Vísir - 26.06.1959, Blaðsíða 7
Föstudaginn 26. júni 1959
VlSIE
1
Aldrei aftur vinstri stjórn.
Moskvukommúnistar hafa tögl og
hagldir í Alhýðubandalaginu.
Foringjarnir eru logandi hrædd-
ir við kosningarnar.
Kosningabarátta kommúnista sýnir það ljóslega, að þeir eru
liræddir við þessar kosningar. Neyðaróp forustumanna þeirra
til fyrrverandi kjósenda flokksins hafa aldrei verið átakan-
legri en nú.
Þessi ótti er heldur ekki á-
stæðulaus, þegar þess er gætt,
að á fundi í Sósíalistafélagi
Reykjavíkur var framboðslista
flokksins hafnað með 69 atkv.
gegn örfáum. Mun það vera
einsdæmi hér í Reykjavík, að
flokksfélag felli sinn eigin lista
rétt áður en framboðsfrestur-
inn er runninn út.
Því næst var rifist ofboðslega
um listann í miðstjórninni, en
þó fór svo að lokum, að hann
var samþykktur þar. Má því
segja, að ill hafi hin fyrsta
ganga verið og líklegt að á-
framhaldið verði í samræmi við
það.
Sá dómur sem kveðinn var
upp yfir verkum vinstri
stjórninnar í bæja- og sveita-
stjórnarkosningunum 1958,
kommúnistum vafalaust
minnisstæðar, og þeir vita að
þjóðin hefur ekk.i gleymt
verkum hennar enn.
Vitað er að Moskvu-komm-
únistarnir hafa nú aftur töglin
og haldirnar í flokknum og
geta hvenær sem er varpað
hinum út í ystu myrkur. Þetta
var það sem flokksfundurinn,
sem felldi fram framboðslist-
ann vildi gera, en miðstjórnin
komst að þeirri niðurstöðu, að
ekki væri „praktiskt“ að láta
til skara skríða fyrir kosning-
arnar, en nægur tími til að
jafna sakirnar síðar.
í samræmi við þetta þykir
kommúnistum nú heppilegt
að láta líta svo út, að þeir
séu „hátt skrifaðir“ í flokkn-
um, sem raunverulega eru
„afskrifaðir“, eins og Einar
Olgeirsson, Finnbogi Rútur
og Alfreð Gíslason.
Og síðast en ekki sízt var það
lífsnauðsyn, að halda liðinu
saman fram yfir kosningar, ef
ske kynni að hægt yrði að ná
samningum við Framsókn og
komast þannig aftur í ríkis-
stjórn. Sú hugmynd er áreið-
anlega ofarlega á baugi í
kommúnistaflokknum, enda
bað Finnbogi Rútur menn að
„taka eftir því“, í útvarpsum-
ræðunum á þriðjudaginn, að
boðið mundi verða í Alþýðu-
bandalagið eftir kosningarnar
og nefndi Framsókn þar' fyrst
til, enda var það samstarfið,
sem hugur hans snerist um.
Hótanir Framsóknar um að
stöðva kjördæmamálið geta
ekki verið byggðar á öðru en
von um að fá k.ommúnista í
lið með sér. Að öðrum kosti
gæti Framsókn ekkert bol-
magn haft til þess að stöðva
það réttlætismál.
Þetta er hin mikla hætta,
sem þeir kjósendur stofna til,
er setja krossinn við lista
kommúnista. Þetta skyldu
reykvískir kjósendur íhuga vel
áður en þeir ganga að kjörborð-
inu. Stjórn Framsóknar og
kommúnista myndi ekki hvað
sízt velgja þeim undir ugga.
Hin ábyrgðarlausa afstaða
kommúnista í landhelgismálinu
ætti ein út af fyrir sig að verða
þeim að falli.
Það má vera, að meiri hluti
þeirra manna, sem stjórna
kommúnistaflokknum hafi
viljað 12 mílna landhelgi, en
þeir vildu fyrst og fremst
ófrið við nágrannaþjóðir
okkar út af landhelgismál-
inu. Þeir vonuðu að sá ófrið-
ur myndi geta flæmt okkur
úr varnarsamtökum vest-
rænna þjóða, eyðilagt mark-
aði okkar á Vesturlöndum og
neytt okkur þannig inn í
blokk hinna austrænu kúg-
unar.
