Vísir - 30.04.1959, Blaðsíða 7

Vísir - 30.04.1959, Blaðsíða 7
‘Fimmtudaginn 30. apríi 1959 ■■ ■■ ■ ■ ■■" 7» CECIL ST. LAURENT: J CfliyAD ðll l/lSl ÐON JÚANS * 19 Juan dró andann djúpt og reis á fætur. Það var sem fætur hans væru úr blýi. Hann mælti við Teresu: — Af hverju sástu aumur á mér? Eg hélt, að þú hataðir mig? — Ussu, eg hefi gert þér greiða, það er allt og sumt, — eins og þegar maður gefur meidaum, þyrstum hesti að drekka. Maður spyr ekki sjálfan sig af hverju maður gerii’ það. Flýttu þér nú að söðla hest. Eg bið þig um aðeins eitt: Horfðu ekki á mig! Hann dró niður söðul, sem hékk á vegg, í söðulhylki fann hann pístólu og rýting, í hinni vatnspela. Þegar hann var búinn að söðla hestinn heyrði hann eins og hálfkæft hræðsluóp að baki sér. Hann senri sér við. Teresa stóð úti í horni sem mætti hún sig ekki hræra og hávaxinn maður kom haltrandi eftir hesthúsgólf- ínu. Það var Fregos. — Þið skuluð ekki vera neitt feimin við mig, sagði hann hæðnis- lega. Svo sneri hann sér að Teresu: — Eko, litla flagðið, tautaði hann, lostafullu tilliti. Þú ert fjári vel þroskuð eftir aldri, stelpuskratti. Og þér fór að þykja vænt um hann eftir að hann batt þig og reif áf þér fötin — og ert nú komin til að þakka honum fyrir síðast. Stúlkan titraði, en hún horfði einarðlega á hann. — Jæja, það verða tveir litlir njósnarar, sem fá að dingla í galganum, sagði hann glottandi: — Eg gæti sagt þér hvernig við fórum með krárþernu eina, telpa litla — hún var frönsk — þú gætir aldrei gert þér í hugar- Jund, en við tókum dálítið púður og kúlur — og svo hlóðum við byssurnar------Og nú sneri hann sér að Juan og stakk skamm- foyssu upp að nasaholum hans: — Á kné, nú hrópa eg á félagana, og svo skuluð þið bæði fá þá hegningu, sem þið hafið til unnið. Hvílík skemmtun það skaí verða! Juan þuklaði hægri hendi í söðulhylkið sem skammbyssan var í. Hesturinn var milli hans og Fregosar, nærri ær af hræðslu, frís- andi og sparkandi. Fregos færði sig allt í einu nær stúlkunni, greip í flettur hennar og skellti henni í gólfið. Svo sneri hann sér að Juan og glotti svo að sást á gulan tanngarðinn. Hann minnti á óargadýr í vígahug. Juan greip um hnífsskeftlð um leið og Fregos þreif luralegri hendi fyrir brjóst honum, en við það flettist skyrtan frá brjósti hans sjálfs. Juan starði andartak á nakinn barm hans og stakk évo rýtingnum á kaf í brjóst honum, en Fregos hneig niður og kom aðeins frá honum hryglukennd stuna. Lömuð horfðu þau á Fregos og svo fór stúlkan að þylja bæn, og þá færðist ró yfir Juan, svo að hann gat hugsað nokkurn veginn skýrt. Hann neri hendur sínar eins og hann væri að þvo sér, greip svo i taumana og leiddi út hestinn, en er hann hafði gert það kallaði hann á Teresu lágri röddu og brátt birtist hin hvítklædda mær i dyrunum. — Eg get ekki skilið þig eftir hérna, Teresa. Á morgun finna þeir líkið og gera sér grein fyrir, að eg hefi fengið hjálp. -Komdu með mér. Trúðu mér, er eg segi þér, að eg er af aðalsætt. Þú hefur aldrei viljað trúa mér. Móðir mín mun annast pig. Eg set þig á hnakkinn fyrir framan mig og gangi okkur vel verðum við komin heim ár;gis á morgun. Fyrst í stað ð Teresa agndofa af hræðslu, en svo kom hún þrammandi i 'na að hestinum, en er þau komu út á veginn steig hann r Er hann bjó;:t til að kippa henni svo fáklæddri sem hún ' r i pp hnakkínr- fyrir framan sig, fann hversu blóðið streymdi æðar:'ar, og hann varð eldrauður í framan; og til þess að i:=_- = •/ 'rs:i Si-mava var innanbrjósts, sagði hann: — Heldv.rðu, a3 þér verði ekki kalt? Það liggur fjárhirðiskápa t hesthúsinu, A eg að fa.ra eftir henni fyrir þig? — Eg skal sækja hana sjálf, sagði hún. Þegar V . r farin. dré Juan.andann djúpt. Veður var dá- samlegt : : . aðsins dálitilí svali, og stjörnubjartur himinn. Honum fannst ha:un