Brandur (Austurland, Brandur, Austanfari) - 30.05.1922, Side 3
1 tbl.
BRANDUR
3
— Skipaferð mikil hefur verið
tiér undanfarið, oft legið hér 10
—20 skip, stærri og smærri.
Togarar, íslenzkir og útlendir,
að afferma fisk og taka kol og
salt, og kolaskip að afferma,
svo að ekki er hægt að segja
annað en hér hafi verið líflegt.
Og vonandi að það haldist.
— Jóh. Kjarval, listmálari, er
kominn hingað til bæjarins. Hygst
hann að dvelja hér eystra í sum-
ar. Kona hans og börn koma
með „Goðafossi" næst.
— Sem sjá má af auglýsingu
hér í blaðinu dvelur nú hér um
hríð Guðmundur Pétursson nudd-
læknir. Mun það mörgum ánægju-
efni. Og þess má geta, að fleiri
menn en sjúkir hafa gott af slík-
um lækningum sem hann við-
hefur, með nuddi og böðum.
Því það er eigi fullgildur sann-
leikur þetta: „Heilbrigðir þurfa
ekki læknis við“.
— Alment heyleysi er nú hér á
Seyðisfírði, svo að jafnvel hinar
tvær máttarstoðir Seyðfirðinga í
þeim sökum, þeir séra Björn á
Dvergasteini og Sigurður bóndi
á Brimnesi, hrökkva ekki til, svo
að menn verða að leita út úr
firðinum til heykaupa. — Á Hér-
aði mun sauðburður ganga vel
enn sem komið er, þrátt fyrir
kuldana og snjóinn.
— Mótorbátar hér eru nú byrj-
aðir að ganga til fiskjar; segja
þeir nægan fisk og ekki lang-
sóttan, en gæftirnar ekki góðar.
— Frakkneskt herskip kom hér
inn á höfnina og gerði Seyðfirð-
ingum svefninn óværan um há-
degisbilið með skothríð einn dag-
inn.
— Af því mikið er á boðstól-
um af aluminiumsvörum, og stæl-
„ B R A N D U R “
kemur út eftir hentugleikum; bindur
ekki útkomu sína við neinn ákveðinn
dag. Kostar 10 aura eintakið. Auglýs-
ingaverð: kr. 1,50 cm. dálksbreiddar.
Eigendur og ábyrgðarmenn:
Hermann Þorsteinsson,
Indriöi Helgason o. fl.
Afgreiðslumaður:
Sig. Þ. Guðmundsson, prentari.
(SLENZKAR ÞJÓÐ-
SÖGURoq -SAGNIR
eftir Sigfús Sigfússon frá Ey-
vindará, eru nú fullprentaðar og
verða bornar út til áskrifenda
hér í Seyðisfirði næstu daga. —
Tvíritunarbækur
(Nótur) fást prentaðar og heftar í
Prentsmiðju Austurlands.
— Mjög ódýrar ef teknar eru
100 bækur eða fleiri í einu. —
ingum af sömu vöru, ættu kaup-
endurnir að athuga að einungis
þær vönir sem stimplaðar eru:
„Hreint alúminium" eru haldgóð-
ar og þola vel „Primus"- og
oliuvélahita.
— Maður af íslenzkum togara
var kallaður fyrir rétt í Reykja-
vík. Þegar hann kom aftur frá
réttinum og var spurður hvað
það hefði verið, svaraði hann:
„Það var ekki neitt, það voru
tekin misgrip á mér og manni!"
Anna litla; Ertu ekki pipar-
mey, frænka mín?
Frænkan: Jú, en það er Ijótt
af krökkum að spyrja svona.
Anna litla: Eg veit að það er
ekki þér að kenna.'
— „Brandur“ tekur fegins
hendi móti öllum fréttum og rit-
gerðum, um hvaða efni sem eru,
ef þær að dómi ábyrgðarmanna
eru þess verðar að verða prent-
aðar. En umræður um „apríl-
málin verðaekki leyfðar í blaðinu.
Líftryggið yður í
Andvaka
Áreiðaniega bezta líftrygginga-
félagið, sem starfar hér á landi.
— Umboðsmaður á Seyðisfirði:
Herm. Þorsteinsson.
Aluminiums-vörur
nýkomnar til
Indriða Helgasonar
— Seljast mjög ódýrt. —
Agra smjörlíkið
er bezt. Biðjið ætíð um það. Fæst
í öiium verzlunum á Seyðis-
firði. — Umboðsmenn á íslandi:
Herm. T horsteinsson & Co.
Allskonar íslenzk frímerki
kaupi eg háu^verði
H. Schlesch,
lyfjabúðarstjóri, Seyðisfirði.
Steinolían
„Kongaljós“ frá Landsverzl-
uninni er lang bezta og ó-
dýrasta steinolían á mótora
sem fæst hér nu. — Hinar
ágætu áburðarolíur —
sem eg hafði í fyrra —
koma með næstu skipum.
Herm. Þorsteinsson.
Get selt þýzk mörk í ávís-
un á banka í Hamburg. —
Theodór Blöndal.