Tölvumál - 01.07.1977, Blaðsíða 2

Tölvumál - 01.07.1977, Blaðsíða 2
2 TÖLVUMAL Því miður var félagsfundurinn með fámennara móti. Um 30 manns sátu hann. Glögglega kom fram í umræðum og fyrirspurnum í fundarlok, ánægja manna með erindi Jóhanns. I ljósi þess, hefur stjórn félagsins beðið Jóhann, að leyfa birtingu^erindisins 1 TÖLVUMÁLUM OG hefur hann góðfúslega orðið við því. Er birtingin áætluð í næsta tölublaði. FUNDUR MED ÁHUGAMÖNNUM UM ÓSLENZKT LETUR t TÖLVUM Hinn 15. júní 1977 boðaði stjórn Skýrslutæknifélagsins áhuga- menn um letur og lyklaborð saman til fundar í fundaherbergi SKÝRR. Ásamt formanni, dr. Oddi Benediktssyni, sátu eftirtaldir félagsmenn fundinn: Árni H. Bjarnason, Verzlunarbankanum Auðun Sæmundsson, SKÓRR Bjarni Grétar Ólafsson, Reiknistofu bankanna Frosti Bergsson, Kristján ö. Skagfjörð hf Jóhann Gunnarsson, IBM Jón R. Höskuldsson, Heimilistækjum hf Jón Þ. Viðarsson, Skýrsludeildinni Ottó A. Michelsen, IBM öttar Kjartansson, SK'fRR Sigurður Konráðsson, Skrifvéiinni hf Formaður setti fundinn, bauð menn velkomna og lýsti viðfangs- efninu, sem er samræming eða stöðlun á táknum yfir letur á "ölvumiðlum og lyklaborð. T upphafi tjáðu menn sig hver og einn um viðfangsefnið og skiptust á skoðunum. Rætt var um að skipa fámennan vinnuhóp eða kjarna, til að þoka pessum málum af stað. Frestað var'þó að svo stöddu, að ákveða menn í slíkan hóp. Hinsvegar var Bjarni Grétar ölafsson beðinn að draga saman upplýsingar á þessu sviði, til undirbúnings næsta fundi sem ákveðið var að halda í september n.k. Athygli er vakin á, að framangreindur hópur áhugamanna er ekki lokaður. Þeir félagar sem ganga vilja í hópinn og taka þátt í srörfum hans, eru beðnir að hafa samband við formann félagsins, dr. Odd Benediktsson, s. 2 259 9. eða Bjarna Grétar ólafsson hjá Reiknistofu bankanna. YFIRLIT UM RÁÐSTEFNUR OFL. Að þessu sinni birtun við hér í blaðinu yfirlit um ráðstefnur, fundi og námskeió á gagnavinnsiusviði sem áætluð eru á síðari hluta yfirsta'ndandi árs . Upplýsingar þessar eru birtar óbreyttar (og óþýddar) úr riti Edb-ráðsins í Danmörku, Edb-bulletin 2/77 . Við gerum ráð fyrir að félagsmönnum þyki fróðlegt að blaða gegn um þessar upplýsingar, og ef til vill gefst einhverjum tækifæri til að notafæra sér sumt af því sem þarna er kynnt.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.