Vísir - 31.10.1961, Síða 2

Vísir - 31.10.1961, Síða 2
2 y ísir Þriðjudagur 31. október 1C31 Hér brosir maðurinn, „sem er mannsins bezti vin“, að dómi Jóhannesar úr Kötlum. En árin líða og dýrðlingar verða að glæpamönnum. Hér er Stalin staddur á samyrkjubúi og við hlið meistarans stendur lærisveinninn Krúsév. Siprður Björnsson söngvari heldur tónleika. Sigurður Björnsson söngvari heldur . tónleika með aðstoð Guðrúnar Kristinsdóttur píanó- leikara í Gamla bíó fimmtudag- inn n.k. kl. 7.15 síðdegis. Á söngskránni vetður fyrst og fremst ljóðaflokkurinn „An die ferne Geliebte“ eftir Beet- hoven, 3 lög eftir Schubert, aria eftir Pergolesi, arietta eftir Caldara, aríur úr óperunumDon Giovanni eftir Mozart og úr Eugen Onegin eftir Tchaikov- sky, og lög eftir Emil Thorodd- sen, Sigurð Þórðarson og Skúla Halldórsson. Eins og margir lesendur Vísis muna, birtist viðtal við Sigurð, þegar hann fór síðast utan, í febrúar sl., og var þar sagt nokkuð frá glæsilegum söng- ferli hans. Hann hefir stundað nám á fimmta ár í Munchen, að allega notið kennslu hins fræga söngvara Gerhard Husch, og þeir meira að s^gja stundum sungið saman. Sigurður hefur um nokkur ár hlotið þýzkan námsstyrk, sem einn efnileg- asti nemandi tónlistarháskólans í Múnchen, og enn mun hann halda þar áfram námi um hríð. Ham\ hefur dvalizt hér heima mánaðartíma og m. a. kennt söng á Akranesi og þjálfað kirkjukórinn þar, einnig sung- ið á kirkjutónleikum. Vafasamt er, að Sigurður geti endurtekið tónleika sína að þessu sinni, þar eð hann fer ut- an næstu daga. Ákveðið er að hann syngi í sjónvarpið í Júgó- slavíu á næstunni. Síðast kom Sigurður Björnsson. hann fram á tónlistarhátíðinni miklu í Hollandi, sem þar er haldin um miðsumar 1 öllum helztu borgum samtímis. Aðböngumiðaaala er hafin, og fást þeir í bókabúðum Lárus- ar Blöndals á Skólavörðustíg og Vesturveri, og hjá Sigfúsi Ey- mundsson í Austurstræti. John Kilpatrick, forseti sam taka iðnverkamanna In- dustrial Workers of Ame- rican) fannst skotinn til bana í bíl í Chicago á föstu- dag í fyrri viku. Líklegast er að hér sé um hefnd vina Angelo Inciso að ræða, en hann var fyrirennari hans og situr nú í fangelsi fyrir að stela úr sjóði samtak- anna, en Kilpatrick kom upp um hann. Þannig orti Jóhannes úr Kötlum um „son skóara'ns" í kvæðinu Dagskipun Stalíns, sem hér birtast nokkur erindi úr. Þá var Stalín ennþá hinn mikli leiðtogi og faðir sósíalismans. Hvernig skyldi Jóhannes yrkja um hann í dag? Um gullintypptar Kremlarhallir kvöidsins svali fer, og mansöng einn frá Grúsíu í mildum ómi ber. Og stjörnuaugu blika skært frá blárri himinsæng, — þar englabörnin leika sér og yppta hvítum væng. En inn um gluggann sérðu rólegt andlit vökumanns: þar situr Jósef Djúgasvili, sonur skóarans. IH — ArmaiHi 12-11 Miwk.nmótið í hamtknuttleik 3. fl. karla A KR — Þróttur 2—3. Mfl. karla Þróttur — Vík- ingur 9—16. Mfl. karla Ármann — ÍR 11—12. Mfl. karla KR — Valur 15—6. Og inn um gjuggann fölir geislar flögra og svífa í dans, og vefjast eins og heiðursmerki að vörmu brjósti hans. Og það er eina orðan þar — og enn mun svo um hríð: hans treyja er óbreytt eins og fjöklans alls, er heyr sitt stríð. Því þetta er fólksins hermaður, sem heldur þarna vörð um hugsjón hinna fátæku, um himin þeirra og jörð. ,/ En þessi hljóði skósmiðssonur þjáðrar jarðar tákn, sem vegur hér í lófa sínum voðans reginbákn, hann skelfist ekki eitt andartak — hann skilur sína öld: hann veit hún sigrar annað kvöld, ef ekki strax í kvöld. Hann veit, að það sem koma skal, það kemur, góðir menn, þótt öllum. heimsins morðingjum sé att gegn því i senn. Svona grimm er sagan þessum syni skóarans. — En enginn skal þó æðru sjá i yfirbragði hans: hann kiprar aðeins hvarmaná í kaklri ró þess stáls, sem leynir undir sléttum fleti lífi mikils báls. — Hér öskrar ekki loddari um ofurmannlegt kyn, — hér brosir aðeins maður, sem er mannsins bezti vin. Reykjavíkurmótinu í hand- knaaleik hélt áfram um helgina. Á laugardagvkvölditi ufðu úr- slit sem hér segir: 3 fl. karla B Ármann — Valur 8—5. 2. fl. kv. B Kr — Víkingur 1— 3. 2. fl. kv. C Fram — Ármann 2— 2 2. fl. kv. A Ármann — Fram 7—5. 2. fl. kv. A Valur — KR 1—3. 2. f!. kv. A Þróttur — Vík- ingur 2—14 s 2. fl, karla A Ármann — Þróttur 5—7. f gærkvöldi hélt svo mótinu j áfram og voru þá leiknir þrír I leikir í meistaraflokki karla og einn í 3. flokki. Leikirnir í meistaraflokki reyndust nokkuð cjafnir, eins og við var búizt, utan leikur Ármanns og ÍR. Eyrirfram var ÍR talið nokkuð öruggt með sigur, sérstaklega eftir útreið þá sem Ármann fékk hjá Fram um daginn, en þegar til kom máttu ÍR-ingar kallast heppnir að sleppa með sigur. Víkingur og KR sýndu yfirburði yfiy sína keppinauta. Úrslit urðu: -fc í sl. viku var framinn enn einn málverkaþjófnaðurinn. Stolið var tveimur frægum málverkum úr safni í Róma- borg. Annað var málað af Filippo de Pisis, hitt af Ottone Roasi. Skeytasendingar — Framh. af 1. síðu. sólgosa. Skeyti hlóðust upp í símskeytasendingunni hér í Landsímahúsinu og voru þau orðin sólarhrings gömul þegar þau komust ú leiðarenda, þegar verst var. Það var ekki fyrr en aðfaranótt sunnudagsins að hægt var að afgreiða öll sím- skeyti sem fyrir lágu. Landssím inn greip til þess ráðs, að setja aukavaktir til þess að flýta sím- skeytunum. Meðal símskeyta sem stór- töfðust voru fréttaskeyti héðan m. a. af Öskjugosinu, sem frétta ritarar erlendra fréttastofnana og blaða hér hafa sent mikið um undanfarna daga.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.