Vísir - 11.11.1960, Blaðsíða 4
r osiuaaginn 11. noveinutsr ívov.
▼ ■» 0 1 »
^ ^ Í
Utgerð og aflabrögð sunnan- og
suðvestanlands í sept. og okt.
j%fli r«r víðust misjafn a
þcssu tímahili.
Eftirfarandi yfirlit um út-
gerð og aflabrögð birti Ægir
nýlega. S
Hornafjörður.
Þaðan hófu 5 bátar róðra
með línu í byrjun október; var
afli sæmilegur, eða 5—7 lestir
í róðri, en mikill hluti hans
var ýsa. Þá hefir 1 bátur
stúndað dragnótaveiði, og
nokkrir bátar frá Austfjörðum
hafa lagt upp afla sinn á
Hornafirði, er þeir hafa stund-
að veiðar þar nærri.
Unnið er nú við að dýpka
og lagfæra höfnina á Horna-
firði.
Vestmannaeyjar.
Þaðan stunduðu um 20 bát-
ar dragnótaveiðar í september;
afli var fremur rýr enda veðr-
átta óhagstæð fyrir dragnóta-
veiðar. í október var aflinn
betri hjá dragnótabátunum,
og fengu sumir þeirra 16—18
lestir á sólarhring, en aflinn
var aðallega þorskur.
Síldveiðar með herpinót hóf-
ust um 20. okt. hjá 3 bátum
en afli hefir ekki verið telj-
andi, enn sem komið er, samt
er talið vei-ulegt magn síldar
við Vestmannaeyjar og eru
um 10 bátar með herpinót og
15 bátar með reknet, tilbúnir
að hefja veiðar. Nokkrir trillu-
bátar (7—8) hafa stundað
handfæraveiðar,. en afli hefir
verið mjög rýr allt niður í 1—
200 kg í róðri. Þá hefir 1 bátur
stundað línuveiðar; hefir afii
hans verið frá 4—7 lestir í
róðri.
Þorlákshöfn.
Þaðan reiá 1 bátur með línu
í september. Gæítir voru frem-
ur stirðar og afli i'ýr. f októ-
ber hafa tveir bátar stundað
linuveiðar, hefir afli farið vax-
andi síðari hluta mánaðarins
cg orðið 5—6 lestir í róðri,
mest ýsu.
Círindavík.
Þaðan hófu 5 bátar rek-
■nétjaveiðar um miðjan októ-
ber, hefir afli þeirra yfirleitt
verið mjög lítill, það sem af
er eða frá 4—123 tunnur í
Jögn. Tveir bátar hafa byrjað
síldveiðar með herpinót, en
afli þeirra er ennþá mjög lítill.
Sandgerði.
Þaðan reru 2 bátar með línu
í september; aflinn var frem-
ur rýr. í byrjun október hófu
nokkrir bátar síldveiðar bæði
með reknetjum og herpinót, en
afli var mjög lítill í reknet
fram eftir mánuðinum en hefir’
heldur aukfzt; mestur afli í
lögn í reknetin varð um 90
lunnur. Afli herpinótabátanna
hefir verið misjafn. Mestan
afla í veiðiför fékk Víðir II,
26. okt., um 850 tunnur. Síldin
hefur ýmist verið fryst eða
seld til útflutnings í skip, sem
sigla með hana kælda á Þýzka
Jandsmarkað.
Keflavík.
Þaðan hafa 10—12 bátar
stundað dragnótaveiðar í sept-
ember, var afli þeirra yfirleitt
allgóður en mikill hluti var
þorskur. Hinsvegar hefir afl-
inn verið mjög rýr í október
en þó meira um skarkola; eru
margir bátanna þegar hættir
veiðum. Síldveiðar með herpi-
nót og reknetjum hófust i
byrjun október og hafa 5 bát-
ar hafið veiðar með herpinót,
en 11 bátar með reknet. Afli
hefir verið misjafn, en yfirleitt
rýr. Mestur afli í lögn í reknet
hefir verið 110 tunnur, en
mestur afli í veiðiför með
herpinót hefir verið um 240
tunnur. Nokkrir trillubátar
hafa stundað handfæraveiðar
og aflað sæmilega.
Vogar.
Þaðan hafa 2 bátar og 1 trilla
stundað þorskanetjaveiðar;
hefir afli verið mjög rýr, allt
að 1 lest í lögn. Einnig hafa
2 bátar stundað dragnótaveið-
ar á tímabilinu og aflað sæmi-
lega.
Hafnarfjörður.
