Vísir - 09.03.1961, Qupperneq 1
q
k\
I
V
II. árg.
Fimmtudaginn 9. marz 1961
56. tbl.
Norræn samkeppni um
skipulagsmál hérlendis.
35O þi'isuntl hróna verð-
tíiun veröa veitt.
íslendingar hafa nú í fyrsta
skipti farið inn á þá braut að
efna til iiorrænnar samkeppni
uim skipulagsmál,
Það sem hér er um að ræða
er hugmyndasamkeppni sem
bæjarstjórn Reykjav. og skipu-
lágsnefnd ríkisins efna til um
þessar mundir varðaridi skipu-
lagi í Fossvogsdal og Öskjuhlíð.
Þessi hugmyndasamkeppni
nær, eins og að framan segir,
ekki aðeins til íslendinga einna,
heldur hefur hún verið boðin
út og auglýst í öllum hinna
Norðurlandanna. Meðal annars
hefur Arkitektasambandinu á
Norðurlöndum verið boðið þátt
taka í samkeppninni, en annars
er hún heimil hvaða borgara
sem er og hvaða atvinnu sem
hann stundar hvar sem er á
Norðurlöndum. Að sjálfsögðu
hafa arkitektar, skipulagsfræð-
ingar og aðrir þeir, sem að slik
um málum vinna betri aðstöðu
til þáttttöku en annað fólk.
Sér stök dómnefnd fjallar
um verkefnin, en hana skipa:
Fyrir hönd Reykjavíkurbæjar:
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
og Peter Bredsdorf prófesáor i
Danmörku, fyrir Norræna arki
tektasambandið próf. C. F.
Ahlberg ai'kitekt frá Sviþjóð,
fyrir skipulagsnefnd ríkisins
Frh. á 2. síðu.
Alþjóðadómstóllinn ruddi
brautina fyrir Islendinga.
ttóni sna ála rá ð/ierru svar-
ar s tjórn a ra n ttsiieó in e/ n tn .
Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra kyaddi sér hljóðs á
fundi Sameinaðs Alþingis í nótt til að svara nokkrum atriðum í
ræíTum stjórnarandstæðinga.
Ráðherrann mótmælti bví fyrst að það geti talist nokkuð
réttindaafsal, þegar lieitið er að leggja ágreiningsmái undir
úrskurð Alþjóðadómstóisins. Þeir sem þetta segja taka fram um
leið að Alþjóðadómstóilinn sé ihaldssamur, á eftir tímanum og
að stórveldin ráði þar langmestu. Þetta er helber fjarstæða,
sagði ráðherrann. Hvaða stofnun var það sem varð bess vald-
andi að mjög breyttust viðhorf í landhelgismálunum og kom
af stað þýðingarmestu breytingu sem gerðar hafa vcrið á ís-
lenzkri iandhelgi?
Var nærri 67 daga í kafi.
Patrick Henry setti nýtt met
I neðansjávarsiglingum.
Kjarnorkukafbáturinn PAT-
MCK HENRY, sem nú Iiggur
við hliðina á Proteusi á Helgu-
vík, Skotlandi, setti nýtt met í
siglingu neðansjávar í seinasta
leiðangri sínmn.
Hann var 66 daga og 22
klukkustundir í kafi án þess
nokkru sinni að koma upp á
yfirborð sjávár.
I viðtali sagði skipherra,
að ekki stafaði hiu minnsta
hætta af Polarisaflauga-
birgðum kafbátsins (16) né
kjarnorkuvopnabirða ■ Prot-
eusi. Öryggisráðstafanir og
allt kerfið væri svo öruggt,
að ekkert þyrfti að óttast.
Hann lagði áherzlu á, að hér
væri um varnarvopn að
ræða. ,
Þegar hann var spurður um
áhrifin af svo langri dvöl í kaf-
bát sem þessari seinustu, sagði
hann að allir bátverjar væru
sjálfboðaliðar og slíku vanir.
Þeir hefðu nóg fyrir stafni við
ágæt skilyrði hverja stund, við
störf, nám og dægradvalir. Blað
er gefið út í kafbátnum. Er
skipherra var spurður hvort
hefði verið gott að koma upp á
yfirborðið í Clydeósuin og fá
frískt loft, svaraði hann því
játandi, en þeir hefðu annars
alltaf jafn frískt loft niðri í kaf-
Það voru ekki samningar né
fordæmi annarra ríkja heldur
sú stofnun, sem stjórnarand-
stasðingar reyna nú að gera tor
tryggilegasta, Alþjóðadómstóll-
inn. Hann hafði forystuna,
skapaði fordæmið, sem genði
okkur kleift að loka fjörðum og
flóum fyrir ágangi erlendra
togara 1952.
Dómurinn ruddi þá braut og
skapaði þá reglu, að þegar eng-
ar reglur eru til þá skuli gilda.
lífshagsmunir fólksins.
Það var Alþjóðadómstóllinn.
sem setti fram í skýru máli þær
röksemdir, sem við byggðum á
útfærslu okkar 1952
Þess vegna er það hrein fjar-
stæða þegar sagt er að Alþjóða-
dómstóllinn sé 20—30 árum á
eftir tímanum. Hann vann ó-
metanlegt brautryðjendastarf.
