Vísir - 26.08.1961, Page 12

Vísir - 26.08.1961, Page 12
VISIE Nýr hvalbátur. ■m Laugardagur 26. ágúst 1961 Gangið ekki of iangt... Prentari einn í Washington hefir.verið handtekinn fyrir — seðlaprentun. Þegar lögreglan kom í heim- sókn til mannsins, hafði hann prentað 50,000 fimm dollara seðla, sem hann ætlaði að fara að dreifa til viðskiptavina. í gær kom til Hvalveiði- stöðvarinnar í Hvalfirði, nýr hvalveiðibátur, Hvalur 7, sem keyptur hefur verið til þess að . fylla upp í það skarð, sem kom í hvalveiðibátaflotann, er Hval ; II. var endanlega lagt upp. — i Hvalur 7 er „systurskip“ Hvals ; 6, hvað útlit og alla byggingu snertdr. Skipstjóri vei’ður Frið- bert E. Gíslason, og áhöfnin hin sama og hann var með á Hval 2, Hvalur 7 var byggður fyrir 16 árum. Loftur Bjarnason útgerðar- maður sagði í símtali ofan úr i hvalstöðinni í gærkvöldi, að i hann væri ánægður með bát- | inn. Aftur á móti hefur þessi , hvalveiðivertíð verið mjög treg, sagði Loftur, og er aðeins , búið að veiða 257 hvali. í gærkvöldi voru tveir bat,- ; anna á leið inn með f jóra hvali. Þar úti er norðaustan stormur, j sagði Loftur, og von er á bát- j unum í nótt. ÁRÁSIN Á FRETTAMANNINN: Piltarnir bandtekn!r 4 mín. síiar. Akureyri. — Ljóst virðist af þeini yfirheyrzluni scm fram hafa farið í dag við bæjarfógetaembættið, út af hinni hrottalegu árás á fréttamann Útvarpsins, Stefán Jónsson, að nm er að ræða hina grófustu líkamsárás á fréttámanninn. Yfirheyrslurnar hafa leitt i ljós að einn árásarmannanna hafi viljað fá Stefán Jónsson til þess að fara inn í sveit til að taka þar upp samtal við ein- hvern kunningja. Hafði Stefán eðlilega synjað þessari uppástungu, og vísaði manninum frá. En þessi mað- ur hafði farið þrívegis í veg fyrir Stefán og heimtað að hann færi með sér inn í Eyja- fjörð. Þetta gerðist við húsið Glerárgötu 14. Langlundargeð Stefáns var þrotið, er maðurinn kom vað- andi að honum í þriðja skipt- ið, því þá hafði Stefán stjakað manninum frá sér, enda var vissara fyrir Stefán að vera við öllu búinn, þar eð hann er með gerfifót. En þegar það gerðist renndi fólksbíll úr Kópavogi, sem veitt hafði Stefáni eftirför, Y-183, upp að gangstéttinni og úr bílnum ruddust 2 menn að Stefáni til viðbótar hinum tveim, sem þá börðu á honum. Veittust árásarmennirnir að Stefáni af þvílíkri illsku og miskunnarleysi, að þeir linntu ekki barsmíðunum fyrr en þeir höfðu slegið svo í andlit hans og höfuð, að hann féll aftur yfir sig inn í húsagarð. Lögreglan kom fljótlega á vettvang og henni tókst að hafa hendur í hári árásarmann anna svo sem 4 mín. síðar. Þeir reyndust vera drukknir piltar, tveir úr Eyjafirði og aðrir tveir úr Reykjavík, bræður. Stefán var fluttur í sjúkra- hús hér og var þar gert að meiðslum hans, 'en hann er nefbrotinn, marinn og bólginn. Hann fór til Reykjavíkur sið- degis í gær. Hann varðist frétta af árásinni, er blaðið átti tal við hann í gærkvöldi. Lögreglan á Akureyri færð- ist eindregið undan því í gær- kvöldi að gefa upp nöfn þess- Sex létust. ara manna og kvaðst ekki gera það fyrr en rannsókn væri lok- ið. — Enginn mannanna er i gæzluvarðhaldi. Bílstjórinn á Kópavogsbílnum hefur viður- kennt að hafa verið ölvaður við aksturinn. Flugmálastjóri Agnar Kofoed-Hansen fylgir for- seta til vígslu flugturnsins í gær. — Ljósm. Vísis I. M. Nýi flugturninn markar tímamót Frá vígslu hans í gær. Sex menn biðu bana í járn- brautarslysi skammt frá Sydn- ey í Ástralíu í lok sl. viku. Ók bifreið út á brautarteina, af því að láðst hafði