Þetta er sannleikurinn um
afstöðu kommúnista í land-
helgismálinu, sem hverjum
kjósanda er skylt að gera sér
grein fyrir. Það er ákaflega
þægilegt fyrir kommúnista að
blekkja fjöldann með því að
þeir séu aðeins að berjast fyrir
hagsmunum þjóðarinnar, því
að öll þjóðin vill auðvitað sem
stærsta landhelgi. En hver mað
ur, sem geíur sér tíma til að
kynna sér sögu kommúnista í
landhelgismálinu, hlýtur að
komast að þeirri niðurstöðu, að
öll þeirra orð og athafnir hafa
fyrst og fremst miðast við það,
að koma íslandi úr Atlantshafs
bandalaginu.
Um baráttu kommúnista
fyrir bættum kjörum almenn
ings ætti ekki að þurfa að
eyða mörgum orðum, eftir
skemmdarstarf þeirra með
verkföllunum miklu og á-
framhaldandi iðju þeirra í
vinstri stjórninni.
Fyrir tilverknað þeirra versn-
uðu kjör almennings á valda-
tíma vinstri stjórnarinnar
meira en dæmi eru til áður á
svo stuttum tíma. Þeir skelltu
yfir þjóðina nýrri verðbólgu-
öldu, sem hefði riðið efnahags-
kerfinu að fullu, ef ekki hefði
verið spyrnt við fótum. Og hver
sem feirgi þeim enn aðstöðu til
áhrifa í stjórp landsins, mundi
léiða yfir þjóðina meiri ógæfu
en hægt er að sjá fyrir nú.
Með því að fella niður þrjú
orð úr klausu sem Þjóðviljinn
hefur eftir Einari Olgeirssyni í
fyrradag er komin hárrétt lýs-
ing á því sem þjóðarinnar bíð-
ur, ef kommúnistar komast í
ríkisstiórn:
Hver sá launþegi, sem kýs
Alþýðubandalagið, kallar yfir
sig og fjölskyldu sína versta
bölið: atvinnuleysið með öllu
scm af því hlýzt: tekjutjóni
og fátækt, máski missi íbúða
og annarra eigna.
Þetta er sú mynd, sem alls
staðar blasir við þar sem komm
únistar ná völdum. Á eftir kem
ur svo missir alla þeirra mann-
réttinda, sem eru hornsteinar
mannsæmandi lífs í lýðræð-
frjálsum löndum.
Reykvíkingar. minnist
þess við kjörborðið á sunnu-
daginn kemur, að hver sem
kýs kommúnista, er að greiða
atkvæði með nýrri vinstri,
stjórn. Munið kjörorðið:
AlcSrei aftur vinstri stjérn!
Sala listaverka upp í
erfðaskatt vekur gremju.
Tveir erfðagripir seldir á uppboði
fyrir 385 þúsund stpd.
Brezk blöð láta í Ijós óá- j ekki þurfi nema nóga dollara
nægju yfir því, að merk lista- j til þess að eignast slika gripi.
verk og skartgripir glatist þjóð Hvert ættarsetrið af öðru hafi
inni, og kenna um óvægilegum verið selt af sömu sþkum.
ákvæðum erfðaskattslaga.
Tilefnið er, að undangengna
daga hafa verið á uppboði mun-
ir úr dánarbúi hertogans af
Westminster listaverk og skart-
gripir, til lúkningar greiðslum
á erfðaskatti. Málverk eftir
Rubens var selt á 275.000 stpd.
og er það metsala fyrir málverk
á uppboði í London ,og höfuð-
djásn (tiara), sem skartgripa-
salinn Harry Winston í New
York keypti fyrir 110.000 stpd.
Daily Mail segir, að það sé
óhæfa að krækja í peninga í
ríkiss£Óð eins og gert sé með
erfðafjárskattslögunum. Þjóð-
inni glatist t. d. listaverk, sem
menn hafi varið fé sinu til
kaupa á, og varðveitt vel, ef til
vill mann fram af manni, en
þjóðinni sé það fengur og á-
nægja, að slík listaverk séu til
í landinu. Nú sé svo komið, að
Lætur blaðið og fleiri blöð 1
ljós gremju yfir missi lista-
verkanna og telja þörf endur-
skoðunar á lögunum.
Veöriö.
Gerið skil í happdrætti velt-
unnar. Aðeins dregið úr seldum
námerum.
Opið frá kl. 10 til 10.
Ungverjalamfi meinað, að hafa
fuEitrúa á fimtfi ILO.
