Vísir - 27.06.1960, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann faera yður fréttir og annað
leatrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WlSXR.
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 27. júní 1960
SigEufjörður eíns
og hann á að veri
Frá fréttaritara Vísis.
Siglufirði í morgun.
Síldarverksmiðjur ríkisins á
Siglufirði hafa nú tekið á móti
119 þúsund málurn og Rauðka
15 þúsund málum.
Söltun er ekki hafinn enn, en
á laugardag var saltað í nokkr-
ar tunnur á plani Daníels Þór-
liallSsonar .og plani Kaupfélags-
ins. Síldin er orðin allt að 20%
feit, en fitan þykir of laus og
söltun hefur ekki verið leyfð
ennþá.
' Aðkomufólk er fátt ennþá og
•er varla búizt við því fyrr en
söltun hefst af fullum krafti.
Milli tuttugu og þrjátíu skip
eru væntanleg til Siglufjarðar
á dag með síld frá Kolbeinseyj-
arsvæðinu. Veðrið er dágam-
legt og Siglufjörður eins og
Siglfirðingar muna hann fég-
urstan, hvítalogn á firðinum,
sólskin, hiti og verksmiðjureyk-
háfarnir spúandi reykjar og
gufumekki síldar- og bræðslu-
lykt um allt og alls staðar jafn-
vel langt út á fjörð á móti síld-
arbátunum.
Rússar splundra Cenfar-
fundi um afvopnun.
Segjast nú leggja þau mál
fyrir Sam. þjóDiraar.
Fulltrúar kommúnistaríkj-
anna á 10-þjóða afvopnunar-
ráðstefnunni í Genf gengu af
fundi £ morgun, eftir nð Zorin
og 'þar næst hinir kommúnista-
fulltrúarnir höfðu lýst því yf-
ir, að þeir teldu tilgangslaust
að halda henni áfram.
Zorin sagði, að Sovétríkin
vildu ekki lengur taka þátt í 1
ráðstefnu, þar sem tillögum
þeirra um afvopnun væri tekið
með ómerkri gagnrýni, og
myndu leggja tillögur sinar
fram á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
Hinir fuiltrúar kommúnista-
ríkjanna töluðu í sama dúr. j
Þetta kom vestrænum full- 1
trúum Vesturveldanna alger-1
lega á óvænt. Ormsbye Gore,:
fulltrúi Breta, og Frederick
Óítitn og Rán ffuttu norskan
sjúkfing frá Kofkelnsey.
Rán tók við hojiuai I Crimsey.
Aðfaranótt þess 22. þ. m.
veiktist skipverji á norsku veiði
skipi mjög alvarl.nga. Skipið,
sem heitir ,.Lafjord“, var statt
12 mílur norður af Kolbeinsey.
Norska sendiráðið sneri sér
VaEur sigraði
Akureynnp.
9. leikur mótsins fór fram á
Akureyri í gær og sigruðu Vals
jnenn heimamenn eftir spenn-
andi leik og harða baráttu með
eins rnarks mun. Áhorfendur
voru margir,- Dómari Baldur
iÞófðarson, Reykjavik.
til Slysavarnarfélagsins og bað
um aðstoð. Var fyrst leitað til
varnarliðsins, um þyrilvængju,
en það treysti sér ekki til að
senda hana út á opið haf, né
heldur að lenda þar flugvél, en
bauðst til að senda flugvél til
Grímseyjar. Varðskipið Óðinn
var fengið til að fara til móts
við norska skipið og taka mann-
inn og flytja hann til Grímseyj-
ar, en þar tók gæsluflugvélin
Rán hann og fór með hann til
Akureyrar. Þar var hann lagð-
ur inn á sjúkrahús.
í tílefni af þessu hefur Slysá-
varnafélaginu borist þakkarbréf
frá.norska séndiráðinu í Reykja
vík.
Eaton, fulltrúi Bandaríkjanna,
voru nýkomnir til Genfar eftir
að hafa rætt við ríkisstjórnir
sínar. Kunnugt var, að Eaton
ætlaði að leggja fram endur-
skoðaðar tillögur síðar í þess-
ari viku.
Tveír biðu baiia af
vöidum efdinga.
Þrumuveður gekk yfir Eng-
land í gær og olli miklu tjóni.
Eldingar urðu tveimur að
bana, ungum hermanni á göngu
og konu á reiðhjóli. Eld.ingu
laust niður í skóla með 100 börn
um. Hlutust af skemmdir og
hrundi úr veggjum og lofti.
Börnin urðu mjög óttaslegin og
voru þau flutt burt á öruggari
stað.
Þessa dagana eru á ferðalagi um Evrópu, £ einum hóp, 165 bandarískir ferðamenn, sem ferð-
ast í 80 bílum. í sérhverjum b£l er eldhús með lieitu vatni kæluskápur og sjónvarp ásamt WC.
Wagner borgarstjóri • New
York hefur lýst yfir stuðn-
ingi við John F. Kennedy
sem forsetaefni. Talsvert
hefur verið rætt um Wagner
sem varaforsetaefni, en nú
mun hann ekki 5refa kost á
sér, þar sem hann er rómv.
kaþólskur eins og Kennedy.
Síld við Hraunhafnar-
tanga og Langanes.
Sölíun hefst á Raufarhöfn í dag.
