Vísir - 14.05.1960, Blaðsíða 8
T---------------------------
lEkkert blaö er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
OHmoS /gpaqaaB qMft
Munið, að beir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Laugardaginn 14. maí 1960
Firmskeppni Fáks á ntorgun.
Gtœsilcfj licstastjninff á skciöv.
Í Hestmannafélagið Fákur efn-
ir til firmakeppni um beztu
.gæðingana á morgun, sunnudag
kl. 4 stundvíslega á Skeiðvell-
íélagsins við Elliðaár.
• í keppninni tak^ þátt á ann-
að hundrað firmu og hefur
hverju þe.irra verður dreginn 1
gæðingur. Knapar verða á öll-
um aldri, frá átta ára að átt-
ræðu. Farnir verða tveir hring-
ir á vellinum, en dómnefndin:
^ogi Eggertsson, Gunnar
IBjarnason og Birgir Kristjáns-
áón dæma til viðurkenningar
fimm hesta og knapa þeirra fyr-
ir gæði hestsins og ásetu knap-
ans.
Fjáröflunarnefnd kvenna í
Fáki stendur fyrir keppninni
Austfirðingur
seldur.
Togarinn Austfirðingur var
fjoðinn upp við Grandagarð í
SÓlskininu og hitanum í gær.
Fulltrúar frá Síldar- og fiski-
Ihjölverksmiðjunni Kletti, Út-
gerðarfélagi Akureyringa, Lýsi
Og Mjöl h.f. og ríkissjóði buðu
í skipið sitt á hvað. En svo
fóru leikar að fulltrúar Kletts
lirðu hlutskarpastir og buðu
háest 10.2 milljónir. Kröfur
'Vöru ekki allar komnar fram.
en konurnar eru duglegar að
afla fjár til margháttaðra fram-
kvæmda sem félagið hefur á
prjónunum.
Aðgangseyrir að vellinum er
enginn, en seldir verða happ-
drættismiðar, og eru vinning-
að auðvitað fyrsta flokks gæð-
ingar, sem heppinn kaupandi
getur eignast fyrir aðeins tíu
krónur. Fáks-konur munu selja
veitingar fyrir áhorfendur á
Skeiðvellinum.
Stjórn ' Fáks skipa þessir
menn: Þorlákur Ottesen for-
maður Haraldur Sveinsson,
varaformaður, Björn Halldórs-
son ritari, Jón Brynjólfsson
gjaldkeri og Ingólfur Guð-
mundsson. Formaður fjáröflun-
arnefndar kvenna í Fáki er
Málmfríður Magnúsdóttir.
Fimm deyja í járnbrautar-
siysi í Póllandi.
Járnbrautarslys varð í út-
hverfi Varsjár í fyrradag og
biðu fimm menn bana.
Farþegalest rakst á eimreið,
sem stóð kyrr á teinunum, og
biðu bana farþegaletsarstjórinn
og fjórir farþegar. í sjúkrahús
voru fluttir 25 slasaðir farþeg-
ar, fleistir beinbrotnir, og tíu
hættuelga meiddir.
Norðmenn mótmæla við
Flugvélar í Sovétflugi mega ekki
nota norska flugvelli.
Halvard Lange skýrði frá
Jiví á fundi Stórbingsins í gær,
að norska stjórnin hefði form-
,lega btrrið fram mótmæli gegn
því, að flugvellir í Noregi væru
nótaðir fyrir bandarískar flug-
vélar, sem færu í flugferðir
irtn yfir Sovétríkin.
í mótmælacrðsendingunni, er
var afhent ambassador Banda-
ríkjanna í Noregi, var þess
kxafist, að komið yrði í veg
fyrir, að slíkar flugferðir væru
skiþulagðar þannig, að flugvél-
ar lentu í Noregi, en það hefði
komið fram, að flugvélin U2,
sem Rússar skutu niður, hefði
átt að lenda við Bodö í Norður-
Noregi.
Þá sagði Lange, að Norðmenn
skildu vel beiskju Sovétríkj-
anna vegna þessa atbui’ðar, en
þeir yrðu að mótmæla hótun-
um þeim, s'em íram hefðu kom-
ið í garð Noregs.
T>ingheimur hlýddi þögull á
yfirlýsingu Halvards Lange og
voru engar fyrirspurnir fram
bornar.
IMIMrI
Hjördís Sævar er ein hinna
fáu íslenzku Ioftskeytakvenna
og sú eina, sem hefur verið
lengi til sjós á togurum, eða alls
yfir sex ár. En það hefur lengi
verið sagt, að sjcmennska á
togara væri ekkert „grín“, og
þegar Hjördís ætlaði að fá sér
stöðu á kaupskipi, var það ekki
hægt. Nú er hún nýfarin til
Noregs þar sem hún verður að
líkindum loftskeytamaður á
farþegaskipi.
Aly Khan fórst
í bílslysi.
