Vísir - 14.02.1959, Síða 4

Vísir - 14.02.1959, Síða 4
4 i VÍSIB Laugardaginn 14. febrúar 1959 WÍSIM. D AGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Fálsson. ^ Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00, Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—18,00. Sími: (11660 (fimm línur) Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Hver var ástæðan? Það er aðallega tvennt, sem Framsóknarmenn reyna að , telja almenningi trú um. Annað er það, að það sé ætlun Sjálfstæðismanna og . Alþýðuflokksmanna að ; „leggja niður“ öll gömlu kjördæmin úti um land og j svipta sveitirnar þar með j áhrifum sínum á Alþingi. Hinsvegar, að Sjálfstæðis- menn hafi barizt eins og óð- . ir fyrir því, að kaup væri hækkað á síðasta sumri og ; því ættu þeir manna sízt að j berjast nú fyrir lækkun iauna. Barátta Sjálfstæðis- manna sé fólgin í að taka það aftur, sem þeir hafi ginnt launastéttirnar til aði heimta á síðasta sumri. Þessi er aðalsöngur þeirra þessa daga. Framsóknarmenn ætlast til þess ,að almenningur gleymi j því, hversu mikil breyting varð á högum hans af völd- j um bjargráðanna dæma- lausu. Með þeim var dýrtíð- ] arskriðu hleypt af stað, og j það var ríkisstjórnin ,sem gerði það og enginn annar \ aðili. Ekki voru það Sjálf- stæðismenn, sem báru fram : bjargráðin á þingi? Hvernig getur Framsóknarflokkur- inn þá ætlast til þess í al- vöru, að nokkur maður leggi trúnað á það, að það' hafi verið Sjálfstæðisflokk- urinn, sem kom af stað kauphækkunum. Það gerðu sömu aðilar og hækk-1 uðu vöruverð, því að þa^, kallaði óumflýjanlega á1 hækkað kaupgjald. Þessar blekkingar Framsókn- armanna eru svo augljósar og ófyrirleitni þeirra svo mikil, að jafnvel kommún- istum hefir ofboðið, og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína. Annar fulltrúi þeirra í ríkisstjórninni, Lúðvík Jósepsson, hefir látið svo um mælt við útvarpsum- ræður, að kauphækkanirn- ar hafi verið eðlilegar af- leiðingar og viðbrögð af hálfu alls almennings í landinu, þegar rikisstjórnin spennti upp allt vöruverð. Nú telur Vísir ekki, að Lúð- vík Jósepsson sé sérstaklega góð heimild, en á honum sannast þó stundum, að oft ratast kjöftugum satt á munn, og svo hefir farið í þessu tilfelli. Hvers er ábyrgðin? Þá er vitanlega komið að þeirri spurningu, sem hlýtur að leiða af hinni fyrri: Hver er það, sem ber fyrst og fremst ábyrgð á því. hvern- ig komið er? Hver ber ábyrgð á stefnu stjórnar- innar? Það er lítill vandi að svara þessum spurningum, því að allir stjórnarflokk- arnir bera ábyrgðina í sam- einingu, en þó er ábyrgð þeirra að sjálfsögðu nokkuð misþung'. Sá veldur miklu, sem upphaf- inu veldur, stendur þar, og það á við um Framsóknar- flokkinn að þessu sinni. Formaður hans var orðinn næsta ókyrr og þótti illt að geta ekki stjórnað íslandi, eins og hann þóttist borinn til. Þá hóf hann þær aðgerðir sem náðu hámarki með því, að hann myndaði stjórn með gó(5ri hjálp kommúnista fyrir hálfu þriðja ári. Abyrgð kommúnista er næst- um eins þung, því að það voru þeir, sem tóku að sér að binda verklýðssamtökin á klafa vinstri stjórnarinn- ar og kváðu þau reiðubúin til að vaða eld fyrir hana. Þeir buðu vinnufrið fyrir ráðherrastólana. Þeirra á- byrgð er því litlu rninni en Framsóknarflokksins, ekki sízt af þvi, að þeir voru stærsti sjórnmálaflokkur- inn, enda þótt þeir veittu ekki stjórninni forstöðu. Þeir standa saman. Það er greinilegt af afstöðu kommúnista og Framsókn- arflokksins, að þeir gera sér grein fyrir, að þeir eiga að mestu sök á því, hversu illa tókst til í tíð síðustu stjórn- ar. Samstaða þeirra í öllum málum nú er sönnun fyrir ! sektarkennd þeirra, en þeir geta ekki firrt sig dóminum f þrátt fyrir það. Hver sem ábyrgð ber á stjórn- arfari í frjálsu landi, verð- ur um síðir að koma fyrir dóm alþjóðar. Hún vísar hverjum til sætis, 'þar sem honum ber, og kommúnistar og Framsóknarflokkurinn sjá nú fram á útskúfun vegna afglapa sinna í vinstri stjórninni. Undirréttardóm- ur