Frá frétaritara Vísis. starfsfólks söltunarstöðvanna
Raufarhcfn í morgun. streyma nú til Raufarhafnar,
Síldveiðin var fremur treg í með bílum og flugvélum. Verk-
nótt. Skipin voru • yfirleitt í smiðjan hefir tekið á móti 10
tveimur hópum, við Kolbeins- þúsund málum og hefst bræðsl-
ey og 40 mílur norður af Hraun an í dag. Stillt veður er fyrir
hafnartanga. í gærmorgun norðan, þoka við> landið, en
voru flest skipin norður við þjart til hafsins.
Kolbeinsey og fengu þar nokk- Siglufjarðarverksmiðjurnar
ur skip sæmileg köst. í gær hafa nú tekið á móti röskum
fann svo leitarflugvélin síld við 125 þúsund málum síldar til
Hraunhafnartanga og fóru mörg bræðslu í fyrstu viku veiði-
jskip þangað. ,tímabilsins. Alls munu vera um
200 bátar komnir til síldveiða.
Fanney var á vestursvæðinu Þeir síðbúnu sem líklega eru um
og varð aðeins vör við smáar 20 talsins eru í þann veginn að
lóðningar. — Þar voru fá leggja af stað.
skip. Kl. 9 í morgun kom skeyti I Eftirtalin skip fengu síld í
frá norska skipinu Johan Hjört, 'gærmorgun við Kolbeinsey og
sem var statt 50 mílur norð- fóru til Siglufjarðar: Heimir
austur af Langanesi. Þar voru SU 600, Ólafur Magnússon 600,
stórar torfur af vaðandi sild á Þorsteinn GK 400, Gunnhildur
víðáttumiklu svæði. Var fjöldi ís 350, Kristbjörg 500, Ingjald-
skipa lagður af stað þangað eft- ur 350, Ljósafell SU 500, Álfta-
ir að fi'éttin barzt. jnes 350, Mímir ÍS 500, Guð-
Skipin sem fengu síld út af björg ÍS 400, Fákur 850, Björg-
Hraunhafnartanga í nótt eru vin 1100, Eyjaberg 300.
væntanleg til Raufarhafnar í Þessi skip fengu síld út af
dag og var fyrsta skipið, Helgi Hraunhafnartanga og fóru til
Flóvents, komið á morgun. Síld- Raufarhafnar: Helgi Flóvents-
in er talin söltunarhæf og mun'son 800, Árni Geir 650, Askur
verða saltað á Raufarhöfn í dag 400, Björn Jónsson 100 og með
hjá Hafsilfri, sem er eina stöð-ú’ifna nót.Örn Arnarson 250 mál
in, sem er tilbúin að taka á móti og 300 tunnur, Freyja ÍS 300,
síld. Iiópar söltunarstúlkna og Sigurður AK 300.
Þær unnu
HúsmæÖur í Hveragerði fengu kröfum
sínum viÖ K.A. framgengt.
Það var skýrt frá því í Vísi' á að hægt væri að verzla annars
á laugardaginn, að húsmœður í staðar. Þær stóðu þarna allan
Hveragerði hefðu sett „verk- [ föstudaginn — skjálfandi af
bann“ á kaupfélagsútibúið þar,' kulda — og skiptust á, tvær og
vegna þess að nýmeti var þar tvær. Kaupfélagsstjórinn fór á
aldrei á boðstólum fyrr en kl.
hálf ellefu á morgnana.
Konurnar voru oftsinnis bún
ar að kvarta yfir þessu, bæði
munnlega og skriflega, en allt
kom fyrir ekki. Að lokum tóku
þær til sinna ráða og tóku sér
varðstöðu utandyra til að minna
Fjölskyldutekjur í USA í
stöðugri hækkun frá 1947.
Hækkiimin neniur alls 80"*
Meðaltekjur manna í Banda-
ríkjunum hækkuðu árið sem
leið, að því er hagstofa Banda-
rikjanna tilkynnir.
Meðaltekjur einstaklinga
voru 2.600 dollarar og nemur
hækkunin frá 1958 130 dollur-
um, en meðal fjölskyldutekjur
/°*
voru 5600 dollarar 330 dollur-
um hærri en 1958.
Er hér um 5 og 6% hækkun
að ræða. Hagstofan segir hér
raunverulega vera um mikla
hækkun að ræða, því að verð-
lag á nauðsynjum hækkaði ekki
nema um 1%.
fund til Selfoss, og þær vonuðu
hið bezta. Á laugardagsmorgun
héldu þær ótrauðar áfram varð
stöðu sinni, og þá fengu þær
loforð um það, að allte skyldi
komast í lag þegar á mánudags-
morgun.
Þær urðu að sjálfsögðu alls-
hugar fegnar, en svona til vonar
og vara ákváðu þær að mæta til-
búnar til áframhaldandi varð-
stöðu í morgun, því að það mun
hafa komið fyrir að slíku hafi
verið lofað, án þess að við það
væri staðið.
En viti menn! Snemma í morg
un, þegar verzlunin var opnuð,
stóð nýmetið tilbúið á borðinu,
og allt eins og þær höfðu ósk-
að sér.
Það er gott til þess að vita,
að óskum þeirra hafi verið sinnt
— eins og raimai' sjálfsagt er -—
og er vonandi að þannig megi
áfram vera.