdum stjórnarinnar er talað um íþróttlegar líkams-
æfingar og sönglist sem skyldunám barna fyrii 12 ára aldur
En í lögunum sjálfum (1-gr.) stendur ekkert um það. í athuga-
semdum stjórnarinnar er og gert ráð fyrir að kaup farkennara
sé að einhverju leiti goldið ur landsjóði; en í frumvarpinu sjálfu
er alls ekki gert ráð fyrir því, heldur þvert á móti, öllum kostn-
aði við kenslu barna til 12 ára, öllum kostnaði við skyldunámið,
dengt á aðstandendur barnanna (6. gr.). Svo lauslega er þetta
alt hugsað og samið.
Heppileeast mun að gefa þjóðinni frið til að átía sig á
fræðslulögunum frá 1Q07 enn uni nokkurt árabil og reyna þau
í framkvæmd. Væru þau numin úr gildi nú, og önnur lög
sett í staðinn, sem bygð væru á öðrum grundvelli, þá væri
óviturlega gripið inn í gang lýðfræðslunnar. Mikið ög fyrír-
hafnarsamt starf væri evðilagt, og fyrrsjáanlegt að mikill glund-
roði mundi komast á hugi manna og framkvæmdir í málinu;
en vanséð hve óhappasæl eftirköstin yrðu.
Ráðherra beldur fyrirlestra um barnakenslu.
Hinn 9. þ. m.' hélt Björn Jónsson ráðherra fjfyriríestur
urn »nýja barnafrœtlsluaðferð<>, fyrir miklu fjölmenni, er hann
bauð sérstalifega til fyrirlestrarins; o; annan 11. þ. m. líks efnis
fyrir sömu áheyrendum.