Vísir - 15.12.1958, Blaðsíða 6

Vísir - 15.12.1958, Blaðsíða 6
B VÍSIR Mánudaginn 15. desember 1958 WISIR D A G B L A Ð Útgefandi: ELAÐAÚTGÁFAN VÍSm H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. / Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla. Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19.00. Sími: (11660 (fimm línur) Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðian h.f. FEokkurhui heúmtaði það. Fyrir nokkru var frá því sagt, að einn af ráðherrum vinstri stjórnarinnar hefði sótt um stöðu forstjóra við Trygg- ingastofnun ríkisins. Voru þá liðnir margir mánuðir frá því að starfið var auglýst til umsóknar og eðlilegur umsóknarfrestur á enda fyr- ir löngu. Vakti umsókn þessi mikla athygli, svo að ekki sé rneira sagt, því að þarna átti sýnilega að fara inn á nýja braut við að afla mönnum hægra starfa og virðulegra embætta. Þó fór svo að lok- um eins og sagt hefir verið frá hér í blaðinu, að ráð- herrann sá sitt óvænna og tók umsókn sína aftur. Alþýðublaðið hefir birt grein- argerð þá, sem ráðherrann, er hér er um að ræða, hefir látið frá sér fara og er það fróðlegt plagg. Þar kemur fram, að> Alþýðuflokkurinn "'virðist líta svo á, að hann ,,eigi“ Tryggingastofnunina, og af því að hans menn hafi endur fyrir löngu haft hönd í-bagga við setningu laga um hana, verði Alþýðuflokks- maður að vera þar í forsæti. Starf forstjóra erfist þess vegna eftir flokki en ekki eftir ætt. Er hér um nýjung að ræða sem menn ættu vissulega að gefa gaum, þeg- ar þeir fara að hugleiða, hvort þeir eigi að eyða kröft- um sínum í þágu alþjóðar. Tryggingaráð hafði á sínum tíma látið þá skoðun í ijós, að báðir umsækjendur vær.u hæfir til að gegna starfinu, og dregur enginn það í efa. Hitt er annað mál, að' rang- lega var að farið af hálfu Alþýðuflokksins, svo að ekki sé dýpra tekið í árinni, og er siðgæðinu sannarlega ekki fyrir að fara þar sem ríkj- andi er slíkur hugsunarhátt- (Ur, er kemur fram í grein-'- argerð ráðherrans. En til allrar hamingju hefir flokk- urinn vafalaust fundið þá andúðaröldu, sem reis hvar- vetna, þar sem umsóknin var rædd, og þess vegna hefir hún verið tekin aftur. Vonandi verður þetta til þess að mönnum skiljist, að þrátt fyrir margar og miklar veil- ur hjá okkur er öllu takmörk sett.' Nýtt varBskip. Nú hefir endanlega verið geng- ið frá því, að nýtt varðskip verði fengið og verður smíði þess lokið eftir um það bil ár* Verður þetta hið full- komnasta skip að öllum út- búnaði, eins og sjá má af til- kynningu þeirri, er gefin' hefir verið út um smíði þess, og mikilvæg viðbót við varð- og björgunarskipastól lands- manna sem hefir nú meiri störfum að sinna en nokkru ' sinni áður. Þetta verður sennilega minnsta ,,flugvélamóðurskip“, sem um getur, en það er einn af kostum hins nýja skips, að þyrla getur sezt á skutþiljur þess. Er þar um nýung að ræða sem getur komið að miklum notum, enda þótt íslendingar eigi ekki slíka flugvél. Einnig er.það mikil- vægt, hve hraðskreitt skip- ið er og sérstaklega styrkt til að sigla með mikilli ferð um úfinn sjó. Ekki verður annað sagt en að sæmilega sé séð fyrir eftir- liti með landhelgisgæzlunni þegar hið nýja skip verður tekið í notkun, ekki sízt þar sem ætlunin mun vera að fá landhelgisgæzlunni í hendur nýja flugvél. Leikur ekki á tveim tungum, að stjórnar- völdin verða ævinlega að gæta þess, að landhelgis- gæzlan hafi sem beztum tækjum á að skipa, því að ella er ekki hægt að gera kröfur til þess, að störfin sé vel af hendi leyst. Vei a& orði komizt, Það þótti á sínum tíma vel að Hann benti mönnum á. að aldrei orði komizt, þegar Chur- chill hafði þau orð um or- ustuna um Bretland, að aldrei hefðu eins margir átt eins fáum eins mikið að þakka. Nú hafa þessi orð verið rifjuð upp á nýjan leik, því Thor Thors, sem jafnan hefir verið oddviti ís- lendinga á þingi Sameinuðu. þjóðanna, minnti menn á þau fyrir nokkrum dögum. hefðu eins margir ráðizt á eins fáa, og er vonandi, að það veki einhverja Breta til umhugsunar um hið göfuga hlutverk þeirra í landhelgi íslands, þegar þeir ei-u minntir á það, sem leiðtogi þeirra lét sér um munn fara fyrir 18 árum. En þótt sam- vizka Bretans kunni að vera „pottþétt“, eru þeir fleiri, sem heyra en þeir einir. Jólabók Ferðabókaútgáfunnar í ár Tveir frægustu blaðamenn og helziu blaðaljós- myndarar Dana iögðu saman krafta sína og sömdu frá- bæra ferðalýsingu — með 220 persónu- og staðarmyndum — frá íslandi og Fær- eyjuin fyrir 50 árum — sannkalíaða aldarfarslýsingu, skrífaða í léttum og skemmtilegum Ilöfundurinn, ásnmt ljósmyndara, ekur bifreið frájf; nyrzta odda Noregs til syðsta odda Afríku. Leiðin er'íf;? p 58.600 km. löng, yfir 105 breiddarstig og farið er umíjf- 34 lönd. Þeir félagar rata í hin furðulegustu ævintýri.iff gx Bókin er prýdd fallegum niyndum. vantar strax á reknetabát frá Keflavík Uppl. í símum 1-3864 og 3-2217. Skreytið heimili yðar um jólin með þessum fallegu bjöllum, þær eru í smekklegum umbúðum og því tilvalin jólagjöf fyrir vini og kunningja. Vesturgötu 2. —"Sími 24-330 ísafold telur enga bók líklegri til þess að verða jólabók fjöldans, karla, sem kvenna, ungra, sem gamalla heldur en bókina 20 % afslátt gefum við af í dag og á morgun kvenkápum ÍSLANÐSFEPJBIN 5IMI 1335D 1907.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.