Vísir - 02.04.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 02.04.1960, Blaðsíða 1
10. árg. Laugardaginn 2. apríl 1960 78. tbl. Þýzk kaf- bátasmíöi. í júlímánuði næstkomandi munu verða hafnar kafbáta- smíðar í Þýzklandi eftir 15 ára hlé. Það er vestur-þýzki flotinn, sem hefur tilkynnt,.að þá muni veVða hafizt handa um smíði 12 kafbáta handa honum. Gerðist þe'tta þegar 2850 lesta tundur- spillinum Hamburg var hleypt af stokkunum í byrjun vikunn- ar. Kafbátarnir verða ekki ætl- aðir til langferða, heldur til tundurduflalagna og þjálfunar. Hinn fyrsti á að verða full- gerður til reynslu i marzmán- úði á næsta ári. IMatofiimtur í vikunni. Fundur landvarnarráðhej-ra Norður-Atlantshafsbandalagsins kom saman í París í fyrradag. Þar verður mikilvægasta mál á „dagskrá,birgðastöðvar Vest- ur-Þýzkalands í öðrum löndum. Vestur-Þýzkaland á í samning- um við einstök ríki um slíkar stöðvar, en eingöngu innan vé- banda Nato, að því er sagt er, en hitt er og kunnugt, að V.-Þ. þreifaði fyrir sér í þessum efn- um á Spáni og vakti það ugg eigi lítinn. Enn er mikil ólga í S- Afríku, og ógerningur að segja fyrir um á þessu stigi málsins, hvort ákvörðun ríkisstjórnar Verwoerds um að setja á neiðarástand verður til þess að koma á reglu í Iandinu eða Ieiðir einungis til enn skarpari á- taka. Erlendir blaðamenn, sem líta á málið nokkurn veginn hlutlausum augum — ef það er hægt — eru ekki í neinum vafa um, að ekki þarf nema lítinn neista til viðbótar til þess að allt fari í bál. — Myndin, sem hér fylgir er tekin rétt fyr- ir utan Höfðaborg á rnið- vikudag, þegar 30,000 blökkumenn fóru fylktu liði til borgarinnar til að mót- mæla ofbeldi ríkisstjómar- innar. Stapafell meil 821 lest. Vafalaust einn hæsti bátur á landinu nú. í lok síðasta mánaðar var afli Ólafsvíkurbáta orðinn 6976 lestir í 772 róðrum. Aflahæsta skipið er Stapafell sem er búið að fá 821 lest og er aflahæsti báturinn það sem af er vertíð, sennilega á öllu landinu. Róðrar Kg. Bárður Snæfellsás 51 395,370 Bjarni Ólafsson . . 51 650,540 Fróði 62 375,570 Glaður 57 580,170 Hrönn 67 612,780 Húni 10 169,750 Jón Jónsson .... 73 755,670 Jökull 68 565,230 Stapafell 72 821,870 Sæfell 55 502,295 Týr 48 354,700 Valfell 15 171,730 Víkingur 65 511,050 Þórður Ólafsson .. 59 489,860 Afii 9 hæstu Sandgerðisbáta frá áramótum er sem hér segir: Viðir II. 704,8. — Helga 613. — Mummi 589,7. — Guðbjörg 575,7. — Smári 570,1. — Pétur Jónssori 566. — Hamar 557. — Jón Gunnlaugsson 538,9. — Munin 538,3. Aðrir bátar hafa minna en 500 lestir. Gæftir hafa verið með fá- dæmum góðar og í síðari hluta marzmánaðar fóru tveir bát- ar, Víðir II og Pétur Jónsson 16 róðra. Jón Gunnlaugsson rær eingöngu með línu og hefur aflað vel. Heildarafli Sandgerðisbáta síðan vertíð hófst var nú um mánaðamótin 7418 lestir í 905 róðrum. í fyrra var aflinn í marzlok orðinn 6534 lestir. — Róðrar voru þá færri en afla- magnið á bát í róðri er mjög svipað og í fyrra, en gæftir í vetur gera 1000 lesta mun á þriggja mánaða úthaldi. Landhelgistillaga Rússa kemur fyrst til atkvæða. Þar