Tölvumál - 01.12.1979, Qupperneq 3

Tölvumál - 01.12.1979, Qupperneq 3
'Tölvumál 3 VETTVANGSKYNNINGIN HJÁ MORGUNBLAÐINU Kynningarfundurinn, sem Skýrslutæknifélagið hélt í boði Morgunblíiðsins 20. nóvember sl. tokst ljómandi vel, að okkar dómi, og eigum við það fyrst og fremst að þakka góðum móttökum og prýðilegri leiðsögn af hálfu Morgun- blaðsmanr a. Morgunblaðið hefur lengi fylgt tækninýjungum fast^eftir, það hefui t.d. notfært sér gagnavinnsluvélar við áskrif- endaskráringu o.fl. í nærri tvo áratugi. Á prenttækni- sviðinu hefur þróunin verið hröð, sérstaklega nú síðustu árin. Blaðið "yfirgaf blýið" árið 1973 og tók þá í notkun tölvustýrðar 1jóssetningarvélar og innskriftarborð fyrir gataræmur. 1 dag er tæknin hinsvegar orðin sá, að blaða- maður getur frá ritstjórnarskrifstofunni skráð efni, sem hann semur, beint inn í gagnasafn tölvunnar um lyklaborð og skerm. Með þeirri tækni er hlaupið yfir mörg stig setningar (skráningar), prófarkalesturs og leiðréttinga. Þegar efnið er síðan tekið til birtingar er á augabragði hæ^t að breyta stærð og gerð leturs, dálkabreidd og öðru sliku, sem varðar umbrot. Fundurinn hófst á kaffistofu blaðsins, þar sem Örn Jóhanns- son sagði frá gagnavinnslu þess og lýsti tækniþróuninni. Síðan dreifðust menn um húsið og starfsmenn sýndu og út- skýrðu setningarkerfið og tölvubúnaðinn. 1 lokin voru svo bornar fram veitingar í kaffistofunni. Á meðan menn nutu kaffisopans svöruðu þeir örn og félagar spurningum fundarmanna. Á fundinum voru milli 50 og 60 manns. Skýrslutæknifélagið flytur Morgunblaðinu bestu þakkir fyrir þetta ágæta boð. NÝTT FYRIRSPURNAKERFI FYRIR SMÆRRI GERÐIR AF TÖLVUM Gefið hefur verið út á vegum Raunvísindastofnunar Háskólans rit er ber heitið "Pile Scanning Language for Information Retrieval". Höfundur ritsins er dr. Oddur Benediktsson. Hér er um að ræða lýsingu á fyrirspurnakerfi, sem fyrst og fremst er hannað með þarfir smærri bókasafna í huga til að velja út bókatitla eftir tilteknum reglum. Notkunarsvið kerfisins er þó víðtækara og möguleiki á að beita kerfinu á gagnasöfn af öðru tagi. Kerfið hefur verið útfært^á vélbúnað af gerðinni PDP/11 hjá Reikni- stofnun Háskólans. Ritið er á ensku, fjölritað og heft í kápu, um 30 bls. að stærð.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.