Vísir - 01.04.1960, Blaðsíða 12
\ Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
leatrarefni beim — án fyrirhafnar af
yðar liálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Föstudaginn 1. apríl 1960
Heimaverkefni:
Þriéjl hekktir fari a
úfskipun i
Starf og nám í nánum tengsíum.
Vestmannaeyjum í gær.
Þegar tvö flutningaskip komu
hingað í gær var ekki nokkur
t til að ferma skipin. Allir voru
fastir við framleiðslustörfin og
• hvergi var hægt að gefa eftir
einn mann hvað þá fleiri til að
koraa vörunum um borð í skip-
Sn.
i Var því gripið til þess ráðs,
Bem lengst hefur dugað, að fá
skólanemendur til að skipa
vörunum út. Af þessari ástæðu
var gefið frí í þriðja bekk gagn
ifræðaskólans og nemendurnir
lokuðu bókum sínum og sneru
sér einhuga að hinu lífræna
stafi.
Þetta er í fyrsta skipti í vet-
Ur að orðið hefur að fá skóla-
nemendur til að vinna fram-
leiðslustörf, en á undanförnum
iárum hafa nemendur, meðan
á skólatíma stóð, hlaupið í
iskarðið, þegar brýn nauðsyn
hefur kallað að.
Það hefur eigi sézt á eink-
unnunum eða öðrum mæli-
kvarða, sem stuðzt er við til að
mæla námsárangur að hin
stuttu vinnuorlof, sem Vest-
manneyjaunglingar hafa feng-
ið til að sinna aðkallandi fram-
leiðslustörfum, haíi að nokkru
leyti dregið úr námsárangri eða
Inámsvilja nema síður sé. Hér
er sá háttur hafður á, að verk-
námsdeildir gagnfræðastigs eru
útskrifaðar um það bil þremur
rhánuðum fyrr, en annars stað-
ar i þeim tilgangi að nemend-
urnir hafi tækifæri til að vinna
við vertíðarstörf. Prófverkefn-
in eru þau sömu fyrir þessa
unglinga og annars staðar, þótt
námstíminn sá styttri, en þeim
mun meira kapp er lagt á nám-
ið meðan skólinn stendur
Frakkar sprengja nr. 2—
rétt fyrir brottför Krúsévs
frá Frakklandi.
Frakkar sprengdu kjarnorku-
Bprengju eldsnemma í morgun
•í Saharauðninni. Hafði verið
búist við því frá því í fyrradag,
að tilraunin yrði gerð þá og
þegar.
Hin opinbera tilkynning var
íáorð, sagt, að tilraunin hefði
gengið í alla staði að óskum, og
nauðsynlegar ráðstafanir hefðu
.verið gerðar, til þess að haga
tilrauninni þannig, að menn
þyrftu ekki að óttast geislaryks-
hættu. Lofað var nánari til-
kynningu síðar.
Fréttamenn segja, að einkum
tvennt veki athygli í sambandi
Við þessa tilraun:
, 1, De Gaulle og stjórn
hans hafi ekki látið neinn
bilbug á sér finna og haldið
til streitu áforminu, þrátt
fyrir það að mótmæli hafi
komið gegn henni frá fjölda
mörgum löndum heims og
almenningsálitið sé eindreg-
ið gegn henni.
2. Að það sé ekki tilvilj-
un — að tilraunin var gerð
meðan Nikita Krúsév for-
sætisráðherra Sovétríkjanna
er í Frakklandsheimsókn
sinni, — það virðist svo,
sem jafnvel hafi verið lögð
á það talsverð áherzla, að
tilraunin yrði gerð áður en
liann færi. Nú standa ein-
mitt yfir lokaviðræður Krú-
sévs og De GauIIe.
— — Um það bil og fyrri
sprengjan var sprengd í febrúar
var sagt, að Frakkar kynnu að
eiga nærri fullgerðar eina eða
tvær sprengjur, og tilraun
mundi verða gerð með sprengju
til viðbótar þeirri, sem þá var
gerð. — Ekki hefur enn verið
vikið neitt að því nú, að Frakk-
ar kunni að eiga þriðju sprengj-
una í smíðum.
Þýzkur þjóðdans. —
Ljósm. Þorvaldur Ólafsson.
Það fer ekki á milli mála, að þessi bifreið hefur orðið fyrir ein-
liverju hnjaski. Það var nefnilega hún, sem varð um daginn
fyrir bárðinu á barnfóstrunni, sem langaði allt í.einu í ökuferð,
þegar hún þreyttist á barngæzlimni. (Ljósm. P. Ó. Þ.)
Eltingakánr við bvíta-
bjfirn á Mývatni.
Múgur manns reynir að fanga hann í het.
Akurcyri í morgun.
Múgur og margmenni hefur í
allan morguh verið að eltast við
hvítabjörn á Mývatni og reynir
að fanga hann í net, en það hafði
ekki tekizt, þegar síðast til
fréttist.