og náttúran eitt og viðbjóðurinn á öllu, sem gerst hafoi, gleymdist homim, og óttinn. Og nú var honum efst í hug, aö hann hafði gengið íram í einvígi gegn sterkum manni og sigrao hann. VÍSIB Nú sá hann Teresu bregðá fyrir við hesthúsiö og brátt var hún komin til lians. Hann beygði sig niður, rólegri en áður, og kippti henni upp á hnakkkúluna, hallaði henni svo að sér, og bað lrana að láta höfuðið hvíla við barm sinn. Og svo reið hann af stað frá bóndabýlinu, flýði þaðan öðru sinni. Frá því er það gerðist hafði hann gabbað franskan hershöfðingja, næstum orðið þátt- takandi í orrustu, og hann hafði banað fjandmanni. Og við ba'rm hans hvíldi dálitill fangi, sem átti nú allt sitt undir honum kornið. En litli fanginn var ekki nærri eins óttasleginn og hann hafði ætlað. Stúlkan var vön að sitja á hestbaki og hún var þaul- kunnug á þessum slóðum. Juan hafði hugsað gott til þess, að láta dálítið mannalega og njóta aödáunar hennar og varð nú næstum fyrir vonbrigðum yfir ró hennar. Þau gátu haldið áfram ferð sinni viðstöðulaust og án þess að verða fyrir nokkru, er raskaði ró þeirra, þar til klukkan 4 um morguninn, en þá varð Juan að játa, að hann væri svo lúinn orðinn, að hann yrði að hvílast um stund. — Þá skulum við fara þennan götutroðning, sem er þarna fram undan, sagði stúlkan, það er kofi þar, sem enginn býr í. Þau námu brátt staðar við húsdyr kofa nokkurs með torfþaki, en allt í kring voru keprusviðir háir. Veggir voru hlaðnir úr rauðleitum tígulsteini, en yfir dyrum var litil madonnumynd. Á gólfi var gamall hálmur og daunillur. Og nú bjuggu þau um sig í einu horninu og hrjúfruðu sig hvort upp að öðru. Þótt Juan væri þreyttur var vakin sterk þrá hans til stúlkunnar. Þau liöfðu breitt hirðiskápuna yfir sig. Höfuð mærinnar hvíldi á upp- Stjórn Æskylýðssam- r bands fslands. Hið nýstofnaða Æskulýðssam band íslands, sem hefur innan sinna vébanda nær öll æsku- Iýðsfélög landsins hefur fengið stjórn. Fulltrúaráð .. Æskulýðssam- bandsins kaus eftirtalda menn í stjórnina: Axel Jónsson frá í. S. í. formann, Bjarna Beinteins- son frá stúdentaráði, ritara; Björgvin Guðmundsson frá S. U.J., gjaldkera; Hörð Gunnars- son frá Bindindisfélagi í skól- um; Skúla Nordahl frá U.M.F. I- — Varastjórn skipa: Árelíus Níelsson frá Fél. ísl. ungtempl- ara, Arnór Valgeirsson frá S.U.j F. og Eystein Þorvaldsson frá Æskulýðsfylkingunni. Jámsmiðir mótmæla. 28. apríl, fóru fram umræður í Félagi járniðnaðarmanna um kaup- og kjarasamninga félags- ins við vinnuveitendur. Að þeim umræðum Ioknmn voru eftirfar andi ályktanir samþykktar 1. Fundur í Félagi járniðnað- armanna, haldinn þriðjudaginn 28. apríl 1959, samþykkir að segja ekki upp kjarasamning- um félagsins við vinnuveitend- ur að þessu sinni. En um Ieið vill fundurinn minna á fyrri mótmæli Félags járniðnaðar- manna gegn því að löggjafar- valdið sé notað til að ógilda kjaraákvæði í samningum, sem verkalýðssamtökin hafa gert við vinnuveitendur samkvæmt lög- helguðum rétti. 2. Fundur í Félagi járniðnað- armanna, haldinn þriðjudaginn 28. apríl 1959, mótmælir harð- lega framkvæmd stjórnarvald- anna á lögum um niðurfærslu verðlags- og launa, og sérstak- lega því, að ýmsar lífsnauðsynj- ar skuli vera látnar hækka í verði á sama tíma og kaup laun- þega hefur verið rýrt. Fréttatilkynning frá Fél. járniðnaðarmanna. Byggingarbjónustuna séttu á 4. þús. manns í s.1. viku. Byggingaþjónusía Arkitekta- félags íslands, sem opnuð var fyrra laugardag, hefur verið mjög mikið sótt og mælzt vel fyrir. í vikunni sem leið, komu liátt á 4. þúsund gesta. Eins og áður er getið, eru þarna veittar ókeypis upplýs- ingar um flest er lýtur að bygg- ingurn húsa, og má búast við geysilegri aðsókn nú þegar vor- ið er komið og hundruð manna fara að snúa sér að því að byggja yfir sig og sína. Byggingarþjónustan er opin alla virka daga kl. 13—18, nema laugardaga kl. 10—12. Auk þes er opið eitt kvöld í viku, mið- vikudagskvöld, til kl. 20, og ætlunin er áður en Iangt um líður að hafa opið fleiri kvöld. Þjónustan er til húsa að Lauga- vegi 18, efri hæð.