Vísir - 20.08.1960, Page 4

Vísir - 20.08.1960, Page 4
8 V í S I R Laugardaginn 20. ágúst 1960 'wtBim D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. ▼ialr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíöur. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Sitatjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Aígreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Simi: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið 1 lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Misheppnaðar síidveiðar. Síldveiðitíminn er nú senn á enda, þótt mörg veiðiskip sé enn fyrir norðan og menn [ geri sér vonir um, að enn í verði hægt að fá einhvern j afla. Hinu er þó ekki að ! leyna, að vonirnar eru orðn- 1 ar litlar, eins og fram hefir ) komið í því, að fólk er farið ; að halda heim frá síldar- í stöðunum. Flestir eru með j létta pyngju, eins og oft áð- ur, því að þetta síldarsum- ar verður vafalaust eitt af hinum lélegustu, enda þótt einhver hrota kunni að koma ( rétt í lokin. En hún bætir J vitanlega aldrei það tap, sem orðið er. , íslendingar eru orðnir því van- ir, að síldveiðarnar gangi illa. Sannleikurinn mun að vísu sá, að allir eru vongóðir j og sjá fram á mikinn gróða ! fyrir norðan — áður en lagt er út í ævintýrið. En þeir j eru alltaf í miklum meiri- hluta, sem snúa heim von- sviknir og félausir að kalla. ^ Örfáir eru heppnir og fá mikinn afla, en allur hávaði j síldveiðiskipanna er rekinn með stórkostlegu tapi, svo ^ að aðrir en þeir, sem í út- ' gerðinni standa, fá með engu 1 móti skilið, hvernig hægt er ! að leggja í síldarævintýri ár eftir ár. Það getur vitanlega verið erfitt að gefa útvegsmönnum heil- T ræði um það, hvernig þeir 1 geti notað báta sína betur 1 en fyrir norðan — ef vel 1 gengur. En meðan við vitum ekki meira um göngur síld- ; arinnar en raun ber vitni, i hljóta menn að leggja út í algera óvissu í uppahfi ] hverrar síldarvertíðar. Það er hinsvegar von manna, að með tíð og tíma og einkum aukinni reynslu vísinda- manna okkar, takist okkur að afla svo mikillar þekk- ingar á hegðun síldarinnar, að segja megi fyrir með vissu, hvort rétt sé að gera út á síld eða ekki. Því hefir oft verið haldið fram hér í blaðinu, að við eigum ekki að peðra það við nögl, sem við verjum til rann- sókna á fiskigengd. Engin þjóð hefir ríkari ástæðu til að kynna sér göngur nytja- fiska en einmitt íslending- ar, sem geta ekki lifað í landi sínu, ef þeir geta ekki dreg- ið fisk úr sjónum umhvefis það. Okkur er þess vegna sívaxandi nauðsyn að eign- ast sem flesta og bezta vís- indamenn á þessu sviði og skapa þeim góð skilyrði til að vinna þjóðinni til gagns og sjálfum sér til ánægju. , / Þær raddir heyrast æ oftar frá þeim, sem sjóinn stunda, að ein af orsökum sildarleysis- ins eða lélegs afla sé notkun rafmagnstækja til að leita að síldinni og miða hana. Menn segja, að síldin sé svo næm, að hún flýi þegar hún verði fyrir raföldunum. Þetta kann vel að vera, og veit það þó enginn. En þarna er tví- mælalaust verkefni, sem vert er að athuga, svo að gengið verði úr skugga um það, hvort af aukinni tækni leiði beinlínis, að afli verði minni en ella. í þessum málum er