Það kann að verða langt
þangað til þjóðirnar koma sér
saman um lög og reglur varð-
andi landhelgirnar. Það er því
mikilsvert fyrir okkur að hafa
fengið Breta til að fallast á að
beita ekki vopnavaldi, en í stað
þess, flytja mál sitt fyrir þeim
dómstól, sem er brautryðjandi
í þessum málum.
Eg segi hiklaust: Þetta er
mesti sigur sem íslendingar
hafa unnið í landhelgismálum,
fyrr og síðar.
Það er mjög ósæmilegur mál-
flutningur ýmissa stjórnarand-
stæðinga t. d. Hermanns Jónas-
sonar að útfærslan 1958 hafi
verið ólögleg. Hermann var þó
á annarri skoðun fyrir nokkr-
um dögum. Og þetta meira en
margt annað getur spillt fyrir
okkur gagnvart. Alþjóðadóm-
stólnum. Við skulum vona að
dómendurnir í Alþjóðadóm-
stólnum taki ekki meira mark
á þessum mönnum en almenn-
ingur á íslandi.
Er það ekki þessi skinhelgi,
þessi ofbeldisandi, sem er næst
um búinn að varpa mannkyn-
inu út í nýja heimsstyrjöld.
Hermann Jónason, sem nú
segir að við höfum verið búnir
að sigra Breta sagði síðast í sum
ar að við ættum að kalla á
bandaríska sjóliðið okkur til
verndar: það hefði verið að
Framh. á 4. síðu.
Rætt við Dags-
briín í gær.
Fundur var í fyrrad. haldinn
með stjórn Vinnuveitendasam-
bands Isl. og verkaniannafélag-
anna Dagsbrúnar og Hiifar, og
viðstaddir. voru fulltrúar verka
maiuiafél. á Siglufirði og Ak-
ureyri.
‘llillí
W onir um samkomulag
í Kongó eru brostnar.
Gizenga fer ekki til Madagascar.
Haitn segir svikara hafa stofnað tiS
fundarins þar.
Stjórnin í Leopoldville hefur
neitað að verða við tilmæl-
aian Sameinuðu þjóðanna um að
fá aftur yfirráð hafnanna í
Matadi og Banana, nema full-
iriægt sé skilyrðum þeim, sem
'feáu setti, m. a. að Daylal hverfi
frá Kongó að fullu.
' Stjómiu. tefur margendur-
tékið kröfvr ,jn, að honum
verði vikið frá og öðrum manni
falið að gegna embætti aðalfull-
trúa Dags Hammarskiiölds í
Kongó. Rétt áður en hafnað var
kröfunni um yfirráð á ný hafði
Dayal skrifað Kasavúbu forseta,
sem nú er á Madagasar, og
brýnt fyrir honum hver höfuð-
nauðsyn.S. þj. væri full yfirráð
hafrianna.
Talið er, að um 30 skip séu
væntanleg þangað á næstu vik-
um á vegum Sameinuðu þjóð-
anna.
Á fundi ráðstefnunnar á Ma-
dagascar flutti Tsjombe ræðu í
gær og krafðist þess, að Sam-
einuðu þjóðirnar færu burt með
allan herafla sinn frá Kongó.
í gær komu loftleiðis til
Leopolville fyrstu herflokk-
ar 600 manna varaliðs frá
Túnis. Gekk það árekstra-
laust og hafði í engu verið
ansað ‘ röfu leiðtogaima um
•Trc«á?i.-á'.'2. siðu
Tom Mboya sést hér flytja
ræðu, en flokkur hans vann
mikinn kosningasigur í Kenya
á dögurium.
Fundurinn var stuttur og
engar ákvarðanir teknar, enda
má segja að þar hafi aðeins far-
ið fram uridirbúningsviðræður.
Var og ekkert ákveðið með
næsta fund.
Vinnuveitendasambandið hef
ur fyrir nokkru sent hinum fé-
lögunum tillögur til breytinga
á fyrri samningum, og hafa þær
verið ræddar hvert ,sinn, sem
samið hefur verið undanfarin
ár. Miða tiUögur þessar að
bættri nýtingu hráefna, at-
vinnutækja og vinnuafls með
margvíslegri vinnuhagræðingu,
breytingu á launakerfum o. fl.,
sem skapáð gæti grundvöll
bættra lífskjara í framtíðinni.
Stuldur í lækna-
biðstofu.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
í gær var framinn þjófnaður
lir læknabiðstofu á Akureyri.
Hafði verið farið ofan í kven-
tösku í mannlausri biðstofunni
á meðan konan, eigandi tösk-
unnar, var hjá lækninum til
viðtals. Þegar konan kom fram
aftur varð hún þess vör að farið
hafði verið í töskuna á meðan
hún var fjarverandi, og tekið úr
Jienni veski með 500 krónum í
peningum.
Konan kærði stuldinn til lög-
reglunnar og litlu síðar hafði
lögreglan uppi á tveim unglings-
piltum, sem játuðu þjófnaðinn
á sig. Voru þeir búnir að eyða
nokkru af þýfinu þegar þeir-
náðust. Annar þessara :pilta hef-
ur áðúr.komizt í kast við iög-:
irégíuhá. C. v- : Öl r ? ' ■