Vísir - 03.10.1959, Page 7

Vísir - 03.10.1959, Page 7
Laúgardaginn 3. október 1959 TlSIB TT ""»7 faéttir Hermina Biack: ★ GÆFliAR 8 vanur, og þegar hann hafði lokið stofugariginum fór hann inn til yfirhjúkrunarkonunnar til að fá sér tebolla. Þó að hún væri ein afkastamesta manneskjan sem hann hafði nokkurntíma kynnst, hvíldist Ross aldrei eins vel og þegar hann sat í stofu Mary Summars. Hún hafði viðfeldið andlit, þó að ekki væri þar annað fallegt að sjá en gráu augun. Hún brosti er hún ré'tti Ross bollann.. — Vel á minnst, sagði hún. — Eg heyri að þú hafir skammað Cariu. — Nú, hefur hún sagt þér frá því? Þú hefðir ekki átt að senda hana til mín, Mary. Það er ekki í minni grein, eins og þú veist, og auk þess kom hún tuttugu mínútum of seint. — En ef Roger Barrington væri ekki til að dreifa mundum við ekki eiga nærri eins góða æfi hérna núna, góðurinn minn, sagði hún. — Gleymdu ekki öllum nýju stórhýsunum, sem við fáum bráðum inni í London. — Jú, rétt er það. En eftir því sem eg hef frétt af Barrington mundi hann verða manna síðastur til að afsaka óstundvísi. Eða mundi hann halda því fram að eg ætti að gera dóttur hans hærra undir höfði en öðru fólki. Hún andvarpaði. — En eg sendi hana til þín vegna þess að eg hélt að eitthvað alvarlegt gengi að henni, og svo skoðaðir þú hana ekki, hvað þá meira. — Hún ætlaði að koma aftur seinna.... Hann yppti öxlum. — Eg er önnum kafinn, og þú veist að eg geri lúxussjúklingum ekki hátt undir höfði.... Mary horfði hugsandi á hann. — Eg held að þú hafir ekki rétt álit á Cariu. Vissir þú að hún ætlaði að gerast hjúkrunarkona og vann í St. Martinssjúkra- húsinu. — Eg hef ekkert álit á þessum ungu stúlkum, sem halda að hjúkrunarstarfið sé svo yndislegt, og finnst einkennisbúningur- inn fara sér svo vel, sagði hann gramur. — Því var alls ekki svo háttað að því er Cariu snerti, en það er líklega þýðingarlaust að segja þér söguna, þegar þú ert í svona skapi..,. Mary talaði lágt. Stundum var það eins og að tala við stein að tala við hann. En, bætti hún við fastmælt — hvort þú vilt trúa því eða ekki þá var hún óvenjulega dugleg, og hún er miklu göfugri mannsekja en þú hefur gert þér hugmynd um, án þess að kynna þér málið. Hann horfði á hana og hnyklaði brúnirnar en svo færðist fallega brosið um ahdlitið á honum. — Þú ert vinur vina þinna, Mary! Ef þessi unga stúlka kemur aftur, skal eg reyna að vera kurteis við hana. Á eftir borðaði hann miodegisverð með einum lækninum, og það var orðið talsvert áliðið þegar hann kom lieim. Þegar hann ók fram mjóa bugðótta vegina í Buckinghamshire tók hann eítir að hann var allt í einu farinn að hugsa um Cariu Barrington og það sem hann heíði heyrt um hana í dag. Honum hafði dottið i hug er hún var stödd inni hjá honum, að hún ætti að vera eitt- hvað annað og meira en venjulegt samkvæmisfiðrildi. Það var úþað, sem honum hafði gramist — ekki svo að skilja að honum kæmi það nokkuð við, hugsaði hann með sér, eða honum væri ekki alyeg sama um hvað hún segði og gerði. Hann ók nokkuð hratt og allt í einu skaut einhverju upp í myrkrinu framundan honum. Honum tókst'að hæg.ja svo fljótt á sér að hann komst hjá árekstri á bíl, sem var hálfur úti í skurðinum. Hann vatt sér út úr bílnum í snatri, með sterkt vasaljós í hendinni. Framrúðan var eyðilögð, en sem betur fór hafði hún verið úr kornagleri. Brynjan var beygluð og bíllinn lá hálfvegis á hlið- inni og dyrnar sem sneru upp voru opnar. Maður lá nokkra metra frá bílnum. Ross fór að stumra yfir honum. Hann sá strax að vel hafði verið bundið um sár hans til bráðabirgða. Meðan læknirinn var að athuga meiðslin heyrði hann kvenrödd úr myrkrinu: — Guði sé lof! Eg fór að reyna að fá hjálp en fann engan, og var hrædd við að láta hann vera einan hérna. — Það er allt í lagi, sagði Ross stutt. — Eg er læknir. Haldið þér á vasaljósinu svo að eg sjái betur hvað að er. Hún lagðist á hnén við hliðina á honum og gerði eins og hann sagði henni, og þegar þau litu upp bæði sáu þau greinilega hvort framan í annað í skímunni frá vasaljósinu. — Ó! sagði hún ósjálfrátt. — Það eruð þá þér! Og nú .vissi hún að hún hafði þekkt röddina frá byrjun. — Já, ungfrú Barrington. Haldið þér ljósinu stöðugt, gerið ' þér svo vel. En hann var skjálfhentur. Hvernig stóð á því að hún var hérna, — á þessum tírna dags og undir