ekkert atriði svo smávægi- legt, að menn eigi að telja sig yfir það. hafna að kanna það í alvöru. Verjandi á í vök að verjast. Powers-málið er ekki til lykta leitt í Moskvu, þegar þetta } er ritað, en a. m. k. eitt mjög ) eftirtektarvert atriði hefir » komið í ljós. Það er, að verj- 1 andi hins ákærða lagði eng- í ar spurningar fyrir vitni i þau, sem leidd vóru gegn j skjólstæðingi hans. Þetta \ atriði hlýtur hvarvetna að Í vekja mikla athygli, þar sem J menn njóta þess réttarör- ! yggis, sem venja er að setja } í samband við vestrænt lýð- ! ræði og mannréttindi. Það vekur nefnilega til umhugs- ^ unar um hlutverk verjanda ) í einræðis- og lögregluríkj- um. yerjandinn er nefnilega eins- t konar aðstoðarsækjandi í þessum fullkomnu lýðræðis- ríkjurn. Hlutverk hans er að benda hinum ákærða á, að hann skuli bara játa allt og biðja síðan um náð og mis- kunn dómaranna — eins og Powers var kennt að gera. hlutverk verjandans er alls ekki að reyna að flækja vitni saksóknarans, því að um leið gengi hann í berlíögg við hagsmuni ríkisins, sem hann verður að þjóna í einu og öllu. Hann má ekki reyna að bera brigður á það, sem ríkið leggur fram, og heldur aðeins að sér höndum, eins og verjandi Powers gerði. Þetta er gott dæmi um það, hverskonar sjónarspil hefir verið sett á svið þar fyrir austan. Það á ekkert skylt við réttarhöld af því tagi, KIRKJA DG TRÚMÁL: Hirðisbréf. Líklegt þykir mér, að útkoma ' hirðisbréf biskupsins verði merkasti bókmenntaviðburður ársins. Biskupinn er sem kunnugt er mikilvirkur rithöfundur og hef- ur orðið mjög vinsæll meðal þjóðarinnar af bókum sínum. Því hefur það ávallt vakið nokkra athygli, þegar ný bók hefur komið frá hans hendi, og rit hans hafa haft mikil áhrif meðal manna í öllum stéttum, þótt prédikun hans og útvarps- I er.indi hafi líklega enn sem kom I ið er náð til enn stærri hluta þjóðarinnar. Þannig hefur hann vakið og örvað í andlegum efn- um flestum öðrum fremur. Það fer því að líkum, að þeg- ar frá hendi þessa höfundar kemur slíkt rit, sem hirðisbréf biskups til kirkju sinnar, þá er því tekið opnum örmum og opn- um huga, því er fagnað, og það er lesið með eftirvæntingu. Sá ágæti háttur hefur nú ver- ið hafður á útgáfu bréfsins, að auk þess, sem biskup sendir það öllum þjónandi prestum lands- ins og sóknarnefndum^ hefur útgáfufyrirtækið haft bókina á boðstólum til sölu meðal al- mennings, svo að hún getur komizt í margra hendur, enda er það tilgangur hirðisbréfs. Það er bréf til sóknarpresta og safnaða, allra meðlima kirkj- unnar. Hirðisbréf biskups er allmik- il bók, 200 blaðsíður, og kemur víða við, ræðir fjölmörg vanda- mál kirkju og þjóðar auk þess sem það er trúarlega uppbyggi- legt og það mun margan vekja, ekki aðeins til umhugsunar um nútíð og-framtíð, heldur einnig til trúar og til löngunar til starfs, að taka þátt í þeirri upp- byggingu í k,irkj.unni, sem fram undan er. Það dylst engum að höfundur er vel lærður guðfræðingur og trúfræðingur, sem hefur óvenju mikið vald yfir vandamálum þeix-rar fi’æðigreinar. — Þetta kemur ekki fram í visindaleg- um blæ á vei’k.inu, því að mál og efnismeðferð er einfalt og alþýðlegt og aðlaðandi, það kemur fram