Tölvumál - 01.09.1979, Síða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag (slands
Pósthólf 681,121 Reykjavík
Höfundum efnis áskilin öll réttindi
'tnen . Kjartansson, ábm.
Grétar Snær Hjartarson
Sigurjón Pétursson
5. tölublað, 4. árgangur
September 1979
KYNNINGARFUNDUR
Skýrslutæknifélag íslands býður, í samvinnu viö Stjórn-
unarfélag íslands, til kynningarfundar í Norræna Húsinu
miðvikudaginn 19. september 1979 , kl. 14.
Á fundinum verður fjallað um þátt endurskoðenda í mati
á tölvukerfum og rekstri þeirra. M.a. verður kynntur
amerískur staðall, er nefnist SAS (System Auditing Standard).
Leiðbeinendur verða frá fyrirtækinu Alexander Grant &
Company í Bandarxkjunum, en það hefur, ásamt Endurskoðun
hf, notað þennan staðal við úttekt á tölvukerfum Flug-
leiða hf.
Kynningarfundinum hefur verið valið heitið:
Þarfnast tölvukerfi endurskoðunar?
Kynningunni er ætlað að glæða skilning þátttakenda á
mikilvægi þess, að stjórnendur láti reglulega fara fram
endurskoðun á eftirliti því, sem fyrirtæki þeirra hafa
með tölvukerfum sínum.
Til umræðu verður:
1 Áhrif tölvukerfis á bókhald fyrirtækis.
2 Að hverju er stefnt, með endurskoðun tölvukerfis?
3 Hver er ávinningur stjórnenda af slíkum endur-
skoðunum?
4 Hvernig er endurskoðun tölvukerfis almennt
hagað og hverjir eiga að framkvæma hana?
Á kynningunni verða pallborðsumræður. Meðal þátttakenda
í þeim verða forstöðumaður tölvudeildar Flugleiða og
forstöðumaður fjárreiðudeildar Flugleiða, sem báðir hafa
tekið þátt í endurskoðun tölvukerfa samkvæmt hinum amer-
íska staðli. Að lokum mun á kynningunni verða lýst náms-
stefnu, sem stendur til að halda um endurskoðun tölvukerfa.
Dagskrá kynningarfundarins verður þannig:
kl. 14 Fundarsetning. Dr. Jón Þór Þórhallsson.
14.15-15.30 Kynning á þætti endurskoðenda í mati
tölvukerfa: Kevin R. Batchelor og Mike
Hagler frá Alexander Grant & Company.