hefir þegar verið upp kveðinn. Það var í janúar- mánuði fyrir ári, þegar efnt tíirhjju og trtíwnál: Ljós og myrkur. Það er margt undarlegt í Bibl- íunni. Hvernig byrjar ekki guð-1 spjallið á morgun? „Þá var Jes- ús leiddur af andanum út í ó- byggðina, til þess að hans yrði freistað af djöflinum." Þetta eru undarleg orð, raunar óhrjáleg. Finnst þér það ekki? Þetta er blátt áfram ekki fallegt. Nei, það er ekki fallegt. Og undarlegt er það, óskiljanlegt. En er ekki margt undarlegt í lífinu, óskiljanlegt í veruleikan- um? 1 því sambandi þarf ekki að minna á furður alheimsins eða dularfull fyrirbæri, sem svo eru kölluð. Það nægir að gefa gaum að hversdagslegum atvikum og algengum, mannleg- um viðbrögðum. Börn eru að leik sinum. Born í glöðum leik eru ein fegursta sjón, sem fyrir augu ber. En allt í einu breytist blærinn yfir hópnum: Einhver þeirra hafa reiðzt. Það færast skuggar yfir svipinn, augun fá annarlegan glampa. Einn drengjanna stend- ur með stein í hendi, miðar, kastar. Hvaða skuggi er það, sem bregður slíkum dökkva yf- ir ímynd fegurðar og sakleysi? Önnur mynd af sama sviði: Yndisleg böm mætast daglega á leikvelli. Meðal þeirra sérðu stundum barn, sem er óvenju hlédrægt, hikandi. Það blandai' sér ekki í leiki hinna barnanna nema af ýtrustu varfærni. Vegna hvers? Þú tekur eftir þvi, að oftast nær, þegar hin börnin koma auga á það, fer eitthvert þeirra að benda, „hía“ hlæja. Og litli einfarinn hrökklast löngum burt af leikvellinum stundum grátandi. Hvað ber til? Barnið er dálit- ið lýtt, blest á máli, kýtt í herð- um, halt á fæti eða vanþroska. Það er nóg til þess að hin börn- in í hverfinu beita það þessari grimmd. Þau vita ekki, hvað þau gera. En hvernig stendur á þvi, að sakleysi barnsins getur birtzt í slíku gervi sem þessu? Þú ert staddur í hópi góðkunn- ingja. Það er rabbað um daginn og veginn, skipzt á léttu glensi og gamanyrðum. Allt í einu ligg- ur snöggi bletturinn í lífi kunn- ingja þins berskjalda fyrir fynd- inni tungu — og þú lætur flakka. Þú veizt, að stungan gengur á hol og veldur eitruð- um sviða. Af hverju gerirðu þetta? Skilurðu það? Önnur mynd: Stofa, karl og kona. Kvöl og beizkja, auðmýk- hans og hennar hefur flækt í þetta vandræði. Hann veit, hvað hann er að gera, veit, að konan, sem horfir á hann, er alls góðs makleg af hans hálfu, veit, að hún mun aldrei bíða þess bætur, ef hann fer sinu fram, veit, að hann er að fremja glæp á sínum eigin afkvæmum með því að þegja á þessari stundu og horfa með þessum svip, þessum myrku, luktu augum á konuna, sem hann hefur einu sinni svar- ið að bregðast aldrei. En hann þegir samt, fer sinu fram, steypir ógæfunni yfir sig og heimili sitt. Hvers vegna? Get- urðu skýrt það? Geturðu skilið það? Lánveitandi látins fjölskyldu- föður horfir yfir borðið á ekkj- una, sem getur ekki staðið i skil- um með afborganir af eigninni, sem þeim hafði tekizt að festa sér með elju, atorku og sjálfsaf- neitun. Hann veit, að það kostar hann ekki neitt að sýna dálitla tilhliðrunarsemi í bili, en það kostar ekkjuna allt, ef hann ger- ir það ekki. Og hann horfir yfir borðið augum, sem sjá ekki neitt annað en stóra, feita veiði i klækjaneti. Hann dregur netið að sér. Hvers vegna? Getui’ðu skilið það? Þessar sögur gætu allar verið öðruvísi. Þær eru dæmi, myndir úr mannlifinu. Það væri hægt að benda á önnur dæmi gagn- stæð, aðrar myndir, sem sýna mannlífið frá hinni hliðinni. Til- veran er tvíþætt, lífið hefur tvær hliðar, vér menn berum eðlin tvenn. Öll erum við tvær persón- ur, góð og vond,“ segir Hannes Jónsson í „Við, sem byggðum þessa borg“ eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson. „Það hefur alltaf verið togazt á um mig. Gerðu þetta, segir hin. Og alltaf, þegar ég hef gert eitthvað rangt, þá finnst mér að ég hafi álpast út í það á einhvern óskiljanlegan hátt.