Tölvumál - 01.11.1977, Qupperneq 1

Tölvumál - 01.11.1977, Qupperneq 1
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm. Oddur Benediktsson Grétar Snær Hjartarson 8.tbl. 2.árg. nóvember 1977 Öll réttindi áskilin FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur veröur í Norræna Húsinu þriöjudaginn 15. nóvember 1977 og hefst kl. 14.30. Á fundinum flytur prófessor Sture Allén erindi er nefnist Sprákforskaren och datamaskinen. Prófessor Sture Allén kemur hingaÖ á vegum Norræna Hússins og Skýrslutæknifélagsins sameiginlega. Hann er prófessor í máltölvun (spráklig databehandling) í Gautaborg og forstööumaöur máltölvunarstofnunarinnar (sprák- data) við Gautaborgarháskóla. Hann hefur unnið mikið starf á þessu sviði og þykir brautryðjandi þessara fræða á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað. Félagið mun að venju bjóða fundargestum til kaffidrykkju í kaffistofu Norræna Hússins, í fundarlok. Stj órnin OKTÖBERFUNDURINN Rúmlega 60 manns sóttu félagsfundinn um gagnasafnskerfi sem haldinn var í Norræna Húsinu þriðjudaginn 18. október síðastliðinn. Verkfall ríkisstarfsmanna varð til þess að fundarboðið, ásamt öðru efni TÖLVUMÁLA, 7. tbl. 2. árg., lokaðist inni hjá póstinum. Þegar sýnt var, að fundarboðið myndi ekki ná til félags- manna í tíma, var ákveðið að auglýsa fundinn í dagblöðum. Auk þess var reynt að láta boð um fundinn ganga milli manna símleiðis. Eftir atvikum má telja fundarsóknina góða. Hinsvegar má gera ráð fyrir, að fundarboðunin hafi farið framhjá ýmsum, sem gjarnan hefðu viljað koma á fundinn. Eru þeir,

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.