Skólablaðið - 15.02.1911, Síða 15
SKOLABLAÐIÐ
47
Spurmngar og s /ör.
1. Á barr., sem er aðeins 13 ára að aldri heimting á aðfáað
taka fullnaðarpróf og þá að fá vottorð frá prófdómara um
að hafa fulluægt þeim kröfum, sem lög um fræðslu barna
22. nóv. 1907 gera til þekkingar 14 ára barna?
1. Eftir bókstaf laganna á það að koma til þrófs, þangað
til það er fullra 14 ára, en eðlilegast er, að það megi lúka
prófi og fái skírteini 13 ára, ef það hefur þroska og þekk-
ingu til þess.
2. Er barn sem verður á 15. ári þegar próf fer fram að vorí
1911, skylt að koma til prófs jafnvel þó að það hafi ekki
áður lokið fullnaðarprófi?
2. já.
3. Geta menn, sem verið hafa lítils háttar við kenslu á einum
eða tveimur bæjum, fengið styrk úr landsjóði, jafnvel þó
að þeir hafi ekki verið ráðnir með samráði við fræðslunefnd
þess héraðs er þeir kenna í og fræðslunefndin neiti svo að
láta þá fá vottorð (o: ósatt vottorð) til yfirstjórnar fræðslu-
mála, en þeir fái það vottorð frá einhverjum óviðkomandi
manni t. d. sóknarpresti?
3. Já, ef þeir sýna vottorð fra prófdómara um að kennslan
hafi borið góðan árangur, og öðrum sklyrðum er full-
nægt; hafi kenslan ekki verið alveg prívat.
Skýrslur um barnafræðslu og próf mega skólanefndir
°g fræðslunefndir senda ófrímerkt.
Umsjm. frœðslum.
Þeir, sem enn eiga ágreití andvirði 4. ár'gangs af
»Skólablaðirru«, eru vinsamlaga beðnir um að gera það sem
allra fyrst. Verði nokkurnveginn skil á andvirði blaðsins, verð-
ur það stækkað (blöðum fjölgað) en verð ekki hækkaðí