Tölvumál - 01.04.1983, Blaðsíða 3
3
ENDURSKOÐUN TÖLVUKERFA
Skýrslutæknifélag Islands og
Stjórnunarfélag Islands standa
sameiginlega fyrir námskeiði um
endurskoðun tölvukerfa og
verður það haldið í Armúla 36,
3. hæð, 6. maí nk. kl. 08:30
- 19:00.
Námskeið um sama efni var
haldið hér 1979 og 1981.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Kevin R.
Batchelor forstöðumaður áætlunardeildar Alexander
Grant & Co. í Bandaríkjunum.
1 upphafi námskeiðsins verður gerð grein fyrir ýmsum
grundvallarhugtökum á sviði tölvufræða og
endurskoðunar. Fjallað verður um áhrif tölvukerfis
á bókhald fyrirtækja, að hverju er stefnt með
endurskoðun tölvukerfa og hver sé ávinningur af
slíkri endurskoðun. Gerð verður grein fyrir hvernig
endurskoðun tölvukerfa er almennt hagað og hverjir
eigi að framkvæma hana. Þá verður farið yfir
raundæmi um endurskoðun tölvukerfis.
Námskeiðið er ætlað starfsmönnum tölvufyrirtækja og
tölvudeilda og ennfremur löggiltum endurskoðendum og
innri endurskoðendum.
Laugardaginn 7. maí mun hr. Batchelor vera
reiðubúinn að sitja fund með einstökum fyritækjum og
ræða þar sérmál og veita ráðgjöf. öskum um slíka
fundi þarf að koma til skrifstofu
Skýrslutæknifélagsins eða framkvæmdastjóra
Stjórnunarfélagsins.
Þátttaka tilkynnist til Skýrslutæknifélagsins í síma
82500 eða Stjórnunarfélagsins í síma 82930.