í þeim tökum, sem hann hefur. Hann hefur auðsjá- anlega brotið málið svo ræki- lega til mergjar í langri kenn- aratíð í háskólanum, að verk- efnin leika í höndum hans. Sér- staklega er það áberandi í bi’éfi biskups, og ekki aðeins þegar hann ræðir guðfræðileg vanda- mál, heldur einnig þegar félags leg málefni kii’kjunnar og al- menn menníngarmál ber á góma, hversu víðáttumikið út- sýn hann hefur til allra átta, staðgóða og fjölþætta þekkingu og frjóa hugsun. Orðin viðsýni og frjálslyndi hafa svo lengi verið ofnotuð og misnotuð, að þau eru varla leng ur í réttu gild.i, en væru þau skilin í upphaflegri og eigin- legri merkingu, þætti mér þau hæfa um afstöðu biskups til sem venjulegir frjálsir menn eiga að venjast utan járntjaldsins. Réttvísin þar eystra er í ætt við leiktjöld Potemkins, sem fræg urðu. manna og málefna, um leið og hann gleymir ekki bróðurelsk- unni. Þetta þýðir auðvitað ekki neina afsláttarstefnu í guðfræði eða kii’kjulegri sýn né það held- ur að sniðgengin sé sú stað- reynd, að skoðanamunur er fyr- ir hendi. Bréfið er skxdfað af heilum huga og heitum, gagn- teknum af sonarást og þökk til móður kirkju, yljað af bróður- þeli til annarra ög annarlegra barna þeirrar sömu móður. Og énginn þarf að fara í grafgötur um sannfæringu biskups í þeim trúaratriðum, sem hann ræðir, eða afstöðu til þeirra verkefna, sem ýmist eru í framkvæmd eða í mótun eða bíða úrlausnar í framtíð, og sum hver krefjast lausnar fljótlega. Það er ljóst af hirðisbréfinu, að biskup vill, að þjóðin vakni til meðvitundai' um gildi lifandi, vakandi, starfandi kii’kju í þijóð- lífinu, og að framtíðar-heill þjóðai’innar er beinlínis undir því komin, að sem flestir ein- staklingar mótist og helgist í hugsun og athöfn af lífsmætti kristinnar trúar, svo að áhrifa kirkjulífsins mætti gæta inn á öll svið daglegs lífs, inn á heim ilin, félagslíf, afcvinnulíf, við- skiptalíf, stjórnmál, eða skóla- starf og uppeldismál, hvar sem að þeim er unnið, nærist af þeirri lindinni, sem tærust er og heilnæmust og auðugust af líf- gefandi næi’ingu, lind kristinn- ar trúar. Hvoi't kii’kjan gegnir í ríkum mæli hlutvei’ki sínu eða aðeins af veikum burðum til lítilla á- hrifa á þjóðin að mestu leyti undir sjálfri sér. Kirkjan verð- ur ekki stei’k og áhrifamikil stofnun í landi voru, nema fyr- ir mikið og ötult starf margra T.il þess þarf miklu meiri vinnu en svo, að hún vei’ði nokkru sinni leyst af hendi af presta- stéttinni einni saman, sem ekki telur einu sinni einn af þúsundi þjóðarinnar. Það verður fyrir ötullt starf leikmanna, sjálf- boðaliða fjölmennra, í sam- starfi við pi-estastétt, sem kirkj- an kemst til beirra áhr.ifa hjá hinu unga íslandi, æskunni, sem þjóðinni er brýn nauðsyn til að vera kristin þjóð í sterkri kii’kju. Enn hefur þjóð vor ver.ið svo lánsöm, að eignast mikilhæfan andlegan leiðtoga á biskupstól, og um hann vii’ðist ríkja óvenju mikil eining, ekki aðe.ins hjá prestastéttinni. heldur þjóðinni allri. Hii’ðisbréf hans þurfa menn að lesa, allir sem vilja að kirkjunnar njóti meira í framtíð en nú er. Einn pi’estur í fjölmennum söfnuði lét þess getið við mig í samtali í gær, að hann hefði hugsað sér að