“ Biblían er undarleg bók. Ann- ars væri hún ekki sú bók, sem hún er, ekki eins djúpsæ í túlk- un sinni á veruleikanum, ekki eins sönn í boðskap sinum um lifið, alvöru þess, tign þess, köll- un og möguleika, ekki eins trú og hún er þeim alvísa Guði, sem hún vitnar um, né þeim skamm- sýna manni, 'sem hún talar við. Freistað af djöflinum. Ljót orð, segir þú. Nei, þau fletta ofan af staðreynd, sem þú vilt e. t. v. neita, en getur ekki neitað, ef þú hefur opin augu. Tvíeðli til- verunnar er staðreynd. Freist- ingai’saga Jesú afhjúpar átök ljóss og myrkurs. Hún skýrir ekki'þau átök, skýrir ekki hvers vegna tilverunni er svona hátt- að og vegna hvers sjálfur Jesús þurfti að takast á við vald freistninnar og myrkursins. En hún boðar sigur hans, sigur Ijóssins yfir myrkrinu. Og hún kallar þig og hverja mannssál til hlutdeildar i þeim sigri, inn í áhrifasvæði ljóssins. Tamas Frh. af 8. síðu: hann forstjóri bókmenntadeild-* ar útgáfufyrirtækis kommún* ista (Szikra), og 1950—1952 að* alritstjóri bókmenntatímarits flokksins (Csillag), en 1952—• 1954 starfaði hann sjálfstætt. 1954—55 var hann fram* kvæmdastjóri ungverska rithöf* undafélagsins, en vikið frá 1955 fyrir að hallast að hægri stefnu. Þegar hann var ungur maður, ' hlaut hann Stalinverðlaunin 'rússnesku fyrir skáldsögu, seni , á ensku nefndist In the Shadow ' of Freedom, og var hún birt í Sovétríkjunum. Fyrir ljóða* safn hlaut hann Kossuth verð* launin, sem eru talin mesti bók* ^menntalegur heiður, sem ung* verskur rithöfundur getur hlot* | ið í heimalandi sínu. Síðan hef* ' ur hann skrifað þrjár skáldsög* j ur aðrar./ f í nýrri bók hans og ToboL* 1 Herays, The Revolt of the Mind,' 'er gerð grein fyrir viðhorfi og j baráttu ungverskra mennta* [manna, gerð grein fyrir hvað það var, sem þeir urðu að horf* ast í augu við, hvað þeir afrek* uðu, — hver urðu örlög þeirra. Og það er inn á þetta a. m., sem Tamas Aczel kemur í er* indi sínu, sem án efa verðuti hið athygliverðasta. Senda Japanir Kórverja heim? Stjórn S.-Kóreu hefur tvíveg* is mótmælt fyrirætlunum Jap* ana uin að senda fjölda Kórea til N.-Kóreu. Hefur Japansstjórn tilkynnt, að hún muni senda 100,000 Kór*. eumenn, sem eru þar í landi, til N.-Kóreu. Óttast S.-Kóreu-* stjórn, að þeir verði þegar tekn- ir í herinn norðan landamær-* anna. Frægur pianóleikari í bænum. Sinfóníuhljómsveitin a þriðjudag með einum glæsilegasta píanóleikara Vesturheims. ing, bæn i augum hennar. Freð- in storka í svip hans. Hún er að bíða eftir einu orði af vörum hans. Það kostar hann ekki annað en ofurlítinn sjálfsagðan manndóm, litinn snefil af á- byrgðarvitund gagnvart konu sinni og börnum að segja þetta orð — og dálítið uppgjör við aðra manneskju, sem gáleysi var til bæjar- og sveitar- stjórnarkosninga. Þær sýndu það, sem marga grun- aði: Þjóðin hafði fengið nóg af vinstri „úrræðum“ og „stjórn". Hún mun nú ítreka fyrri dóm sinn yfir vinstri stjórninni, þegar hún gengur að kjörborðinu í vor, og þá fær væntanlega hver sitt, ef heilbrigð skynsemi fær að ráða. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur liljómleika á þriöjudags- kvöld undir stjórn Róberts A. Ottóssonar. Einleikari með hljómsveitinni verður einn snjallasti píanóleikari vestur- lieims, Frank Glazer, sem kem- ur liingað á sjöttu tónleikaför sinni um Evrópu. Viðfangsefni hljómsveitar- innar verða „Skozka“ sinfónían eftir Mendelssohn (flutt í til- efni 150 ára tónskáldsins), pianókonsert nr. 2 í b-dúr eftir Brahms og að lokum Akadem- ískur hátíðaforleikur einnig eftir Brahms. Þetta eru fyrstu tónleikarnir, sem Róbert A. Ottósson stjórn- ar á þessu hljómleikaári Sin- fóníuhljómsveitarinnar. En það sem bæði hann og Jcn Þórar- insson sögðu í samtali við fréttamenn í gær, að mættu mest tíðindi teljast með þess- um tónleikum væri það, að þeim hefði tekist að fá hingað Frank Glazer, sem fengið hefði' bæði í heimalandinu og víða í Evrópu eitt hið mesta lof, sem hægt væri að hugsa sér, að píanóleikari hefði í veganesti. Þessarar tónleika verðm’ nán* ar getið í Vísi á mánudag. j

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.