Er talið, að. dýrið hafi stigið
á land hjá Skálum á Langanesi,
en ekki urðu menn þess varir
fyrr en í dögun í morgun, að
fólk á næstu bæjum við Mývatn
sá skepnu úti á ísi lögðu vatn-
inu. Fyrst (hélt fólk, , að þar
væri hestur, en er iiær var
komið, sá það,. hvers konar
gestur var kominn í sveitina.
Þá sat björn að krásum. Hafði
hann stungið sér eftir silungi og
fiskað betur en bændur hafa
gert að undanförnu. En þegar
bændur óg búalið var komið á
vettvang, var bangsa ekki til
setu boðið lengur, og upphófst
þá hinn mikli eitingarleikur,
sem áður greinri, og stóð sem
hæst, er síðast fréttist.
Aprílgabb.
Það er ekki um að sakast,
þótt menn gabbi náungann
græskulausf f'yrsta apríl en
skörin fer að færast upp í
bekkinn, þegar menn gera
sér leik að því að gabba
slökkviliðið. Þetta kom fyrir
í morgun. Þá var liðið kallað
að bfunaboða á hómi Njafð-
árgötu og Laufásvegar.
Hafði hann verið brotinn, en
þegar slökkvíliðið kom á
vettvang, mátti lesa á miða,
sem festur var við bruna-
boðann: „Aprílgabb.“ Únd-
irskrift var hinsvegar eng-
in.
Askriftarverð
éhreytt.
Að undanförnu hafa orðið
gífurlegar hækkanir á öllu, sem
til blaða þarf, svo að ekki verð-
ur komizt hjá að hækka verð á
þjónustu þeirra til að mæta
auknum útgjöldum.
Pappír hækkar um 70%, en
annar útlendurkostnaður um
50%, svo og ýmis innlendur
kostnaður, svo sem burðar-
gjald, símakostnaður o. fl.
Sakir þessa hækkar verð
Vísis í lausasölu í kr. 3,00, en
dálkasentimetri í auglýsingum
kostar framvegis kr. 24,00.
Verð smáauglýsinga breytist
aðeins að því leyti, að grunn-
gjald (fyrstu 10 irðin) verður
25 kr., en hvert orð umfram
tíu kostar 2 kr. eins og áður.
Áskriftarverðið verður ó-
breytt fyrst um sinn.
Dr. Cassens
fimmtugur.
Dr. Hans Cassens verzlunar-
fulltrúi við sendiráð Vestur-
Þýzkalands í Reykjavík er 50
ára í dag.
Hann hefur dvalið hér á landi
um nokkurra ára skeið, ferðast
mikið um landið og á hér margt
vina.
Krúsév skoðar
Versali.
Krúsév er koininn aftur til
Parísar.
Hann dvelst í bústað forseta
utan Parísar þar til hann fer á
sunnudag og mun mestur tím-
inn fara í viðræður. Þó fer
hann til Versala, en annars
staðar kemur hann ekki opin-
berlega frám.
Tillögur... i
Átök í Framsókn um
verkfallsmál
Sumir vifija aigera saansftöðu
með kommúnisftum.
Frh. af 1. síðu.
sér nokkra grein fyrir horfum
við atkvæðagreiðslur í nefnd-
Þær kunna að hefjast eftir mið-
bik næstu viku.
Af hálfu Noregs var lýst yf-
ir, að kanadiska tillagan væri
í samræmi við hagsmuni Nor-
egs — og taldi formaður henn-
ar, að 12 mílna landhelgi skap-
aði jafnvægi um allan heim,
hún væri einföld og sanngjörn,
en bandaríska tillagan ófram-
kvæmanleg, að því er varðaði
aflatakmörkun. Að þvíí er virð-
ist hefur ágreiningur sá, sem
var í norsku nefndinni verið
jafnaður.
Formaður dönsku sendinefnd-
arinnar, Max Sörensen prófess-
or, mun ekki taka til máls, þar
sem hann er settur formaður
aðalnefndarinnar.
Formaður finnsku sendinefnd
arinnar og fleiri taka til máls
1 dag.
Þar sem verkfallabarátta j
kommúnista er 'um það bil að
hefjast eru uppi deilur í Fram-
sóknarflokkimm hvort stutt
skuli við bak komma eða
skemmdai'starfsemi þeirra lát-.
in afskiptalaus
Er sagt að Eysteinn og flokks-
foringjarnir séu þess fýsandi
að gera ríkisstjórninni allt það
til miska sem þeir mega og
vilja ólmir vinna með komm-
únistum En framámenn þeirra
út á landsbyggðiimi eru sagðh’
þessu andvígir og telja það
landráðum næst að eiga hlut
að starfsemi kommúnista.
Ekki er séð fyrir endann á
þessum átökum, en ekki er ó-
líklegt að Eysteinn hafi sitt
fram, enda miðstjórnarvald
Framsóknar ótrúlega mikið.
Átökin í Framsóknarflokkn-
um eru kannske, þótt undar-
legt megi virðast, ákvarðandi
um frambúðina í efnhagsmál-
um.
Einangraðir við skemmdar-
starfsemi sina, fyrirlitin af al-
þjóð, kunna kommúnistar að
verða að hætta henni. En með
stuðningi Framsóknar geta þeir
gengið eins langt og þeim sýn-
ist.