Vísir - 19.08.1960, Blaðsíða 7
V -f
Föstudaginn 19. ágúst 1960
VISIR
7
Siguríkur Berndsen
segist stnrtapa.
Mí'ubi intt ttö Rergssttiðtt'
strœti 10Æ upplvjstur.
Menn hafa góða lyst
á Gullfossi.
í hverri sumarferð borða menn
12-1300 kg. af kjöti auk alls annars.
Hafa menn nokkurn tíma
velt því fyrir sér, hvað menn
borða mikið á skipum þeim, sem
halda uppi ferðum milli landa.
Það sjá allir í hendi sér, að
það er ekkert smáræði, sem
menn leggja sér til munns á
risaskipum eins og „drottning-
unum“ brezku, þar sem farþeg- 1
ar skipta þúsundum, en það vita
líka allir, að íslendingar fá
mikinn og góðan mat á íslenzku
farþegaskipunum.
Tíðindamanni Vísis kom
þess vegna til hugar að forvitn-
ast um mataræði á Gullfossi,
sem segja má, að sé hið eina
fljótandi hótel landsmanna,
enda ganga þær sögur af viður-
værinu þar, að það gerist ekki
betra á stærri skipum. |
Þær upplýsingar, sem tíð-
indamaðurinn fékk, voru á þá
leið, að það er enginn vafi á
því, að menn munu almennt
krefjast þess, að fundið sé ó-
brigðult ráð — og án tafar —
til þess að ráða niðurlögum hins
skæðasta kvilla allra tíma, sjó-
veikinnar. Ef ekkert verður að
gert, er hætt við því, að sjó-
veikir sælkerar leggist í rúmio
af einskærri örvíinan, er þeir
lesa mataræðislýsingu þá, sem
fer hér á eftir.
í einni Kaupmannahafnar-
ferð Gullfoss — fram og aftur
— sem farin var 24. júlí til 6.!
ágúst, neyttu 400 farþegar og
68 skipverjar alls 1239 kg. af
kjöti af öllum tegundum nema
fuglakjöti, en af því borðuðu'
menn 214 kg. og 502 kíló af
fiski. Með þessu borðuðu þeir
svo allar hugsanlegar tegundir
af grænmeti og ávöxtum, og
enn fremur ókjör af brauði og
áleggi. Til þess að skola öllul
þessu niður höfðu þeir svo all-l
ar tegundir af borðvínum á
verði, sem minnir mann helzt
á reikningsdæmin úr bók Elí-;
asar Bjarnasonar.
Hér fer á eftir matseðill eins
dags á fyrsta farrými:
Ardegisverður: Ananassafi—
grape ávöxtur, auk þess er soð- 1
ið egg eða bacon með eggi, corn'
flakes, hafragrautur, ostur,
kaffi, te eða mjólk og alls kon-
ar brauð.
Miðdegisverður: Kalt borð.
Saxaður kálfsbauti, Grenobloise
kaffi.
Kvöldverður: Uxahalasúpa. ■
Soðinn lax, agúrkusalat. Kjúkl- !
ingar, Cocotte Mascotte. —j
Praline-ís, — kaffi.
Þetta er sem sagt matseðill
eins dags, valinn af handahófi.
„Lillý verður léttari“
í Njarðvíkum í kvöld.
*_
I Revkjisvík usn midja næstu viku.
Sem kunnugt er, hafa marg-
ir af leikurum höfuðstaðarins
ferðast um lancLið í sumar og
skemmt fólki með leiklist sinni
við miklar vinsœldir.
Eru þeir flestir komnir aftur
úr þeim ferðum. Nú í vikunni
komu þau Bessi, Herdís, Bryn-
dís og Klemenz aftur til bæj-
arins eftir að hafa sýnt sjón-
leikinn „Lillý verður léttari"
38 sinnum á 36 dögum, fyrst í
Borgarnesi, síðan vestur, norð-
ur og austur um land og end-
uðu í Höfn í Hornafirði.
Nú hafa þau í hyggju að hafa
nokkrar sýningar á Suður-
landi. Sýna þau í Njarðvík í
kvöld, í Grindavík annað
kvöld og á Hellu á sunnudag.