þessum kringumstæðum? Og Caria, sem lá við að æðrast er hún horfði á fölt andlitiö á Basil Frayne, hugsaði með sér: — Hvers vegna þurfti einmitt Ross Carlton að koma — og undir þessum atvikum? Ross hélt áfram skoðuninni án þess að segja orð, og fann að hún hélt í ljósinu þarna við hliðina á honum og var skjálfhent. Og i fyrsta skipti á starfsæfi sinni tók hann eftir ýmsu, sem var óskylt því sem hann var að gera. Svo sagöi hann stutt: — Bíöið þér hérna, eg kem aftur eftir eina mínútu. Hann stóð upp. — Eg verð iíklega að fá vasaljósið hjá yður. Hún rétti honum það og hnipraði sig í myrkrinu. Hún reyndi að hlusta, til að heyra þegar hann kæmi aftur, en heyrði ekki annað en skrykkjóttan hjartsláttinn í sjálfri sér. Með einhverju móti varð hún að sleppa úr þessari óþægilegu klipu. Nú kom Ross aftur, fékk henni vasaljósið og spurði: — Þér hafið einhverja nasasjón af hjúkrun, er ekki svo? — Já, eg var að athuga hvað eg gæti gert meira, þegar þér komuð, en — mér fellust hendur í bili. Eg var að jafna mig aftur þegar.... Hann mundi hvað Mary hafði sagt honum og spurði hvasst: — Eruð þér særð? — Nei, en það var erfitt að ná honum út úr bílnum. — Það er ómögulegt að þér hafið getað náð honum út? sagði hann. Jú, eg komst út baka til — en það get eg sagt yður seinna. Hún gat ekki ennþá gert sér Ijóst hvernig hún hafði farið að þvi að tosa Basil út um beyglaðar dyrnar, en hún hafði verið í örvæntingu út af tilhugsuninni um að kviknað gæti í bílnum. Hann hélt áfram rannsókninni í næstu mínúturnar, og hún hjálpaði honum ósjálfrátt með því að gera það, sem hún vissi að hún átti að gera. Hún spurði aðeins einnar spurningar: — Haldið þér að hann — deyi? — Það held eg varla, svaraði hann stutt, og það var rétt svo E. R. Burroughs — TARZAIM 3102 A KVÖLDVÖKUNNI i * — Tannpína, ha? Eg mundi láta draga tönnina út, í þínum. sporum. — Það mundi eg líka, í þín- um sporum. ★ Skyldi það vera svo, að sum- ar konur noti andlitssmyrsl, svo að karlmenn geti ekki „lesið milli línanna“? * — Að hverju heldurðu að eg hafi komist? sagði frúin við mann sinn. — Vinnukonan, sem rauk úr vistinni, hefur stolið tveimur af nýju handklæðun- um okkar. — Sagði eg þér ekki, að það væri ekki hægt að treysta henni. Hvaða handklæði voru þetta? — Æ, þessi sem slæddust með, þú mannst, þegar við fór- um úr gistihúsinu í London. ¥ Horfi maður út um gluggann virðist slæmt veður alltaf verra en það í raun og veru er. Laugalandsskóli fullskipaður. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. Nýlega var húsmæðraskólinn að Laugalandi í Eyjafirði sett- ur. Áður var haldin guðsþjón- usta í skólanum sem sóknar- presturinn, síra Benjamín Kristjánsson flutti. Skólinn er fullskipaður í vet- ur með 40 nemum. Forstöðu- kona skólans er Lena Hall- grímsdóttir, en auk hennar starfa þar fjórar kennslukonur. Síra Benjamín Kristjánsson kennir bókfærslu. Ýmsar lagfæringar hafa ver- ið gerðar á skólahúsinu í sum- ar eða í sambandi við það. Með- al annars var vatnsveitukerfi breytt og olíukyndingu komið upp í þeim hlúta hússins sem hveraveitan fullnægði ekki, en það var að norðanverðu í hús- inu. Þessar framkvæmdir töfðu skólasetningu um viku. I&naiarmenn skoða sements verksml&ju. ealurt SymJicats Tarzan hafði skjót við- brögð, skar á bönd manns- ins, sem var illa farinn af barsmíðinni. Hann hreinsaði Þingfulltrúar á Iðnþingi lögðu í gær leið sína upp á Akranes í boði Sementsverk- smiðju ríkisins og skoðuðu verksmiðjuna. Hið 21. Iðnþing íslendinga var sett 1. þessa mánaðar. Mörg mál voru til umræðu, þ.á.m. Iðnlánasjóður, breytingar á lög- : urn Landssambandins ofl. Meisi arafélag húsgagnasmiða bau ð , þingfulltrúa til kaffidrykkju ? Breiðfirðingabúð, en þar vo-v áður til húsa vinnustofur Jór - heítins Halldórssonar, Gam'í Kompaníið. — Þinginu er ekld, lokið. HE CLEAMSEP THE HUNTEE'S WOUNPS ANP EF.VIVEP HIÍA ' WITH NOURISHING FEUITS. CLEAR- HEAPEP NOW, ALAN SAPLY EE- COUNTEP HIS APVENTUEES WITH THE V?0/AEN, "B'JT WWO COUL.P HAVE CAnF’TUREP THEV,?yME EXCLAW ep iVeg-ottofinpout!* sár veiðimannsins og hressti hann á nærandi ávöxtum. Alan var nú komin.- til-sjálfs sín og sagði ho.vun hryggnr í bragði frá ævintýraför sinni með konunum þremur. „En hver getur hafa numið þær- á brott?“ spurði hann undr- andi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.