Þaðan stunduðu 10 bátar
dragnótaveiði í september, afli
þeirra á því tímabili varð um
350 lestir, þar af um 100 lestir
af skarkola. f október minnk-
aði aflinn að mun og eru all-
flestir bátarnir hættir veiðum.
Aflinn í október var um 70 lest-
ir. Eftir miðjan október hófu
3 bátar síldveiðar með herpi-
nót og 4 bátar með reknetjum.
Afli reknetjabátanna hefir
verið mjög lítill ennþá. Afli
herpinótabátanna hefir verið
mjög litill ennþá. Afli herpi-
nótabátanna hefir verið mis-
jafn, en mestan afla í veiðiför
fékk m.s. Eldborg um 700
tunnur þann 26. okt. var það
fremur smá síld. Síldin hefir
öll verið fryst til beitu.
Reykjavík.
Þaðan hafa um 20 bátar
stundað dragnótaveiðar í sept-
embei'mánuði; yfirleitt var afli
þeirra góður, en þó mjög
minnkandi og hættu þá marg-
ir bátar veiðum og hófu hand-
færaveiðar; var aflinn sæmi-
legur. Þá hófu 5 bátar veiðar
með þorskanetjum, en þar sem
veiði var svo til engin hættu
þeir fljótlega. Þá hafa 3 bátar
hafið reknetjaveiðar, en afli
þeirra hefir tii þessa verið
mjög lítill. Einn bátur m.s.
Guðmundur Þórðarson hefir
stundað sildveiði með herpinót
frá októberbyrjun; hefir hann
aflað um 3000 tunnur í mán-
uðinum.
Akranes.
Þaðan hófu 4 bátar veiðar
með linu og 1 bátur með netj-
um i september; var afli linu-
bátanna frá 4—7 lestir í róðri,
en netjabáturinn fékk 60 lest-
ir í 19 róðrum. Þá hafa einnig
nokkrir trillubátar stundað
handfæraveiðar í september
og október; hefir afli þeirra
verið misjafn eða frá 1—3 lest-
ir í róðri. í byrjun október
hófu nokkrir bátar síldveiðar
bæði með herpinót og rek-
netjum; hefir afli yfirleitt ver-
ið fremur rýr, en þó misjafn.
Mestur afli hjá herpinótabát-
um var um 660 tunnur í veiði-
för, en um 100 tunnur hjá rek-
netjabátunum. Nú stunda 9
bátar herpinótaveiði en i 1 bát-
ar reknetjaveiði.
Rif.
Þaðan hafa tveir bátar róið
með línu, en 1 bátur hefir
stundað dragnótaveiðar; þá
hafa einnig 3—6 trillubátar
stundað handfæraveiðar; afli
hefir yfirleitt verið fremur rýr.
Ólafsvík.
Þaðan stunduðu 6 bátar
dragnótaveiðar í september;
var afli þeirra fremur rýr og
fór mjög minnkandi í október,
svo að þeir hættu veiðum. í
október byrjuðu 11 bátar veið-
ar með línu; hafa þeir fengið
að jafnaði 4—6 lestir í róðri.
Tveir bátar, þeir Jón Jónsson
og Steinunn, byrjuðu síldveið-
ar með hringnót og hefir afli
þeirra verið fremur lítill, en
farið ygxandi síðustu daga.
Gæftir voru ágætar. Nokkrir
bátar frá verstöðum við Faxa-
fóla hafa stundað síldveiðar
með hríngnót út af Öndverðar-
nesi; hefir afli þeirra verið
misjafn, en yfirleitt fremur
treg veiði. Síldin hefir verið
fryst til beitu en sumt af henni
sent á Þýzkalandsmarkað, hafa
þrjú skip siglt með fullermi af
klædri síld þangað.
Grundarfjörður.
Þaðan hafa 4—6 trillur
stundað handfæraveiðar; hefir
afli þeirra oft verið sæmilegur
og stundum góður, eða frá 1—
3 lestir í róðri.
Stykkishólmur.
Þaðan hafa 2 bátar stundað
dragnótaveiðar og hafa aflað
frá 3—9 lestir í veiðiför, sem
er um 2 sólarhringar, Einn
bótur hóf lúðuveiðar en aflaði
mjög lítið; stundað síðan línu-
veiðar og aflaði 3—5 lestir í
lögn.. Nokkrir trillubátar
(3—8) stunduðu handfæra-
veiðar, og hafa aflað frá 1—4
lestir í róði'i. Gætir hafa verið
injög góðar.
Yfir 100 manns
drukknuðu.
Þetta haust er liaust mikilla
flóða í ýmsum löndum, í Pó-
dalnum á Ítalíu, á Bretlandi
sunnan- og suðvestanverðú og
í Nicaragua.