En um^niðja næstu viku byrja
svo sýningar í Sjálfstæðishús-
inu í Reykjavík. Þessum sýn-
ingum lýkur svo fyrir mán-
aðamót, því að þá hefja þess-
ir leikarar starf við Þjóðleik-
húsið
Austurvöllur hefir verið
sérstaklega litskrúðugur og
fagur í sumar, eins og þeir
vita gerla, sem hafa átt þarj
leið urri. Þessi mynd var tek-
in fyrir fáeinum dögum og
gefur góða hugmynd um
blómaskrúðið, en trén eru í
rauninni ekki alveg eins og
á myridinni virðist.
iÞ€ÞU'€»rS —
Framh. af 1. síðu.
rætt var um byssu þá, sem
fannst í flugvélaflakinu en
hann kvaðst aldrei mundu ha^a
gripið til hennar, nema til veiða,
ef svo hefði borið undir, enda
hefði hún verið til þess ætluð —
og bætti við: Enginn veit það
nema eg, að eg gæti aldrei
banað manni. I
Líkur eru fyrir, að Powers
fái mildan dóm — vegna játn-
ingar sinnar og framkomu,!
enda litið svo á, að það séu
leiðtogar Bandaríkjanna sem'
séu raunverulega þeir ákærðu
— allt þetta hafi verið sett í
gang til þess að hnekkja áliti
þeirra.
Grinev, verjandi Powers
sagði í gær, að hann teldi að,
Powers fengi vægan dóm.
Rudenko, aðalsaksóknari í
málinu gegn Powers, flutti
lokaræðu sína í morgun. Hann
krafðist þess ekki, að hann
yrði látinn sæta lífslátshegn-
ingu, heldur að hann yrði
dæmdur til hámarks fangelsis-
vistar, sem er 15 ár.
Hann kvað sekt hans hafa
fyllilega sannast og svift hefði
verið grímunni af glæpsamleg- ^
um fyrirætlunum til árásar á j
Sovétríkin. Ennfremur hefði
i
Powers verið sendur í njósna- (
flugið samkvæmt beinni fyrir- ,
skipan Eisenhowers til þess að j
fá skálkaskjól til þess að koma
fundi æðstu manna fyrir katt-
arnef. Mikill hluti ræðunnar
var árás á Bandaríkjastjórn
fyrir utanríkisstefnu hennar.
Tveir ólánssamir piltar gáfu
sig fram við sakadómara í gær,
og kváðust vera þeir, sem lýst
var eftir í Vísi í sambandi við
brunann að Bergsstaðastræti
10 A.
Vísir skýrði frá því, að kona
á efstu hæð næsta húss, hefði
orðið vör mannaferða rétt fyrir
brunann, og gaf hún mjög ná-
kvæma og greinargóða lýsingu
á mönnum þessum. Þessi lýs-
ing hennar var birt í Vísi í gær
að ósk rannsóknarlögreglunnar,
og er ekki ólíklegt, að það hafi
stuðlað að því að mennirnir
gáfu sig fram.
Piltar þeir, sem um ræðir,
höfðu verið við skál um kvöld-
ið, og segja þeir tilefni þess m.
a. háfa verið það, að sá þeirra,
sem skartaði alskeggi, hafði á-
kveðið að raka sig. Þeir höfðu
ranglað að þessu húsi, séð þar
opnar dyr og brunabrak og rusl
fyrir innan. Svo stóð á að ann-
ar þeirra þurfti að væta jörðina,
og kaus hann þennan stað til
þeirra hluta. Að vei'ki þessu
loknu kveikti hann sér í sígar-
ettu, og kveðst hafa kastað eld-
spýtunni frá sér í óaðgætni í
ruslið, en síðan hafi þeir haldið
á brott.
Mikið var búið að leita að
mönnunum af hálfu lögreglunn-
ar, og talað við fjöldann allan
af fólki, bæði fólk í næstu hús-
um, svo og ýmsa, sem á ein-
hvern hátt þóttu líklegir til aff
vita um þetta, — en árangurs-
laust.