Aly Khan beið bana af völd-
um bifreiðarslvss í gær nálægt
París, en frönsk vinkona lians,
er með honum var, hlaut lítil
meiðsl.
Aly Kahn var eldri sonur
Aga Kahns, andlegs leiðtoga
milljóna Múhameðstrúarmanna,
en varð ekki eftirmaður hans,
heldur sonur hans af fyrra
hjónabandi. önnur kona Aly
Khans var leikkonan Rita
Hayworth, en þau skildu. Þau
eiga eina dóttur barna. — Aly
Kahn var mikill ævintýramað-
ur og hestavinur og átti fjlöda
veðreiðahesta.
Hér kemur enn eitt aflaskipið — Helga frá Húsavík, sem varð
hæsti bátur í Sandgerði, jafnvel hærri en Víðir II.
Maóurínn minn er ekki
njósnari", segir Barbara.
n
Frú Powers er flutt heim til
móðir sinnar.
Barbara Powers, kona Fran-
cis Powers, flugmannsins í U2,
sem Rússar skutu niður, er nú
komin heim til móður sinnar í
Milledgeville í Georgia, Banda-
ríkjunum.
„Maðurinn minn er ekki
njósnari," sagði hún við frétta-
menn, „eg er alveg sannfærð
um það.“
Hún sat á stól úti á flötinni
fyrir framan hús móður sinnar,
klædd svörtum kjól, annar fót-
ur hennar var í gibsumbúðum,
því að hún fótbrotnaði nokkru
áður en hún fór frá Tyrklandi,
og var hún á skíðum, er það
gerðist. Hún kvað þau hafa
verið saman 30. apríl (daginn
áður en hann var skotinn niður)
í aðalbækistöðinni, sem þau
voru í (í Tyrklandi).
„Hann var oft sendur í flug-
ferðir og var stundum að heim-
an hálfan mánuð, Þá hafði
hann oft ekkert samband við
mig. Nú get eg ekkert gert nema
beðið og vonað, að hann fái að
koma aftur til mín.“
Hún lét orð falla um, að hún
treysti á Krúsév í þessu efni,
vegna þess að hann hefði sýnt
ilðlegheit í seinni tíð, „að sam-
eina fjölskyldur“. (í Banda-
ríkjaferðinni lofaði K. að senda
hjónum í Bandaríkjunum, en
þau voru frá Litháen, tvö börn
þeirra, pilt og stúlku um tví-
tugt — og stóð við það. — En
skyldi K. mildast eins í skapi
nú?)
Barbara kvaðst ekki vita til
þess að maður hennar hefði haft
nein leyni- eða njósnastörf með
höndum. „Hann talar ekki rúss-
nesku eins og Krúsév sagði, —
aðeins dálítið frönsku". — Hún
kvað mann sinn jafnlyndan og
geðprúðan. Á frístundum fóru
i þau í heimsóknir og spiluðu
i bridge eða fóru í skíðaferðir
og svo framvegis.
18,000 svart-
ir teknir.
Síðan ókyrrðin hófst í Suð-
ur-Afríku fyrir fáeinum vik-
um, hafa stjórnarvöld lands-
ins látið handasama blökku-
menn — og raunar hvíta
menn líka hundruðum sam-
an. Langflestir eru þó svart-
ir, og hefir Erasmus, dóms-
málaráðherra landsins, skýrt
svo frá, að alls hafi 18.000
svertingjar verið teknir fast-
ir. Þriðjungur þeirra var tek-
inn fyrir að koma í heimild-
arleysi til borga landsins.
Beint frá rakaranum — eða hárgreiðslukonunni. Sérstök hátt-
vísi gagnvart Ijósmyndara og lesendiun.
BÆJARSTJÓRINN Á SKAECI - VEIDDI EíNA YSU.
Og barnakennarinn var fiskleitarstjóri.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
Flcabáturinn Drangur lagði
héðan úr höfn í fyrrakvöld með
ýmsa heldri menn innanborðs.
Þeir voru að fara á skak.
Fararstjóri var póstfulltrú-
inn hér, Jóhann Guðmundsson,
en Örn Snorrason, kennari,
var fiskleitarstjóri. Haldið var
út eftir öllum Eyjafirði og rennt
á allmörgum stöðum, en ekki
fara miklar sögur af aflasæld
skipshafnarinnar. Bæjarstjórinn
varð fyrstur var, og veiddi
hann hvorki meira né minna
en eina ýsu.
í ráði er að fá Drang, milli
áætlunarferða í sumar, til að
farið burt úr.eynni, og hefur
á því að gera sér dagamun.
með því að renna handfæri
hér úti á firðinum og allt út
undir Grímsey. Þegar hefur
vaknað talsverður áhugi hjá
mörgum fyrir þessu, og má bú-
ast við, að Drangur fari þó
nokkrar slíkar ferðir í sumar.