Vísir


Vísir - 26.08.1961, Qupperneq 6

Vísir - 26.08.1961, Qupperneq 6
6 VISIK Laugardagur 26. ágúst 1961' / '-■ , §23***' "^Ei. liil* §§11 ? • JvAtfiVA'éM. Maudlin situr stundum fyrir ljósmynd af sjálfuni sér og hefur hana síðan til hliðsjónar við vinnuna. ÚTtíE^ANDh BIAÐAÚT6ÁEAN ’/ÍSIR Rltstjóror Hersteinn Pólston Gunnar G Schrara. Aðstoðar'-ltstlórí \xel rhorsteinsson. Fréttaitfóf ar: Sverrir Oórðarson. Porsteinn ó rhorarensen Ritstjórnarskrítstofuri Laugovegi 2? Auglýsingar og afgreiðsla: Ingólfsstrœtl 3. 4skríftorg|ald er krónur 30.00 ó mónuði - I lausasölu krónur 3.00 elnfakið Sfmi 11660 (5 llnur). — Félags- prentsmíwjar. h.f., Steindórsprent h.t„ Eddo n.t. VV, ■VA1 Hvar er atvinnuleysið? Ein af greinum þeim, sem birtust í Þjóðviljanum í fyrradag, hét „Árangur viSreisnarinnar: Samdráttur — atvinnuleysi.“ Er þetta langt viðtal við tvo af helztu forsprökkum kommúnista á Akureyri, og verður ekki annað sagt en að þeir tali eins og „góðum kom- múnistum“ sæmir, því að fæst ummæli þeirra eru í samræmi við sannleikann. Þjóðviljinn valdi eitthvert stærsta letur sitt til að greina frá þessum „árangri“, sem greinin fjallar um. Gallinn er bara sá, að hvergi á landinu hefir bólað á samdrætti, sem hefði í för með sér atvinnuleysi eða nein önnur vandræði. Þvert á móti, því að sannleikur- inn er sá, að sá staður mun ekki vera til á öllu landinu, þar sem ekki hefir gætt vinnufólkseklu að meira eða minna leyti, vantað hendur til að vinna við framleiðslu- störf af ýmsu tagi. Af þessu hefur leitt, að allir, sem hafa á annað borð haft áhuga fyrir að starfa, hafa haft nóg að gera, og Tíminn hefir til dæmis í sumar birt fregnir af því frá ýmsum stöðum, að þar hafi atvinnulíf verið blómlegra en oft áður. Þarf ekki að fara í neinar grafgötur um það, að það sannorða blað hefði ekki farið leynt með atvinnuleysi, ef þess hefði einhvers staðar orðið vart. Þess hefir heldur ekki orðið vart, að Þjóðviljinn segði frá atvinnuleysi úti um landið eða hér á þessu sumri, sem nú er langt á liðið. Þetta gleðilega atvinnuástand verða menn að skoða í ljósi þeirra spádóma, sem lesa mátti í blöðum stjórn- arandstöðunnar í fyrra, þegar verið var að hrinda af stokkunum tillögum stjórnarinnar til viðreisnar atvinnu- vegunum. Spádómar um atvinnuleysi og vandræði voru þá daglega texti rauða blaðanna, en sú varð raunin, að ekkert hefir farið eins og þeir spáðu. Og það var meðal annars af þeim sökum, að kommúnistar og fylgifiskar beirra hrundu af stað verkföllunum síðasta vetur og vor. Heitasta óskin. Ekki leikur á tveim tungum, að kommúnistar óska þess heitt og innilega, að hér verði geigvænlegt at- vinnuleysi. Það mundu þeir nefnilega telja mikinn sigur fyrir sig og um leið ósigur fyrir ríkisstjórnina, sem þeir vilja allt illt og ekkert gott. Það er ótrúlegt en satt, að hér á landi eru tveir flokkar, sem óska nú eftir atvinnuleysi og erfiðleikum vinnandi fólks. Þessir flokkar eru kommúnistar og Framsóknarmenn. öskhyggja kom fram í greininni í Þjóðviljanum, sem getið er hér að ofan. Þar var rætt um þeirra hjartans mál — samdrátt og atvinnuleysi! Skopteiknarinn heitir Bill Maudlin. Yfirleitt er lítið af póli- tískum skopmyndum í ís- lenzkum dagblöðum. Og enginn íslenzkur teiknari hef ur svo vitað sé þjálfað sig í þeirri grein teiknilistar- innar. Tveir ágætir teiknar- ar, Tryggvi Magnússon, sem nú er látinn, og Halldór Pétursson hafa báðir verið aðalteiknarar Spegilsins, en aðeins haft það í aukavinnu. Erlendis gegnir hins veg- ar öðru máli. Þar er póli- tískum skopmyndum óspart beitt í sambandi við leiðara og pólitískar fréttir blað- anna. í Bandaríkjunum þykja pólitísku skopteikn- ararnir nauðsynlegir menn á hverju góðu blaði og þeir hafa margir hverjir meiri áhrif með myndum sínum en snjöllustu leiðarahöfund- ar. Einn þeirra er teiknarinn Bill Maudlin við St. Louis Eftir Maudlin með textanum: Er þér ekki sama þó ég borði meðan við tölum saman? M Post-Dispatch. Hann er að- eins 39 ára gamall, en þyk- ir bæði snjall teiknard og fyndinn. Hann er eilíflega gagnrýninn og er þá ósjald- an hárbeittur í hæðni sinni. Teikningar hans fylla marg- ar bækur og hann hefur fengið Pulitzer-verðlaunin í grein sinni. AUDLIN byrjaði snemma að teikna. — Þriggja ára gamall var hann í Mexico, þar sem faðir hans var að leita sér að atvinnu og teiknaði allt, sem fyrir augun bar. Eftir því sem hann stækkaði, þótti mörg- um sem hann væri undar- legur og næstum bjálfaleg- ur .í útliti. Höfuðið var ó- venjulega stórt á grann- vöxnum búknum. Maudlin heyrði eitt sinn nágranna sinn segja: Ef Bill væri son- ur minn, myndi ég drekkja honum. Þótt Maudlin sárn- | aði eðlilega þessi fruntalegu J ummæli, og gerði allt til að • hefna sín á þeim sem sagði J þau, lét hann samt engan | bilbug á sér finna og hélt j áfram að teikna í gríð og • erg. Loks hafnaði hann í «j listaskóla í Chicago og lærði «| pólitíska skopmyndagerð. — •' Um skólatímann vann hann fyrir sér með því að teikna ■ fyrir blöð og fyrirtæki. Og *\ um eitt skeið teiknaði hann pólitískar skopmyndir bæði m\ fyrir ríkisstjórann í Arizona l svo og heitasta andstæðing hans líka. Þegar upp komst um tvöfeldnina gekk Maud- I; lin í þjóðvarðarlið Arizona. I; En hann virtist ekki eiga •; heima í hermennsku. Hvern- ■; ig sem liðþjálfarnir lögðu •; sig fram gátu þeir ekki gert á; úr honum sæmilegan her- á; mann, svo að herstjómin tók á; það ráð að setja hann að I; herdeildarblaði og gera hann J teiknara þess. Þar undi hann } sér prýðilega og vann af } krafti. En svo nægðd honum J ekki að teikna um herbúða- J lífið og eftir að herdeild j! hans hafði verið flutt til j! Ítalíu tók hann að skapa jj! teiknimyndapersónur eftir j! eigin höfði og lét þær túlka j! það sem honum bjó í brjósti. ■! Maudlin varð brátt geysi- •! Frh. á 7. s. S!

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.