stofna til les- hringa í söfnuði sínum til þess að menn ættu kost á að lesa sam an hirðisbréf biskups og ræða saman hin ýmsu atriði þess, bæði til trúai’legrar uppbygg- ingar og til öi’vunar í safnaðar- starfi. — Þessari hugmvnd kem ég hér með áleiðis, ekki aðeins til sóknarm-estanna, heldur einnig til almennings, félags- Frarah. á 5. síSu. „Sunnlendingur“ hefur ósk- að birtingar á eftirfarandi: Félagsheiinili og ómenning. „Eg kom fyrir skömmu í mína gömlu sveit hér sunnan- lands, þar sem fyrir fáum árum var reist veglegt félagsheimili. Fór ég þangað með gömlum vini úr sveitinni, en hann er þar einn fori’áðamanna, og sýndi hann mér húsið hátt og lágt. Þótti mér mikið til þess koma og einnig að heyra um einhug fólksins í sveitinni, sem lagði fram mikið fé og vinnu til að koma því upp, skaut saman rausnarlega í húsbúnað o. f 1., því að mikið meira þurfti til en það fé, sem lagt er til af því op- inbei’a. í þessu félagsheimili eru m. a. h.in ágætustu skilyrði til sýninga á sjónleikjum. En svo spurði ég vin minn hvernig gengi, að bægja ómenningunni frá þessum stað, og átti auðvit- að v.ið hvernig gengi að halda þar uppi reglu, því að vel var mér kunnugt, að það er mikið vandamál, þegar skemmtanir eru haldnar í félagsheimilum, að koma í veg fyrir drykkju- skap og óreglu. ,Það hefur gengið betur hjá okkur —“ Svarið var á þessa leið: ,,Það hefur gengið fremur vel hjá okkur, að halda uppi í’eglu — áre.iðanlega miklu betur en víða annai’s staðar, því að við tókum þetta föstum tökum í byrjun. Þess vegna leita óreglumennirn- ir yfii’leitt annað, þótt þeir slæðist hingað líka. Ef skemmt- anir eru haldnar eru jafnan fjórir menn valdir t.il þess að hafa gætur á öllu, jafnaðarlega sömu mennirnir. Komi það fyr- ir, að innansveitarmaður gerist ölvaður, hefur ávallt dugað að fá hann burt með góðu, og kunningjar slíkra manna þá hjálplegir. svo að engin vand- ræði hljótast af, enda ávallt reynt í tæka tíð að hafa áhrif á menn með góðu. Verri viðfangs er ói’eglufólk úr kaupstöðum, slarkarar og hávaðamenn, en þeir hafa yfirleitt vanizt alveg af að koma hingað. Við þá er oftast ekkert annað að gera eri að loka þá inni, og komið hefur fyr.ir, að við höfum orðið að setja þá í járn. Ekkert annað hægt. En slíkt heyrir til undan- tekninga. Við erum staðráðnir í, að staðurinn fái ekki óorð á sig.“ Þyrfti svo víðar að vera. Eg segi frá þessu hér, vegna þess að ég lít svo á, vegna á- standsins í land.i hér á þessurn seinustu tímum, að málin verði að taka þessum tökum í öllum félagsheimilum landsins, svo að göfugum tilgangi með stofnun þeirra vei’ði náð. Og vafalaust ætti að vera hægt, að bæta á- standið að stórum mun hvar- vetna á skemmtistöðum úti á landsbyggðinni, ef vilji er fyrir hendi og gott samstarf. Á þeim stað, sem ég heimsótti, virðist mér réttur andi ríkjandi og ein- beittur vilji — og það er það sem þarf. — Sunnlendingur.“ í Bergmáli s.l. föstudag voru þessar prentvillur, sem leiðrétta þarf: En svo eru til ölf, les: svo eru til ill öfl. Ennfremur: orustan á æðri stöðum, lesforustan. Enn- fremur: betur sett, ef áfengis- talan, les: áfengissalan.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.