Minnst hefur verið um flóð-
in þar rætt í fréttum, en þó
durkknuðu yfir 10 manns þar
í flóðum í Chinandega-héraði.
Luis Someza forseti flaug
yfir flóðasvæðið í athugana
skyni óg eftir það var hert á
hjálparráðstöfunum. — Rauði
krossinn hefur sent þangað
hjálparlið og birgðir.
Matthías Jochumsson
— 125 ára minning-
í dag eru liðin 125 ár Jrá
fæðingu Matthíasar Jochums-
sonar, skálds. Og um þessar
mundir eru 40 ár frá dánar-
dægri hans. Hann fæddist að
Skógum í Þorskafirði 11. nóv-
ember 1835. Saga hans er al-
þjóð kunn. Þó nokkuð hafi
verið ritað um Matthías, —
fyrr og síðar, — er það þó
minna en búast. mætti við um
þvílíkan mann. Það var því
mikill fengur íslenzkum bók-
menntum er þjóðskáldið Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi
skrifaði snjalla lýsingu á
manninum og skáldinu Matthí-
asi Jochumssyni, og styðst þar
við persónuleg kynni sín af því.
Birtizt sú ritgerð í lítilli bók,
fyrir jólin í fyrra; og er titill
hennar: Tvær greinar eftir
Davíð Stefánsson. Því miður
var sú bók prentuð og útgefin
í fáum eintökum og ekki til
sölu, en vonandi að hún verði
gefin út fyrir almenning fyrr
enn síðar.
Eg vona að Davíð Stefáns-
son, vegna kunningsskapar
okkar, fyrirgefi mér, þótt ég
bregði hér upp mynd af lýs-
ingu hans á Matthíasi. Það er
á mína ábyrgð en ekki blaðs-
ins. Á einum stað segir Davíð
svo, orðrétt: „Matthías var
stálminnugur, ótæmandi
fræðasjór. Þar gekk saga kyn-
slóðanna í bylgjum, og er hann
hóf máls mátti heyra brimgný
aldanna í rödd hans. Það var
engu líkara en hann hefði ver-
ið samtíðarmaður allra stór-
menna, bróðir þeirra í gleoi
og' sorg, lífi og dauða. Og ekki
tók hann síður þátt í kjörum
hinna, sem minni máttar voru.
Ef hann vissi menn harmi
lostna, gekk hann óboðinn inn.
Að komu hans var ölknn
huggun og sálubót. En þó að
fortíðin væri honum bæði
kunn og kær, var hann uirr-
fram allt spámaður og hróp-
andi ókominna alda, fegurri
framtíðar.“
En niðurlag ritgerðar Davíðs
um Matthías endar þannig.
„Vonandi verða komandi kyn-
Matthías Jochumsson.
slóðir svo vitrar og gæfusamar
að geta notið ljóða hans og um
leið metið að verðleikum skáld
hinna háu tóna.“ Undir þessi
orð Davíðs skálds frá Fagra-
skógi ætti öllum hugsandi
mönnum að vera ljúft að
skrifa.
Eg minnist þess frá sl. sumri
er ég kom í Sigurhæðir, hús
Matthíasar á Akureyri, hve ég
varð snortinn, líkt og í helgi-
dómi, og var þó húsið autt. En
yfir þvi hvíldi tignarleg ró
sem aðeins einstaka húsi
hlotnast.
„Hver einn bær á sína sögu,
Sigurljóð og raunabögu“.
Fátt eitt er hér sagt er ég
hefði viljað. Veldur því fleira
en eitt. Að lokum þetta: Matt-
hías Jochumsson orti sem
kunnugt er tveggja alda minn-
ingarljóð um Hallgi'ím Péturs-
son, þar segir m. a.:
Niðjar fslands munu minnast
þín,
meðan sól á kaldan jökul skín.
Þetta vildi ég mega heim-
fara upp á Matthías sjálfan.
Rvk. 11. nóvember 1960.
Stefán Rafn.
Bandaríkjastjórn hefir fall-
izt á, að veita stjórninni í
Kambodíu aukna hernaðar-1
aðstoð.
Nýlega rættist draumur Mira Slovaks, 29 ára gamals flóttamanns
frá Tékkóslóvakíu. Draumurinn var að fá að taka í höndina á
Eisenhower forseta. — Draumurinn rættist þannig, að Mira vann
forsetabikarinn í kappsiglingu lítilla hraðbáta. Eisénhower af-
henti bikarinn sjálfur. — Slovak flúði ásamt félaga sínum í-
flutningaflugvél og var veitt hæli sem pólítískur flóttamaður
i Bandaríkjunum.