# henni yrðu sem hægust lreima-. tökin. Núverandi stjórn er skip* uð Borgfirðingum og verðun mótið því að þessu sinni haldið í Borgarnesi og hefst kl. 15 á laugardag 9. maí. Mótið verður. haldið í hinum vistlegu húsa- kynnum Hótel Borgarnes og: verður þátttakendum séð þar; fyrir gistingu. Gestir félagsins verða acS þessu sinni dr. Jóhannes Nordal hagfræðingur og frú hans. Verð- ur dr. Jóhannes frummælandi á umræðufundi mótsins. Á laug- ardagskvöldið verður skemmt- un, sem hefst með borðhaldi. Þar verða ýmis skemmtiatriði. Ragnar Jóhannesson cand. mag., fyrsti formaður félagsins, flyt- ur ræðu, Alfreð Einarsson og Þorvaldur Þorvaldsson syngja glunta og Karl Guðmundsson. leikari skemmtir. Síðan verðui’ dansað. Á sunnudag verður fundar- störfum framhaldið. Þá fara fram aðaifundarstörf og síðan lýkur mótinu með guðsþjónustu í hinni nývígðu kirkju Borgar- ness. Núverandi stjórn Stúdentafé- lag's Miðvesturlands, sem séð hefur um undirbúning þessa móts, skipa sr. Leó Júlíusson, Borg, formaður, Þórður Odds- son héraðslæknir, Kleppjárns- reykjum, gjaldkeri, Snorri Þor- steinsson kennari, Bifröst, rit- ari, sr. Guðmundur Sveinsson skólastjóri, Bifröst og frú Anna Bjárnadóttir, Reykholti, með- stjórnendur. Væntir stjórnin þess, að stúdentar af félagssvæð inu fjölmenni og heitir sérstak- lega á yngri stúdenta að slást í hópinn. KVÖLBVÖKUNNI - .... 2 .! Stúdentamót í Borgarnesi. Þar hittast stódentar á MiÓ-vesturíandi. Fyrir sex árurn komu stúd- entar á Miðvesturlandi, þ. e. a. úr Borgarfjarðar-, Mýra-, Snæ- fellsness- og Balasýslum sam- an til fundar í Borgarnesi og stofnuðu Stúdentafélag Mið- vcsturlands. Síðán hefur þetta félag hald- ið reglulega stúdentamót ár hvert. Þessi mót hafa þjónað( tvíþættum tilgangi. Annars veg ar verið vettvangur umræðna um þau mál, sem efst hafa verið á baugi með þjóðinni hverju sinni eða snerta sérstaklega starf einstakra stétta innan fé- lagsins. Hefur félagið oft feng- ið kunna fraeðimenn til þéss að reifa málin. Meðal mála, sem rædd hafa verið, má nefna: kirkjumál, skólamál, sjúkrahús- mál, handritamálið, menningar- mál dreifbýlisins o. fl. Hinn megintilgangur þessara móta hefur verið sá að skapa kynningu meðal félagsmanna og veita þeim tækifæri til að rifja upp í hópi félaga minning- arnar um „stúdentsárin æsku- glöð“. Venjan hefur verið sú, að mótin hafa verið haldin til skipt is í hinum ýmsu hlutum félags- svæðisins, og hefur stjórn fé- lagsins flutzt til í saihræmi við það með það fyrir augum, að — Finnst þér hann ekki við- kunnanlegur, mamma? •— Osei-sei-nei. Hann minnir mig á hann pabba þinn í gamla daga. ★ — Eg elska þig, hvíslaði hann í 19. sinn. — Talaðu! Svaraðu mér? — Eg. — Ó, Tom. Þetta er svo óvænt, svaraði hún og roðnaði. — Ó, elskan mín góða, viltu verða konan mín? Á eg kann- ske að spyrja hana móður þína fyrst? — Nei, nei, stundi hún. — Mamma er ung ekkja. Eg vil sjálf eiga þig. 'k Hann: — Hvers vegna þykir konum vænna um fegurð sína en gáfur? Hún: — Af því að maðurinn er sjaldnast blindur þótt hann sé nautheimskur. Hún er að skrifa syni þeirra, sem er nýtrúlofaður. — Elsku drengurinn minn! Hvílík gleði- fregn! Við faðir þinn erum í sjöunda himni! Það hefir lengi verið heitasta ósk okkar að þú eignaðist góða konu. Góð kona er bezta eign hvers manns. Hún eykur það góða, sem með hon- um býr og upprætir það vonda. ------Bréfinu lauk með eftir- skrift með annarri hendi: — Mamma þín skrapp eftir frí- merkl Forðastu kvenfólkið,. fíflið þitt!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.