næst tillaga IMexikó, þá Kanada og loks Bandaríkjanna Ýmsir ræðumenn viku að sögulegum réttindum í gær. Frá fréttaritara Vísis. Genf í gær. Nokkrar líkur eru nú fyrir, að atkvæðagreiðslur • aðal- nefndinni á Genfarráðstefnmuii um landhelgismál og fiskveiði- lögsögu hef jist snemma i næstu viku. Greidd vei'ða atkvæði um framkomnar tillögur í þessari röð: Sovétrikjanna, Mexíkó, Kanada og Bandaríkjanna. Fulltrúar Jordaníu og Ung- verjalands lýstu í dag yfir fylgi við 12 mílna landhelgi. Full- trúi Pakistans lýsti sig fylgj- andi 12 mílna landhelgi, en ræddi einnig þann möguleika að sögulegur réttur væri í heiðri hafður um 5—10 ára bil, en að fresti liðnum félli niður réttur til veiða á fiskveiðilög- svæði strandríkis. Fulltrúar Svisslands og Finnlands kváð- ust vona, að sögulegur réttur yrði varðveittur að minnsta kosti einhvern tíma. A hinu bóginn væri eng- inn vafi, að um væri að ræða undantekningar, þar sem væru lönd sem byggðu efna- hagsafkomu sína eingöngu eða nær eingöngu á sjávar- útvegi. í slíkum tilfellum væri ekki nema sanngjarnt að taka tillit til þessara sér- stöku aðstæðna. Baig, fulltrúi Pakistans, sagði að áður en núverandi rétt- indi væru felld úr gildi með lagasetningu, hvernig sem hún yrði, bæri að gera ráð fyrir svipuðum fresti og venjulegt væri í þágu þess aðila, sem nið- urfelling réttinda bitnaði á, til nauðsynlegra ráðstafana vegna breyttra skilyi'ða. Minntist hann á þann möguleika að samræma til- lögur Kanada og Bandaríkj- anna, ef sögulegur réttur væri takmarkaður við 5-10 ár. Slíka tilhögun kvaðst hann álíta sanngjarna. Foi-maður sendiinefndar S.-Afríku frestaði ræðu sinni, en liann var á mælendaskrá í dag. Talið er, að hann hafi frestað ræðunni af ótta við, að Afríkúfulltrúar myndu ganga út. — Á morgun tala formenn sendinefnda Liberíu, Uruguay, Argentínu, Indónesíu og Ghana. Hveitibrauð á sætrjám. Elisabet Bretadrottning hefir boðið Margréti systur sinni snekkjuna Britannia til að eyða hveitibrauðsdögunum á. Margrét hefir að sjálfsögðu þekkzt þetta góða boð, en ekk- ert hefir verið látið uppi um, hvaðan hún og maður hennar muni hefja brúðkaupsförina, né hvert eða hversu lengi siglingin muni standa. Hjónavígslan fer fram 6. maí. Norðmenn reisa fisk- iðjuver á Grænlandi. 400 manna vinnuflokkur á för- um vestur. Frá fréttaritara Vísis. — Oslo í fyrradag. Um páskana leggja 400 Norð- menn og Færeyingar af stað á fimm skipurn til Grænlands. Er hér um að ræða vinnuflokka sem eiga að reisa fiskiðjuver fyrir Norðmenn á vesturströnd Grænlands. Efnið í byggingarnar verður flutt frá Álasundi og kemur vestur um svipað leyti og vinnuflokkarnir. Vélarnar í verksmiðjunni koma hinsvegar frá Bergen. Er hér um að ræða miklar framkvæmdir og Norðmennirn- ir ætla að láta hendur standa fram úr ermum við að reisa iðjuverin sem er fiskmjölsverk- smiðja og frystihús sem á að geta fyrst 1000 lestir af fiski yfir sumarið. Fiskiðjuverið á að geta tekið til starfa um það leyti sem vertíðin hefst þar vestra í vor.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.