EBöfAii |iar licldeii* ckki
fiillín'ia í i’vrra
Fjáröflunarnefnd
Sjálfstæðisflokksins,
Morgunblaðshúsinu,
Ingimar og Floyd
keppa í dag.
Fcikna úrkoma var í New
^ York í gær og tafði og torveld-
Fregnir frá Genf herma, að á móti en 38 sátu hjá Ung. aði allan undirbúnmg að
á ráðstefnu Alþjóða verkalýðs- vershum fulltrúum var einnie keppninni um heimsmeistara-
málastofnunarinnar (ILO) hafi ^^stefntma s£, ti«Unn í hnefaleik mílli Ingi-
það ekki nað tilskildum meiri- ár Áður hafði verig felld brezk mars Jóhannssonar og Floyds
hluta (%), að taka gild umboð tillaga með 182 atkvæðum gegn Pettersons.
Hægviðri er um land allt.
Þokuslæðingur á ströndum,
en bjart í innsveitum. Mest-
ur hiti í gær á Þingvöllum,
Síðumúla í Borgarfirði, 21
stig, en í Reykjavík var
mestur liiti 14 stig (17 í
fvrradag).
Horfur við Faxaflóa: Hæg
breytileg átt og léttskýjað
síðdegis. Þokuslæðingur
nótf.
í morgun kl. 9 var logn
Rvík og 10 st hiti og þoku-
móða.
Víðáttumikil lægð er suð-
ur af íslandi, en hæð fyrir
norðan.
fulltrúa Ungverjalands til að
sitja ráðstefnuna.
2. hæð. -
og 10179.
38 (og 35 fjarverandi), að
fresta umræðum um ungverska
Lá fyrir um þetta tillaga' fulltrúa þar til allsherjarþing
Símar 24059 nefndar, sem hafði umboð full- f Sameinuðu þjóðanna hefði
trúa til athugunar og greiddu tekið ákvörðun í Ungverja-
145 tillögunni atkvæði, 70 voru landsmálinu.
Keppnin fer fram í dag. —
Menn eru yfirleitt trúaðir á, að
Floyd Patterson gangi með sig-
ur af hólmi og haldi titlinum.
í fyrradag voru veðmálahlut-
föll 7:2 honum í vil.
Það er aðeins ein skýr-
ing lil á því, að Framsókn-
arflokkunnn skuh yfirleitt
eiga nokkurt fylgi í Reykja-
vík. Sú skýring er hin gíf-
urlega bithnga- og fjár-
málaaðstaða, sem flokkur-
inn hefur skapað sér og
sínum mönnum með ílla
fengnum völdum. Það er
lífsspursmál fynr þessa
menn að kjósa Framsókn-
arflokldnn. Á því byggist
fylgi hans, og velmegun
þeirra.
Víða um Reykjavík
liggja gróðanet þessara
manna og birtast í ólík-
ustu hlutum svo sem olíu
og rjómaís. — Forystu-
menn Framsóknarflokksins
ganga fyrstir og lengst í
þessu efni, og skýrum við
hér á eftir frá einu nýjasta
afreki þeirra.
Vestur í bæ, nánar tiltekið
að Dunhaga 18—22, er
risið upp nýtt verzlunar-
og íbúðarstórhýsi. Við
framkvæmdir þessar hefur
mest borið á tveim Fram-
sóknarmönnum, þeim Þóri
Baldvinssyni, (hann er á
móti kjördæmabreyting-
unni) og Hjálmtý í Nonna.
Eftir að fyrirtækið tók til
starfa, hefur hinsvegar
komið í ljós, að það er Jón
ívarsscn, forstjón í Inn-
flutningsskriístofunm, sem
tekur við húsaleigunni og
að allir lögfræðilegir þræðir
liggja í gegnum hendurnar
á Hermanm Jónassyni, for-
manni Framsóknarflokks-
ins.
Herútboö á Ceylon
vepa verkfalla.
Stjórnin á Ceylon heíur kvatt
allmarga menn til að gegna her
skyldu, til þess að annast sam-
göngur, flutninga á nauðsynj-
um og til öryggis innanlands-
friðiniun.
Þetta er gert vegna verkfalla
og afleiðinga þeirra. í Colombo
hafði stöðugt fjölgað skipum,
sem afgreiðslu biðu, og horfði
til stórvandræða. Eru hafnar-
verkamenn í verkfalli þarna.
Hermenn annast þar nú af-
greiðslu skipa.