að loka veginum, er lest nálgaðist. Með al þeirra, sem biðu bana í bíln- um, var fimm manna fjöl- skylda. Brautarvörðurinn, 18 ára unglingur, var handtekinn og sakaður um manndráp. Neyðarástandi vegna skógarelda. Neyðarástandi hefur verið Iýst yfir á Nýfundnalandi vegna skógareldahættunnar. Hættan hefur enn aukizt á Nýfundnalandi og víðar í Kanada. Hefur herlið víða vorið kvatt til starfa til þess að hjálpa eldavarnaliði og sjálfboðaliðum að hindra út breiðslu eldanna. Þegar eldur kom upp á tveimur nýjum stöðum var neyðarástandið fyrirskipað. Skógareldar geisa og valda áfram feikna tjóni í öðrum fylkjum, cinkum brezku Columbiu. Mikill mannfjöldi var sam- an kominn suður á Reykja- víkurflugvelli síðdegis í gær, er Ingólfur Jónsson flugmála- ráðherra vígði hinn nýja flug- turn Reykjavíkurflugvallar. — Meðal viðstaddra var forsetinn, borgarstjóri Reykjavíkur og þe.ir tveir menn, sem telja má sem brautryðjendur flugs á fs- landi, Halldór Jónasson frá Eiðum og próf. Alexander Jó- hannesson fyrrum háskóla- rektor. Mættir voru og fjöl- margir forustumenn flugmál- anna. Vígsluathöfnin fór fram á 4. hæð flugturnsins í væntanlegu fundaherbergi flugráðs. Flug- málastjóri bauð gesti vel- komna. Hátölurum hafði verið komið fyrir á göngum. Flug- málastjóri minntist tilefnisins, og þess um leið, að um þessar mundir væri þrefalt afmæli ís- lenzkra flugmála. Liðin væru 25 ar frá stofnun Flugmála- félagsins, Svifflugfélagsins, og 1936 var stofnað embætti flug- málaráðunauts ríkisstjórnar- innar. Næst tók Ingólfur Jónsson flugmálaráðherra til máls. — : Kom ráðherrann víða við í ræðu sinni, um flugmálin. Hann gat þess m.a. að heildar- útgjöld ríkissjóðs til flugmála væru nú orðin 70 milljónir króna, þar af hefðu 30 millj. kr. farið á síðastl. tveim árum. Og enn vantar víða flugvelli í sveitum landsins og byggðar- lögum, sagði ráðherrann. Hann vék að hinum erfiðu starfsskil- yrðum flugumferðarstjórnar- innar i hinum gamla flugturnd flugvallarins, og kvað starfs- fólkið hafa sýnt hinum miklu erfiðleikum einstakan velvilja, sem þakka bæri. Á vegum flugmálastjórnarinnar starfa nú 126 manns. Ráðherrann vék og að hinni miklu og öru þróun flugmál- anna, og bað menn hafa í huga, að fyrir tveim áratugum hafi flugvélaeign landsmanna ver- ið ein einasta flugvél. Hann minntist. og fór viðurkenning- arorðum um hina bjartsýnu brautryðjendur íslenzkra flug- mála og nefndi þá sérstaklega Halldór Jónasson frá Eiðum og próf. Alexander Jóhannesson fyrrum háskólarektor. Próf. Alexander fylgdi Halldóri til sætis, en Halldór hefur verið blindur um nokkurt árabil. Einnig kvaðst ráðherrann vilja nefna þá Björn Pálsson, Björn | Eiríksson og flugmálastjóra Agnar Kofoed-Hansen. Ráðherra minntist framlags Flugmálafélagsins og Svifflug- félagsins til flugmála vorra, og sagði frá hinum mikla vexti og viðgangi flugfélaganna beggja. Undir lok ræðu sinnar bar ráð- herra fram þakkir til hinna fjölmörgu manna, er að flug- málum störfuðu í dag, og bað þess að farsæld mætti fylgja þeim mönnum, er í framtíðinni störfuðu í flugturninum nýja. Flugmálastjóri lýsti þeim áfanga er nú væri náð að byggingu flugstöðvar fyrir Reykjavíkurflugvöll með flug- afgreiðslu fyrir flugfélögin o.fl. Sú bygging öll verður mikil og er flugturninn aðedns um einn sjötti hluti hennar. f flugturn- inum, sem byrjað var að byggja árið 1958, verður öll flugþjón- Frh. á 7. s. A- og NA- stinnings- kaldi en úr- komulaust að / mestu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.