Piltarnir halda því fast fram,
að þetta hafi verið algjört óvilja
| verk, og gáfu sig fram á þeim
forsendum.
Sigurður Berndsen, eigandi
hússins sagði við blaðamann
Vísis í morgun, að þetta hafi
verið stórtap fyrir sig. Hann.
segist hafa haft 6700 krónur á
mánuði í leigu fyrir húsið,
„ .. . og safnast þegar saman
kemur.
Þú hlýtur að skilja það, góði,
, að þegar maður hefur 20—30
íbúðir, sem maður leigir út og
þarf að lifa af, þá munar strax
um þetta.“
— En fékkstu þá leiguna
greidda þarna?
„Greidda? Auðvitað. Ég leigi
aldrei öðruvísi en með árs-
greiðslu fyrirfram.“
— Það er þá auðveld inn-
heimtan hfá þér.
„Já, það þýðir ekki annað.
Hvernig heldurðu að það væri
ef ég gerði það ekki? Yrði að
hafa mann til innheimtu. Það
mundi nú kosta aldeilis skild-
ing. Minnst 6000 krónur á mán-
uði. 72000 á ári. Jaaá. Það er
fljótt að koma. Svona er það
að vera rikur og eiga stóreignir.
Aumur er öfundslaus maður.“
NB: í gær sagði S. B., að
hann fengi enga leigu aí háiinu.
Sambúð litdlands og Pak-
istans fer batnandi.
JVehru hefur heismsóku
þtsutjuö í hugts.
Sjö Frakkar drukkna.
Sjö Frakkar drukknuðu á
sunnudaginn í fljótinu Doubs í
Frakklandi.
Ferju með 48 manns innan-
borðs hvolfdi á fljótinu, og
tókst að bjarga öllum nema sjö,
sem strauumrinn hreif með sér.
Fregnir frá Nýju Dehli
herma; að horfur séu á batn-
andi sambúð Indlands og Pak-
istan. Segir í þeim, að í báð-
um löndunum fari fjölgandi á-
byrgum mönnum, sem óski
bættrar sambúðar, einkanlega
með tilliti til samstarfs á efna-
hagssviðinu — og til þess að
standa saman gegn kommún-
istahœttunni í norðri,
Deilur hafa verið milli Ind-
lands og Pakistan allt frá því,
er Indland fékk sjálfstæði fyr-
ir 13 árum og var skipt. Deilt
hefur verið um fjárhagsmál,
mál flóttamanna, áveitur og
framræslu, viðskipti, landa-
mæri o. s. frv.
En alvarlegasta deiluefnið
hefur verið sú um Jammu og
Kashmir eða ríki, sem er 84
þúsund fermílur að flatar-
máli. í næstum 12 ár hefur
verið ótryggt ástand vegna
þeirrar deilu, en beggja vegna
vopnahléslínunnar hafa deilu-
aðilar lið.
Ayub Khan vildi
bœtta sambúð.
Undir eins og Mohammed
Ayub Khan hafði tekið völdin
í Pakistan 1958 (í október) fór
hann að vinna að bættri sam-
búð við Indland. Þessu var
kuldalega tekið í Indlandi
framan af, en smám saman
hefur breyting á brðið.
Þóttu það ekki lítil tíðindi
þar eystra í fyrri viku, er
Nehru forsætisráðherra Ind-
lands lét þess getið á þingi, að
hann kynni að fara í heim-
sókn til Pakistan bráðlega.
Sagt er, að hann hafi um
nokkurt skeið haft hug á að
endurgjalda stutta heimsókn
Ayubs forseta frá í september
í fyrrahaust. Þeir hafa síðan
hitzt í London og fór vel á
með þeim.
Þegar heimsóknin á sér stað
mun verða undirrifaður sátt-
máli milli Indlands og Pakist-
an um Indusfljót, en það á
upptök sin í Kashmir og renn-
ur bæði um Indland og Pak-
istan.
Kashmirdeiluna verður erf-
iðast að leysa. Pakistan —
stutt af Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna, vill þjóðarat-
kvæði, en Nehru telur Það frá-
gangssök, þar sem 77 af hverj- ■
Frh. á 11. s. ..