Tölvumál - 01.09.1979, Blaðsíða 3
tölVumál
3
heiðursfSlagi látinn
Hjörleifur Hjörleifsson, fyrrverandi fjármálastjóri
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, lést 20. apríl sl. tæplega
73 ára að aldri.
Hjörleifur var einn af frumkvöölum gagnavinnslumála
hérlendis. Hann átti stóran þátt í undirbúningi aö
stofnun Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurbæjar árið
1952, sat lengi í stjórn Skýrsluvéla og var stjórnar-
formaður 1971-1974.
Þá var hann aðalhvatamaður að stofnun Skýrslutæknifélags-
ins 1968 og formaður þess frá stofndegi til ársins 1975.
Árið 1975 var hann sæmdur Hinni íslensku Fálkaorðu,
fyrir störf í þágu gagnavinnslumála. Það mun vera fyrsta
orðuveiting hérlendis fyrir störf á þessum vettvangi
íslensks atvinnulífs.
Á tíu ára afmæli Skýrslutæknifélagsins, í mars 1978,
var Hjörleifur kjörinn heiðursfélagi, í virðingar- og
þakkarskyni fyrir störf að málefnum félagsins og að
þróun gagnavinnslumála á íslandi. - ók.
MAÍFUNDURINN
Um 100 manns sóttu félagsfund Skýrslutæknifélagsins 8.
maí sl. Á fundinum var tekið fyrir efnið "Opinber stefnu-
mótun á sviði tölvumála".
Sigurður Þórðarson, stjórnarformaður Skýrsluvéla ríkisins
og Reykjavíkurborgar, flutti á fundinum ýtarlegt yfir-
litserindi um gagnavinnslumál er hann nefndi "Upplýsinga-
miðlun og þróun tölvutækni". 1 erindinu fjallaði hann
m.a. um þróun tölvutækni fram á þennan dag og ræddi um
spár (erlendar) um þá þróun sem við megum vænta á næstu
árum.
Hann minntist í upphafi á hve upplýsingamiðlun er orðin
veigamikill þáttur og áhrifavaldur í stjórnun efnahags-,
félags- og menningarmála: "... segja má, að enginn einn
þáttur hafi haft eins mikil áhrif á allt þjóðlíf frá því
á dögum iðnbyltingarinnar (þ.e. á seinni hluta 18. aldar)."
Þá er, sagði Sigurður "staðhæft, að stjórnvöld án upplýsinga
séu nánast blind í allri sinni ákvarðanatöku".
Nokkur atriðisorð má nefna, sem gefa hugmynd um þau svið,
sem erindi Sigurðar spannaði: